blaðið - 03.11.2005, Side 12
12 I INNLENDAR FRÉTTIR
FIMMTUDAGUR 3. NÓVEMBER 2005 blaAÍð
Lánsbrúðkaup:
Fiskveiðar:
Samkomu-
lag um kol-
munnaveiðar
1 strandríkjaviðræðum íslands,
Færeyja, Noregs og ESB í Kaup-
mannahöfn hefur náðst sam-
komulag í meginatriðum um
stjórn veiða úr kolmunnastofn-
inum á Norður-Atlantshafi. Enn
á eftir að ganga frá útfærsluat-
riðum sem ekki varða Island í
tvíhliðaviðræðum en stefnt er
að frágangi samkomulagsins
á ársfundi Norðaustur-Atlants-
hafs fiskveiðinefndarinnar sem
haldinn verður í Lundúnum
um miðjan nóvember. Sam-
komulagið gerir ráð fyrir að
heildarafla verði skipt með
þeim hætti að ESB fær 30,5%,
Færeyjar 26,12%, Noregur
25,74% og Island 17,63%. I til-
kynningu frá sjávarútvegsráðu-
neytinu kemur fram að með
samkomulaginu verði bundinn
endir á stjórnlausar veiðar und-
anfarinna ára sem ógnað hafa
viðgangi kolmunnastofnsins.
Brúðkaupsveislur á afborgunum
Verðandi brúðhjón geta nú tekið sérstök brúðkaupsveislulán
Danskir bankar bjóða nú ungum
verðandi brúðhjónum uppá lán til að
gera þeim kleift að halda brúðkaups-
veislu drauma sinna. Þetta kemur
fram í frétt danska blaðsins Jyllands-
Posten sem birt var í vikunni.
19 milijarðar á ári
I frétt blaðsins segir að á hverju ári
séu haldin um 38 þúsund brúðkaup
í Danmörku þar sem kostnaður
nemi allt að 50 þúsund dönskum
krónum eða um 500 þúsund íslensk-
um. í heild eru því Danir að eyða
um 19 milljörðum á ári í brúðkaups-
veislur. Það er því eftir töluverðum
fjármunum að slægjast fyrir danska
banka og þar á bæ eru menn vissir
um að margir komi til með að nýta
sér þessa nýju þjónustu. Á íslandi
eru bankar að lána fyrir ýmsu eins
og t.d. tölvu-, bíla- og húsnæðiskaup-
um en hingað til hefur þó ekki verið
til neitt sérstakt sem flokka mætti
sem brúðkaupsveislulán.
Ekki komið til tals
Á Islandi giftu sig um 1.500 pör á
síðasta ári samkvæmt tölum frá
Hagstofu íslands. I óformlegri könn-
un sem Katrfn Lilly Magnúsdóttir,
framkvæmdastjóri Brúðkaup.is,
gerði kemur fram að meðalkostn-
aður brúðkaupa hér á landi sé um
500 þúsund krónur. Þetta þýðir að á
hverju ári eyða íslendingar um 750
milljónum í brúðkaupsveislur og
ljóst að íslendingar eru engir eftir-
bátar Dana að þessu leyti, a.m.k. ef
miðað er við höfðatölu. Að sögn
Völu Pálsdóttur, upplýsingafull-
trúa hjá íslandsbanka hefur
ekki hingað til komið til
tals hjá bankanum að lána
sérstaklega til brúðkaupa
en hún bendir á að fólki
bjóðist vissulega ýmsir
lánsmöguleikar. Hún
segir þó dönsku hug-
myndina hafa margt
til brunns að bera.
„Það eru ekki ein-
hver sérstök brúð-
kaupslán í gangi hjá
okkur en fólk getur
að sjálfsögðu gert
það sem það vill við
þau lán sem það fær
hjá okkur hvort sem
það vill gifta sig eða fara
f utanlandsferðir.“
Brúðkaupsveislur geta verið dýrar.
Hagstofa íslands:
LOFTUR MÁR SIGURÐSSON
FJÓRIR DISKAR - FJÖCUR CLÖS
FJÓRRÉTTAÐUR //////^^€1^^^^//
* Kryddreykt villigæsabrinoa með appelsínum og sherry vinaigrette
■ VlLLISEYÐI CAPPUCCINO MEÐ GRÁDOSTA OC SVEPPAFYLLTU RAVIOLI
• JURTAKRYDDAÐ CRÆNLENSKT HREINDÝR MEÐ PORTVÍNSCLJÁA
■ BLÁBERJA panna Cotta með stökkum bakstri
« VERÐ: KR. 6.200.-
SÉRVALIN VÍN MEÐ MATSEÐLI KR. 2.900.-
Verðmæti framleióslu eykst
Heildarverðmæti seldra framleiðslu-
vara jókst um tæpa 20 milljarða frá
2003 til ársins 2004. Þetta kemur
fram í samantekt Hagstofu íslands
yfir seldar framleiðsluvörur á Is-
landi árið 2004.
Samantektin náði til 363 fram-
leiðslufyrirtækja á íslandi en
velta þeirra er áætluð um 90% af
heildarveltu markaðarins. Heild-
arverðmæti seldra framleiðslu-
vara var 302 milljarðar í fyrra
en var 283 milljarðar árið þar á
undan. Þá kemur fram í saman-
tektinni að heildarverðmæti fyrir
utan fiskvinnslu jókst um 6,3%
milli áranna. Verðmæti útfluttra
fiskafurða jókst um 8,3%, var 105
milljarða árið 2003 en 113 millj-
arðar árið 2004. Á sama tíma fór
magn úr 642 þúsund tonnum yfir
í 716 þúsund tonn eða um 11,5%.
Samdráttur í fataiðnaði
Hlutfallslega var mesta aukn-
ingin í framleiðslu og viðhaldi á
lækninga- og rannsóknartækjum
eða um 49%. Þá var einnig mikil
aukning í gler-, leir- og steinefna-
iðnaði sem fór úr 8,4 í 11 milljarða
á tímabilinu eða um 31%. 1 útgáfu-
starfssemi og prentiðnaði jókst
verðmæti seldrar framleiðslu um
15,7%, fór úr 14,1 milljarði 1 16,3.
Mestur samdráttur var í fata- og
leðuriðnaði en verðmæti seldrar
framleiðslu fór úr 900 í 700 millj-
ónir. Einnig varð nokkur sam-
dráttur í framleiðslu og viðgerð-
um rafmagnsvéla og tækja eða
um 12,3%. a
www.diza.is
Velkomin í eins árs afmælið okkar!
15% afmælisafsláttur 2. - 5. nóvember
Bútasaumsefni, prjónagarn, náttfatnaður ofl.ofl.
(Diza efif
Ingólfsstræti 6 sími 561-4000
opið 11-18 virka daga, 12-16 laugardaga
_______________________________;___________________________________________________________________________________
TWiinlab
þegar árangurinn skiptir máli
■ÖFLUGT FITUVRENNSLUEFNi
'AUKIN KRAFTUR Á ÆFINGUM
Útsölustaðir: Apótek og heilsustöðum A “^p
MALNING
afsláttur
af öllum málningarvörum
BIORA IIMIMIMÁLIMIIMG FRÁ TEKNOS
teknos
■S Ný tegund almattrar veggjamáln-
ingar sem hefur mikla þvottheldni
Þolir yfir 10000 burstastrokur
skv. SFS 3755 staðlinum
'f Gæðastöðluð vara á góðu verði
Ábyrgð tekin á öllum vörum
ISLANDSMÁLNING • Sími 517 1500 • Vöruhús / verslun Sætúni 4