blaðið - 03.11.2005, Side 14
blaði
Útgáfufélag: Árogdagurehf.
Stjórnarformaður: Sigurður G. Guðjónsson.
Ritstjóri: Karl Garðarsson.
AÐ KAUPA SÉR ATKVÆÐI
Inútíma þjóðfélagi er nauðsynlegt að auglýsa ef menn ætla að ná
árangri í prófkjöri. Frambjóðendur Sjálfstæðisflokksins í borg-
inni hafa fyrir löngu áttað sig á þessu og auglýsa grimmt þessa
dagana. Vandinn er sá að auglýsingar kosta peninga og frambjóðend-
ur eru misjafnlega efnaðir eins og gengur og gerist. Sumir eiga auðvelt
með að finna 10 milljónir í kosningabaráttu á meðan aðrir eiga enga
möguleika á því. I neyð hafa menn því leitað á náðir fyrirtækja með
óskir um styrki i baráttunni. í sjálfu sér er ekkert sem bannar mönnum
að fara þessa leið - hins vegar hlýtur það að vera óþægilegt fyrir fram-
bjóðendur að „skulda” ákveðnum fyrirtækjum úti í bæ greiða. Alla
vega hlýtur það að vera erfitt fyrir þá að hafna óskum viðkomandi fyr-
irtækja í framtíðinni, fari svo að þeir nái kjöri og komist til áhrifa hjá
borginni. Grunur um slíka vinagreiða hlýtur alltaf að vera fyrir hendi
og verður áfram til staðar. Eina leiðin fyrir frambjóðendur er að gera
að fullu grein fyrir fjárframlögum í tengslum við framboð til borgar-
stjórnar. Þannig eru þeir ekki að fela neitt og vinna fyrir opnum tjöld-
um. Við munum nefnilega aldrei losna við styrkjakerfið í tengslum við
framboð - það er hins vegar nauðsynlegt að það sé opið og gegnsætt.
Önnur tengd spurning sem vaknar í tengslum við framboðsmál er hvort
frambjóðendum sé mismunað, þannig að einungis þeir efnameiri, eða þeir
sem eru í betri tengslum við áhrifamenn í atvinnulífinu, eigi möguleika á
sigri. Óneitanlega eru möguleikar þeirri meiri þar sem þeir geta kynnt sig
betur en keppinautarnir. Það er hins vegar afar erfitt að setja eitthvert há-
mark á það sem einstakir frambjóðendur geta eða mega eyða í auglýsingar.
Þegar þetta er skrifað hafa frambjóðendur ekki enn farið út í sjón-
varpsauglýsingar og virðist vera einskonar þegjandi samkomulag um
að fara ekki þá leið, væntanlega vegna kostnaðar. Slíkar heitstrengingar
hafa heyrst áður, en yfirleitt hafa þær ekki haldið á síðustu dögum fyrir
prófkjör eða kosningar. Þannig var athyglisvert að hlýða á einn frambjóð-
anda Sjálfstæðisflokksins lýsa því yfir að hann „yrði ekki fyrstur” til að
fara út í slíkar auglýsingar. Með þessu gaf hann sterklega í skyn að hann
væri tilbúinn með sjónvarpsauglýsingu ef með þyrfti. Vonandi þarf hann
ekki á þeirri auglýsingu að halda - en við vitum náttúrulega aldrei. Borg-
arstjórastóll gæti verið í húfi!
OPIÐ: MÁN - FÖS. 11 - 18. LAU. 10 - 16
Auglýsingastjóri: Steinn Kári Ragnarsson. Ritstjórn & auglýsingar: Bæjarlihd 14-16,201 Kópavogur.
Aðalsími: 510 3700. Símbréf á fréttadeild: 510.3701. Símbréf á auglýsingadeild: 510.3711.
Netföng: vbl@vbl.is, frettir@vbl.is, auglysingar@vbl.is.
Prentun: Prentsmiðja Morgunblaðsins. Dreifing: íslandspóstur.
eCCO' araV
LAGMARK
ZINDA
40%
- AFSLÁTTUR!
DÖMUSKÓR - HERRASKÓR - BARNASKÓR - SANDALAR
------------ Herraskór
5.995 kr.-veróáóur
3.597 kr.-vetúnú
litir. svart
stæröin 40-46
------------Herraskór
6.995 kr.-veröáóur
4Ö7kr;-yaónú
litir bnint-svart
stæiðir 40 - 46
FULLBUÐAF NYJUM VÖRUM -
I oppskórinn
* Suðurlandsbraut 54. sími 533 3109
14 I ÁLIT
FIMMTUDAGUR 3. NÓVEMBER 2005 I blaöiö
SKSotfPftflSTi/
NííMZI MFP Mi&
WoKKkfl SiGWt—
Hiei«6i PóPi Mim
OG REYMDU 4D
Lkrn M
EtiVASr pRflM
/f{? VÆSTiJ
KoðViUGUM.
—ttylCÞofcj/-
Porir R-listinn
að sýna útsvarið?
1 síðasta mánuði gaf Andríki út
skýrslu um það hvernig ríki og sveit-
arfélög skipta staðgreiðslusköttum
á milli sín. I skýrslunni kom fram
að sveitarfélög eru að taka heldur
meira en ríkið úr launaumslögum
landsmanna í staðgreiðsluskatta. Á
síðasta ári var meðalskatthlutfall al-
menns tekjuskatts til ríkisins 12,5%
eftir að tekið var tillit til persónuaf-
sláttar. Á sama tima greiddu menn
13,1% að meðaltali í útsvar til sveitar-
félaga af tekjum sínum. í fyrra höfðu
sveitarfélögin þess vegna meiri stað-
greiðsluskatta upp úr launaumslög-
um landsmanna en ríkið. Á undan-
förnum árum hefur ríkið verið að
lækka staðgreiðsluhlutfall sitt en á
sama tíma hafa sveitarfélögin verið
að hækka sinn hlut í staðgreiðslunni
sem kallað er útsvar.
Segjum til sveitar
í ljósi hinnar miklu og vaxandi skatt-
heimtu sveitarfélaga lagði Andríki
til að fyrirtæki og stofnanir upplýstu
launþega um hvernig staðgreiðslan
skiptist á milli ríkis og sveitarfélaga.
Eins og staðan er nú kemur yfirleitt
aðeins ein staðgreiðslutala fram á
launaseðlum og menn hafa ekki
hugmynd um hvernig skatturinn
er að skiptast milli ríkis og sveitar-
félaga. Það er auðvitað mikilvægt
aðhald fyrir sveitarstjórnarmenn
að launþegar séu upplýstir um hve
háa skatta sveitarstjórnir eru að inn-
heimta. Það er ekki víst að menn átti
sig til að mynda á því að allir sem
hafa undir 250 þúsund krónum í
laun greiða hærra útsvar til sveitarfé-
lags en tekjuskatt til ríkisins. Þetta
eru mikilvægar upplýsingar þegar
kjósendur velja nýjar sveitarstjórnir
um land allt í vor og þurfa að meta
hvort kosningaloforð um aukin út-
gjöld í alls kyns málum eru eðlileg
miðað við þá miklu skattheimtu
sem sveitarfélögin stunda nú þegar.
Útsvarið út úr skápnum
Eitt af þeim sveitarfélögum sem
hækkað hafa útsvarið á undanförn-
um árum upp í lögboðið hámark er
Reykjavík, langstærsta sveitarfélag
landsins. Það er eins og Reykjavík
njóti í engu hagkvæmni stærðarinn-
Sigríður Ásthildur Andersen
ar. Á sama tíma og Reykjavík hækk-
aði útsvarið lækkaði ríkið sinn hlut
í staðgreiðslunni þannig að launþeg-
ar áttuðu sig almennt ekki á því að
útsvarið væri að hækka. { stað þess
að menn sæju það svart á hvítu á
launaseðlum sínum að Reykjavíkur-
borg væri að hnupla hluta af skatta-
lækkun ríkisins sáu menn aðeins að
heildarstaðgreiðslan væri að lækka.
Það er því ánægjuefni að sjálfstæð-
ismenn í borgarstjórn Reykjavíkur
hafa lagt fram tillögu þess efnis að
borgin sundurliði staðgreiðsluna á
launaseðlum borgarstarfsmanna.
Tillögunni var vísað til borgarráðs
á borgarstjórnarfundi 18. október.
Á fundinum kom Steinunn Valdís
Óskarsdóttir borgarstjóri með nokk-
urn tæknilegan fyrirslátt um málið.
Það kemur á óvart miðað við hvað
samflokksmenn hennar í Samfylk-
ingunni leggja mikla áherslu á að al-
menningur og fjölmiðlar hafi greið-
an aðgang að upplýsingum um hin
ýmsu mál.
R-listinn og láglaunafólkið
Um leið og fyrirsláttur borgarstjóra
kemur á óvart vegna hins sífellda
tals Samfylkingarmanna um upp-
lýsingaskyldu hins opinbera kem-
ur það kannski ekki svo á óvart að
borgarstjóri sé tvístígandi í þessu
máli. Það er ekki hagfellt fyrir borg-
arstjórann að upplýsa til að mynda
þá starfsmenn borgarinnar sem eru
með 125 þúsund krónur í mánaðar-
laun að öll staðgreiðslan sem tekin
er af launum þeirra rennur til borg-
arinnar.
Höfundur er lögfrœðingur
Klippt & skorið
klipptogskorid@vbl.is
Pessa dagana
keppast menn
við að skrúfa síð-
ustu skrúfurnar í Skafta-
hlíðinni til þess að koma
NFS - Nýju fréttastöðinni
— í loftið áður en jólavertíð-
inhefst.íauglýsingabrans-
anum telja menn þó að það muni tæpast skipta
sköpum fyrir heildarafkomu fyrlrtækisins, NFS
taki sjálfsagt mest frá öðrum miðlum fyrirtæk-
isins. Öll dagskráin, gervöll 18 tíma útsending-
in, verður send úr örlitlu myndveri í Skaftahlíð-
inni, en kollegar klippara segja þar lágt til lofts
og vægast sagt ekki vítt til veggja. Róbert
Marshall, sem stýrt hefur verkefninu, mun þó
alls óbanginn og stefnirá að hefja útsendingar
á vopnahlésdaginn 11. nóvember. Hvort það er
tákn um eitthvað er svo önnur saga.
Skoðanakönnun Gallup sýnir mismun-
andi stöðu fjögurra flokksformanna.
Steingrímur J. Sigfússon er með VG á
fijúgandi ferð í 17% eftir vel heppnaðan lands-
fund. Þó Sjálfstæðisflokkurinn dali úr 44% í
41,2% má Geir H. Haarde vel við una. Flokkur-
inn virðlst hafa aukið verulega við sig fylgi eftir
að hann tók við. Framsókn er hins vegar aðeins
(10% og hefur aldrei í sögu sinni verið í jafn
djúpri fylgiskreppu og eftirað Halldór Ásgríms-
son varð fosætisráðherra. Enginn formann-
anna virðist þó jafn illa staddur og Ingibjörg
S. Gísladóttir. Samfylkingin hefur nú tapað
fylgi ( hverri einustu skoðanakönnun frá því
Ingibjörg felldi svila sinn í formannskosningu
og vaxandi efasemdir eru um forystuhæfileika
hennar. Mistæk útspil eins og tillaga um skatta-
hækkanir og kúvending hennar i kvótamálinu
eru varla Ifkleg til annars en tapa meira fylgi.
Eina Ijósið (myrkri
Framsóknarflokks-
ins eraðflokkurinn
er aðeins að reisa sig í Reykja-
vík skv. síðustu Gallupkönn-
un. Framsókn fær 4% og
vantarekki mikiðtilað hala
inn mann. Mikið neistaflug
er í kringum prófkjör Sjálfstæðisflokksins sem
fær 57% og hreinan meirihluta skv. könnun-
inni. (Reykjavík er Samfylkingin (rústum og
er enn (frjálsu falli líkt og á landsvisu. Athygl-
isvert er að Frjálslyndir eru langt frá því að fá
mann, mælast aðeins (2%, og helmingi lægri
en á landsvísu. (Sjálfstæðisflokknum ríkir sig-
urstemmning og þar á bæ vonast menn eftir
að Steinunn Valdís Óskarsdóttir vinni prófkjör
hjá Samfylkingunni um efsta sætið.