blaðið - 03.11.2005, Side 16
16 I ERLENDAR FRÉTTIR
FIMMTUDAGUR 3. NÓVEMBER 2005 ! blaðið
Angela Merkel leiðtogi Kristilegra demó-
krata ætlar að halda stjórnarmyndunar-
viðræðum áfram í Þýskalandi þrátt fyrir
tvöáföll ívikunni.
Merkel held-
ur viðræð-
um áfram
Angela Merkel, leiðtogi Kristilegra
demókrata, hefur heitið því að
halda stjórnarmyndunarviðræðum
áfram þrátt fyrir uppnám vegna
þess að tveir mikilvægir stjórnmála-
leiðtogar hafa lýst yfir að þeir muni
ekki taka sæti í stjórninni.
í gær var Matthias Platzeck, hér-
aðsstjóri í Brandenburg-héraði,
útnefndur sem eftirmaður Franz
Miinteferings, fráfarandi leiðtoga
flokksins.
Stjórnarmyndunarviðræður
komust í uppnám á mánudag þeg-
ar Franz Muntefering, leiðtogi Jafn-
aðarmannaflokksins, sagðist ætla
að víkja úr sæti flokksformanns. í
kjölfarið hætti Edmund Stoiber, leið-
togi systurflokks Kristilegra demó-
krata í Bæjaralandi, við að taka sæti
fjármálaráðherra í ríkisstjórninni.
Merkel segist munu halda viðræð-
um áfram þó að hún viðurkenni
að verkefnið væri orðið erfiðara.
Fréttaritari Breska ríkisútvarpsins
í Berlín segir að þegar Stoiber og
Múntefering séu ekki lengur inni
í myndinni verði mun erfiðara að
mynda lífvænlega ríkisstjórn og þó
að það takist verði hún ekki sterk. ■
Hryðjuverkaárás
talin yfirvofandi
Yfirvöld í Ástralíu segja að hœtta sé á að hryðjuverkamenn láti til
skarar skrtða í landinu. John Howard, forsœtisráðherra landsins,
reynir að hraða frumvarpi um löggegn hryðjuverkum gegnum
þingið.
Yfirvöld í Ástralíu hafa fengið veður
af því að hryðjuverkamenn hafi í
hyggju að gera árás á landið að sögn
John Howard, forsætisráðherra
landsins. Howard sagði í sjónvarps-
ávarpi í gær að yfirvöld hefðu kom-
ist að þessu í vikunni en vildi ekki
gefa upp nákvæmari upplýsingar
um í hverju hættan fælist. Howard
sagðist ennfremur ætla að leggja
fram minniháttar breytingartillög-
ur á frumvarpi um lög gegn hryðju-
verkum sem hann vonast til að Öld-
ungadeild þingsins geti samþykkt í
dag.
„Ástæða þessara breytinga er sú
að stjórnvöldum hafa borist tiltekn-
ar upplýsingar sem ásamt upplýs-
ingum sem lögreglu barst í vikunni
gefa tilefni til þess að hafa alvarlegar
áhyggjur af hugsanlegri hryðjuverka-
ógn,“ sagði Howard. „Okkur hefur
verið ráðlagt að ef þessar breyting-
ar verða samþykktar eins fljótt og
auðið er, mun geta stjórnvalda til að
bregðast við aukast."
Ástralir eru traustir bandamenn
Bandaríkjanna í stríðinu gegn
hryðjuverkum og hafa sent hersveit-
ir bæði til íraks og Afganistan. Ríkis-
stjórnin hefur neitað að stuðningur
hennar við utanríkisstefnu Banda-
ríkjanna hafi aukið líkur á árásum á
landið þó að A1 Kaída samtökin hafi
John Howard forsætisráðherra Ástralíu.
ítrekað nefnt Ástralíu sem skotmark
sitt.
Frumvarp tefst í þinginu
Áætlanir Howard um að herða lög-
gjöf gegn hryðjuverkum höfðu taf-
ist á þingi vegna andstöðu sumra
fylkisstjóra. Ríkisstjórnin þarf á
stuðningi allra fylkja að halda til að
frumvarpið nái fram að ganga en
þau lúta stjórn Verkamannaflokks-
ins sem er í stjórnarandstöðu.
Leiðtogar hinna átta fylkja Ástr-
alíu sögðust hlynntir frumvarpinu
í september gegn loforði um að lög-
in yrðu endurskoðuð eftir fimm ár.
Howard hefur þó legið undir ámæli
fyrir að reyna að koma frumvarpinu
of hratt í gegn. Peter Beattie, fylkis-
stjóri í Queensland, sagði að fylkis-
stjórarnir þyrftu meiri tíma til að
íhuga frumvarpið. Þeir vildu ná
skynsamlegu samkomulagi um að
vernda Ástrala fyrir hryðjuverkum
en það þyrfti líka að standast fyrir
dómstólum.
Umdeildasta atriði í frumvarp-
inu er heimild lögreglu til að skjóta
meinta hryðjuverkamenn til bana
við vissar aðstæður. Ennfremur fær
lögregla víðtækari heimilidir til að
leita á fólki og að samhæfðri stjórn
verður komið á á flugvöllum lands-
ins. Þá eru uppi ráðagerðir um að
ævilangt fangelsi liggi við því að
fjármagna starfsemi herskárra sam-
taka og hægt verður að hafa grunaða
hryðjuverkamenn í varðhaldi án
ákæru í 14 daga. ■
Fáðu ferdatilhögun, nánari upp-
lýsingar um gististaðina og reiknaðu
út ferðakostnaðinn á netinu! WWW.Urvalutsyn.ÍS
VR orioreávitun
Pcerðþú
MasterCard
VISA
fmvammtn/
Stuttar ferðir í nóvember og desember.
16. nóv, 29. nóv og 7. des.
44.900,
Verð óhád fjölda, þó lágmark 2 í íbúð
Staður:
Montemar
Las Camelias
•Innlfalið: Flug, gisting, íslensk fararstjórn
og flugvallarskattar.
Verð m.v. að bókað sé á netinu.
Ef bókað er símleiðls eða á skrifstofu
baetist við 2.000 kr. bókunar- og
þjónustugjald á mann.
Brottfarir f boðl MiVerð: B
16. nóv. -14nætur 49.900 kr.
16. nóv. - 21 nætur 59.900 kr."
29. nóv. - 8 nætur 44.900 kr.'
29. nóv. -18 nætur 59.900 kr.'
7. des. -10 nætur 44.900 kr.
7. des. -14 nætur 49.900 kr.
El Ljósin í bænum
•* SUBUkVERI
Stigahlíð45 • 105 Reykjavík
—
Tala látinna
snarhækkar
Yfirvöld í Pakistan segja nú
að meira en 73.000 manns
hafi farist eftir að jarðskjálfti
reið yfir Kasmírhérað í síðasta
mánuði. Þar með hefur tala
látinna hækkað umtalsvert og
óttast Sameinuðu þjóðirnar
að hún kunni að hækka enn
frekar nema alþjóðasamfélagið
veiti meira fé til hjálparstarfs.Á
þriðjudag var opinber tala lát-
inna 57.600 en var komin upp í
73.276 í gær. Þá hafa nær 70.000
manns slasast eftir hamfarirnar.
íkorni í raf-
losti veldur
sinubruna
Rafveitustarfsmaður telur að
íkorni hafi verið valdur að sinu-
bruna í úthverfi borgarinnar
Jackson í Mississippi. íkorninn
fékk að öllum líkindum raflost
þegar hann fetaði sig eftir raf-
magnslínu og féll til jarðar með
þeim afleiðingum að það kvikn-
aði í grasinu. Að auki barst eld-
urinn í nálæg furutré og sveið
grindverk. Slökkvilið brást fljótt
við og réð niðurlögum eldsins.
Óveður veldur
manntjóni
í Víetnam
Að minnsta kosti fimmtán
manns hafa farist í Víetnam
eftir að lægðin Kai Tak gekk
yfir strandhéruð landsins. Flest
dauðsföllin voru tilkynnt í hér-
uðunum Quang Ngai og Thua
Thien-Hue. Hu Jintao, forseti
Kína, neyddist til að hætta
við heimsókn til borgarinnar
Danang vegna óveðursins.
Alls hafa um 30 manns farist
í miklum rigningum í Víetnam
á síðustu tveimur vikum. I
september fórst á sjöunda tug
manna þegar lægðin Damrey
gekk yfir. Nokkuð dró úr vind-
styrk eftir því sem lægðin hélt
norðvestur með ströndinni.
Um 18.000 manns hafa þurft
að rýma heimili sín, flestir í
Quang Ngai, sagði Nguyen
Van Huang, í fióðavarnadeild
í Danang. Háar öldur sökktu
ferju á fljóti nálægt bænum
Tam Ky í Quang Nam héraði
með þeim afleiðingum að
fimm fórust en her og lögreglu
tókst að bjarga lífi 16 manns.
RSKLIR
á fimmtudagskvöldum
opið tii ki. 22.00
komdu og smakkaðu!
opið virka daga 10.00-19.00
laugardaga 10.00-18.00
sunnudaga 11.30-18.00
sinii 544 2332
www.adesso.is