blaðið - 03.11.2005, Blaðsíða 21
blaðið FIMMTUDAGUR 3. NÓVEMBER 2005
HEIMSPEK£ I 29
William James, vaninn og bandarískur pragmatismi
Bandaríski heimspekingurinn
William James (1842-1910) er
kannski einna þekktastur
nú á dögum - í það minnsta
hér á landi - fyrir greinina
„The will to believe“, sem olli
miklum umræðum og jafnvel
straumhvörfum á sviði þekkingar-
og fyrirbærafræði á sínum
tíma. Sú er til á íslensku, birtist
í ritinu Erindi siðfræðinnar
(1993) og nefnist „Trúarvilji“ í
ágætri þýðingu Sig. Kristófers
Péturssonar og Sigurðar Nordal.
Venja er að telja
James í hópi
svokallaðra
bandarískra
pragmatista, en
án þess að fara
djúpt í saumana
á þeirri tilteknu
stefnu má segja
að hún mæli fyrir um að merking
og sanngildi sérhverrar hugmyndar
eða setningar ráðist einvörðungu af
„praktískum" afleiðingum hennar. í
grunninn byggir stefnan á andstöðu
við algildishyggju af hverju tagi
og þeirri sannfæringu að öll
lögmál beri að höndla sem „virkar
kenningar" í stöðugri endurskoðun,
frekar en frumspekilega bindandi
frumsetningar. Þannig telst lögmál
á borð við „Sólin kemur upp á hverju
morgni" satt í augum pragmatistans,
ekki af því að hann lítur á það sem
óumbreytanlegt, heilagt og algilt,
heldur af því hún hefur alltaf komið
upp til þessa. Láti sólin ekki sjá
sig einhvern morguninn hættir
lögmálið að vera satt, en ekki fyrr.
Við teljum vissa hluti til sannleika
einfaldlega vegna þess að okkur
hentar að gera það - reynslan
kennir okkur t.d. að það er mjög
hentugt að trúa því að sólin komi
upp dag hvern. Með þessu móti má
laga kenningar okkar að heiminum
eins og hann kemur fyrir dag hvern,
en ekki öfugt.
„Hvaða gagn er þá af
þessum pragmatisma?"
Þetta kann að koma óheimspekilega
sinnuðum furðulega fyrir sjónir
- hann gæti spurt sig: „Álítum við
ekki einmitt setningar og yrðingar
sannar einmitt vegna þess að
reynslunni samkvæmt virðast þær
vera það? Og hvaða gagn er þá af
þessum pragmatisma?" Heimspekin
hefur hinsvegar í aldanna rás m.a.
snúist um að finna traustarogjafnvel
frumspekilegar grunnforsendur
fyrir mannlega hugsun og þann
veruleika sem hún höndlar með
og um. Mikil vinna hefur verið
lögð í að finna algild, óbreytanleg
lögmál sem geta útskýrt hann og
því sem hefur hvorki virst algilt né
óbreytanlegt oftast varpað á brott
þar eð ófullnægjandi forsendur
væru til þess að taka það trúanlegt.
Þrátt fyrir að víða í sögunni megi
finna dæmi um viðlíka vangaveltur
og bandarísku pragmatistarnir settu
fram má engu að síður telja þær
byltingarkenndar, ekki síst í ljósi
viðbragða samtímamanna þeirra og
þess sem á eftir kom. Fylgismenn
pragmatisma hafa m.a. gagnrýnt
hefðbundin heimspekileg viðhorf í
ljósi samtímarannsókna I vísindum
og félagsfræði - og þannig reynt að
laga kenningarnar að þeim heimi
sem þær sneru að, en ekki öfugt
(sem er nokkuð sem heimspekingar
gerast oftar en ekki sekir um).
Að hámarka sína æðri
möguleika:„í kjólinn fyrir jólin"
William James var líkt og áður
sagði öflugur heimspekingur og
fræðimaður, einn af gamla skóla
vísindanna sem lét sér ekkert
mannlegt óviðkomandi. Þetta má
m.a. sjá á því að i rannsóknum
sínum og skrifum höndlaði hann
t.d. sálfræði, líffræði og félagsfræði
og í þeim fræðum má enn í dag
rekja margar viðteknar hugmyndir
beint til hans. Áhuga hans á þessum
sviðum má líklega rekja til þeirrar
skoðunar hans að hverri manneskju
bæri skylda til þess að hámaríca
möguleika sína. Raunar lagði hann
mikið á sig til þess að lifa samkvæmt
þessu og kappkostaði að koma sér
upp góðum og dygðugum venjum
að því marki. Skrif hans um mátt
vanans og leiðir til þess að snúa á
hann eru einmitt einkar áhugaverð
í þessu ljósi, enda bera þær vott um
mann sem enn leitar leiða við að
snúa á sitt hverfula sjálf. Kjarnast
sú eilífa barátta manneskjunnar
ágætlega í þessum fleygu orðum
James: „Með því að vanrækja hina
nauðsynlegu, áþreifanlegu vinnu,
með því að hlífa okkur við hinum
smávægilega, daglega skatti, erum
við bókstaflega að grafa gröf okkar
æðri möguleika.“
Fjölda ritgerða og skrifa James
má finna á netinu, auk greinargóðra
upplýsinga um bæði hann sjálfan svo
og stefnuna pragmatisma. Hér fá þó
fjögur lögmál sem James setti fram
um vana að fljóta með - ef einhverjir
lesenda skyldu hafa áhuga á því að
hámarka sína æðri möguleika (og
þessi ráð ættu að duga hvort heldur
fólk vill grenna sig fyrir jólin eða
verða dygðugri manneskjur)
haukur@vbl.is
Fjögur lögmál James um vana
Þegar tileinka á sér nýjan vana eða venja sig af óæskilegum
er mikilvægt að gera það með eins sterku og ákveðnu
frumkvæði og mögulegt er.
Undantekningar eru ekki leyfðar fyrr en hinn æskilegi vani
hefur skotið djúpum rótum.
Nýta skal fyrsta mögulega tækifæri til þess að framkvæma
allt það sem þér kemur til hugar til þess að ná settu marki.
Ekki tala eða predika að ráði um það sem þú hefur
afráðið að gera fyrr en það hefur verið framkvæmt að fullu
- ekki gaspra, framkvæmdu.