blaðið - 03.11.2005, Side 34
42 I KVIKMYNDIR
FIMMTUDAGUR 3. NÓVEMBER 2005 blaöið
f ^ '
"'BÖLVUM
mmrnM' ,
HTHIA uaCXK m/raHnni %
9P itimmmtftr 'Anpemvir
'Fiolldvta ÍNollvt’k) j Jíiini’
★ ★ ★ ★
ÍDESŒNT x
±
Sýnd Kl. 8 og 10 hx 16 ár«
Kl5:30,l«g 10:30 thom fiiq
hWilmi D.0
400 kr. í bíó! Glldlr i allar sýnlngar merktar með rauðu
mtmma
m OKTOBERBIOFEST
Pusher II * Sýnd kl. 6 Solkongen ♦ Sýnd kl. 8
Danskt tal í> Danskt tal
Murderball * Sýnd kl. 6 Site Specific • Sýnd kl. 10
Enskttai Enskt tal
Separate Lies * Sýnd kl. 8 Fakiren fra Bilbao * Sýnd kl. 10
Enskt tal/islenskur texti Danskt tal
www.icelandfilmfestival.is
Sýnd kl. 5, 8 og 10.45 Sýnd í Lúxus kl. 5, 8 og 10.45 B.i. 12 ára
■aaMNUaB
★ ★★★ ÖT
SVMBl
“MÉISTARASTYKKl”^ y
H.E. Máliö
★ ★★★”/*%
★★★j4
SVMBL . -79
É&a Únited
Sýnd kl. 5.40,8 og 10.20
■ Frá framleiðendum The Professional
og La Femme Níkita
Fjír beint á toppinn ÍUSA^^
Simply Red - Simplified: ★★
Ekki nógu gott
Robbie Willliams - Intensive Care: ★★★
Skotheldur Robbie
Það mun eflaust gleðja marga að-
dáendur Simply Red að nýr disk-
ur er kominn út. Diskurinn ber
nafnið Simplified og rauðhærði
jaxlinn syngur gömul og góð lög
á „einfaldari hátt“ auk þess sem
á plötunni eru nokkur ný lög.
Simply Red hefur alltaf staðið
fyrir sínu og lög eins og Holding
back the Years, Fairground og So-
mething got me started hafa fyrir
löngu eignað sér stað í hjörtum að-
dáenda og annarra. Á Simplified
tekur Mick þessi góðu og gömlu
lögin og fleiri með örlitlum breyt-
ingum, í raun má bara segja að lög-
in verði hreinni. Það er alltaf vand-
kvæðum bundið að taka lög sem
eru í uppáhaldi hjá svo mörgum
og breyta þeim, útkoman verður
nær alltaf verri en upprunalega
útgáfan. Það gerist einmitt hér
þó lögin séu á engan hátt slök,
þau eru bara ekki nærri því eins
góð og upprunalegu útgáfurnar.
Ekki misskilja mig, Simply Red
eru alltaf góðir, en þessi diskur
er bara ekki eins góður og margir
aðrir. Nýju lögin eru fjögur og þar
stendur upp úr lag að nafni Perfect
love sem er hressilegt og skemmti-
legt lag. Hin þrjú lögin, A song for
you, Smile og My Perfect love eru
öll sæmileg, ekki mikið meira en
það. I heildina er Simplified ágæt-
is diskur sem aðdáendur Simply
Red hafa eflaust einhverja ánægju
af en aðrir sem vilja kynna sér
þennan ágæta söngvara ættu frek-
ar að líta til fyrri platna hans.
svanhvit@vbl.is
Peruskipti
Smurþjónusta
Rafgeymar’
FRAMLENGJUM íNOKKRA DAGA
Þú færð heilsársdekk með
20% afslætti hjá Bílkó.
Betri verð!
Smiðjuvegi 34 | Rauð gata | bilko.is | Sími 557-9110
Ég verð að viðurkenna að lengst
af var mér afskaplega illa við
Robbie Williams, mér fannst al-
veg frábært að einhver rugludall-
ur hafði kastað kókflösku í hann
á sviði í Laugardalshöllinni og
var eiginlega bara meinilla við
manninn og þá tónlist sem hann
sendi frá sér. Síðan fór ég að átta
mig á því hvernig Robbie væri og
þá sá ég snilldina í honum. Þrátt
fyrir að vera óskaplega sykursæt-
ur poppari sem syngur viðbjóðs-
lega væmin ástarlög er hann í
raun smá rokkari inn við beinið,
þ.e.a.s. hann hegðar sér oft eins
og rokkari. Robbie Williams ger-
ir t.d. lítið í því að segjast vera
listamaður og segir sjaldan að nú
hafi hann gefið sig allan í texta-
smíðina svo platan sé í raun hluti
af honum sjálfum eins og margir
popparar gera. Hann er i brans-
anum til þess að „meika“ það og
græða pening, að ekki sé talað
um til þess að næla sér í grúppí-
urnar sem nóg er af. Hann er að
þessu til þess að skemmta sér.
Ég verð samt að segja að ég
skemmti mér ekkert svakalega
þegar ég hlustaði á Intensive
Care, hún er vægast sagt mjög
hlustenda- og útvarpsvæn og
mjög svo þægileg geislaplata.
Það er auðvelt að hafa hana i bak-
grunni þar sem strengjahljómur
og afslappaður popptaktur fær
að njóta sín. í sjálfu sér er ekkert
eitt lag sem stendur upp úr en
með góðu myndbandi og spilun
í útvarpi getur hvaða lag sem er
af disknum orðið að „hittara".
Þetta er í raun skothelt gæða-
popp og frábært fyrir aðdáend-
ur snillingsins Robbie Williams,
sennilega það besta sem finnst í
útvarpspoppheimum þessa dag-
ana.
agnar.burgess@vbl.is
Líkbrúður Tim Burton i bíó
Kvikmyndin Tim Burton’s Corpse
Bride verður frumsýnd á morgun
en hún hefur verið í sýningu á
kvikmyndahátíðinni OÍctóberfest
síðustu daga. Hér er á ferðinni
leikbrúðuteiknimynd og þeir
sem ljá rödd sína í myndinni eru
m.a. Johnny Depp, Helena Bon-
ham-Carter og Emily Watson.
Myndin er látin gerast í Austur-Evr-
ópu. Victor (Johnny Depp) og til-
vonandi brúður hans eru er á leið í
brúðkaupið þegar hann sér manna-
bein standa upp úr jarðvegi. Það er
fingur sem vísar upp úr jarðvegin-
um þannig að Victor setur giftingar-
hringinn sinn á einn fingurinn bara
uppá grínið. Fingurinn beinaberi til-
heyrir myrtri konu sem lifnar til Hfs
aftur sem uppvakningur og krefst
hún þess að verða eiginkona Viktors
að eilífu. Myrkur sögurþráður er oft
einkennandi fyrir myndir Tim Bur-
ton’s en hann er einmitt velþekktur
fyrir frumleg efnistök.