blaðið - 31.12.2005, Page 4
4 I INNLENDAR FRÉTTIR
LAUGARDAGUR 31. DESEMBER 2005 blaðiö
Ríkisstjórnin:
Launahækkanir
verða felldar úr gildi
Laun munu hœkka um 2,5% ístað 8,5% líkt ogKjaradómur úrskurðaði um. Nauðsynlegt til
þess að skapa sátt í samfélaginu, segir forsœtisráðherra.
Halldór Ásgrímsson, forsætisráðherra, og Geir H. Haarde, utan- "' " '
ríkisráðherra, funduðu í gær í Ráðherrabústaðnum með formönnum
stjórnarandstöðuflokkanna til að ræða viðbrögð við úrskurði Kjaradóms.
blaöiðuB
Bæjarlind 14-16,201 Kópavogur
Sími: 510 3700 * www.vbl.is
FRÉTTASÍMI:
51Q 3799
netfang: frettir@bladid.net
AUGLÝSINGADEILD:
510 3744
netfang: auglysingar@bladid.net
Veðrið:
Fínasta
rakettuveður
Veðurspáin fyrir kvöldið gefur þeim
sem unun hafa af flugeldum, tilefni
til að gleðjast. Samkvæmt upplýs-
ingum frá Veðurstofunni er búist
við því að um og eftir kvöldmat
muni hann snúa sér í suð-vestan átt
með dálitlum éljum. Vindur verður
rólegur og bjart á milli élja, svo
aðstæður til sprenginga og flugelda-
skota verða hinar ákjósanlegustu.
íslandspóstur:
tJrskurður Kjaradóms um 8,5%
hækkun launa æðstu embættis-
manna ríkisins verður felldur úr
gildi þegar Alþingi kemur saman í
janúar. Þetta var niðurstaða fundar
forsætisráðherra og formanns Sjálf-
stæðisflokksins með leiðtogum
stjórnarandstöðunnar í gær. Sérstök
nefnd með fulltrúum allra stjórn-
málaflokka verður skipuð til að
endurskoða lög um Kjaradóm.
Enginn kostur góður
Fyrir fundinn í gær höfðu stjórnar-
andstöðuflokkarnir þrír lýst því yfir
að þeir myndu ekki skipa fulltrúa
í nefnd sem mundi fjalla um Kjara-
dóm fyrr en Alþingi hefði fellt úr-
skurð hans úr gildi og óskuðu flokk-
arnir í því samhengi eftir því að
þing yrði kallað saman fyrir áramót.
A fundinum í gær tilkynnti ríkis-
stjórnin að hún myndi ekki kalla
þing saman í dag vegna málsins
en að úrskurðurinn yrði felldur úr
gildi um leið og þing kæmi saman
17. janúar næstkomandi. í kjölfarið
yrði skipuð nefnd sem allir stjórn-
málaflokkar ættu fulltrúa í sem
hefði það hlutverk að endurskoða
lög um Kjaradóm. Halldór sagði
eftir fundinn í gær að það hefði
verið mikilvægt að ná pólitískri sátt
um þetta mál. „Við teljum mikilvægt
að ná góðu samkomulagi um þetta
mál og við viljum koma til móts við
stjórnarandstöðuna. Niðurstaðan
er sú að ríkisstjórnin hefur ákveðið
að leggja það til við Alþingi að um
leið og það kemur til baka 17. janúar
taki það til baka launabreytingu og
laun hækki þess í stað um 2,5% eins
og önnur laun í landinu frá og með 1.
febrúar.“ Þá sagði forsætisráðherra
engan kost hafa verið góðan í þessari
stöðu en aðgerða hefði verið þörf til
að koma á friði í samfélaginu. „Þessi
hækkun hefur valdið miklum óróa í
þjóðfélaginu og það er nauðsynlegt
að launahækkanir miðist við getu
þjóðfélagsins og atvinnuveganna á
næstunni og þess vegna verður að
grípa hér inn í. Það er engum ljúft
að gera það en við teljum þetta bestu
leiðina.“
Klúður hjá ríkisstjórninni
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir,
formaður Samfylkingarinnar, seg-
ist ekki vera sátt við niðurstöðu
fundarins og telur að ríkisstjórnin
hefði átt að kalla saman þing til að
fella úrskurð Kjaradóms úr gildi
fyrir áramót. „Það er miklu erfiðara
að takast á við hlutina þegar þeir
eru orðnir að veruleika. Þannig að
ég veit ekki hvort að það sé einhver
sátt um þessa leið. Tækifærinu var
klúðrað sem menn höfðu til þess
að koma í veg fyrir að lögin tækju
gildi um áramót. Það er bara ríkis-
stjórnin sem það gerir og nú situr
hún með þetta í fanginu og verður
að finna einhverjar lausnir þegar
þingið kemur saíhan í janúar,“ sagði
Ingibjörg.
Læsa
póstkössum
Islandspóstur mun læsa öllum póst-
kössum sem staðsettir eru utanhúss
á höfuðborgarsvæðinu yfir ára-
mótin til að koma í veg fy rir skemmd-
arverk. Að sögn Árna Árnasonar,
forstöðumanns kynningarmála hjá
Islandspósti, hefur þetta verið gert
með góðum árangri undanfarin ár
og í kjölfarið hefur verulega dregið
úr hvers konar skemmdarverkum.
Enn verður þó hægt að koma
bréfum ofan í póstkassa en fólki
er bent á að fara með þykkari bréf
til nærliggjandi póstafgreiðslu eða
póstkassa sem staðsettir eru innan-
dyra. Póstkassarnir verða opnaðir á
ný um miðjan janúarmánuð.
Landsbjörg:
Aldrei færri banaslys
Tuttugu og átta íslendingar létust í
banaslysum á þessu ári samkvæmt
samantekt Slysavarnafélagsins
Landsbjargar Banaslys hafa ekki
veið færri á einu ári síðan 1941 þegar
Slysavarnafélagið byrjaði að taka
saman heildarbanaslys á landinu.
Tæplega 70% banaslysa á þessu ári
komu til vegna umferðarslysa.
Fleiri karlar
Samkvæmt samantekt Slysavarnafé-
lagsins létust 19 manns í umferðar-
slysum á árinu. Tveir létust í sjó-
slysum og fjórir í vinnuslysum. Þá
drukknaði einn og tveir létust vegna
slysa er áttu sér stað í heimahúsi eða
í frítíma. Athygli vekur að mun
FJÖLSKYLDURÁÐGJÖF
Einstaklings-, hjóna og fjölskylduráðgjöf. Sérstök meðferð
fyrir fólk sem orðið hefur fyrir kynferðisofbeldi á
bamsaldri
Gréta Jónsdóttir
Tímapantanir í sima 896 9568 Fjölskylduráðgjafi
fleiri karlmenn létust í banaslysum
á árinu en konur eða um 21 á móti 7.
Töluvert færri banaslys urðu á þessu
ári miðað við síðastliðin ár. Þannig
létust 38 einstaklingar í fyrra og 38
árið 2003. Þá létust 48 árið 2002 og
54 árið 2001. Síðan 1991 hafa um 657
einstaklingar láti lífið í banaslysum
og þá flestir árið 1995 eða alls 86 en
það ár féllu tvö mannskæð snjóflóð
á Vestfjörðum.
Nokkuð hefur dregið úr bana-
slysum í umferðinni en tölurnar í
ár eru þær lægstu síðan 1997 þegar
um 17 manns létust. Aðeins þrisvar
sinnum síðan 1991 hafa færri látist
í umferðinni heldur en í ár. Fæstir
árið 1996 en þá létust ellefu. Sig-
urður Helgason, verkefnisstjóri Um-
ferðarstofu, segir að sé miðað við
fjölgun bíla undanfarin ár hafi bana-
slysum fækkað gríðarlega. Þá segir
hann margt hafa áhrif á fækkun
banaslysa. „1 fyrsta lagi eru bílarnir
öruggari og sterkari. I öðru lagi þá
virðist allur sá mikli áróður sem
hefur verið í gangi haft sín áhrif sem
Banaslys f umferðinni urðu 19 i þessu ári
er sérstakt fagnaðarefni fyrir okkur.
Þar fyrir utan þá er líka búið að
gera ákveðnar aðgerðir í skipulagi í
sambandi við 30 km hámarkshraða
í íbúðahverfum. I þeim hverfum
verða sárafá ef nokkur alvarleg
slys. Svo eru það þættir eins og lög-
gæsla. Við horfum mikið til þess
að viðhorf almennings til þessara
mála og áhugi í samfélaginu hefur
aukist umtalsvert og þessi áhugi
hefur leitt til þess að það er meiri
BlailS/SteinarHugi
umfjöllun í fjölmiðlum og fólk er
betur vakandi fyrir því að umferðin
sé alvarlegt mál.“ Sigurður segir
ennfremur að bætt umferðarmann-
virki hafa hjálpað til við að draga úr
alvarlegum slysum á undanförnum
árum en helstu orsakavaldar að
hans mati eru ölvun og hraðakstur.
„Þetta hefur allt sin áhrif. En fyrst og
síðast þá byrjar þetta allt og endar í
kollinum á ökumanninum.“
Óskum nemendum okkar og landsmönnum
öllum gleðilegrar hátíðar og farsældar á
komandi ári, þökkum viðskiptin á árinu.
Hvað segja nemendur okkar um námskeiðið:
Nytsamlegt, áhugavert, krefjandi, skemmtilegt, mjög gott, þægi-
legt, lipurð, skipulagning, einbeiting, jákvæðni, mikil aðstoð,
góður kennari, spennandi, árangursríkt, hvetjandi, góð þjónusta,
frábært, markvisst, hnitmiðað.
(sjá umsagnir nemenda á www.h.is)
Erum byrjuð að bóka á fyrstu námskeið 2006:
Hraðlestrarnámskeið 10. janúar 2006 (nokkur sæti laus)
Hraðlestrarnámskeið 30. janúar 2006 (skráning hafin)
Skráning fer fram á www.h.is eða í síma 586-9400.
HRAÐU2S nWtSKÓIJNN
(3 Heiðskírt 0 Léttskýjaö ^ Skýjað ^ Alskýjað Rignlng. líUlsháttar m Rigning Súld 4:^ Snjókoma Slydda Snjóél Skur
Amsterdam
Barcelona
Berlín
Chicago
Frankfurt
Hamborg
Helsinki
Kaupmannahöfn
London
Madrid
Mallorka
Montreal
New York
Orlando
Osló
París
Stokkhólmur
Þórshöfn
Vín
Algarve
Dublln
Glasgow
07
09
0
02
05
03
01
-01
08
09
15
-17
0
09
-01
07
01
06
-01
14
06
07
>9
'//
/ //
■*> 1
♦o ^
i°
'//
/ //
//
/ //
Veðurhorfur í dag kl: 15.00
Veðursíminn 902 0600
Byflgt á upplýslngum Irá Veíuratofu fslands
///
*
* *
Á morgun
*
*
//
///
'///,
//A
V