blaðið - 31.12.2005, Qupperneq 6
6 I INNLENDAR FRÉTTIR
LAUGARDAGUR 31. DESEMBER 2005 blaóiö
Starfsmenn Alcan:
Lýsa andstyggð á uppsögnum
Ólga er í álverinu í Straumsvík vegna uppsagnar starfsmanns. Fjárlmálastjóri segir ásak-
anirnar rangar.
Gylfi Ingvarsson, trúnaðarmaður
starfsmanna Alcan segir mikinn
kurr meðal vinnufélaga sinna vegna
uppsagna hjá fyrirtækinu. Mönnum
sem sagt hafi verið upp án ástæðu
hafi ekki verið gefinn kostur á að
kveðja vinnufélaga sína eða safna
saman persónulegum munum, og
er skipað að yfirgefa svæðið þegar
í stað í fylgd fulltrúa fyrirtækis-
ins. Sex starfsmönnum hefur verið
sagt upp með þessum hætti frá því
nýir kjarasamningar tóku gildi í
mars. „Okkur líst mjög illa á þessa
starfshætti. Mönnum er sagt upp án
ástæðu en með því að fara þá leið eru
þeir að skjóta sér frá allri aðkomu
fulltrúa starfsmanna eða verkalýðs-
félaga. Ef manni væri sagt upp vegna
brota á kjarasamningi eða brots á
öryggisreglum þá ættum við að-
komu að því og gætum varið mann-
inn. En með því að tilgreina ekki
ástæðu fyrir uppsögninni komast
þeir upp með að hafa þetta svona.“
Gylfi segir þetta vera brot á starfs-
reglum Alcan, en þar segi að sé
manni sagt upp störfum skal honum
gefinn kostur á viðtali um starfslok
sín og ástæður uppsagnar. „1 þessu
tilviki var bara sagt: Við gefum ekki
upp ástæður uppsagnar." Gylfi segir
að íoo manna fundur hafi verið hald-
inn í gær. „Það var mjög athyglisvert
að verkstjórarnir mættu á fundinn
og neituðu að fara þegar þeir voru
beðnir um það. Við lítum á það
sem íhlutun af hálfu stjórnendanna,
og að verkstjórarnir hafi haft frá
þeim fyrirmæli um að fylgjast með
fundinum."
Rangar ásakanir
Fjármálastjóri álversins, Sigurður Þór
Ásgeirsson svaraði ásökunum starfs-
manna í gær og kallaði þær rangar.
í tilkynningu frá honum segir að
engum starfsmanni sé sagt upp að
tilefnislausu. Slíkt eigi sér ætíð aðdrag-
anda og er ekki gert nema að athug-
uðu máli. Uppsögn sé alvarlegt mál,
en geti stundum verið óumflýjanleg
þegar „starfsmaður á ekki lengur
samleið með fyrirtækinu.“ Hann
segir vinnulag við uppsögn vera
breytilegt á milli einstakra tilfella, en
þess sé ætíð gætt að uppfylla ákvæði
samninga og að farið sé að lögum
og reglum sem í gildi séu hjá fyrir-
tækinu. Hann segir út í hött að starfs-
manni sem sagt sé upp sé ekki leyft að
sækja persónulega muni eða kveðja
vinnufélaga en bætir við að reynslan
hafi sýnt að það sé heppilegast fyrir
viðkomandi að „fá að fara heim beint
eftir uppsögn.“ Hann bætir því við að
nýleg starfsmannakönnun sanni að
yfirgnæfandi meirihluti starfsmanna
Alcan á íslandi beri fullt traust til fyrir-
tækisins og stjórnenda þess.
Kauphöllin:
Landsbankinn
hækkaði mest
Þrjú félög í Kauphöllinni hækk-
uðu meira en ioo% í verði á árinu.
Landsbankinn hækkaði mest eða
um 112%, Bakkavör hækkaði um
no% og þá hækkaði FL Group
um tæp 102%, samkvæmt ffétt frá
greiningardeild KB-banka. Fimm
önnur félög hækkuðu um 50% eða
meira. Aðeins þrjú félög lækkuðu
í verði á árinu. Fiskeldi Eyjaljarðar
lækkaði mest eða um 80%. Þá lækk-
aði Flaga Group um 24% og SÍF um
16%. Á árinu hækkaði úrvalsvísitala
Kauphallar Islands f heild um 64,7%.
Var 3.359,6 stig í upphafi árs en stóð
í 5-534,39 við lokun markaðar f gær.
Fiskistofa:
Minnsti afli
í áratug
Heildarafli fslenskra skipa árið
2005 er um 61 þúsund lestum
minni en árið 2004 samkvæmt
áætlun Fiskistofu. Samkvæmt
fyrirhggjandi upplýsingum nam
heildarafli fslenskra skipa um 1.667
þúsundum lesta á þessu ári en í
fyrra var hann 1.728 þúsund lestir.
Þetta er minnsti afli í áratug eða
síðan árið 1995 þegar heildarafli
var 1.605 lestir. Mest munar um afla
uppsjávartegunda en hann minnk-
aði um 36 þúsund lestir á árinu.
Eins og sjá má hefur safnast vel f bálköstinn á Geirsnefi. BlaHil/FMI
Fjórtán brennur í Reykjavík
Áramótabrennur verða haldnar víðsvegar um höfuðborgarsvæðið í kvöld. Fjórtán brennur eru í Reykjavík og í öllum
nágrannasveitarfélögunum gefst bæjarbúum kostur á að sækja brennu áður en nýja árið gengur í garð. Stærsta
brennan f borginni verður á Geirsnefi eins og venja hefur verið síðustu ár. Af öðrum brennum í borginni og ná-
grenni hennar má nefna brennu við Ægissíðu, á Valhúsahæð, í Kópavogsdal og á Ásvöllum í Hafnarfirði. Kveikt
verður í flestum brennunum á tfmabilinu frá átta til nfu í kvöld.
Fjölmiðlar ogfjarskipti:
Gunnar Smári ráðinn
forstjóri Dagsbrúnar
Ari Edwald verður forstjóri 365 miðla
Gunnar Smári Egilsson var í gær ráð-
inn forstjóri Dagsbrúnar, en Eiríkur
S. Jóhannsson fer til starfa hjá Baugi
Group. Ari Edwald, framkvæmda-
stjóri Samtaka atvinnulffsins, hefur
á hinn bóginn verið ráðinn for-
stjóri 365. Mannabreytingarnar eru
skýrðar með því að starfi Eirfks við
formbreytingu félagsins sé lokið, en
nú á Gunnar Smári að leiða sókn
þess á erlenda markaði.
{samtalið við Blaðið sagði Gunnar
Smári að of snemmt væri að segja
til um í hverju útrás Dagsbrúnar
myndi felast, fregna af því væri
tæpast að vænta alveg á næstunni.
„En ég get staðfest að þar erum við
að hugsa um fjölmiðlahluta félags-
ins fremur en þann, sem lýtur að
fjarskiptastarfsemi.“
Gunnar Smári sagði að hlutverk
sitt myndi fyrst og fremst felast í
stefnumótun ogyfirsýn Dagsbrúnar,
forstjórar undirfélaganna, þeir Ari
Edwald hjá 365 og Arni Pétur Jóns-
son hjá Og Vodafone, myndu sinna
daglegum rekstri.
Hann segir stefnt að aukinni
DAG
Gunnar Smári Egilsson
markaðssókn Og Vodafone á
Islandi. „Hér heima held ég að menn
búist ekki við frekari fjölgun fjöl-
miðla, enda gott verk að vinna úr
stöðunni eins og hún er. En það er
ekkert sem stendur í vegi fyrir því
að Dagsbrún láti til sín taka á fleiri
sviðum en hvað varðar fjölmiðla
eða fjarskipti.“
Gunnar Smári Egilsson, sem
verið hefur forstjóri 365, var einn af
stofnendum Fréttablaðsins og stýrði
skjótum vexti þess. Hann hefur leitt
samruna ljósvaka- og prentmiðla fé-
lagsins sem einnig hefur getið af sér
mikinn vöxt. „Það hefur alltaf verið
sannfæring okkar að ef okkur tæk-
ist að byggja upp öflugt fjölmiðlafyr-
irtæki á 300 þúsund manna markaði
ætti sýn okkar og stefna fullt erindi
á stærri markaði,“ segir Gunnar
Smári.
STURLUSON
Silfraöar þyrlur meö ýlum og hala sem þeytast
hátt upp. Hraöinn eykst þegar á líöur.
Stórskemmtileg og mjög falleg terta sem kemur
verulega á óvart.
Þyngd: 2,3 kg Tími: 46 sek
F1U&EIDAHA.UKADIR
BJOH&UNARSVEITANNA
Utsalan byrjuð!
Flottur fatnadur á
alla fjölskylduna
Leikföng, Ijós, verkfæri, gjafavara,
skartgripir, fæðubótarefni ofl. ofl.
Mikil lækkun
á mörgum vöruflokkum
Snyrtivara
2 fvrir 1
Jjr Vt J| Austurhrauni 3, Gbæ
£3 I wl www.bmagnusson.is
b.magnusson hf. Opið 10-18 og lau 11-14