blaðið - 31.12.2005, Side 8
8 I INNLENDAR FRÉTTIR
LAUGARDAGUR 31. DESEMBER 2005 blaöiö
Magnús Scheving:
Á meðal álits-
gjafa hjá WHO
Kjör leikskólakennara:
Starfshópur
skipaður
HBjörg Bjarna-
dóttir, for-
maður Félags
leikskólakenn-
ara og Þröstur
Brynjarsson,
varaformaður
sama félags,
hittu Stein-
BlaMMkí unnj ValdÍSÍ
Óskarsdóttur borgarstjóra á fundi í
gær. Þar var ákveðið að skipa starfs-
hóp sem fjalla skal um og móta
hugmyndir um starfskjör Ieikskóla-
kennara. Hópurinn, sem skipaður
er fulltrúum frá FL, borginni, sam-
ráði leikskólastjóra í Reykjavík auk
fulltrúa Launanefndar sveitarfélaga,
skal leggja niðurstöður sínar fyrir
launamálaráðstefnu sveitarfélaga
sem haldin verður 20 janúar nk.
Steinunn Valdís lagði þessa tillögu
fram og segir Björg Bjarnadóttir að
leikskólakennarar séu sáttir með
niðurstöðuna. Sameiginlega beina
fundarmenn því til þeirra leikskóla-
kennara sem sagt hafi upp störfum
að þeir endurskoði hug sinn og gefi
starfshópnum kost á að takast á við
þá stöðu sem upp er komin. ■
Magnús Scheving, Latabæjarstjóri
hefur orðið þess heiðurs aðnjót-
andi að vera á meðal 600 manna
hvaðanæva að úr heiminum sem
Heilbrigðisstofnun Sameinuðu þjóð-
anna (WHO), valdi til þess að taka
þátt i könnun um heilbrigðismál. f
könnuninni var fólkið beðið um að
svara spurningunum; „Hver voru
helstu heilbrigðismál ársins 2005“,
og „hvaða heilbrigðismál voru van-
rækt á árinu sem er að liða?“ Svör
Magnúsar eru birt á heimasíðu
WHO ásamt svörum heimsþekktra
einstaklinga. Á meðal annara þátt-
takenda í könnuninni má nefna
Jimmy Carter, fyrrverandi forseta
Bandaríkjanna og Shirin Ebadi, frið-
arverðlaunahafa Nóbels. Magnús
telur tvö mikilvægustu heilbrigðis-
mál heimsins vera af sama meiði,
en þó sitthvoru megin á skalanum.
Annars vegar er um að ræða van-
næringu barna í þriðja heiminum,
en hins vegar sé um að ræða of-
fituvandamál barna í þróuðu lönd-
unum. Hann segir nauðsynlegt að
gefa þessum málum meiri gaum og
að tryggja þurfi börnum þann mat
sem þau þurfa. Ekki er síður mikil-
vægt að börnum sem hafi aðgang að
mat verði gerð grein fyrir nauðsyn
rétts mataræðis og hreyfingar. g
Rakettur:
Sumir eru
stórtækari en aðrir
Landsmenn hafa hópast á flugelda-
sölurnar til þess að birgja sig upp af
sprengiefni fyrir áramótin. Sumir
eru stórtækari en aðrir í þeim
efnum eins og bræður sem ljósmynd-
ari Blaðsins rakst á fyrir utan flug-
eldasölu í Kópavoginum. Þeir sögð-
ust hafa það að markmiði að vera
alltaf með gæsilegustu sýninguna
og er efnið á myndinni aðeins brot
af því magni sem þeir sprengja upp
á gamlárskvöld, afganginn stóð til
að sækja á sendibíl! I ár verða bræð-
urnir, sem ekki vildu láta nafns síns
getið, staddir í Grafarholtinu og
lofa þeir stórri sýningu. Þeir ætla
að skjóta upp í þrennu lagi, fýrst á
miðnætti, síðan klukkan þrjú um
nóttina og aftur klukkan fimm að
morgni nýársdags. Aðspurðir um
kostnað við ævintýrið vildu þeir
ekki gefa hann upp.
BlaMMkl
Alþjóðahúsið:
Forsetinn veitir
viðurkenningar
Forseti íslands Ólafur Ragnar dóttir, Bjarni Karlsson, Hope Knúts-
Grímsson veitti í gær viðurkenn- son og Kramhúsið sem fengu viður-
ingar Alþjóðahússins 2005 fyrir kenningu. Á myndinni veita þau
lofsverða frammistöðu i málefnum Vigdís, dóttir Hafdísar Árnadóttur
innflytjenda og fjölmenningarlegs eiganda Kramhússins og Styrmir,
samfélags á íslandi. Þetta er í þriðja barnabarn hennar verðlaununum
skipti sem verðlaunin eru veitt og í viðtöku fyrir hennar hönd en hún er
ár voru það þau Jóna Hrönn Bolla- stödd erlendis. ■
ÁTVR:
Gera ráð fyrir um 70
þúsund viðskiptavinum
Áfengissala eykst mikið milli jóla
og nýárs og í gær mynduðust víða
biðraðir við afgreiðslukassa í vín-
búðum. Gert er ráð fyrir svipaðri
sölu fyrir þessi áramót og í fyrra.
Mikilös
Að sögn Einars Einarssonar, fram-
kvæmdastjóra sölu- og markaðs-
sviðs ÁTVR, þrefaldast sala venju-
lega á freyðivíni milli jóla og nýárs
en almennt er sala á áfengi mjög
mikil í desembermánuði. Þá segir
hann jólin i ár vera óhagstæð fyrir
viðskiptavini þar sem minna er um
frí en venjulega. „Jólin í ár eru óhag-
stæðari fyrir fólk vegna þess hversu
lítið frí það fær og þess vegna kaupir
það ekki jafn mikið. Þó reikna ég
með svipuðum tölum og í fyrra
miðað við hvernig Þorláksmessa þró-
aðist en salan þá var nákvæmlega sú
sama og í fyrra.“ Mikil ös var í vín-
búðunum í gær en alls er gert ráð
fyrir að um 70 þúsund manns leggi
Miklar biðraðir mynduðust við afgreiðslu-
kassa í áfengisverslunum i gær.
leið sína í vínbúðirnar siðustu tvo
dagana fyrir áramót. „í gær komu
um fimmtíu þúsund manns en við
gerum ráð fyrir um tuttugu þúsund
viðskiptavinum í dag,“ sagði Einar.
bémba.is
* -1Tangarhöf öa 1
Komdu með...
■ til Utah í 10 daga skíóa og skoðunarferó
í mars 2006, fararstjórí Jón Jóel
■ til Slóveníu í 10 daga ævintýraferð
í maí. Fararstjóri Jón Baldur
■ til Bayern í 8 daga konunglega
skemmtireisu í maí.
Fararstjóri Jón Baldur.
■ á Niirburgring í helgarferð á Formúluna
í maíbyrjun. Fararstjóri Jón Baldur
Hámarksstæró
um 20 manns.
Nánari upplýsingar á
www. isafoldtravel. i s
Ferðaskrifstofan ísafold,
sími 544 8866.
Litlir hópar - lifandi ferðir
Börnfœdd utan hjónabands:
íslendingar á
toppnum í Evrópu
Börn fædd utan hjónabands eru
algengari hér á landi en í nokkru
öðru Evrópulandi. Tölfræðistofnun
Evópusambandsins hefur tekið
saman tölur um þessi efni fyrir árið
2004. Þar kemur í ljós að hið nýja
aðildarriki sambandsins Eistland
trónir á toppnum, en þar fæðast
60% allra barna í landinu utan hjóna-
bands. Meðaltalið i Evrópu er mun
lægra, eða um 31,6%. Á eftir Eistum
fylgja svo Svíar með 55% og Danir
með 45,4%- Á hinum enda skalans
eru svo suðlægari Evrópuþjóðir, en á
barna utan
Akjengast á (slandi
Það kemur því kannski ekki sérstak-
lega á óvart að hér á landi fæðast flest
börnutan hjónabands eða 64%, tæp-
lega tveir þriðju hiutar allra feddra
barna. Árið 2004 fæddust hér á landi
samkvæmt töhun frá Hagstofunni
alls 4.234 börn og af þeim voru 2.696
fedd utan hjónabands, annað tivort
af einstæðri móður eða af foreldrum
í óvígðri sambúð. Engin önnur þjóð
í Evrópu, kemst nærri Islendingum
í þessum efnum. ■