blaðið - 31.12.2005, Síða 17
Blaðið/Gúndi
blaðið LAUGARDAGUR 31. DESEMBER 2005
ÁRIÐ SEM ER AD LÍÐA I 17
Baugsmálið var af ýmsum
álitsgjöfum nefnt sem
óvæntustu tíðindi ársins
eða helstu vonbrigði þess.
Hér sjást sakborningarnir
Jóhannes Jónsson I Bónus,
Jón Ásgeir Jóhannesson
og Tryggvi Jónsson ganga
til fyrirtöku málsins í
Héraðsdómi Reykjavíkur
í haust þar sem þeir lýstu
allir yfir sakleysi stnu.
EYÞÓR ARNALDS
FRIÐBJÖRN ORRIKETILSSON
Stjarna ársins.
Gunnar Egilsson pólfari og heims-
methafi sem er sannkölluð póls-
stjarna norðursins. Gunnar hefur
komið norðrinu á kortið og það á
Suðurheimsskautinu!
Stjörnuhrap ársins.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir for-
maður Samfylkingarinnar. Stuðn-
ingsmenn hennar áttu von á hala-
stjörnu, en fengu stjörnuhrap í
staðinn. Ingibjörg hefur enn ekki
náð áttum nú um áramót og kennir
öðrum um lækkandi flug.
Ánægjulegasti viðburður ársins.
Mér fannst ánægjulegast að fá að
leika með Todmobile fyrir hundrað
þúsund íslendinga á hafnarbakk-
anum í Reykjavík á síðastu menning-
arnótt R-listans.
Vonbrigði ársins.
í árslok finnst mér mikil vonbrigði
að einu lagfæringar á Hellisheiði séu
fyrir Alfreð Þorsteinsson og Hellis-
heiðarvirkjun. Enn eru engin áform
um að tvöfalda heiðina, þrátt fyrir
mikið álag, slys og þá staðreynd að
skipflutningar hafa nú lagst upp á
land. Ég er sannfærður um að þetta
verður leiðrétt af myndarskap á nýju
ári, enda annað verið metnaðarfullt
í samgöngumálum á árinu sem og
síðustu árum.
Óvæntustu tíðindi ársins.
Óvæntast fannst mér að íbúðalána-
sjóður fór inn á almennan lána-
markað og varð þar með heildsölu-
banki ríkisins loksins þegar búið
var að selja bankana og afleggja
ríkisábyrgðir að baki ríkisbanka á
Islandi.
Stjarna ársins
Ólafur Magnússon og aðrir sem
stóðu að stofnun Mjólku ehf sem
framleiðir mjólk og tengdar vörur.
Fyrirtækið starfar alfarið utan
styrkjakerfis hins opinbera. Verkin
látin tala í aðdáunarverðri viðleitni
einstaklinganna til að ná árangri
þrátt fyrir hindranir ríkisins.
Stjörnuhrap ársins
Ingibjörg Sólrún var á árinu kosin
til formennsku í einum stærsta
stjórnmálaflokki landsins en fylgi
flokksins hefur hrunið jafnt og þétt
síðan. Stjörnunni sem töluð var upp
til skýjanna hefur sem fyrr ekki tek-
ist að skína.
Ánægjulegasti viðburður ársins
Lækkun ríkisstjórnarinnar á
tekjusköttum einstaklinga sem
og afnám eignaskatta sem kemur
til framkvæmda um áramótin. Frá-
bært skref í átt að auknu frelsi sem
kemur öllum til góða - sérstaklega
fátækum.
Vonbrigði ársins
Brotthvarf Davlðs Oddssonar úr
stjórnmálum. Þar fór mikill bar-
áttumaður fyrir einstaklingsfrelsi
og litlum ríkisafskiptum. Frelsið
missti sterkan baráttumann í stjórn-
málum en eignaðist nýjan á sviði
efnahagsmála.
Óvæntustu tíðindi ársins
Niðurstaða Alþjóðaviðskiptastofn-
unarinnar um að vinna að niður-
fellingu styrkja til landbúnaðar og
fella niður tollamúra á innflutning
landbúnaðarafurða. Frábært skref
sem ekki var fyrirsjáanlegt og
mun einna helst bæta hag fátækra í
þróunarlöndum.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir var af flestum nefnd til dæmis um stjörnuhrap ársins. Hér
hrósar hún sigri á landsfundi Samfylkingarinnar ásamt varaformanni sínum.
Blaðið/Gúndi
O
KATRÍN JÚLlUSDÓTTIR
Stjarna ársins
Steinunn Valdís Óskarsdóttir. Hún
þorði, gat og vildi hækka laun þeirra
lægst launuðu hjá borginni. Sýndi
þarna að hún er jafnaðarmaður í
verki og sýndi að lág laun eru ekki
lögmál og þau er hægt að hækka ef
rétt fólk stýrir skútunni.
Stjörnuhrap ársins
Geir H. Haarde. Hann hefur ekki
sýnt þjóðinni neitt síðan hann var
kosinn formaður Sjálfstæðisflokks-
ins. Hann var kosinn formaður og
hvarf í kjölfarið.
Ánægjulegasti viðburður ársins
Hækkun Reykjavíkurlistans á
lægstu launum starfsmanna borgar-
innar. Rétt forgangsröðun og alvöru
aðgerð til að leysa bráðan vanda
vegna vöntunar á starfsfólki í und-
irstöðu störf s.s. á leikskólum hjá
borginni.
Vonbrigði ársins
Aðgerðaleysi og þyrnirósarsvefn
meirihluta sjálfstæðis- og framsókn-
armanna í Kópavogi í málefnum leik-
skólanna þar í bæ. í allt haust hefur
vantað starfsfólk og foreldrar þurft
að vera heima með börnin nokkra
daga í mánuði. Það var vitað að
ástandið myndi versna enn nú um
áramót en ekkert hefur verið gert
til að bregðast við vandanum. Furðu-
leg forgangsröðun þegar áformuð er
bygging íþróttahallar og óperuhúss
uppá fleiri milljarða.
Óvæntustu tíðindi ársins.
Fátt kom á óvart í pólitíkinni á árinu.
Nema kannski hvarf Geirs H. Ha-
arde af sjónarsviði stjórnmálanna
eftir að hann var kjörinn formaður
Sjálfstæðisflokksins. Bjóst við því
að hann yrði ögn atkvæðameiri og
reyndi að marka sér sérstöðu í stjórn-
málum eftir brotthvarfDavíðs.
KJARTAN MAGNÚSSON
Stjarna ársins
Davíð Oddsson, sem kvaddi stjórn-
málin með stíl. Hann getur litið
yfir farinn veg með stolti og mun
halda áfram að þjóna landi og þjóð
á nýjum vettvangi.
Stjörnuhrap
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir hlýtur
að hafa valdið öllum vonbrigðum. í
stað þess að eggja sitt fólk til dáða er
þetta allt að koðna niður hjá henni.
Ánægjulegasti viðburður ársins
Glæsilegt prófkjör okkar sjálfstæð-
ismanna. Eg er auðvitað þakklátur
fyrir þann mikla stuðning, sem
ég hlaut, en ekki síður fyrir það
hvernig prófkjörið var okkur sjálf-
stæðismönnum lyftistöng og skiíaði
afar sterkum og heilsteyptum lista.
Vonbrigði ársins
Hvernig líkið af R-listanum heldur
áfram að gera borginni og borgar-
búum, allt til þess að halda í völdin.
Óvæntustu tíðindi ársins
Að Dagur B. Eggertsson skyldi hætta
að verða óháður stjórnmálamaður
og gerast Samfylkingarmaður. Það
var ámóta óvænt og stuðningsyfir-
lýsing hans við Ingibjörgu Sólrúnu
Gísladóttur í formannskjöri Samfylk-
ingar meðan hann var enn óháður.
• t. W
MARGRÉT SVERRISDÓTTIR
Stjarna ársins
Saga Thelmu af sjúkum föður
hennar lætur engan ósnortinn og
það þarf mikið hugrekki til að segja
slíka sögu.
Stjörnuhrap ársins
Stjörnuhrap Framsóknarflokksins
var Auðunn Georg Ólafsson, sem
var fréttastjóri einn dag en hrökkl-
aðist frá vegna óánægju með pólit-
íska ráðningu hans, enda var hann
alveg reynslulaus í samanburði við
aðra umsækjendur. Nú er hann
gleymdur.
Anægjulegasti viðburður ársins
Kvennafríið 24. október sl. vegna
þess mikla fjölda kvenna sem lagði
niður vinnu til að mótmæla launa-
mun kynjanna og sýna samstöðu
sína.
Vonbrigði ársins
Þingmaðurinn sem sveik góðan mál-
stað og alla sína kjósendur þegar
hann skipti um flokk í þeim tilgangi
einum að þjóna hégómagirnd sinni.
Svo liggur hver sem lund er til.
Óvæntustu tíðíndi ársins
Þegar Davíð ákvað að setjast í stól
Seðlabankastjóra. Það hefur marg-
sýnt sig að hann hefur ekkert vit á
efnahags- og fjármálum.
SIGRlÐUR Á. ANDERSEN
Stjarna ársins
Bíleigendur. Þeir hafa bætt við sig 18
þúsund nýjum fólksbílum á þessu
ári þrátt fyrir stjarnfræðilega skatt-
heimtu og áróður R-listans gegn
einkabílnum.
Stjörnuhrap ársins
Hinar dýrkeyptu fótboltastjörnur
Real Madrid.
Ánægjulegasti viðburður ársins
Álagning eignarskatta - í síðasta
sinn.
Vonbrigði ársins
Að kettir, sem blessunarlega hafa
verið án opinberra afskipta frá land-
námi, voru veiddir í reglugerðanet
Reykjavíkurborgar.
Óvæntustu tíðindi ársins
Niðurstaðan í lóðahappdrætti R-list-
ans í Lambaseli var með ólíkindum.
ÞORGRlMUR ÞRÁINSSON
Stjarna ársins
Magnús Scheving. Hann fylgir sann-
færingu sinni og ástríðu þrátt fyrir
erfiðar hindranir og hefur haft víð-
tæk áhrif á viðhorf barna til mata-
ræðis. Magnús er öðrum til eftir-
breytni, fylgir draumsýn sinni.
Stjörnuhrap ársins
Ónefndur Einskisson. Langflestir
hrapa einhvern tímann í lífinu en til
allrar hamingju rísa flestir upp aftur.
Sterkustu persónuleikarnir hefja sig
alltaf til flugs eftir brotlendingar.
Ánægjulegasti viðburður ársins
Að fylgjast með börnunum
mínum upplifa jólin, gjafirnar
og gleðina af hjartans einlægni á
aðfangadagskvöld.
Vonbrigði ársins
Skammsýni og úrræðaleysi ráða-
manna þjóðarinnar í málefnum aldr-
aða og þeirra sem minna mega sín.
Þótt menn hafi völd verða þeir að
þora að vera einstaklingar og fylgja
hjartanu.
Óvæntustu tíðindi ársins
Áhugi almennings á persónulegum
harmleik annarra sem einstaka fjöl-
miðlar velta sér endalaust upp úr.