blaðið - 31.12.2005, Blaðsíða 22
22 I TILVERAN
LAUGARDAGUR 31. DESEMBER 2005 blaAÍA
I Halldóra hugsar upphátt
é
,Nú árið er liðið í
aldanna skautr
Jæja, þá er komið að árslokum og öllu húllumhæi sem því fylgir.
Yfirleitt ríkir mikil stemning hjá landanum fyrir þessu kvöldi
og menn eru farnir að planleggja kvöldsins dýrðir löngu áður
en gamlársdagur knýr dyra. Hins vegar hef ég ósjaldan orðið
vör við að tilhlökkunin snúist upp í andhverfu sína þegar á
hólminn er komið. Enda þótt gamlárskvöld kunni að vera af-
spyrnu skemmtilegt kvöld í faðmi fjölskyldu og annarra sprelli-
gosa þá geta því fylgt ansi blendnar tilfinningar.
Þetta sýnir sig náttúrulega best þegar klukkan slær tólf og
„nú árið er liðið í aldanna skaut” berst eyrum okkar. Þá vilja
jafnvel hörðustu menn verða nokkuð meyrir við það að horfa
um öxl og líta yfir farinn veg. Hvort sem árið hefur verið gott
í alla staði eða bara fremur skítt, þá læðast nokkur tár fram í
augnkrókana og maður verður ferlega lítill eitthvað inn í sér.
Ég reyndar held að þetta sé vegna þeirra krafna sem við gerum
til hvers árs fyrir sig. Við ætlumst til þess að nýtt ár færi okkur
ómælda gleði og hamingju á silfurfati svo að við getum nú
skálað með fullri reisn þegar árið kveður svo að lokum. Ég veit
ekki hvort þessar væntingar kunni góðri lukku að stýra þegar
öllu er á botninn hvolft, nú eða hvort það sé hreinlega sniðugt
Þetta eru nú bara skipti milli
eins árs til annars, eins dags
til annars dags og nýrri tölu
á dagatalinu. Einhverra hluta
vegna virðist þessi skipti
samt verða einhver uppgjörs-
tími hjá okkur þar sem við
skoðum hvað við höfum af-
rekað og hverju við höfum
glatað. Voðalega dramatískt
allt saman.
Svo eru það áramótaheitin
sem vekja furðu mína. Fólk
ákveður að hætta að reykja,
taka af sér fjóra sentímetra á
lærum, hætta að borða blessuð
dýrin, endurskipuleggja fjár-
haginn (á milli þess sem það
kveikir í tugum þúsunda í lofti)
eða hvaðeina annað sem við
wmHM
hrösum svo yfirleitt um á endanum. Persónuleg áramóta-
heit eru mér allavega ekki að skapi. Það er þá einna helst
að maður myndi mælast til þess að ákveðin fyrirtæki
og stofnanir myndu leggja línurnar fyrir mannúðlegri
stefnu í starfi. Hér má helst nefna harðsvíruðustu fjöl-
miðlasneplana sem hafa haft það eitt að markmiði að
gera mörgum Islendingnum lífið leitt og spangóla um
víðan völl sögur um einkalíf fólks - þá flestar ósannar.
Nei, nú er þetta kannski orðið aðeins of neikvætt,
enda ekki ætlunin að skammast út í aðra á fallegum
degi sem þessum. Engu að síður mega margir hugsa
sinn gang.
Annars óska ég öllum gleðilegs árs og far-
sældar á árinu sem senn gengur í garð. Vonandi
eigið þið góða stund í kvöld, hvort sem það verður
með grátstafinn í kverkunum eður ei. Þetta er allt
saman voðalega fallegt!
Halldóra Þorsteinsdóttir
HEIMAVÖRN SECURITAS - ÖRYGGISKERFI FYRIR HEIMILIÐ
Ertu sátt/ur við árið sem er að liða?
Nú er árið á enda runnið og
margir líta eflaust til baka og
skoða það sem gert hefur verið
á árinu. Árin eru misjöfn eins
og þau eru mörg og eitt ár getur
verið afar óheppilegt meðan
annað er dýrlegt. Hvað sem því
líður er um að gera að horfa já-
kvætt á komandi tíma, bjóða nýtt
ár velkomið til leiks og kappkosta
að bæta það sem betur má fara í
leik og starfi.
Þreyttu eftirfarandi persónuleika-
próf, og þú getur komist að raun
um hvort þú sért í raun ánægð/ur
með liðið ár eða hvort það hefði
mátt vera ívið betra.
IÞegar þú lítur til baka - ertu
sátt/ur við það sem þú hefur
gert á árinu, eða finnst þér
ekki mikið til ársins koma í heild
sinni?
a)Ég er mjög sátt/ur við árið sem
er að líða og vona að næsta ár verði
eins gott, jafnvel betra.
b)Þetta var ágætis ár, en ekki endi-
lega sérstakt. Maður átti svosem
betra ár í fyrra eða árið þar áður.
c) Þetta ár var eiginlega í einu orði
sagt hrikalegt. Það er eins gott að
næsta ár verði betra.
2Finnurðu fyrir þakklæti
fyrir liðnu ári og þeim
hlutum sem gerst hafa í
þínu lífi?
a)Þakklæti?! Nei, ég held nú síður
- það er ekki mikið að þakka fyrir
sérstaklega þetta árið.
b)Jú, að sjálfsögðu finn ég fyrir
miklu þakklæti og finnst ég hafa
áunnið mikið.
c) Maður er kannski þakklátur fyrir
vini og fjölskyldu, en það er ekki
neitt sérstakt sem ég get þakkað
fyrir þar fyrir utan.
3Hlakkar þú til að takast
á við nýtt ár og jafnvel
upplifa eitthvað nýtt og
skemmtilegt?
a)Nei, ég kippi mér ekki upp við
nýtt ár og þess vegna finn ég ekki
fyrir neinni sérstakri gleði eða til-
hlökkun varðandi árin sem slík.
b)Jú, ég hlakka þvilíkt til og er ansi
jákvæð/ur á nýja árið! Það er alltaf
eitthvað skemmtilegt sem gerist í
upphafi nýs árs.
c) Jújú, það er ágætt að fá nýtt ár - en
ég er ekkert að spenna mig of mikið
upp sökum þessa.
Finnst þér gamlárskvöld
skemmtilegt og spennandi
kvöld?
a) Nei, mér finnst það oft hálf sorg-
legt bara. Þá finnur maður fyrir ein-
hverri viðkvæmni og núna held ég
að ég verði sérstaklega meyr þegar
ég horfi til baka.
b) Jájá, það er alltaf ákveðin stemn-
ing sem fylgir þessu kvöldi - flug-
eldar og önnur skemmtilegheit sem
gaman er að taka þátt í.
c) Já, þetta er besta kvöld ársins hjá
mér. Það er ekki hægt að horfa yfir
liðið ár án þess að hafa bros á vör og
vera sátt/ur.
Tókstu á við einhverja nýja
og framandi hluti á árinu
2005?
a) Nei, ég gerði ekkert spennandi
þannig séð.
b) Kannski ekki framandi hluti, en
maður upplifði ýmislegt nýtt og
skemmtilegt.
c) Jú - ég geri alltaf eitthvað skemmti-
legt og þetta ár er engin undantekn-
ing. Það þýðir ekki að hjakka ætíð í
sama farinu.
6Lentirðu í miklum erfið-
leikum tengdum starfi, fjöl-
skyldu, vinum eða heiísu-
fari á liðnu ári?
a)Nei, ég var svo heppin/n að lenda
í sem minnstum erfiðleikum. Auð-
vitað er alltaf eitthvað sem skýtur
upp kollinum, en það er óþarfi að
spá mikið í það.
b)Það er alltaf eitthvað neikvætt
sem á sér stað, mismikið bara eftir
árum.
c)Já, ég get ekki sagt annað en
að þetta hafi verið mitt óhappaár
varðandi samskipti við aðra og
heilsuleysi.
Áttu miklar breytingar sér
stað á árinu, s.s. flutningar
eða annað sem hafði áhrif á
lífþitt?
a)Já, það var mikið sem breyttist
- árið var sannkallað umskiptaár í
alla staði.
b)Nei, þetta var bara enn eitt árið
sem líður án mikilla breytinga.
c) Jú, það breytist auðvitað alltaf eitt-
hvað á hverju ári.
8. Vonastu til að upplifa
svipaða hluti á nýju ári og
það sem þú upplifðir á árinu
2005?
a) Nei, ég væri nú alveg til í að fá eitt-
hvað annað á komandi ári.
b) Það er margt sem ég myndi vilja
upplifa aftur, en annað sem ég vil
helst ekki sjá.
c) Já! Ef nýja árið verður eins marg-
breytilegt og skemmtilegt og það
sem er að líða þá er ég í góðum
málum!
Reiknaðu út stigin
1. a) 4 stig b)2stig c) 1 stig
2. a) 1 stig b) 4 stig c) 2 stig
3. a) 1 stig b) 4 stig c) 2 stig
4. a) 1 stig b) 2 stig c) 4 stig
5. a) 1 stig b) 2 stig c) 4 stig
6. a) 4 stig b) 2 stig c) 1 stig
7. a) 4 stig b) 1 stig c) 2 stig
8. a) 1 stig b) 2 stig c) 4 stig
0-8 stig:
Þú ert síður en svo ánægð/ur með
árið sem er að líða. Eflaust hefur
þú lent í einhverjum hrakningum,
hvort sem er í einkalífi, starfi eða
öðru í lífi þínu. Auðvitað er leiðin-
legt að upplifa óskemmtilegt ár, en
engu að síður þarftu að herða upp
hugann og líta fram á veginn. Við
upplifum öll leiðinleg ár einhvern
tímann á lífsleiðinni og málið
er bara að leggja sig fram við að
bæta úr því á nýju ári. Gangi þér
vel - og vittu til, það leynast góðir
hlutir rétt handan hornsins.
9-20 stig:
Þér fannst árið ágætt út af fyrir
sig, þó svo að það hefði e.t.v. mátt
vera betra. Sum ár eru einmitt
svona - þau einhvern veginn líða
bara án þess að neitt merkilegt ger-
ist. Við slíkar aðstæður þarf bara
að læra þolinmæði og njóta þess
að lifa hvern dag fyrir sig án þess
að mikið sé í gangi. Blákaldur
hversdagsleikinn getur líka verið
sjarmerandi og við þurfum að
geta notið hans.
21-32 stig:
Það er naumast hvað þú hefur
átt gott ár. Vonandi meturðu það
og ert þakklát/ur fyrir það sem
á daga þína eða þinna nánustu
hefur drifið. Þegar vel gengur er
mikilvægt að taka hlutunum ekki
sem sjálfsögðum, heldur þakka
fyrir og finna fyrir gleði í brjósti
á innilegan hátt. Vonandi verður
næsta ár eins gott og þetta hjá þér,
en hins vegar máttu ekki gera of
miklar kröfur. Það er ekki alltaf
gaman í lífinu og það þurfa allir
að gera sér grein fyrir því.