blaðið - 31.12.2005, Qupperneq 32
32 IBÖRN
LAUGARDAGUR 31. NÓVEMBER 2005 blaðið
BRANDARAR
Nt
leðilegt nýtt
r krakkar!
að:
Litaðu mig!
gólfinu á gamlársdag.
í Frakk-
1 a n d i
b o r ð a r
fólk fullt
af pönnu-
k ö k u m
í von
um góða
heilsu og
góða gæfu.
Belgískir bændur óska dýrum
sínum gleðilegs nýs árs enda
er það talin mikil blessun þar
í landi.
í Armeníu
er sérstakt
brauð bakað
fyrir gaml-
árskvöldsem
fjölskyldan
getur svo
gætt sér á.
Brauðið er
hnoðað fullt
af gæfu og góðum óskum áður
en það erbakað.
í Norður Portúgal er hálfgerður
öskudagur á gamlársdag því
börn þar fara á milli heimila
syngjandi. Þau fá síðan nammi
og peninga fyrir fallegan söng.
Fjölskyldur í Bólivíu búa til
fallegar viðar- eða strádúkkur
sem síðan eru hengdar fyrir
utan heimilið til að færa fjöl-
skyldunni lukku.
Krókódílar eru með kalt blóð og hafa gaman af því
að sóla sig f hópum, með munninn galopinn.
Krókódílar eru
góðir foreldrar
Krókódílar eru mjög merkileg dýr á
allan hátt. Þeir lifðu af risaeðluöld-
ina en finnast núna í Afríku, Asíu,
Ástralíu og Ameríku. Krókódílar eru
misstórir en þeir stærstu geta orðið
allt að ío metra langir og 900 kíló.
Þessir stóru krókódílar verða sífellt
sjaldgæfari því þeir eru oft veiddir
þar sem skinn þeirrra er mjög vin-
sælt. Skinnið er síðan notað í töskur,
skó, kápur og fleira. Krókódílar
borða fiska, fugla og spendýr, jafn-
vel einstaka manneskju. Þeir veigra
sér því ekki við að éta eitthvað stórt
og hafa t.d. étið flóðhesta, gíraffa og
ljón.
Með kalt blóð og steina í maganum
Krókódílar eru með kalt blóð og hafa
gaman af því að sóla sig í hópum,
með munninn galopinn. Á nóttinni
eru þeir að mestu í vatni. Þrátt fyrir
að vera með kalt blóð þá halda þeir
líkamshita sínum mjög stöðugum.
Þegar þeir halda sig saman í hópum
þá eru þeir yfirleitt í sömu stærð
því þeir eiga það til að éta sína eigin
tegund. Stóru krókódílarnir éta
stundum þá minni. Þrátt fyrir að
krókódílar liti út fyrir að vera mjög
grimmir, með allar þessar tennur,
þá eru þeir mjög umhyggjusamir
foreldrar. Krókódílar eru með sund-
fit en nota sjaldnast lappirnar til að
synda. Krókódílar lifa að jafnaði í
45 ár en þó hafa krókódílar í ánauð
lifað í allt að 80 ár. Steinar finnast
oft í maga á fullorðnum krókódílum
og líffræðingar telja að steinarnir
hjálpi krókódílunum að melta mat-
inn sinn.
Blaðið óskar öllum krökkum
gleðilegs nýs árs og þakkar kær-
lega fyrir góð viðbrögð á síðasta
ári. Um leið og lesendur skjóta
upp flugeldum og skemmta sér í
kvöld munið þá vel eftirfarandi:
• Passaðu að fara ekki of nálægt
brennunni
• Notaðu öryggisgleraugun þegar
þú ert við brennuna. Það geta komið
neistar úr brennunni og svo eru
alltaf einhverjir sem skjóta upp flug-
eldum nálægt brennu. Það er alltaf
betra að vera með gleraugun.
• Mundu að fikta alls ekki í
neinum flugeldum eða eldi. Það
getur verið stórhættulegt.
• Það á alltaf að nota öryggisgler-
augun nálægt flugeldum, jafnvel þó
bara sé verið að horfa á þá. Minntu
líka mömmu, pabba, afa og ömmu
og alla aðra á að nota gleraugun.
Fullorðið fólk gleymir stundum að
það getur líka lent í slysi.
• Vertu alltaf langt frá flugeld-
unum þegar verið er að kveikja í
þeim. Það er aldrei að vita í hvaða
átt þeir fara.
• Alls ekki fikta í eldspýtum eða
öðrum eldi. Biddu bara einhvern
fullorðinn að kveikja á stjörnuljós-
inu fyrir þig.
• Áður en þú ferð að leika þér
að innibombum skaltu vera alveg
viss um að þetta sé hættulaus inni-
bomba. Spurðu einhvern fullorð-
inn. Svo er um að gera að bregða
foreldrum og ættingjum með góðri
flöskusprengju.
• Farðu varlega og góða
skemmtun.
issirþú
Ef spenningurinn er mikill fyrir gamlárskvöldi þá er oft erfitt að bíða. Tím-
inn líður ósköp hægt og kvöldið virðist aldrei ætla að koma. Ef þig vantar
eitthvað til að stytta stundirnar þá gætirðu litað þessa skemmtilegu mynd.
Aumingja maðurinn á myndinni hefur borðað alltof mikið yfir jólin og er
alveg búinn að vera. Hundurinn er ekkert betri en er líka alveg afvelta. Góða
skemmtun
Það eru ekki allar þjóðir sem
fagna nýju ári á miðnætti í
kvöld. Sumar halda ekki upp
á áramót fyrr en 14. janúar en
þangað til er árið ennþá 2005
hjá þeim. Eins halda þau upp á
jólin 7. janúar.
Fæstar þjóðir skjóta upp eins
mörgum flugeldum og lslend-
ingar. I sumum
löndum
er það
m e i r a
að segja
bannað að skjóta
sjálfur upp flug-
eldum. Þar verða opinberir að-
ilar að halda flugeldasýningar.
í Puerto
Rico henda
börn fötum
fullum af
vatni út um
glugga á
heimili sínu
á miðnætti
á gamlárs-
kvöld. Þau
telja að
þessi siður
hreinsi heimili þeirra af illum
öndum.
Á miðnætti á gamlárskveldi
á Spáni borða allir 12 vínber,
eitt vínber fyrir hvern mánuð
nýs árs. Hvert vínber á að færa
lukku á nýju ári.
1 Sviss er talið að lukka komi af
því að láta rjómadropa lenda á
Hvað er rautt og fer upp og niður?
Svar: Tómatur í lyftu
Hvað sagði stóri tómaturinn við litla tómatinn þegar
þeir fóru yfir götuna?
Svar: Flýttu þér tómatssósan þín
Hvað sagði veggurinn við hinn vegginn?
Svar: Hittumst á horninu.
Hafðu samband: krakkar@vbl.is eða Krakkaumfjöllun, Blaðið, Bæjarlind 14-16,201 Kópavogur.