blaðið - 31.12.2005, Page 38
38IFÓLK
LAUGARDAGUR 31. DESEMBER 2005 blaöið
MINNA FYRIR
MEIRA
Smáborgarinn er dálítið pirraður þrátt
fyrir áramótaheit um að hætta öllum
pirringi. I vikunni fór Smáborgarinn
ásamt vinkonum sínum á veitingastað
í borginni sem þykir í ffnni kantinum.
Smáborgarinn ákvað að vera
heilsusamlegur í þetta sinn og pantaði
sér fisk. Fiskurinn kom eftir eðlilegan
afgreiðslutíma en Smáborgaranum þótti
skammturinn fremur lítill. Á börmum
disksins voru nokkrar litlar kartöflur og
eitthvað sem sennilega heitir perlulaukur
á fínu máli. Ofan á fiskinn var stráð
einhverskonar káli. Smáborgarinn er
kurteis að eðlisfari og fannst ekki ástæða
til að minnast á þennan smáa skammt,
enda var maturinn góður, þ.e.a.s. þetta
litla sem var af honum. Fyrir herlegheitin
borgaði Smáborgarinn 1600 krónur. Eftir
matinn var setið og spjallað eins og siður
er þegar fólk fer á fínni veitingastaði. Það
kom þó fljótlega ókyrrð á Smáborgarann
því hann fann til svengdar. Eftirréttur er
náttúrlega tilvalinn þegar maður situr
á veitingastað en nokkrum vikum áður
hafði Smáborgarinn borgað 900 krónur
fyrir pínulitla súkkulaðiköku á sama stað.
Niðurstaðan var því þessi; best að koma
sér út og fá sér almennilega að borða.
Þegar Smáborgarinn horfði í kringum
sig á staðnum sá hann prúðbúið fólk
sem sötraði úr vínglösum sínum og
virtist gera sér veitingarnar að góðu.
Smáborgarinn nennir hinsvegar ekki að
snobba fyrir fínum mat sem er skorinn
við nögl. Það er skemmst frá því að segja
að Smáborgarinn fór beina leið í næstu
videóleigu eftir matinn og keypti sér ís
og karamellur og varð mettari af því en
fisknum dýra.
Smáborgarinn veit um fólk sem hefur
svipaða sögu að segja. Dýrir og fínir
veitingastaðir skammta mat og drykk
svo naumt að það er til skammar. Á
sama tíma heldur þjóðin áfram að fitna
eins og púkinn á fjósbitanum. Kannski
vegna þess að það enda allir f ís og
frönskum til að fylla mallann eftir alla
fínu hollustuna sem kostar margra tíma
launverkamanns.
f Bandaríkjunum er annað uppi
á teningnum þegar kemur að
skammtastærðum á veitingastöðum.
Þar hefur Smáborgarinn snætt á dýrum
og fínum stöðum og hefur alltaf borðað
nægju sína. Amerikanar eru líka þekktir
fyrir risaskammta, skammta sem myndu
nægja fyrir heila herdeild. Smáborgarinn
er ekki að biðja um slíkt þegar hann
fer út að borða. Hann biður aðeins um
magafylli, er það til of mikils mælst?
HVAÐ FINNSTÞÉR?
Steingrímur Hermannsson, fyrrverandiforscetisráðherra.
Hverjar eru fréttir ársins?
„Það er nú erfitt að velja eitthvað eitt sérstakt. Hamfarirnar í Pakistan
eru ofarlega í huga ásamt eftirstöðvum flóðbylgjunnar um síðustu áramót.
Mér hefur fundist halla mjög á í umhverfismálum. Tjón þar hefur verið
mjög áberandi og óttast ég mjög að þar sé meira framundan. Ég botna
ekkert í þessari útrás fjármagnsins á íslandi. Það er ótrúlegt hvað menn
hafa fjárfest erlendis og auðgast af því. Ég sit bara með krosslagða putta og
vona að þetta hrynji ekki.“
Posh segist ekki vera illkvittin
Victoria Beckham hefur gefið upp hvers vegna hún vilji ekki vera dómari í nýjum hæfileika
þætti sem Simon Cowell er að gera. Hún segir að sér líki ekki tilhugsunin um að verða að
vera illkvittin. Victoria, nú 31 árs, hafnaði tilboði um að koma fram í nýjum fjölbreyttum
þætti sem Simon Cowell gerir með Paul O’Grady. Fyrrum Kryddstúlkan hefur líka nýverið
afþakkað tvö boð um að koma fram sem gestastjarna í þættinum „X-Factor“. Hún sagði í
viðtali við The Sun: „Hvernig gæti ég brotið niður drauma einhvers? Það þarf ákveðna mann-
gerð til að geta gert það, og það er bara ekki líkt mér. Ég bara get ekki verið illkvittin beint upp
í opið geðið á einhverjum.“ Vinkona hennar, Geri Halliwell, var eitt sinn fengin til að vera gesta
dómari í sjónvarpsþættinum „Popstars: The Rivals“. En Victoria ætlar ekki að fylgja í kjölfarið.
Hún hefur verið allt of upptekin við að fylgja eftir nýju tískuvörulinu sinni, VB.
McCartney dreymir
um „Coronation Street"
Heather Mills McCartney langar að fylgja fordæmi Sir Ian McKellen og vera
gestaleikari í sápuóperunni „Coronation Street“. Fyrrum fyrirsætan, sem er
gift Sir Paul McCartney er mikill aðdáandi þáttarins, því henni finnst hann
endurspegla rætur sínar úr norðri. Hún segir: „Ég myndi elska að fá að koma
fram í breskri sápu, og mér þætti best ef það væri „Coronation Street“ því ég á
rætur mínar að rekja norður eftir.“
Lancaster œtlar ekki í megrun
Unnusta Rod Stewarts, Penny Lancaster, neitar að fara í
megrun eftir að hafa fætt soninn Alastair Wallace, þrátt fyrir
að brúðkaup hennar og ellirokkarans sé á næsta leiti. Fyrir-
sætan og Ijósmyndarinn fæddi barn í síðasta mánuði og ætlar
að giftast næsta sumar, en heldur því statt og stöðugt fram
að heilsa sín og barnsins sé mun mikilvægari en kílóafjöldi.
Penny segir: „Það er mikilvægt að huga að næringu eftir
meðgönguna, en mér líkar bara mjög vel við súkkulaði
og eftirrétti. Mér finnst að maður ætti að láta sér líka
við þá persónu sem maður er á brúðkaupsdaginn, í stað
þess að reyna að vera eitthvað ákveðið. Ég tel ekki að það
að vera þvengmjór sé eitthvað aðalatriði.“
HEYRST HEFUR...
Ia rg 1 r
e r u
farnir að
pússa skóna
fyrir áramótaveislur fína
fólksins á nýársdag. Það er
að venju mikið um dýrðir í
Perlunni þar sem allir sem
eitthvað eru láta sjá sig. Veisl-
an er ekki ókeypis, þannig
kostar gott kvöld í góðra vina
hópi tugi eða jafnvel hundr-
uð þúsunda ef fatnaður er
tekinn með í reikninginn.
En hvað gerir maður ekki
fyrir ímyndina á þessum síð-
ustu og verstu...Þá má ekki
gleyma áramótapartíi Quent-
ins Tarantinos á Rex á gaml-
árskvöld. Því miður mun það
líka fyrir útvalda, en eins og
kunnugt er tókst honum á
ótrúlegan hátt að endurvekja
áhuga landans á kung-fu
myndum um jólin.
Tilkynnt
v e r ð u r
um íþrótta-
mann ársins
3. janúar næst-
k 0 m a n d i.
Talið er að
valið standi á milli Eiðs
Smára Guðjohnsen knatt-
spyrnumanns hjá Chelsea og
Guðjóns Vals Sigurðssonar
hjá þýska handboltaliðinu
Gummersbach. Eiður Smári
var valinn í fyrra en það hef-
ur aldrei gerst að sami knatt-
spyrnumaður hafi hlotið titil-
inn tvö ár í röð. Það hafa hins
vegar nokkrir friálsíþrótta-
menn gert, svo og Orn Arnar-
son sundkappi.
u var
t í ð i n
útlend-
11 n g a r
sem sóttu
okkur heim um jól og áramót
kvörtuðu sáran - ekki undan
flugeldunum, heldur vegna
þess að matsölustaðir voru
nánast undantekningalaust
lokaðir á jóladag og nýárs-
dag. Svo var jafnvel Tíka um
veitingastaði á hótelum og
urðu hinir útlendu gestir því
að láta sér nægja að maula
gamalt brauð ef þeir á annað
borð komust í slíkt. íslend-
ingar eru hins vegar orðnir
veraldarvanir og nú er varla
til sá pizzustaður að hann sé
ekki opinn yfir hátíðarnar.
Pa ð
ríkir
æ t í ð
spenna
þ e g a r
tilkynnt er um menn ársins
í viðskiptalífinu. Það er gam-
an að skoða þá útvöldu að
þessu sinni. Frjáls verslun
valdi Sigurð Einarsson og
Hreiðar Má Sigurðsson í KB
banka, enda hafa þeir unnið
stórvirki á árinu og eru vel að
titlinum komnir. Fréttablað-
ið og Viðskiptablaðið “skipt-
ust” hins vegar á medalíum
- Fréttablaðið valdi Björgólf
Thor fyrir velheppnaða út-
rás í ýmsum löndum og Við-
skiptablaðið svaraði með að
velja Mosaic fashions, sem
tengist Baugi, sem frum-
kvöðlafyrirtæki ársins.
Kjallarinn er fullur af sápuvatni