blaðið - 14.01.2006, Side 4
41 INNLENDAR FRÉTTIR
LAUGARDAGUR 14. IANÚAR 2006 blaöiö
Trúmál:
Helmings fjölgun kaþólikka
Hlutfallslega fœrri íslendingar eru í þjóðkirkjunni nú en fyrir tíu
árum.
Fyrir áratug voru rúmlega 90% allra
Islendinga skráðir í þjóðkirkjuna
en það hlutfall er komið niður í um
84% um þessar mundir. Á sama
tíma hækkar hlutfall íbúa í öðrum
trúfélögum. Þetta kemur fram í
tölum sem Hagstofa Islands sendi
frá sér í gær.
Nýtt tryggingafélag, með TM sem bakhjarl, hóf starfsemi sína í gær.
Tryggingar:
Elísabet
tryggir bílinn
Nýr kostur í bílatryggingum varð
til í gær þegar tryggingafélagið
Elísabet hóf göngu sina. Ætlun fé-
lagsins er að bjóða viðskiptavinum
að kaupa þjónustu til eins mánaðar
í senn í stað eins árs eins og tíðkast
hjágömlutryggingafélögunum. Enn-
fremur er boðið upp á aukið val við
töku trygginga, samkvæmt tilkynn-
ingu frá felaginu í gær. Reynt verður
að bjóða hagstæð kjör en slíkt mun
vera mögulegt vegna lítillar y firbygg-
ingar vegna þess að starfsemin mun
að mestu fara fram á netinu.
„Elísabet er vörumerki í eigu
Tryggingamið-
stöðvarinnar hf.
°g byggir tjóna-
þjónusta hennar
á 50 ára reynslu
TM á því sviði.
Óvenjulegt nafn
hennar ásamt merki
kemur hugmyndinni á bak
við starfsemina vel til skila. El-
ísabet hefur ákveðinn persónuleika
sem kristallast í væntumþykju í garð
bíla. Hún hefur skoðanir og tekur til
lit til ólíkra þarfa bíla og bíleigenda.
Skel hennar táknar einnig þá vernd
sem hún veitir ökumönnum og
bílum“ segir í tilkynningu frá fyrir-
tækinu í gær.
Þar kemur ennfremur fram að
skráðum trúfélögum hefur fjölgað
talsvert á undanförnum árum. Þau
eru í dag 23 en voru 14 fyrir áratug.
Alls tilheyra tæp 5% allra íbúa lands-
ins þessum trúfélögum. Af þeim er
Kaþólska kirkjan fjölmennust en
þar hefur meðlimum fjölgað um
meira en helming á tíu ára tímabili.
Árið 1995 voru þeir 2.553 en voru nú
um áramótin 6.451. Það þýðir að
um 2,2% íslendinga tilheyra
kirkjunni í dag en fyrir tíu
árum var það hlutfall
um 1%.
Hvítasunnusöfn-
uðurinn er næst
stærsta trúfélagið
utan þjóðkirkju og
fríkirkjusafnaða.
Þar eru félagar
nú 1.854 saman-
borið við 1.148
árið 1995. Önnur
trúfélög hafa innan
við 1.000 meðlimi og
í engu þeirra er hlut-
fall félaga yfir 0,3% af
íbúafjölda
Til óskráðra trúfélaga
og með ótilgreind trúarbrögð
heyrðu 3,9% þjóðarinnar sam-
anborið við 1% árið 1995. Utan
Blalii/Frikki
Um 16% íslensku þjóðarinnar stendur
fyrir utan íslensku þjóðkirkjuna.
trúfélaga voru 2,5% samanborið við
1,5% árið 1995.
Fjármálaráðherra:
Banaslys:
Vagnstjóri beið bana
BMil/Frikki
Banaslys varð á Sæbrautinni í
Reykjavík í gærmorgun þegar fjögur
ökutæki skullu saman. Að sögn lög-
reglu eru tildrög slyssins óljós en
svo virðist vera að strætisvagn á
norðurleið hafi lent utan í vörubíl
og síðan aftan á vöruflutningabíl.
Einnig lenti jeppabifreið í óhappinu.
Ökumaður strætisvagnsins lést við
áreksturinn en aðrir ökumenn slös-
uðust ekki. Loka þurfti götunni til
klukkan tvö um daginn, en slysið
átti sér stað rétt fyrir hálf tíu.
Starfsmenn Strætó slegnir
Ásgeir Eiríksson, framkvæmdastjóri
Strætó bs. sendi í gær frá sér yfirlýs-
ingu fyrir hönd stjórnar og starfs-
fólks fyrirtækisins þar sem segir
að fólk sé harmi slegið vegna slyss-
ins. Þar segir ennfremur að tildrög
séu óljós, en að vagnstjórinn hafi
verið einn í bílnum þar sem hann
hafði lokið akstri og var að ferja
vagninn að athafnasvæði Strætó
við Kirkjusand. „Hugur allra hjá
Strætó er hjá fjölskyldu félaga okkar
og við vottum aðstandendum hans
sorgar- og samúðarkveðjur,“ segir í
yfirlýsingunni.
Ákvörðun kjara-
dóms verði
felld úr gildi
Á ríkistjórnarfundi í gær lagði Geir
H. Haarde utanríkisráðherra, sem
gegnir starfi fjármálaráðherra á
meðan Árni Mathiesen er erlendis,
fram frumvarp þess efnis að
úrskurður kjaradóms um launa-
hækkanir verði felldur úr gildi. Ár-
mann Kr. Ólafsson, aðstoðarmaður
Árna, sagði í samtali við Blaðið að
í framhaldi af þessu yrðu teknar
frekari ákvarðanir um starfsemi
og skipulagí kjaradóms. „Þetta
frumvarp snýr eingöngu að þess-
ari sérstöku- ákvörðun dómsins.“
Hann segir seinna koma í ljós hvað
ákveðið verði í framhaldinu. „Þetta
frumvarp snýr að þessu, og síðan
kemur annað frumvarp seinna. Það
var ákveðið að byrja á því að klára
þetta mál, því meiri yfirlega er sam-
fara því að breyta skipulaginu öllu
og tekur meiri tíma.“
LungA fékk rós
Blaíil/Frikki
Eyrarrósin, verðlaun sem ætlað er
að stuðla að auknu menningarlífi
á landsbyggðinni voru veitt í gær
að Bessastöðum. Það var LungA,
listahátíð ungs fólks á Seyðisfirði,
sem að þessu sinni varð heiðursins
aðnjótandi. Veittu aðstandendur
verkefnisins verðlaununum viðtöku
hjá Dorrit Moussaieff, forsetafrú. í
umsögn dómsnefndar segir meðal
annars að LungA sé einkar litrík
menningarhátíð ungs fólks íbænum
sem höfði til fjölbreytts hóps heima-
manna og gesta.