blaðið - 14.01.2006, Blaðsíða 8
81 ERLENDAR FRÉTTIR
LAUGARDAGUR 14. JANÚAR 2006 bla6iö
Michelle Bachelet, forsetaframbjóðandi, ásamt stuðningsmönnum sínum í Santiago.
Gæti orðið forseti
fyrst kvenna
Michelle Bachelet, frambjóðandi
miðju- og vinstri manna, verður
fyrsta konan sem sest í stól forseta
Chile samkvæmt skoðanakönn-
unum. Kosningar fara fram á
morgun.
Bachelet hafði 5% forskot á
keppinaut sinn, Sebastian Pinera,
samkvæmt könnun sem birt var á
fimmtudag. Ef hún sigrar í kosn-
ingunum verður hún fjórði forseti
bandalags miðju- og vinstriflokka
sem hefur stjórnað landinu síðan
valdatíma herforingjastjórnarinnar
lauk árið 1990. Bachelet, sem er 54
ára, gegndi embætti varnarmála-
ráðherra í ríkisstjórn fráfarandi
forseta Ricardo Lagos.
Kosningabarátta frambjóðend-
anna tveggja hefur harðnað mjög
á endasprettinum. Pinera hefur
haldið því fram að það sé flokks-
vél ríkisstjórnarinnar sem rekur
baráttu Blancet en ekki hún sjálf.
Blanchet, aftur á móti, sakar Pinera
sem er vellauðugur kaupsýslumaður
um að nota auðæfi sín til að kaupa
sér stuðning.
Meintir hryðjuverka-
menn handteknir
Grunaðir um skipulagningu árása, vopna-
eign og skjalafals.
Þrettán menn, sem grunaðir eru
um að tilheyra A1 Kaída-hryðju-
verkasamtökunum, voru ákærðir
í Líbanon í gær fyrir að hafa ætlað
að gera hryðjuverkaárásir. Þeir eru
jafnframt ákærðir fyrir vopnaeign
og skjalafals að sögn saksóknara
Ahmed Awidat. Saksóknarinn gaf
ekki frekari upplýsingar um menn-
ina en sagði að hinir grunuðu yrðu
síðar yfirheyrðir fyrir herdómstóli.
Heimildarmenn innan lögreglu og
dómskerfisins greindu frá því í gær
að rannsókn hefði verið fyrirskipuð
á því hvort hinir grunuðu hefðu
staðið að árásum eða haft í hyggju
að gera árásir. Sömu heimildar-
menn sögðu að talið sé að menn-
irnir hafi verið handteknir fyrir um
tveimur vikum síðan.
Samkvæmt heimildarmönnum
eru mennirnir þrettán af ólíku þjóð-
erni. Sjö eru Sýrlendingar, þrir Líb-
anir, Sádí-Arabi, Palestínumaður og
Jórdani af líbönskum uppruna.
A1 Kaída gerir sjaldan árásir í
Líbanon þó að hópar tengdir sam-
tökunum hafi aflað liðsmanna í
landinu til að taka þátt í aðgerðum
uppreisnarmanna í Irak. A1 Kaída í
Meintir félagar í Al Kaída-samtökum
Osama bin Ladens hafa verið ákærðir í
Líbanon.
Líbanon hefur lýst yfir ábyrgð sinni
á þremur flugskeytum sem skotið
var frá suðurhluta Líbanons til fsra-
els seint í síðasta mánuði.
Auknar fjárveitingar til
baráttunnar gegn fuglaflensu
ESB og Alþjóðabankinn lofa auknumfjárveitingumgegnflensunni.
Tamiflu œtlar aðgefa lyftil þeirra svœða þar semflensan hefur verið
skœðust. Lítilsháttar stökkbreytingar hefur orðið vart í Tyrklandi.
Evrópusambandið hét því að
veita 100 milljónum Bandaríkja-
dala (6,1 milljarði ísl. kr.) til
baráttunnar gegn fuglaflensu í
gær. Tyrkir héldu áfram að farga
fuglum til að reyna að koma í veg
fyrir útbreiðslu hinnar banvænu
veiru.
Framleiðendur Tamiflu-lyfs-
ins, sem er helsta
lyf gegn hinu
banvæna
H5N1-
afbrigði fuglaflensunnar, sögðu
í gær að þeir myndu gefa meira
af lyfjum til svæða í Asíu þar sem
ógnin er talin mest.
Framlag Evrópusambandsins
kemur í kjölfar loforðs aðildarríkja
Alþjóðabankans um fjárhagsaðstoð
að jafnvirði 500 milljóna Bandaríkja-
dala til að takast á við veiruna sem
hefur borist frá fuglum
til manna og orðið
að minnsta
kosti 78
manns að
bana.
Olíuframleiðsla
dregst saman
Útflutningur ájarðgasi aldrei meiri engu að
síður
Áætlað er að olíuframleiðsla undan
strönd Noregs muni minnka um
nærri 5% á þessu ári, miðað við
síðasta ár. Engu að síður býst
Olíumálastofnun Noregs við að
útflutningur á jarðgasi verði meiri
en nokkru sinni fyrr.
Samkvæmt ársskýrslu stofnun-
arinnar er spáð að dagleg olíufram-
leiðsla muni nema um 2,43 millj-
ónum tunna á árinu, en í fyrra var
hún 2,56 milljónir tunna.
1 skýrslunni stendur að hráol-
íuframleiðsla í landinu, sem er
þriðja stærsta olíuútflutningsþjóð
í heiminum hefði einnig minnkað
um ein 9% frá 2004 til 2005. Minni
olíuframleiðslu má meðal annars
skýra með lokun Snorraborpalls-
ins snemma á síðasta ári.
Framleiðsla á síðasta ári var um
7,5% minni en spáð hafði verið í
ársskýrslu árið 2004 en nú væri bú-
ist við að olíuframleiðsla héldist
stöðug fram til ársins 2010.
Þrátt fyrir minni framleiðslu
jókst útflutningur á jarðgasi um
ein 8% frá árinu 2004 í fyrra og
hefur hann aldrei verið meiri.
Reiknað er meö að olíuframleiösla í Nor-
egi dragist saman um nærri 5% á árinu.
Skýrsluhöfundar segjast gera ráð
fyrir framleiðsluaukningu á gasi
sem ætlað er til sölu. Fjárfestingar
til olíuleitar og þróunarstarfs voru
auknar um nærri 23% frá 2004 til
2005.
Lítilsháttar stökkbreyting
Rannsóknastofa í Bretlandi hefur
komist að því að tvö fyrstu fórnar-
lömbin í Tyrklandi voru smituð af
lítillega stökkbreyttu afbrigði af
H5N1. Þó það hafi ekki virst vera
hættulegra afbrigði gæti stökkbreyt-
ingin fræðilega séð leitt til þess að
veiran berist auðveldar frá hænsn-
fuglum í menn. Enn sem fyrr óttast
menn mest að veiran stökkbreytist
á þann háít að hún berist á milli
manna.
Þangað til nýlega höfðu öll fórnar-
lömb sjúkdómsins greinst í austur-
hluta Ásíu þangað til nýlega þegar
tilfellin í Tyrkla.idi færðu veiruna
nær mörkum Evrópu.
Charbucks
hefur betur
Alríkisdómstóll í New York hefur
úrskurðað að lítilli kaffibrennslu i
New Hampshire sé heimilt að selja
kaffibaunir undir heitinu „Char-
bucks“. Þar með lýkur nærri áratugs-
langri baráttu fyrir dómstólum á
milli kaffibrennslunnar og stórfyrir-
tækisins Starbucks.
Laura Swain, dómari við alríkis-
dómstólinn í New York, úrskurð-
aði að ólíklegt væri að neytendur
myndu rugla saman vörumerkj-
unum tveimur. Dómarinn sagði
einnig að Starbucks, stærsta kaffi-
húsakeðja heims, hefði ekki getað
fært sönnur á að Charbucks-vörur
hefðu haft slæm áhrif á ímynd
fyrirtækisins.
Starbucks fór í mál við Black Bear
kaffibrennsluna, sem framleiðir
Charbucks-kaffibaunir, árið 2001
en lagadeild fyrirtækisins mótmælti
fyrst notkun heitisins „Charbucks“
árið 1997.
Á síðasta ári úrskurðaði dómari
við alríkisdómstól í Oregon Star-
bucks í vil í öðru máli þar sem hann
komst að því að konu að nafni Sam-
önthu Buck hefði verið óheimilt að
nefna kaffihús sitt Sambucks.
Sjáið myndirnar á
www.bilamarkadurinn.is
Smikimmcmi 46 S •
UTSALA
f---v--\
Rekkjan
Skipholt3ö Sími 688 195S www.rekkjan.is
Gleymam ckki i leit okkar að góðu Ufi
að það eru liisgæði að fá góðao svefn.
A ALVORU AMERISKUM HEI
King Koll Spine support Queen size
heilsudýnusett og fætur