blaðið - 14.01.2006, Blaðsíða 18
18 I VIÐTAL
LAUGARDAGUR 14. JANÚAR 2006 blaftið
Undirfarði
frá Chanel
jafnaðu húðina áður enfarðinn
er settur á
Margar konur og stúlkur skella
farðanum á andlitið án þess að
setja nokkuð annað á ysta yfirborð
' ^IVERoc,
húðarinnaráður. ^ DE CHANEL
Hins vegar ættu
konur að tileinka sér
el
vinsælu
barna-afmælískökurnar
færðu bjá okkur
Spiderman, Barbie, Bratz,Harry Potter, ofurhetjurnar,
Bangsimon, Litla hafmeyjan, Svampur Sveinsson og
margar fleiri Disney fígúrur.
Þú getur séð fleiri myndir inn á:
www.kokubankinn.is
Opnunartfminn er sem hér segir:
Mánud.til föstud. Kl.7.30 - 18.00
Laugardag KI.8.00-16.00
Sunnudag kl. 9.00-16.00
IKökubanklnn
lönbúö 2 - Garöabæ - slmi: 565 8070
a ð
setja
undirfarða
áður en farðað er, sérstaklega við
fínni tilefni sem krefjast þess að
förðunin sé óaðfinnanleg. Undir-
farði er mikilvægur til þess að jafna
húðina áður en farðinn er borinn
á, en auk þess nýtur farðinn sín
betur þegar búið er að þekja húð-
ina með góðu undirlagi. Liturinn
verður jafnari, húðin sjálf fallegri
og andlitið fær meiri dýpt.
Blanc universel de Chanel
er sérstaklega góður undirfarði
sem hentar flestum húðgerðum.
Hann er auðveldur í notkun og
þægilegur ásetningar, en hafa ber
í huga að andlitið kann að verða
nokkuð dauft til að byrja með
áður en meikið er svo sett á. Látið
það ekki trufla ykkur - það er ein-
ungis merki þess að húðliturinn
sé orðinn jafnari og andlitið betur
undirbúið fyrir farðann, hvort
sem hann er fljótandi eða fastur.
Einnig er hægt að kaupa meik í
sömu línu frá Chanel.
„Ég er síðasta
manneskjan til
að spyrja um
snyrtivörur!"
Steinunn Jakobsdóttir, ritstýra Orðlaus,
lœtur farðann lönd og leið
„Mér finnst þessar snyrtivörur
eiginlega bara flókin fyrirbæri.
Ég skil auðvitað þessa einföldu
hluti eins og til dæmis maskara
og gloss, en allt annað er eins og.
flókin stærðfræði fyrir mér,” segir
Steinunn Jakobsdóttir aðspurð
um uppáhaldsvöruna í snyrtibudd-
unni. „Ég hef reynt að prófa hluti
eins og augnskugga eða eyeliner
og ef satt skal segja líður mér alltaf
eins og ég sé að fara að taka þátt í
dragkeppni eða sé hreinilega með
heljarinnar glóðarauga.”
Steinunn segist þó öfunda
þá sem færir eru í förðun hvers
konar, enda sé gaman
að sjá hversu margar konur hafi
tileinkað sér góða tækni í þessari
deild.
„Maður öfundar auðvitað
fólk sem kann að gera svona
„glamorous" hluti, eitthvað voða
flott. Það eina sem ég nota dags-
daglega er maskari og e.t.v. sólar-
púður. Jú, reyndar er það stundum
glosssinn góði þegar ég fer á bar-
inn,” segir Steinunn, en hún seg-
ist kaupa sér maskara, gloss og
sólarpúður frá Mac. „Ef við erum
komin út í ákveðin merki, þá verð
ég að segja Mac.”
halldora@bladid.net
Langvarandi
gloss frá
Clinique
tollir á í nokkrar klukkustundir
Flestar konur og stúlkur kannast
við það að þurfa að setja glossinn
aftur á í gríð og erg. Það er yfirleitt
vegna þess að margir þeirra tolla
ekki mjög lengi á, þó að misjafnt sé,
og því nauðsynlegt að bæta alltaf
við nýrri umferð.
Margir snyrtivöruframleiðendur
eru þó byrjaðir að hanna sérstaka
glossa sem haldast lengi á og gera
því konum auðveldara fyrir, en
Clinique er einmitt einn af þeim.
Nú er hægt að fá gloss í einni af nýj-
ustu línu fyrirtækisins sem helst á
vörunum tímunum saman. Fyrst er
borin ein umferð af litnum sjálfum
og síðan er glæri glossinn settur yfir,
en hann virkar eins og varalitafestir.
Glossinn er hægt að fá í hinum ýmsu
litum, björtum sem dökkum, á góði
verði í öllum helstu snyrtivöruversl-
unum. Mjög sniðug vara fyrir þær
sem vilja hafa langvarandi lit á vör-
unum í kvöldboðunum.