blaðið - 14.01.2006, Blaðsíða 19
blaðiö LAUGARDAGUR 14. JANÚAR 2006
VIDTALI 19
fcv*3**á»íÉíí.
Nokkur ráð fyrir faUegri húð
vatn, gufubað og hreyfing
Við þurfum að huga sérstaklega
vel að húðinni núna og gera
hvað við getum til þess að hún
njóti sín sem best. Konur þurfa
sérstaklega að einblína vel á um-
hirðu húðar kvölds og morgna
og láta ekki hjá líða að sinna
húðinni.
Húðgerðir eru mismunandi hjá
fólki en þó eru nokkur ráð gefin
sem allir ættu að tileinka sér,
sama hvernig húð viðkomandi
er með. Eftirfarandi atriði skipta
miklu máli, hvort sem um ræðir
þurra, feita eða annarskonar húð.
Drekktu vatn:
Það er ekki að ástæðulausu sem talað
er um að drekka skuli mikið vatn.
Ekki er vatnið eingöngu gott fyrir
brennslu líkamans og vökvamagn,
heldur er það ekki síður mikilvægt
fyrir húðina. Með því að drekka nóg
af vatni á hverjum degi náum við
stöðugri hreinsun húðarinnar og
hún nær hámarksheilbrigði.
Hreyfðu þig daglega:
Það er eins með vatnið og hreyfing-
una - þetta er ekki einvörðungu til
þess að halda líkamanum flottum
og grönnum. Hreyfing er stór þáttur
í allri úthreinsun og með hreyfingu
hreinsar húðin sig mjög vel. Þegar
svitaholur opnast ná óhreinindi
að smjúga úr líkamanum og við
losnum við fílapensla, bólur og
önnur leiðindi.
Farðu í gufubað:
Það er fátt betra en gufubað þegar
kemur að húðhreinsun hverskonar.
Flestir svitna mikið í gufu, sérstak-
lega ef tórað er lengi, og þess vegna
er þetta sá vettvangur sem er hvað
bestur fyrir húðina.
Eyddu einhverjum tíma úti
fyrir á hverjum degi:
Það að vera úti frískar upp á húð-
ina, hvort sem veður er slæmt eður
ei. Göngutúrar nokkrum sinnum í
viku er tilvalin leið til að gera húð-
ina ferska og fallega, auk þess sem
það hressir líkama og sál.
Góð rakakrem:
Fjárfestu í rakakremi sem hentar
þinni húðgerð vel. Alls staðar er
hægt að fá hinar ýmsu gerðir af
góðum kremum og gott getur verið
að fá ráðgjöf snyrtifræðinga eða ann-
arra sem vit hafa á vörunum. Berðu
rakamikið krem á þig kvölds og
morgna.
FRABÆR
AFMÆLISTILBOÐ
25ÁRA
s. 1980-2005
- taktu mark á sérfræðingum
AI4RKIÐ
www.markid.is • Sími: 553 5320 • Ármúla 40