blaðið - 14.01.2006, Qupperneq 6
61 ENNLENDAR FRÉTTER
LAUGARDAGUR 14. JANÚAR 2006 blaðiö
Skáklandið ísland:
Dagsbrún:
Tilraunakennsla í skák hefst
í grunnskólum í haust
I dag verður verkefninu Skáklandið
ísland ýtt úr vör í Hásölum Strand-
bergs, safnaðarheimilis Hafnar
fjarðarkirkju, en þar mun Þorgerður
Katrín Gunnardóttir, menntamála-
ráðherra, kynna starfshóp, sem
mun starfa á vegum menntamála-
ráðuneytis við að undirbúa tilrauna-
verkefnið „Skák í skólana.“ Mark-
mið starfshópsins er að skákkennsla
verði tekin upp sem tilraunafag í ío
til 15 skólum um allt land haustið
2006.
Með verkefninu verður unnið
að útbreiðslu skáklistarinnar á
landsvísu af Skáksambandi íslands,
Skákskóla Hróksins, Skákskóla ís-
lands, menntamálaráðuneytinu og
fleirum.
ViðþessasömuathöfnmunHafnar-
fjörður hljóta útnefninguna Skák-
bærinn Hafnarfjörður og verður
bærinn miðpunktur nýrrar sóknar
Hróksins í íslensku skáklífi. Stór-
meistarinn, Hinrik Danielsen, sem
nýverið hlaut íslenskan ríkisborgara-
rétt verður sérstaklega heiðraður
fyrir framlag sitt í þágu skákíþrótt-
arinnar, en hann býr í Hafnar-
firði. Hinrik mun tefla fjöltefli
í Hásölum við fulltrúa nokkurra
skákfélaga.
Lúðvík Geirsson, bæjarstjóri
í Hafnarfirði, Guðfríður
Lilja Grétarsdóttir,
forseti Skáksambands
íslands og séra Gunn-
þór Ingason flytja
ávörp. Hrafn
Jökulsson mun
kynna Skák-
landið ísland.
Stórsöngkonan
Ragnheiður
Gröndal syngur
nokkur lög og
Litli kór Kárs-
nessskóla stígur á
stokk undir stjórn
Þórunnar Björns-
dóttur. Kynnir verður Kristjón
Kormákur Guðjónsson, nýkjörinn
forseti Hróksins.
Aðkoma felst í
almennri
stefnumótun
Samkynhneigðir:
ÁST harmar
orð biskups
Yfirlýsing Dagsbrúnar:
Stjórn Dagsbrúnar, móðurfélags
365 fjölmiðla kom saman í gær-
morgun. Þar var meðal annars rætt
DV-málið svonefnda og sendi
stjórnin frá sér yfirlýsingu að
fundi loknum. Yfirlýsingin
er sem hér segir:
„Stjórnin virðir þá
ákvörðun ritstjóra DV
að láta af störfum.
Vegna umræðu
undanfarinna daga
um ábyrgð eigenda
og stjórnar á efni
fjölmiðla á vegum
dótturfélagsins 365
tekur stjórnin fram
að hún starfar eftir
starfsreglum þar
sem m.a. er kveðið
á um að stjórnar-
mönnum sé óheimilt að
hlutast til um einstök um-
fjöllunarefni fjölmiðla í eigu
félagsins. Aðkoma stjórnar-
innar að fjölmiðlunum felst í al-
mennri stefnumótun.
Stjórnin
ítrekar að
Dagsbrún
s t e n d u r
vörð um
tjáningar-
frelsi, prent-
frelsi, upp-
1 ý s i n g a -
frelsi og
gildi lýð-
ræðis og
mannréttinda. Félagið virðir grund-
vallarreglur frjálsrar blaðamennsku
og leggur áherslu á sjálfstæði rit-
stjórna, m.a. gagnvart eigendum,
auglýsendum, hagsmunahópum og
opinberum aðilum. Félagið þjónar
almenningi í landinu og vill eiga
traust hans og vera jákvætt afl til
umbóta, meðal annars með því að
hlúa að gagnrýninni, sjálfstæðri og
óháðri umræðu, innan ramma gild-
andi laga“.
Undir þetta skrifar Þórdís J.
Sigurðardóttir, stjórnarformaður.
Björn Ingi
í l.sætið
Einn tveir og ýta!
Lögreglumennirnir á myndinni voru ekki lengi aö aðstoða ökumann birfreiðar sem
lent hafði í ógöngum í fannferginu í Reykjavík í gær. Með samstilltu átaki tókst þeim að
koma bilnum í „réttan farveg" á ný.
ÁST, áhugahópur samkynhneigðra
um trúarlíf, harmar orð Karls Sigur-
björnssonar biskups yfir íslandi á
NFS, þar sem hann ræddi um hjóna-
bandið í tengslum við fram komna
tillögu um breytingar á hjúskapar-
lögum. 1 viðtalinu sagði biskup meðal
annars: „Hjónabandið á það inni
hjá þjóðinni að því sé ekki kastað á
sorphaugana.“ I yfirlýsingu ffá ÁST
segir að ekki sé hægt að túlka þessi
orð biskups á annan veg en þann,
,að biskup líti á hjónabandið sem
sorphaug ef hommar og lesbíur geti
farið með heit sín og staðfest samvist
sína í guðshúsum þjóðkirkjunnar.“ 1
yfirlýsingu frá ÁST kemur fram að
biskup hafi ítrekað hvatt til samræðu
um málefni samkynhneigðra og kirkj-
unnar. Áhugahópurinn telur, að orð
biskups í áðurnefndu viðtali séu ekki
til þess fallin að gera þá samræðu
opnari. Eða eins og segir,„Hætt er við
að orð hans geti spillt því marghátt-
aða og góða starfi sem nú þegar á sér
stað innan þjóðkirkjunnar í því skyni
að auka skilning og byggja brýr og
auka þar með vonir okkar, skírðra
homma og lesbía um að fá brátt sjálf-
sagða viðurkenningu á heitum okkar
og ást í guðshúsum þjóðkirkjunnar.“
Ennfremur skorarÁST á Alþingi að
samþykkja þær breytingartillögur
sem Guðrún Ögmundsdóttir hefur
boðað í tengslum við frumvarp er
varðar réttarstöðu samkynhneigðra.
Stjórnin vill halda
áfram á sömu braut
Þorbjörn Broddason, fjölmiðlafrœðingur segir að stjórn Dagsbrúnar reyni að hvítþvo sig
afstefnu DV.
Þorbjörn Broddason óskar nýjum ritstjórum DV góðs gengis en vonar að breytingar
verði á vinnubrögðum og ritstjórnarstefnu.
,Það er ekki annað að sjá en að
stjórnin sé að leggja blessun sína
við ritstjórnarstefnu DV”, segir
Þorbjörn Broddason, fjölmiðlafræð-
ingur um yfirlýsingu stjórnar Dags-
brúnar í gær. „Þeir eiga blaðið og
bera á því ábyrgð. Þrátt fyrir að ég
og líklega allir aðrir vilji slá vörð
um sjálfstæði ritstjórna er ekki þar
með sagt að stjórnin geti í þessu
tilfelli þvegið hendur sínar af blaða-
mennsku DV”, segir Þorbjörn enn-
fremur. Um uppsögn ritstjóra DV
í gær segir Þorbjörn að hann hefði
heldur kosið að stjórnin hefði látið
þá fara. Með því hefðu verið gefin
skilaboð um að eigendur vildu sjá
breytingu á stefnu blaðsins en að
það hafi ekki verið gert. 1 rauninni
sé stjórnin þvert á móti að gefa þau
skilaboð að hún vilji að blaðið haldi
áfram á sömu braut og áður.
Hvað nýja ritstjóra varðar óskar
a Þorbjörn þeim góðs gengis í nýju
| starfi. „Ég vona hins vegar innilega
t að þeir sýni í verkum sínum að þeir
I ætli að snúa við blaðinu enda sýnist
s mér blaðið komið í öngstræti”.
Engum gerður greiði
Og það er greinilegt að Þorbjörn er
lítill aðdáandi DV. „Fréttamennska
eins og DV stundar er öllum til
bölvunar eins og hefur orðið sífellt
ljósara þessa síðustu dægur. Það er
ákaflega mikilvægt að blöð taki fast
á hlutum og hlífi ekki mönnum sem
eru í þannig verkum að það þarf að
veita þeim aðhald. Þá er sama hvort
viðkomandi einstaklingar hafi
framið lögbrot eða hvort þeir eru að
vinna ógagn með öðrum hætti. En
með því að ausa upp einhverju mold-
ryki um mál sem varla er byrjað að
upplýsa, um harma og ógæfu ein-
staklinga sem og fólk sem er svo
aumt að það getur ekki borið hönd
fyrir höfuð sér - slík fréttamennska
gerir engum gagn“.
Ekki ógn við tjáningarfrelsi
1 fyrradag bárust síðan fréttir af því
að Sigurður Kári Kristjánsson, þing-
maður Sjálfstæðisflokks hygðist
leggja fram lagafrumvarp þar sem
hann vill hækka skaðabótagreiðslur
vegna meiðyrða.
„Ef menn eru ekki að ana út í slíka
löggjöf þá lýst mér vel á hana, en
það þarf að fara varlega. 1 henni þarf
ekki að felast nein ógn við tjáningar-
frelsið” segir Þorbjörn.