blaðið - 14.01.2006, Qupperneq 16
16 I ÁLIT
LAUGARDAGUR 14. JANÚAR 2006 blaöiö
Mest menntaða þjóð Vesturlanda?
Eftir Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur
Á sama tíma og aidrei hafa verið
fleiri fslendingar við nám sér
Björgvin G. Sigurðsson, helsti
talsmaður Samfylkingarinnar í
menntamálum, sig knúinn að rita
grein með yfirskriftinni “Minnst
menntaða þjóð Vesturlanda”.
Grein þessi er um margt forvitni-
leg, líkt og flestar ritsmíðar Björg-
vins, ekki síst fyrir það neikvæða
viðhorfs til menntunar og mennta-
mála sem ávallt skín í gegn. Það er
fráleitt að halda því fram að ísland
sé minnst menntaða þjóð Vestur-
landa. Sá menntavandi sem við
búum við er fortíðarvandi, það eru
ekki margir áratugir síðan menntun
var forréttindi er fáir gátu leyft sér.
Stór hluti þjóðarinnar stóð aldrei
frammi fyrir því að geta sótt frekara
nám að loknum grunnskóla. Yfirlýs-
ingar Björgvins eru til marks um
sorglega lítilsvirðingu í garð þess
hluta þjóðarinnar er átti þess ekki
kost á sínum tíma að mennta sig. Á
undanförnum árum og áratugum
hafa hins vegar átt sér stað stórstígar
framfarir á sviði menntamála og
okkur hefur tekist að snúa stöðunni
við. Við stefnum hraðbyri í að verða
mest menntaða þjóð heims.
Lítum nú aðeins á stöðuna hjá
þessari “minnst menntuðu” þjóð
Vesturlanda að mati þingmannsins.
Haustið 2004 voru skráðir 40.497
nemendur í íslenska framhaldsskóla
og háskóla. Við þá tölu bætast þús-
undir nema er stunda nám erlendis.
Við seljum bílana
www.bilamarkadurinn.is
-> ^kl*M€Má*ÁwU*Ut
Smtlimmu 4t £ • TJtmml
Það þykir mér nú
ansi gott hlutfall
hjá 300 þúsund
manna þjóð. Þetta
er raunar eitt hæsta
hlutfall í hinum
vestræna heimi.
Hlutfall þeirra er
sækja nám í fram-
haldsskóla og há-
skóla hefur verið að
hækka mjög hratt
á síðustu árum. Fjöldi háskólanema
hefur tvöfaldast á um áratug og und-
anfarin ár hefur fjöldi þeirra er inn-
ritar sig í framhaldsnám verið sam-
bærilegur við fjölda í viðkomandi
fæðingarárgangi. Þannig eru ekki
einungis flest ungmenni í hverjum
árgangi að fara í framhaldsskóla-
nám heldur jafnframt fjölmargir
sem á sínum tíma tóku ákvörðun
um að fara ekki í framhaldsskóla.
Við erum sem sagt að ná fleirum inn
í skólakerfið á nýjan leik sem ætti
alla jafna að vera fagnaðarefni.
Telur Björgvin verknám
ekki vera nám?
Sú staðhæfing Björgvins að 40%
hvers árgangs “hætti námi” er sömu-
leiðis athyglisverð. Hún er hins
vegar mjög villandi og beinlínis röng.
Þingmaðurinn kýs vísvitandi að líta
fram hjá því að stór hluti hvers ár-
gangs lýkur iðnnámi eða starfsnámi.
Telur þingmaðurinn að iðnnám
sé ekki nám? Að starfsnám sé ekki
nám? Hvers konar fyrirlitning í garð
starfsmenntunar er þetta sem skín
í gegn hjá þingmanningum. Sé allt
framhaldsnám að loknum grunn-
skóla skoðað kemur í ljós að um 80%
íslenskra ungmenna ljúka framhalds-
námi að loknum grunnskóla.
En það er sama hvora töluna við
horfum á, báðar eru þær yfir meðal-
tali OECD. í þessum efnum höfum
við verið að sækja í okkur veðrið og
setjum markið að sjálfsögðu enn
hærra. Við eigum að stefna að því
að nær öll ungmenni ljúki einhvers
konar námi eftir grunnskóla. Það
er hins vegar ekkert unnið með því
að reyna að breiða yfir þann árangur
sem náðst hefur. Þeir sem það gera
bera ekki hagsmuni íslensks mennta-
kerfis fyrir augum.
Sífellt fleiri mennta sig
Björgvin heldur því fram að hlutfall
þeirra sem sækja sér menntun sé
ekki að aukast. Vonandi talar hann
hér gegn betri vitund. Það er sorg-
legt ef fulltrúi Samfylkingarinnar í
menntamálanefnd er ekki betur upp-
lýstur. Hlutfall þeirra er ljúka stúd-
entsprófi í hverjum árgangi hefur
aukist hröðum skrefum, var t.d.
46,4% árið 2000 en 60,3% árið 2004.
Björgvin heldur því fram að eitt
þúsund nemendum hafi verið vísað
frá Háskóla íslands, Háskólanum á
Akureyri og Kennaraháskólanum
vegna fjárskorts skólanna. Þetta er
fráleit fullyrðing. Þingmaðurinn
veit að nemendur hafa aldrei verið
fleiri í háskólunum, hann veit að
framlög til háskólamála hafa aukist
gífurlega á síðustu árum. Einungis á
milli árana 2005 og 2006 voru fram-
lög til háskólastigsins aukin um
tæpan einn og hálfan milljarð eða
um nær 13%. Hann veit að þegar ein-
staklingum er vísað frá háskólum er
það í langflestum tilvikum vegna
þess að viðkomandi hefur ekki upp-
fyllt skilyrði fyrir inngöngu í há-
skóla. Engum var vísað frá Hf eða
HA sem uppfylltu inntökuskilyrði.
Rúmlega 60% þeirra sem ekki kom-
ust inn í KHÍ höfðu ekki lokið stúd-
entsprófi. Þá komust margir þeirra
sem var hafnað í einum skóla inn í
annan skóla eða voru settir á biðlista.
Af þeim 68 sem voru settir á biðlista
hjá KHf komust 66 inn að lokum.
Það er mikilvægt að gera miklar
kröfur til háskólanáms. Gæði skipta
máli ekki einungis magn. Því verða
háskólar að gera ríkar kröfur til
nemenda og kennara. Það verður
að gera þá kröfu að þeir sem fara í
háskólanám uppfylli allar kröfur.
Vissulega er mikilvægt að einstak-
lingar með mikla reynslu geti átt
kost á að komast inn í háskóla þótt
þeir hafi ekki lokið stúdentsprófi.
Svo verður áfram og má nefna að
um 10% þeirra sem teknir voru inn
í HA höfðu ekki lokið stúdentsprófi
og um 4,7% þeirra sem teknir voru
inn í Kennaraháskólann.
Einstök viðhorfsbreyting
til háskólanáms
Björgvin vísar í heiti greinar sinnar
til menntunar á Vesturlöndum en
gífurfegan fróðleik og tölfræði um
stöðu menntamála í öllum vest-
rænum ríkjum má finna í árlegri
skýrslu OECD Education at a Glance.
f nýjasta hefti þessa rits kemur m.a.
fram að þegar litið er til lengdar
skólagöngu ungmenna á aldrinum
15-29 ára er fsland í 5. sæti af þeim
28 ríkjum sem talin eru með. Með
öðrum orðum þá geta íslensk ung-
menni vænst þess við 15 ára aldur að
halda áfram í námi í 8 ár á meðan að
meðaltalið í OECD ríkjum er 6,5 ár.
f nýlegri könnun sem Rannsóknir
Þorgerður
Katrín
Gunnarsdóttir
og greining gerði á viðhorfum
íslenskra framhaldsskólanema til
háskólanáms kom í ljós einstök
viðhorfsbreyting. Árið 2000 töldu
34% stráka og 39% stúlkna líklegt
að þau héldu áfram í háskólanám
að loknu stúdentsprófi. Árið 2004
sögðust hins vegar 58% stráka og
63% stúlkna telja líklegt að þau haldi
áfram upp í háskóla.
Þessi jákvæða viðhorfsbreyt-
ing unga fófksins okkar gagnvart
háskólamenntun er sigur í sjálfu sér
og mun skifa sér í frekari mennta-
sókn og hærra þekkingarstigi.
Það er jafnframt rétt að benda á að
ísland hefur einnig hæsta innritunar-
hlutfall allra OECD ríkja í fræðilegt
nám á háskólastigi eða 83%. Meðal-
tal OECD ríkja er 53% og til saman-
burðar er hlutfallið í Finnlandi 73%,
í Danmörku 53% og í Noregi 68%.
Bendir þetta ekki frekar til þess
að við séum að byggja upp einhverja
best menntuðu þjóð Vesturlanda
en ekki öfugt? Að tala niður góðan
árangur og gríðarlega uppbyggingu
síðustu ára í skólakerfinu þjónar
engum tilgangi nema annarlegum.
Við íslendingar erum á ffeygiferð
til forystu á meðal þekkingarþjóða.
Af því eigum við að vera stolt en
ekki súr, vera bjartsýn en ekki með
bölmóð.
Mikil fjárfesting í menntun á síð-
ustu árum hefur skilað og mun skila
okkur miklum arði. Líkt og þegar
um aðrar arðbærar fjárfestingar er
að ræða þá verður haldið áfram af
fullum krafti.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir
menntamálaráðherra
ALLTAF
Klettháls
VW Touran 1,6 Basidine
beinsk. árg. 04 ek. 30.000
verð 2.090.000 kr.
VW Golf 1,6 Variant Highline
heinsk. árg. 03 ek. 51.000
verð 1.440.000 kr.
VW Golf 2,0 4motion
beinsk. árg. 02 ck. 51.000
verð 1.470.000 kr.
VW Passat 2,0 Variant
belnsk. árg. 03 ek. 63.000
verð 1.793.000 kr.
Klettháls
Klettháls
VW Passat 2,0 Variant
beinslr. árg. 03 ek. 63.000
verð 1.730.000 kr.
VVW Bora 1,6 Highline
Iroínsk. árg. 02 ck. 58.000
verð 1.390.000 kr.
VW Passat 2,0
beínsk. árg. 04 ok. 15.000
verð 2.470.000 kr.
VW Polo 1,4 Comfortline
boinsk. árg. 02 ok. 83.000
verð 920.000 kr.
Bílaþing Heklu er rétti staðurinn til aö finna góðan notaðan Volkswagen
Laugavegi 174 | sími 590 5000 | Kletthálsi11 I sími 590 5760 | www.bilathing.is
[S
Ukl www.bilathing.is
HEKLA bilathing@hekla.is
Opið mánudaga til föstudaga 10-18 • Laugardaga 12-16
BÍLAÞING HEKLU
Númer eitt í notuðiun Inluni
Umboösmenn um land allt: Höldur hf., Akureyri, slml 461 6020 • HEKLA, Borgamesl, slml 437 2100 • HEKLA, (saflröi, slmi 456 4666
HEKLA, Reyöarfiröi, slml 470 5100 ■ HEKLA, Reykjanesbœ, slml 420 5000 • HEKLA, Selfossi, slmi 482 1416
HEKLA, Kletthálsi 11, slmi 590 5760
www.hekla.is, hekla©hekla.is