blaðið - 14.01.2006, Síða 32
32 I TÆKI
LAUGARDAGUR 14. JANÚAR 2006 blaöiö
Horfirðu ekki
nóg á sjónvarp?
Framtíðarlegt sjónvarpsúr leysir málið!
Færðu stundum á tilfinninguna
að þú horfir ekki nóg á sjónvarp?
Eru tölvuleikirnir í simanum
jínum einfaldlega ekki nóg til
>ess að hafa ofan af fyrir þér í
jreytandi fjölskylduboðum? Þá
er sjónvarpsúrið eitthvað fyrir
þig. Um er að ræða græju sem
er lítið stærri en hefðbundið
armbandsúr, en hefur þá aug-
blaóió
ljósu kosti umfram það að hægt
er að horfa á sjónvarpið í henni
og stytta sér þannig stundirnar,
í stað þess að fylgjast með þeim
líða. Sjónvarpsúrið ætti þar að
auki engan að sliga, þar sem það
vegur ekki nema um 45 grömm
og há-upplausnarskjárinn er 1.5
að stærð, sem ætti að duga vel til
þess að fylgjast með fréttum eða
jafnvel Sjáumst með Silvíu Nótt.
Fullhlaðin rafhlaðan endist svo
í rúma klukkustund, sem dugar
fyrir flesta sjónvarpsþætti.
Að því að sagt er á iwantoneoft-
hose.com, þar sem úrið ágæta fæst
keypt fyrir um 15.000 krónur, er
móttaka sjónvarpsins með ein-
dæmum góð fyrir jafn lítinn grip.
Mun galdurinn fólginn í því að
meðfylgjandi heyrnartól gegna
einnig hlutverki loftnets. I ljósi
þessa alls má telja nokkuð víst að
framtíðin er komin.
Vertu stillturI
Sjálfstillandi gítar kætir tónlistarmenn
Þeir sem reynt hafa
fyrir sér í gítarleik
vita hversu erfitt
getur verið að halda
stillingu sinni þegar gít-
arinn sjálfur gerir það
ekki, heldur er sífellt að
detta niður í falskar nótur
og leiðindi. Nokkurn tíma
getur tekið að stilla gítar
svo vel sé og ef athöfnin fer
fram á sviði fyrir framan
fjölda áhorfenda getur það
verið hreint og beint vand-
ræðalegt. Hinsvegar ættu
gítarleikarar heims ekki að
örvænta að sinni, því banda
ríska fyrirtækið TransPerfor
mance hefur hannað
viðbótarbúnað við
rafmagnsgítara sem
gerir þeim kleyft að
stilla sig sjálfa á met-
tíma, eða undir fimm
sekúndum. Saman
stendur búnaðurinn
af ýmisskonar mót-
orum og skynjum
sem ásamt tölvu-
búnaði sjá til
þess að gítarinn
vanstillist seint og
þegar hann
gerir það,
þá er hægur
leikur að
kippa því i
liðinn með
þvi að smella
á einn takka.
Búiöer
að koma
fyrir sjálfvirkum
stillibúnaði í þessum
fallega Gibson-gitar
Jimmy Page meðal
aðdáenda græjunnar
Búnaðurinn mun henta best með
gíturum af Fender og Gibson gerð,
en samkvæmt framleiðandanum
er hægt að sníða hann fyrir flestar
gerðir rafmagnsgítara. Þeir sem að-
hyllast óvenjulegri stillingar en hina
hefðbundnu EADGBE geta einnig
nýtt sér tækið að fullu, því í því er
fjöldi innbyggðra stillinga og eins
er hægt að forrita eigin útfærslur af
þeim.
TransPerformance búnaðurinn
hefur verið á markaðnum síðan
seint á níunda áratug síðustu aldar,
en hann er hátt verðlagður og því
ekki á færi nema sterk-efnuðustu
gítarleikara að kaupa.
Margir hafa hins vegar
tekið ástfóstri við græj-
una og sjálfir Islandsvin-
urinn Jimmy Page aug-
lýsir hann opinberlega.
Meðal annarra sem
sagt hafa skilið
við að stilla sjálfir
eru gítargoð-
sagnir á borð
við Joe Perry
úr Aerosmith,
Pete Townshend
úr Who og sjálfur
Eddie Van Halen.
TransPerformance
hyggst á árinu setja á markað
ódýrari útgáfu af búnaðinum sem
mun væntanlega gera sauðsvörtum
almúganum kleyft að komast í hóp
stilli-frjálsra.
Tölva tekur stað
flestra skemmti-
legra tækja
Ingvar Óskarsson dýrkar Dell
Flestir vestur-
landabúar eiga
sér uppáhalds-
tæki afeinhverri
sort, hvort sem
um er að ræða
vöfflujárn eða
viftu, sjónvarp
eða samlokugrill.
Góð græja getur
auðveidað lífið til
muna og gert það skemmtilegra um
leið. Ingvar Oskarsson, kerfisstjóri,
sker sig ekki frá fjöldanum hvað
þetta varðar. Aðspurður um uppá-
haldstækið sitt hugsar Ingvar lengi
vel áður en hann ljóstrar því upp að
uppáhaldstækið hans sé tölva.
„Já, Dell XPS turntölvan er uppá-
haldstækið mitt. Hún hefur bæði
öflugan örgjörva og skjákort sem
tryggja hraða og mjúka vinnslu, svo
leikir og störf á henni verða draumi
líkust. Astæða þess að ég vel tölvu
sem mitt uppáhaldstæki er sú að
hún getur í raun tekið stað flestra
skemmtilegra tækja og gildir þá
einu hvort átt er við steríógræjur
eða ritvél, til dæmis. Af tölvum er
hægt að gera allt og ekkert - hafa
bæði gagn og gaman, nálgast gíf-
urlegt magn upplýsinga og einnig
dunda sér við leiki og slíkt. Það
skemmtilegasta sem ég geri í tölv-
unni er að finna upplýsingar sem
nýtast mér, bæði í sambandi við
vinnu svo og heimilishald. Einnig
er gott að halda sambandi við vini
og kunningja gegnum spjallforrit
og slíkt, segir Ingvar."
1! RISAP0TTUR ,frt
1. Liverpool - Tottenham 1 X
2. Arsenal - Middlesbro
3. Fulham - Newcastle X
4. Aston Villa - West Ham
5. Portsmouth - Everton 2
6. Charlton - Birmingham v A
7. Blackburn - Bolton A 2
8. Ipswich - Sheffield Utd. •f X
9. Brighton - Leeds )(
10. Hull - Crvstal Palace
11. Q.P.R. - Southampton 2
12. Plvmouth - Norwich 1 V A
LJ3. Sheffield Wed. - Leicester X
L-p Tip|
¥ERTU MEÐIFYRSTA
RISAPOTTIÁRSINS
1X2
\íið
Tippaðu á næsta sölustað eða á 1 x2.is fyrir kl. 14 í dag.
- aðeins 10 krónur röðin!
6. - 20. apríl
13. - 27. apríl
7. -21. september
bb m Jm
aukaferð
orfa sæti laus
örfá sæti laus
Maraþon á Kína
16. - 28. maí
Silkileiðin í Kína
14. júní - 2. júlí
Verð 262.000 kr. á mann ítvíbýli.am innifaiiði
Nánari upplýsingar í síma 570 2790 eða á www.baendaferdir.is
KYNNTU Þ É R SÉRFERDIR FERDAFJÓNUSTU BÆNDA
www.baendaferdir.is S: 5702P90 ferðaþjónusta bænda
* * I* BÆNDAFCROIR