blaðið - 14.01.2006, Síða 38
38 I GÆLUDÝR
LAUGARDAGUR 14. JANÚAR 2006 blaöiö
Kristjón Örn Vattnes Helgason, sonur Hönnu ásamt þýska Scheffer hundinum Zeppa.
Verð hreinrœktaðra hunda
um 150 þúsund krónur
Öryggisatriði að vita sem mest um bakgrurtn hundsins
.Hundategundum hefur fjölgað
mjög á Islandi og eru nú í kringum
áttatíu“, segir Hanna Björk Kristins-
dóttir skrifstofustjóri hjá Hunda-
ræktarfélagi íslands.
Björg segir að það sem hreinrækt-
aðir hundar hafi fram yfir blendinga
sé að það fylgi þeim ættbókarskír-
teini sem sé sönnun fyrir tegund-
inni og þannig getur fólk áttað sig
á því hvaðan þeir eru komnir. „Fólk
hefur hunda í híbýlum sínum og oft
innan um börn og því held ég að það
sé öryggisatriði að vita sem mest
um bakgrunn hundsins. Fyrir 15
árum voru hundategundir ekki eins
margar og núna og þá voru íslenski
hundurinn, labrador, púðluhundar
og írskir shetterhundar meðal
algengustu tegundanna. Á þessum
árum var ræktun ekki orðin eins al-
geng og núna og þá var algengt að
eigendur vissu ekki hvaðan hund-
arnir komu.“
Björg segir hundasýningar
haldnar þrisvar á ári og nú á morgun
verður sýning á íslenska hundinum.
„Tilgangurinn með þessum sýn-
ingum er að fá ræktunardóma á
hundana en dómarar koma erlendis
frá. Á hundasýningu er hundurinn
metinn út frá líkamsbyggingu, geðs-
lagi, hárafari, lit og biti.
Hvað er algengt verð á hreinrækt-
uðum hundi?
„Við hjá hundaræktarfélaginu getum
gefið út leiðbeinandi verð en verð
er alltaf sameiginleg ákvörðun selj-
anda og kaupanda. islenski hundur-
inn hefur verið ódýrastur en með
auknum vinsældum er verð hans
núna um 150 þúsund krónur. Þetta
er ekki óalgengt verð þó auðvitað
geti það verið hærra og lægra.“ Björg
segir það því miður vera tilfellið að
fólk sýni minni ábyrgð gangvart
hundi sem er ókeypis og að það
sé auðveldara að losa sig við þá. „1
mörgum tilfellum hugsar fólk betur
um hunda sem eru keyptir þó það sé
ekki algilt.“
Hanna segir hundategundum á
Islandi fara fjölgandi og segir mis-
munandi þarfir og áhuga fólks verða
til þess að fólk flytur inn hunda
sjálft.
hugrun@bladid.net
Mismunandi
aðíeröir notaðar
Dœmi um aðfólk svœfi dýr til að koma þeim ólöglega inn í landið
Stundum heyrir maður af fólki
sem reynir að koma dýrum inn í
landið í þeim tilgangi að nota þau
sem gæludýr. Eðlur, slöngur og
fleiri dýr, sem ekki teljast til hefð-
bundinna gæludýra hafa komist í
gegnum tollinn en reglan er sú að
sækja þarf um innflutningsleyfi
fyrir öll dýr áður en þau eru flutt
til landsins og má sjá upplýs-
ingar um allt ferlið á heimasíðu
landbúnaðarráðuneytisins.
„Ég veit um nokkur dæmi þess
að fólk hefur svæft dýr áður en þau
eru flutt til landsins til að koma
þeim ólöglega inn í landið", segir
Björg Valtýsdóttir, deildarstjóri toll-
gæslu í flugstöð Leifs Eiríkssonar. „1
einu tilfelli sem ég man eftir voru
tveir hundar svæfðir en þeir sáust í
gegnumlýsingatæki í tollskoðun-
inni.“ Hundarnir komust óskaddaðir
í gegnum þessa meðferð en þetta
getur ekki talist til fyrirmyndar.
Björg segir að yfirleitt sé dýrum
gefið róandi fyrir flugferð.
„Öll dýr sem flutt eru til landsins
þurfa að vera í einangrun í ákveð-
inn tima og með nýju einangrunar-
stöðinni í Höfnum hefur ferlið styst
til muna. Áður þurftu dýrin að fara
í einangrunarstöðina í Hrísey en
það var mjög langt ferðalag og farið
með dýrin flugleiðis til Akureyrar
og þaðan út í Hrísey. Einangrunin
hefur nú styst úr sex vikum í fjórar."
hugrun@bladid.net
Japanskir
skrautfiskar
nýjasta nýtt
„Það nýjasta hjá okkur eru japanskir
Koifiskar sem eru notaðir í úti-
tjarnir,” segir Edda Hlín Hallsdóttir
hjá Dýralífi. Það þarf ekki að taka
þá inn yfir veturinn en það er mik-
ilvægt að tjörnin sé djúp þannig að
hún botnfrjósi ekki.“ Edda segir
nokkuð um að fólk sé með tjarnir
í görðum sínum og gaman að fá sér
fiska til að lífga upp á þær.
„Það hafa áður verið fluttir inn
Koifiskar en þeir voru frá Evrópu.
Þeir japönsku eru mun skrautlegri
og lausir við þær sýkingar sem
evrópskir fiskar báru oft með sér.
Koifiskar eru orðnir algengir í
Evrópu og þeir geta orðið allt að
metri á lengd. Fiskurinn kostar
15.000 krónur og auðvitað , er
skemmtilegra að hafa fleiri en einn
fisk í tjörninni.“
Edda segir fiskana gæfa og um
leið og fólk komi að kerjunum komi
þeir að fólki. „Fiskarnir eru fóðraðir
á japönsku koifiskafóðri og ég mæli
ekki með að fólk sé að gefa þeim
neitt annað.“ Edda segir fiskana
geta lifað í mörg ár.
Edda segir að það sé alltaf svolítil
vinna að flytja dýr inn í landið og
að þau þurfi að fara í gengum blóð-
prufur, sprautur og salmonellupróf.
„Það þarf líka leyfi fyrir koifiskafóðr-
inu og alltaf þarf að sýna fram á heil-
brigðisvottorð frá fyrirtækinu sem
dýrin eru flutt inn frá.“
hugrun@bladid.net