blaðið - 10.02.2006, Page 6
6 i innlení>1
HMMB
W?mss&
FÖSTUDAGUR 10. FEBRÖAR 2006 blaöiö
Ferðamönnum
fjölgar
Erlendum ferðamönnum fjölgaði
um io% í janúar síðastliðnum
miðað við sama mánuð árið áður
samkvæmt talningu Ferðamála-
stofnu á ferðamönnum sem fara
um Leifsstöð. Alls fóru 15.377
ferðamenn um stöðina í janúar
síðastliðnum en í sama mánuði í
fyrra voru þeir 14.014. Samkvæmt
sömu tölum fjölgaði ferðamönnum
á tímabilinu september til janúar
einnig um 10% milli ára.
Síminn kaupir
í Kögun
Síminn hf. tilkynnti í gær að fyrir-
tækið hefðí keypt tæplega 27% hlut
í Kögun hf. en samningar þess efnis
voru undirritaðir í gærmorgun. Á vef
Viðskiptablaðsins í gær segir að gera
megi ráð fyrir að hluturinn hafi verið
keyptur af Straumi Burðarás og FL-
Group. Miðað við gengi Kögunnar í
gær má gera ráð fyrir að kaupverð
sé rúmlega 3 milljarðar króna.
Að sögn Brynjólfs Bjarnasonar,
forstjóra Símans er Kögunarsam-
stæðan afar góður fjárfestingakostur.
Borgarar undir eftirliti
Ragnari Aðalsteinssyni, lögmanni líst illa á hugmyndir Björns
Bjarnasonar um sérstaka greiningardeild innan lögreglunnar
Ragnar Aðalsteinsson, lögmaður segir að menn verði
að vera vel á verði gagnvart löggjöf sem á einhvern
hátt takmarkar frelsi borgaranna. Hugmyndir Björns
Bjarnasonar dómsmálaráðherra, um stofnun sér-
stakrar greiningardeildar fá lítinn hljómgrunn hjá
Ragnari sem segir óþarft að auka eftirlit ríkisins með
landsmömnnum.
Engin tilefni til lagabreytinga
„Björn hefur látið of lítið uppi um þessar fyrirætlanir
sfnar svo hægt sé að henda reiður á þeim,“ segir Ragnar.
Aðspurður hvort hann telji tilefni til að stofna sérstaka
greiningadeild með það starfssvið að rannsaka landráð,
brot gegn stjórnskipun ríkisins og æðstu stjórnvöldum
segir hann svo ekki vera. „Nei það er ekki tilefni til þess
að auka þetta. Þetta er opið samfélag sem við búum í
og við þurfum ekkert á slíku að halda. Hættan er sú að
ef þú býrð til svona apparat þá verði menn að nota það.
Eftirlit með borgurum landsins og skoðunum þeirra
verður þá aukið með tilkomu svona greiningardeildar.
Sagan kennir okkur það“
Stóri bróðir
Ragnar vill ekki taka undir með þeim sem segja að fs-
lendingum stafi aukin hætta af hryðjuverkahópum.
„Nei, það er ekki nokkur ástæða til að ætla að okkur
stafi einhver aukin hætta frá hryðjuverkaöflum. Við
gætum auðvitað egnt einhverja hópa gegn okkur, en
við höfum ekki gert það hingað til. Eina tilvikið væri
kannski þessi stuðningur ríkisstjórnarinnar við stríðið
í f rak.“ Ragnar segir tilraunir hafa verið gerðar til þess
að skerða mannréttindi hér á landi. „Alþingi hefur nú
blessunarlega ekki samþykkt allt sem frá Birni Bjarna-
syni kemur. Það er auðvitað viss hætta á því að þessu
Ragnar Aðalsteinsson
rfumvarpi fylgi skerðing á mannréttindum, að það
verði farið að fylgjast með of skrá niður það sem menn
segja og hugsa.“ Ragnar segir allar hugmyndir af þessu
tagi vera til þess fallnar að stofna réttaröryggi borgar-
ana í hættu. „Þarna birtist þessi ríka tilnheiging dóms-
málaráðherra til þess að vera einhverskonar stóri bróðir
og fylgjast með öllum.“
Aftarlega á merinni
Ragnar segir jafnframt að fslendingar séu aftarlega
á merinnni að mörgu leyti þegar kemur að mannrétt-
indum. „Þú þarft ekki annað en að skoða pyntingar.
Það er ekkert útilokað í íslenskum lögum að það megi
nota frásögn manns sem aflað er með pyntingum, sem
sönnunargagn í dómsmáli. Þetta tíðkast hvergi í sið-
uðum löndum. stjórnvöld hafa fengið athugasemdir
við þetta atriði frá mannréttindanefnd Sameinuðu
þjóðanna oftar en einu sinni og einnig frá fleiri alþjóða-
stofnunum en þau hafa ekki látið segjast og vilja halda
þessum möguleika opnum.“
Mikill innflutn-
ingur í janúar
Magn innflutnings hingað til lands
var meiri í janúar síðastliðnum en
í desember að því er fram kemur
í Vefriti ljármálaráðuneytisins.
Þetta er þvert á reynslu fyrri ára,
því yfirleitt dregst innflutningur
saman að jólaverslun lokinni.
Heildar innflutningur í janúar
nam 25,5 milljörðum króna sam-
kvæmt bráðabirgðatölum og jókst
um 2,5 milljarða milh mánaða.
Hluti af ástæðunni fyrir
auknum innflutningi eru kaup
á eldsneytisbirgðum í desember.
Að auki jókst innflutningur á
unnum rekstrarvörum. Talsvert
minna var hinsvegar flutt inn af
neysluvörum í janúar sem gerist
ávallt eítir að jólaverslun líkur.
Aðalmeðferð í
Baugsmálinu
Aðalmeðferð i Baugsmálinu mun
fara fram í Héraðsdómi Reykjavíkur
20. og 21. febrúar næstkomandi sam-
kvæmt ákvörðun Héraðsdóms i gær-
morgun. Réttað verður yfir öllum
sakborningunum sameiginlega
vegna þeirra átta ákæruliða málsins.
Hæstiréttur vísaði á miðvikudag-
inn frá þeirri kröfú saksóknara að
mál tveggja endurskoðenda yrði
sérstaklega aðskilið frá aðalmálinu.
Þá verður tekin skýrsla af einu vitni
á föstudaginn í næstu viku sam-
kvæmt ákvörðun Héraðsdóms í gær.
Prófkjör Samfylkingarinnar í Reykjavík
KJARTAN
VALGARÐSSON
2SætÍ
Allir með!
Spassky og Friðrik tefla einvígi
Boris Spassky, fyrrverandi heims-
meistari í skák, kemur til landsins
í dag. Mun hann flytja erindi um al-
þjóðlegan feril fyrsta íslenska stór-
meistarans, Friðriks Ólafssonar,
á málþingi sem Skáksamband Is-
lands stendur fyrir á morgun. Að
málþinginu loknu mun fara fram
tveggja skák einvígi milli Friðriks
og Spassky. Að skákeinvíginu loknu
mun fara fram hraðskákmót, Frið-
riksmótið 2006, þar sem margir af
bestu skákmönnum landsins munu
leiða saman hesta sína.
Meðal bestu skákmanna heims
Á ofannefndu málþingi mun
Spassky fjalla um arfleifð Friðriks
Olafssonar frá mismunandi sjónar-
hornum, en Friðrik var á sínum
tíma meðal bestu skákmanna
heims. Hann hafði ennfremur
mikil áhrif á þróun skáklistarinnar
hér á landi. Friðrik varð sjötugur á
síðata ári og lét þá af störfum sem
skrifstofustjóri Álþingis, og vonast
nú margir skákunnendur til þess
að hann láti til sín taka við skák-
borðið á nýjan leik.
SÍtXUSTU DAÍxAR
útsouu
hjá, Qý6afhhiUi
Engjateigi 5 • Sími 581 2141 Laugardaga frá kl. 10-16
SÍF verður
Alfesca
mbl.is | SlF hf. hefur breytt nafni
sínu í Alfesca og samhliða því
tekið upp nýtt fyrirtækismerki. 1
tilkynningu fr á félaginu segir, að
gamla nafnið eigi sér rætur í
hefðbundinni sölu sjávarafúrða
en nýtt nafn og merki sé tilkomið
vegna umfangsmikilla breytinga
á starfsemi félagsins. Því sé ætlað
að vera tákn fyrir nútímalegt og
framsækið matvælafyrirtæki sem
hafi að markmiði að vera leiðandi í
framleiðslu og sölu tilbúinna rétta og
sælkera- og hátíðarmatvöru í Evrópu.
Nafnið Álfesca er sett saman úr
bókstafnum alpha, sem er fýrstur í
gríska stafrófinu, latnesku orðunum
festivus, sem merkir veislu eða
hátíð, og esca sem vísar til fæðu.
Nýtt merki félagsins, sem hannað
er af EnnEmm, er sagt vísa með
samspfli tölustafsins 1 og bókstafsins
A til leiðandi stöðu fýrirtækisins á
markaði þess fyrir tflbúin matvæli.
Alfesca starfrækir 12 verksmiðjur
í Frakklandi, Englandi og á Spáni
en þar eru lykflmarkaðir félagsins.
Höfuðstöðvar Alfesca eru á Islandi
en dótturfélög þess eru Labeyrie,
Bhni og SIF France í Frakklandi,
Vensy á Spáni, Lyons Seafoods og
Farne í Bretlandi og Christiansen
Partner í Noregi. Um 3500 manns
starfa hjá félaginu. Áætluð ársvelta
Alfesca er um 600 mflljónir evra.