blaðið - 10.02.2006, Qupperneq 10
10 I ERLENDAR FRÉTTIR
FÖSTUDAGUR 10. FEBRÚAR 2006 blaöið
Óttast að fuglaflensan
breiðist hratt út í Afríku
Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin hvetur til sérstakra varúðarráðstaf-
ana í kjölfar þess að fuglaflensuveiran greindist ífuglum í Nígeríu.
Líklegt er talið að fleiri tilfelli H5N1-
afbrigðis fuglaflensu fylgi í kjölfar
þess sem greinst hefur í Nígeríu. Dr.
David Nabarro, sérfræðingur hjá
Aþjóðaheilbrigðismálastofnuninni,
óttast að ástandið verði mjög alvar-
legt og að veiran kunni nú þegar að
hafa dreifst nokkuð víða.
Nabarro lýsti þessu yfir í kjölfar
þess að þetta banvæna afbrigði flens-
unnar greindist á fuglabúi í Kaduna-
héraði í Nígeríu á miðvikudag. Það
var jafnframt í fyrsta tilfellið sem
staðfest var í Afríku en þúsundir
hænsnfugla hafa drepist í Norður
Nígeríu á síðustu vikum.
Rannsókn stendur yfir á því
hvort alifuglar hafi drepist víðar úr
veirunni. Nabarro sagði að WHO
byggist við að fleiri smit kæmu
upp í öðrum hlutum Afríku. „Fyrst
þetta hefur komið upp í Nígeríu
getur þetta einnig hafa komið upp í
öðrum löndum þar sem viðbúnaður
er minni,“ sagði hann.
Kjúkltngar mikilvæg tekjulind
Nabarro sagði jafnframt að ríkis-
stjórnir og almenningur ætti að gera
mjög miklar varúðarráðstafanir
sjálfum sér til verndar og til að koma
í veg fyrir útbreiðslu sjúkdómsins.
Að sögn Nabarro gefa upplýsingar
frá landbúnaðarráðuneyti Nígeríu
til kynna að fuglaflensunnar hefði
einnig orðið vart í Kano-héraði
í norðuhluta landsins og í Jos í
suðurhlutanum.
Nígeríumaður býður kjúkling til sölu á götu f Lagos. H5N1-afbrigði fuglaflensu hefur
greinst í landinu og er það fyrsta tilfellið sem vitað er um f Afríku.
Alex Last, fréttaritari Breska rík- Sérfræðingar hafa lengi óttast að
isútvarpsins (BBC) í Lagos, segir ef HsNi-afbrigði flensunnar kæmi
að fuglaflensa gæti haft hræðilegar upp í Afríku myndi hún festa sig
afleiðingarílandiþarsemkjúklinga- fljótt í sessi og ógerningur yrði að
rækt er megintekjulind milljóna koma í veg fyrir útbreiðslu hennar.
manna.
Jafnhart verður tekið á vörslu og neyslu kannabisefna og harðari eiturlyfja á Ítalíu
Kannabis sett í flokk
með hörðum efnum
Ríkisstjórn Italíu hefur samþykkt
lög um hert viðurlög við maríjú-
anareykingum og verður efnið í
raun sett í sama flokk og harðari
efni. Samkvæmt nýju löggjöfinni
getur fólk sem verður uppvíst að
vörslu kannabis átt á hættu að vega-
bréf þess og ökuskírteini verði gerð
upptæk.
Stjórnarandstöðuþingmenn og
meðferðarfulltrúar hafa lýst yfir
andstöðu sinni löggjöfina. Sam-
kvæmt nýju lögunum verður hægt
að dæma fólk í sex til tuttugu ára
fangelsi fyrir eiturlyfjasmygl eða
sölu auk þess sem það má búast
við allt að 260.000 evra (tæplega
20 milljóna ísl. kr.) sekt. Einu gildir
hvort um er að ræða heróín, kókaín
eða kannabis.
Fólk sem hunsar ítrekaðar áminn-
ingar um að láta af kannabisneyslu
á yfir höfði sér sviptingu ökuleyfis
auk þess sem því verður gert að
halda sig heima hjá sér á kvöldin.
Þriðjungur unglinga á Italíu hefur
reykt maríjúana að minnsta kosti
einu sinni og 10% fullorðinna reykja
það reglulega samkvæmt nýlegri
könnun.
Rúmlega 200 manns, þar af einn
stjórnarandstöðuþingmaður, komu
saman fyrir utan þinghúsið í Róm
og reyktu maríjúanajónu í mótmæla-
skyni. Stjórnarandstöðuþingmenn
hafa lýst því yfir að löggjöfin verði
sú fyrsta sem þeir muni nema úr
gildi ef þeir komast til valda í þing-
kosningunum í apríl.
i §1
'Wmmsak--
SIGRUN ELSA
SMÁRADÓTTIR
2-4
Sigrúnu Elsu í sigurliðið
...Á borgarstjórnarfundi í vikunni sáu raunar ekki færri en fjórir af sex
borgarfulltrúum Sjálfstæðisflokksins ástæðu til að veitast að henni og
þarf þá ekki frekar vitnanna við. Ástæðan var skörugleg framganga
hennar í gagnrýni á Vilhjálm Þ. Vllhjálmsson leiðtoga Sjálfstæðis-
manna sem augljóslega, einsog Sigrúnu er lagið, hitti í mark...
Helgi Hjörvar
Þingmaður Samfylkingarinnar
Setjum Sigrúnu Elsu í öruggt sæti
... Ég hef fylgst með Sigrúnu Elsu í mörg ár i pólitíkinni ma. sátum við
saman í Fræðsluráði Reykjavíkur um tíma. Sigrún Elsa er málefnaleg,
áhugasöm, hugmyndaríkur og drífandi stjórnmálamaður...
Margrét S. Björnsdóttir
forstöðumaður.
Ég styð Sigrúnu Elsu í prófkjöri Samfylkingarinnar
...Það er mikilvægt að á framboðslista Samfylkingarinnar raðist bæði fólk með reynslu
og að nýliðun verði í framvarðasveitinni. Sigrún Elsa Smáradóttir sameinar þetta tvennt...
Ágúst Ólafur Ágústsson
Þingmaður og varaformaður Samfylkingarinnar
Höfuðborgin mín þarfnast Sigrúnar Elsu
...Sigrún situr í Menntaráði og áður í fræðsluráði og leikskólaráði. Hún var formaður starfshóps sem
mótaði stefnu um gjaldfrjálsan leikskóla fyrir fimm ára börn og hún er varaformaður st|órnar Orkuveitu
Reykjavikur svo eitthvað sé nefnt. Allir sem starfað hafa með henni hafa gefa henni hæsm einkunn...
Margrét Frímansdóttir
Þingmaður Samfylkingarinnar
Velkomin Sigrún Elsa.
...Það er sannfæring mín að einstaklingur með getu og burði, efnistök og verklag
Sigrúnar Elsu hafi í ríkum mæli þá eiginleika, sem kjósendur meta mest...
Birgir Dýrfjörð, rafvirki.
Prófkjör Samfylkingarinnar í Reykjavík
... Ég veit líka að eitt af hennar helstu málum er að Reykjavíkurborg geti mætt og brúað bil á milli
fæðingarorlofs og leikskólavistar.Sigrún hefur látið verkin tala I sinni vinnu fyrir borgarbúa, við
skulum tryggja að svo verði áfram.
Guðrún Ögmundsdóttir
Þingmaður Samfylkingarinnar.
Styðjum Sigrúnu Elsu
...Hún býður sig núna fram 12.-4. sæti Samfylkingarinnar. Kostir frambjóðandans
Sigrúnar Elsu Smáradóttur eru sannarlega ótviræðir...
Gísli Gunnarsson
prófessor í sagnfræði
www.sigrunelsa.is