blaðið - 10.02.2006, Blaðsíða 16

blaðið - 10.02.2006, Blaðsíða 16
16 I ÁLIT FÖSTUDAGUR 10. FEBRÚAR 2006 blaöiö Ártúnsbrekkan við Hringbraut Það var ánægjulegt að heyra í fréttum að nýtt borgarhverfi er á teikniborðinu. Hverfið er á fallegum stað og að sögn arkítekt- ana sem skipulögðu það er það ‘síðasta perlan” í Reykjavík sem á eftir að skipuleggja. Hverfið á að vera þéttbýlt og líkjast Þing- holtunum, Melunum eða byggð á Skólavörðuholti. Nú er það þannig ég hef búið í mið- eða vest- urbæ nánast alla mína ævi og ég tel mig þekkja hverfið mitt ágæt- lega og skil því arkítektana afar vel þegar þeir sækja innblástur þangað. Mið- og vesturbær eru að mínu viti langskemmtilegustu hverfi borgarinnar því þar er vísir að mannlífi og fólk úr öðrum bæj- arhlutum kemur þangað til þess að gera sér glaðan dag. Tillaga að endurbótum við Úlfársdal ------------ Vegna þess hve þetta lítur allt vel út með nýja hverfið í Úlfárs- dal langar mig til að koma með tillögu sem núverandi skipu- lagsyfirvöld munu ............ ugglaust skoða með Teitur athygli. Fyrst að Atlason nýja hverfið er svona þétt og fallegt og á að minna á mið og vesturbæ, ætla ég að koma með þá tillögu að risa- stórum spítala verði troðið þar niður og sex akreina hraðbraut verði lögð um nýja hverfið. En þetta er einmitt það sem R listinn gerði í hverfinu mínu. Lautarferð í Ártúnsbrekku Margir eru sárir út í R listann sáluga enda er þessi framkvæmd algerlega á skjön við það sem lofað var fyrir síðustu kosningar en þá var farið mikinn í fagurgala um þéttingu byggðar og íbúðlýðræði. Hvoru- tveggja reyndist innihaldslausir frasar sem ekkert mark var takandi á. Þess í stað fengum við mið og vesturbæingar hraðbraut, einskonar lárétta Ártúnsbrekku, þar sem áður var Hringbraut. Þar sem hún er breiðust nær hún yfir 7 akreinar! Þetta malbiks gímald hefur ekki leyst neinn umferðarvanda því allir eru sammála um að umferðin hafi versnað við tilkomu nýju Ártúns- brekkunnar við Hringbraut. Til að bíta hausinn af skömminni var til- kynnt um að bensínstöð verði reist við þessa nýju Ártúnsbrekku. Bens- ínstöð, þar sem áður var lofað þéttri byggð í samhengi við Þingholtin. í stað þess að fara í Hljómskálagarð- inn með nesti í körfu förum við í Nesti við Hringbraut og pöntum okkur pulsu í gegnum lúgu. Var þetta sýn R listans um framtíðar- skipulagið? “Þekkingarþorpið” var bara blekkingarþorp sem notað var til að veiða atkvæði af okkur Reyk- víkingum. Við vorum blekkt. Minnisvarði um skammsýni Dularfullu göngubrýrnar yfir nýju Hringbrautina hafa valdið mörgum heilabrotum. Þær byrja eiginlega hvergi og enda út buskanum. Hug- myndin bakvið þær endurspegla samt hugmyndir R listans í skipu- lagsmálum, þokukenndar og án skynsemistengingar. Þessar ömur- legu göngubrýr sem engin hefur notað hingað til svo vitað sé, standa eins og minnisvarðar um það sem gerist þegar stjórnmálamenn byrja að skipta sér of mikið af skipulags- málum. Stjórnmálamenn eiga ekki að ákveða hvar best sé að leggja hrað- braut. Það er ekki þeirra hlutverk. Það eru aðrir miklu betur til þess fallnir en þeir. Teitur Atlason Athugasemd við grein Guðmundar Hallvarðs- sonar um breytingu á lögum um happdrætti Þann 4. febrúar sl. birtist grein í Blaðinu sem ber heitið “Kallað eftir breytingum á lögum um happdrætti.” Greinin virðist vera í formi viðtals við Guðmund Hallvarðsson, alþingismann og stjórnarformann DAS. í grein- inni gætir nokkurs misskilnings og óska ég eftir að koma á fram- færi leiðréttingum og frekari skýringum. I greininni segir m. a: „Guð- mundur bendir á það að forstjóri Happdrættis Háskólans er fyrr- verandi stjórnandi hjá Samkeppn- isstofnun.” Síðan kemur bein til- vitnun: „Rétt áður en hann hætti þar kom út álit Samkeppnisstofn- unar þess efnis, að einkaleyfi Happ- drættisins stangaðist á við sam- keppnislög. Ég var alveg sammála honum um það þá, en ég er ekki viss um að hann sé sammála mér í dag. Það á að vera jafnræði á milli happdrættanna.” Af því sem hér segir má ráða að ég hafi tekið þátt í af- greiðslu máls hjá samkeppnisyfir- völdum vegna ágreinings á milli DAS og Happdrættis Háskóla ís- lands. Svo var ekki. í framhaldi af setningu laga nr. 8/1993 um samkeppnismál var ég skipaður af viðskiptaráðherra sem formaður Samkeppnisráðs. Ég starfaði þá sem prófessor við Viðskipta- og hagfræðideild Háskóla íslands. Sú skipan mála hélst til hausts 2001 er breytingar urðu á högum mínum og ég tók við forstjórastarfi Happ- drættis Háskóla íslands. Þá óskaði ég lausnar frá starfi mínu í Sam- keppnisráði. Allan þann tíma sem ég var formaður Samkeppnisráðs gætti ég þess að lýsa mig vanhæfan til að fjalla um mál ef þau snertu Háskóla íslands á einn eða annan hátt. Vegna tengsla minna við skól- ann, taldi ég ekki við hæfi að fjalla um nein mál honum viðkomandi. Sem dæmi má nefna rekstur happ- drættis, apóteks og rannsóknastofn- ana svo að eitthvað sé nefnt. Þegar slík mál bárust til samkeppnisyfir- valda hafði ég það fyrir reglu að ég las engin skjöl um málin, þ.e. engin erindi eða rökstuðning frá máls- aðilum og engar greinargerðir frá Samkeppnisstofnun. Þar að auki ræddi ég aldrei um málin við starfs- menn Samkeppnistofnunar og ekki heldur við aðra þá sem voru með mér í Samkeppnisráði. Ég kom því hvergi að úrskurði Samkeppnisráðs þess efnis að einkaleyfi H.H.Í. til að reka peningahappdrætti stang- aðist á við samkeppnislög. Vegna þess misskilnings Guðmundar Hallvarðssonar að ég hafi tekið þátt í afgreiðslu fyrrgreinds máls, vantar algjörlega forsendu fyrir þeirri skoðun sem fram kemur í setningunni: „Ég var honum alveg sammála þá.“ Samkeppni og happdrætti Úrskurður Samkeppnissráðs ber öll einkenni þess að samkeppnisyf- irvöld hafi litið á happdrættisstarf- semi eins og hvern annan atvinnu- veg. Þetta er í raun mjög hæpið og einkum ef litið er til skipan happ- drættismála hér á landi. Öll happdrætti þurfa leyfi til starf- semi sinnar. Auk skyndihappdrætta stunda sex fyrir- tæki happdrættis- Brynjólfur starfsemi að stað- Sigurðsson aldri hér á landi. Happdrætti Há- skóla íslands aflar fjár til byggingarmála skólans og til kaupa á rannsóknatækjum. SlBS styður starfsemina að Reykjalundi. Hagnaður DAS rennur til bygg- ingaframkvæmda fyrir aldraða á vegum Sjómannadagssamtakanna. Hagnaði íslandsspila er varið til Rauða kross Islands, Björgunar- sveitanna og SÁÁ og hagðnaði Islenskrar getspár og íslenskra get- rauna er varið til íþróttahreyfingar- innar og Öryrkjabandalags Islands. Allur hagnaður af happdrættisstarf- seminni fer því til þjóðþrifamála og um hvert og eitt fyrirtækjanna gilda sérstök lög sem marka þeim ákveðið svið til að starfa innan. Það má leiða að því líkur að ríki og sveitarfélög yrðu að leggja fram aukið fé til ofangreindrar starfsemi ef fjármagn frá happdrættunum þryti. Happdrættin eru því í raun aðeins framlengdur armur hins op- inbera til að afla fjár til góðra mál- efna. Það er því stjórnvöldum í hag að hagnaður happdrættanna verði sem mestur. Eðli samkeppninnar gengur hins vegar í þveröfuga átt. Það er einkennandi fyrir markaði þar sem samkeppni ríkir að hagnaður einstakra fyrirtækja fari minnk- andi. Þegar til langs tíma er litið getur jafnvægi náðst þar sem heild- arkostnaður einstakra fyrirtækja verður jafn heildartekjum þeirra. Þessi þróun gerist með tvennum hætti. I fyrsta lagi leita fleiri fyrir- tæki inn á þann markað þar sem hagnaður er til staðar. I öðru lagi eykst kostnaður fyrirtækja á mark- aðnum vegna söluhve tjandi aðgerða þegar hvert og eitt þeirra reynir að halda hlut sínum í samkeppninni. Samkeppnin getur því leitt til þess að tekjulindin þorni. Tekjuöflunin fyrir hið opinbera og samkeppnin stangast því á. Happdrættismál hafa verið mikið til umræðu að unda- förnu á erlendum vettvangi. Norð- menn hafa t.d. stigið skref til að takmarka samkeppni á happds- rættismarkaði. Evrópusambandið ræðir um þessar mundir þjónustu- tilskipun (Service Directive). Þar er fjallað um hvort líta ber á happ- drætti eins og hvern annan atvinnu- veg á þjónustusviði þannig að þjón- ustutilskipunin gildi um þau. Hitt sjónarmiðið er einnig uppi, að sér- staða happdrættanna sé svo mikil, að eðlilegt sé að þau séu utan þjón- ustutilskipunarinnar. Margt bendir til þess að sú verði niðurstaðan. Hvert rennur einkaleyfisgjaldið? I greininni segir með beinni til- vitnun: „En það er einfaldlega ekki rétt að segja að Háskólinn verði af þessum peningum sem þeir greiða í formi einkaleyfagjalds. Sá peningur fer allur aftur til Háskól- ans.“ Þetta er ofmælt. I afar mörg ár rann einkaleyfisgjaldið í Bygg- ingasjóð rannsókna í þágu atvinnu- veganna. Sá sjóður var notaður til að fjármagna byggingar rann- sóknastofnana atvinnuveganna á Keldnaholti. Með lögum nr. 3/2003 var ákveðið að einkaleyfisgjaldið skyldi renna í Tækjasjóð, sem er innan vébanda Rannsóknaráðs íslands. Hlutverk sjóðsins er að veita rannsóknastofnunum styrki til kaupa á dýrum tækjum og bún- aði til rannsókna. Þetta þýðir að allir háskólar á íslandi geta sótt um styrki í sjóðinn, allar rannsókna- stofnanir atvinnuveganna eins og Hafrannsóknastofnun, Rannsókna- stofnun byggingariðnaðarins Rann- sóknastofnun fiskiðnaðarins og Iðntæknistofnun. Þá geta stofnanir eins og Veðurstofan, Orkustofnun, Landgræðslan og Skógrækt ríkis- ins sótt um styrki og margar fleiri stofnanir mætti nefna. Þótt Háskóli íslands sé mjög mikilvirk rann- sóknastofnun þá er það ofmælt að allir peningarnir fari aftur til hans. Brynjólfur Sigurðsson Höfundur erforstjóri Happdrœttis Háskóla íslands 50% afsláttury -“718% -..r- - vafsláttur/ 75% afsláttuo 50% afsláttur/ afsláttur/ XPER800 Ferðageislaspilar með uwarpi ög 45 sek hristivörn hristivörn sónvarp/útvarp í 50%) Wsláttuy 28 sjonvarp 27.005- Nicam stereo og textavarp www.radio.is 25%" afsláttun 60% afsláttun 40% afsláttun ARMULA 38 • SIMI 553 1133 Stálblandari með glerkönnu

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.