blaðið - 14.03.2006, Page 1
Friálst,
óháð &
ókeypisl
60. tölublað 2. árgangur
þriðjudagur
14. mars 2006
■ MENNTUN
Starf djákna
er marg-
brotið
| SfÐA 21
■ NEYTENDUR
Betra að safna fyr-
ir hlutunum i stað
þess að taka lán
wDí;
»*»»»«*»•
SÍÐA12
SKIÐASVÆÐIN
OPIÐ í DAG
S. 530 3000 www.skidasvaedi.is
■ FJÖLSKYLDAN
Tvíburaforeldrar
eiga erfitt með
innkaup
Bjór í krananum
Haldis Gundersen sem býr í Kristi-
ansund í vesturhluta Noregs rak
upp stór augu um helgina þegar
hún skrúfaði frá krananum í eldhús-
inu og í stað vatns flæddi út bjór.
„Ég skrúfaði frá vatninu til að
þvo upp hnífana og gafflana og þá
streymdi bjór úr krananum. Við
vorum auðvitað himinlifandi,"
sagði Haldis. Bjór er mjög dýr
í Noregi og eru það sennilega
íslendingar einir þjóða sem
borga meira fyrir mjöðinn.
Haldis kvaðst hafa bragðað
á bjórnum og sagði hann hafa
verið undarlegan á bragðið og án
froðu. Nánari rannsókn leiddi
í Ijós að bjór flæddi úr öllum
krönum í íbúðinni, að því er sagði
í frétt Stavanger Aftenblad.
í ljós kom að mistök höfðu átt
sér stað á bar sem er á jarðhæð-
inni í sama húsi en íbúð Haldisar
er á þeirri þriðju. I stað þess að
tengja bjórtunnu við réttan krana
á barnum hafði maðurinn sem
hafði það verk með höndum
afrekað að tengja bjórnámuna inn
á pípulögn Haldisar. Og á barnum
á neðri hæðinni fengu menn
aðeins vatn úr bjórtunnunum.
„Ef þetta gerist aftur
ætla ég að panta mér einn
Baileys," sagði Haldis.
BlaÖiÖ/SteinarHugi
Líf og fjör við Lágafellsskóla
Nemendur í Lágafellsskóla f Mosfellsbæ skemmtu sér konunglega við snjókast í gær enda hafa fá tækifæri gefist til að iðka það að undanförnu. Krakkarnir
tóku ljósmyndara Blaðsins fagnandi og þótti honum því ráðlegast að halda sig í hæfilegri fjarlægð. Snjórinn fer nú minnkandi á höfuðborgarsvæðinu og því
er spáð að í dag muni hlána eftir stuttan kuldakafla.
Reuters
Fílarnir skreyttir á Indlandi
Indverskir karlar strá litarefni yfir fflana í Gourama-þjóðgarðinum á
Indlandi. Þar er nú nýhafin árleg hátfð til að fagna vorkomunni og mælir
hefðin fyrir um að fílarnir skuli einnig skreyttir af því tilefni.
Bush blæs til gagnsóknar
Forsetinn bregst við vaxandi efasemdum um gang mála í írak.
George W. Bush Bandaríkjaforseti
hóf í gær gagnsókn vegna vaxandi
efasemda vestra um gang herfar-
arinnar í Irak. Forsetinn flutti þá
fyrstu ræðu sína af mörgum sem
skipulagðar hafa verið á næstu
vikum f þeim tilgangi að sannfæra
almenning í Bandaríkjunum um
að stjórnvöld hafi markað stefnu
sem fallin sé til að tryggja sigur í
hryðjuverkastríðinu.
Ræðuna flutti Bush í George Wash-
ington-háskóla í höfuðborginni. Að
sögn breska ríkisútvarpsins, BBC,
gætir vaxandi ókyrrðar í herbúðum
forsetans vegna slakrar stöðu hans
samkvæmt skoðanakönnunum. Sí-
fellt fleiri lýsa yfir óánægju vegna
framgöngu forsetans í embætti og
þeim fækkar stöðugt sem trú hafa
á því að herförin til Iraks skili tilætl-
uðum árangri.
Senn eru þrjú ár liðin frá innrás-
inni í írak og telja ýmsir fréttaskýr-
endur sýnt að forsetinn geti ekki
annað en brugðist til varnar nú
þegar vaxandi efasemda gætir um
stefnu hans. Þingkosningar verða
í Bandaríkjunum í haust og hafa
ýmsir þingmenn repúblíkana sýnt
forsetanum aukinn mótþróa á síð-
ustu mánuðum.
Bush sagði í útvarpsávarpi sem
hann flutti um liðna helgi að stefna
Bandaríkjamanna í írak væri skýr.
Uppreisnarmenn þar yrðu sigraðir
og þjálfaður yrði upp hæfur íraskur
herafli. Um 240.000 írakar hafa
nú fengið herþjálfun og fullyrti
forsetinn að liðsaflinn hefði tekið
„miklum framförum“.
Forsetinn hefur á hinn bóginn
gætt þess í ræðum sínum að und-
anförnu að lýsa yfir skilningi á því
að Bandaríkjamenn hafi áhyggjur
af gangi mála í írak. Var fullvíst
talið að það myndi hann endur-
taka í ræðunni í gær. Samkvæmt
nýrri könnun telja fjórir af hverjum
fimm Bandaríkjamönnum að átök
trúarhópa í íraki muni geta af sér
borgarastyrjöld.
Að sögn bandarískra embætt-
ismanna mun forsetinn í ræðum
sínum á næstu vikum reyna að
sannfæra bandarísku þjóðina um
að herförin í Irak sé órjúfanlega
tengd öryggi Bandaríkjanna. Þau
Dick Cheney varaforseti og Condole-
ezza Rice utanríkisráðherra munu
einnig halda miklar ræður á næstu
dögum en þann 20. þessa mánaðar
verða þrjú ár liðin frá því Banda-
ríkjamenn og Bretar réðust inn í
írak.