blaðið - 14.03.2006, Blaðsíða 4
4 I INNLENDAR FRÉTTIR
ÞRIÐJUDAGUR 14. MARS 2006 blaAÍA
Mannlífi hótað
lögsókn vegna vef
birtingar símtals
Vilhjálmur H. Vilhjálmsson, lög-
maður athafnamannsins Marks
Ashleys Wells, hefur krafist þess af
tímaritinu Mannlífi að upptökum af
símtölum skjólstæðings hans við ís-
lenska fjárfesta verði eytt af vef Mann-
lífs (www.mannlif.is). Reynir Trausta-
son, ritstjóri Mannlífs, hefur hafnað
kröfunum að viðhöfðu samráði við
lögfræðing útgáfu tímaritsins og
munu upptökurnar standa óhreyfðar
ávefnum.
Lögmaður Vilhjálms lýsti því yfir
að í kjölfarið myndi hann grípa til við-
eigandi aðgerða til þess að fá upptök-
urnar fjarlægðar og er gert ráð fyrir
að hann krefjist lögbanns á næstu
dögum.
f grein í nýjasta tölublaði Mannlífs
er sagt frá Bretanum Mark Ashley
Wells, sem veitir „fjölþrepasölufyrir-
tækinu' Aquanet World forstöðu, og
hermt að fjöldi manns hafi fjárfest í
því, en staðið hafi á arðinum.
Neðst á forsíðu Mannlífsvefjarins
má finna upptökur frá þvf í fyrra þar
sem Wells lofar íslenskum fjárfestum
einstökum ábata ef þeir leggi fé í fyr-
irtækið, en það sagði hann búa yfir
einstökum hugbúnaði, sem væri á
góðri leið með að verða lykilhlekkur
í greiðslumiðlunarkerfi þorra við-
skipta heimsbyggðarinnar.
A upptökunni má meðal annars
heyra Wells lýsa því að 30 milljarða
króna fjárframlag „næststærsta
banka heims“ sé væntanlegt inn í fyr-
irtækið, áður en hann fer fram á frek-
ari fjárframlög íslensku fjárfestanna.
Á hinn bóginn vildi hann ekki til-
greina nánar um hvaða banka var að
ræða. Ekkert hefur orðið úr þessum
fyrirætlunum enn og munu fjárfestar
í Aquanetworld ekki hafa fengið fram-
lög sín endurgreidd, líkt og Wells mun
hafa heitið. {fréttaskýringu Mannlífs
kemur einnig fram að á Kýpur hafi
fjöldi manns lagt fé fyrirtækið, sem
sagt er píramídafyrirtæki.
Friðsamlegur fyrirlestur
Bandaríski fræðimaðurinn dr. Michael Rubin hélt í gær fyrirlestur í Odda, hugvísindahúsi Háskóla fslands, um stefnu Bandaríkjastjórn-
ar í Miðausturlöndum. Dr. Rubin vann á vegum bandarískra yfirvalda við stefnumótun í þeim heimshluta í aðdraganda hernaðarað-
gerða í frak. Andstæðingar þeirra hér á landi boðuðu mótmælaaðgerðir í von um að koma í veg fyrir fyrirlesturinn, en þegar á hólminn
var komið létu þeir sér nægja að afhenda fjölrit um fyrirlesarann. Að fyrirlestrinum loknum svaraði dr. Rubin fyrirspurnum áheyrenda
og var nokkuð hart að honum sótt, en dr. Rubin svaraði fullum hálsi. Var góður rómur gerður að fyrirlestrinum, sem haldinn var á veg-
um Alþjóðastofnunar Háskóla fslands.
I/ildarþjónusta fyrirtækja
Við leggjum áherslu á
langtímasamband og
sérhæfðar lausnir sem taka
mið af sérstökum
aðstæðum og starfsumhverfi
viðskiptavina okkar.
SPH - fyrir þig og fyrirtækiö!
spb«
550 2000 | www.sph.is
Boðskort
láttu okkur sjá um boðskortið fyrir ferminguna
2006
^ýerminjf
www.myndval.is
Álfabakka 14 - s. 557 4070
myndval@myndval.is
Múrar reistir utan um neyt-
endur á fjarskiptamarkaöi
OgVodafone býður ókeypis símtöl heimasíma og svara Símans er talið ekki
langt að bíða. Sérfrœðingar telja þó að þessir múrar muni ekki standa lengi.
Að undanförnu hafa talsverðar hrær-
ingar verið á íslenskum fjarskipta-
markaði, stóru fjarskiptafyrirtækin
tvö, Síminn og Dagsbrún, hafa
stækkað verulega, fjárfest, aukið
þjónustu og teygt sig nær viðskipta-
vininum á marga lund. Um leið
hefur mörgum þótt sem múrarnir
milli fyrirtækjanna verði æ hærri og
tilboðin til neytenda hafa þótt bera
æ meiri merki afarkosta. Forsmekk-
inn fengu menn í deilum fyrirtækj-
anna um dreifingu á íþróttarefni
og nýjasta útspilið hjá OgVodafone
er að viðskiptavinir þess geti hringt
ótakmarkað í heimasíma innan-
lands, svo framarlega sem þeir eru
með alla þjónustu hjá þeim.
Heimildir Blaðsins herma að
þess verði ekki langt að bíða að
Síminn svari þessu tilboði OgVoda-
fone. Tæpast verður tilboðið með
nákvæmlega sama sniði, enda er
Utanríkisráðherra
í Danmörku
mbl.is | OpinberheimsóknGeirs
H. Haarde, utanríkisráðherra, til
Danmerkur hófst í Kaupmanna-
höfn í gær. Geir átti m.a. íúnd með
Per Stig Moller, utanríkisráðherra,
gekk á fúnd Margrétar Danadrottn-
ingar og heimsótti danska þrngið.
Þeir Geir og Stig Moller ræddu
bæði alþjóðamál og samskipti land-
anna. Geir sagði í samtah við Fréttavef
Morgunblaðsins að fundurinn hefði
verið langur og gagnlegur. Þeú hefðu
rætt skopmyndamálið, stöðuna í
Irak og framboð íslands í öryggisráð
Sameinuðu þjóðanna. Einnig bar
útgáfú á íslensk-danskri orðabók á
góma, endurnýjun loftferðarsamnmgs
á milli íslands og Danmerkur og fleira.
„Þetta var mjög góð og almenn
umræða, en á heildina htið lá það
í loftinu að okkar á milh þá eru
eiginlega engin vandamál og sam-
starf á milh landanna er mjög gott,”
sagði Geir að loknum fúndmum.
Á morgun er fyrirhuguð heimsókn
í flotastöðina í Korsor og í Vejstrup
ungdomsskole. Þá verður snæddur
hádegisverður í Valdemarshöllinni
og að því búnu verður fúndað með
utanrfldsmálanefnd danska þingsins
Síminn brenndur af úrskurði Sam-
keppnisyfirvalda fyrir nokkrum
árum, þegar honum var meinað að
gera notendum tilboð, sem nefnt var
,Allt á sama stað“, en vegnayfirburða-
markaðsstöðu sinnar þótti ófært að
Síminn gerði samkeppninni svo erf-
itt fyrir. Hins vegar er álitamál hvort
samkeppnisyfirvöld myndu komast
að sömu niðurstöðu nú í ljósi tilboðs
OgVodafone.
Líklegast er þó talið að Síminn
munibjóða nokkrar tegundir tilboða
til þess að auka viðskiptatryggðina,
en geri ekki að skilyrði að öll þjón-
usta verði keypt hjá þeim. „Fólki
hentar mismunandi fyrirkomulag
á þessu,“ segir stjórnandi hjá Sím-
anum. „Sumir vilja helst ekki greiða
neitt fastagjald og stilla notkun í hóf,
meðan aðrir kjósa hærra fastagjald
en með meiri notkun innifalinni.
Síminn hefur náð að gera þessum
hópum báðum til hæfis og heldur
því sjálfsagt áfram.“
En þrátt fyrir að viðskiptamúr-
arnir virðist fara hækkandi eru
menn ekki trúaðir á að þeir haldi til
lengdar. „Það er nú eðli múra að þeir
halda misvel og allir hrynja þeir að
lokum,“ segir viðmælandi Blaðsins.
Minnt er á að samningar um dreif-
ingu milli kerfa séu langt komnir og
er talið að þeir gangi eftir á næstu
dögum, þó neytendur muni sjálf-
sagt ekki njóta þeirra fyrr en undir
sumar.
„Þessi kaupfélagsstefna, að eiga
allt til alls og vera í endalausri
vöruskiptaverslun þar á milli mun
tæpast ganga betur í dag en hún
gerði hér áður fyrr,“ segir háttsettur
stjórnandi hjá Símanum. Segir hann
engan veginn nauðsynlegt fyrir sím-
fyrirtækin að eiga alla þjónustuna,
sem þau dreifi.
SgS Reykjavíkurborg
OPINN
FUNDUR
íþrótta- o'g tómstundaráó boðar til
opins fundar í félagsheimili Knatt-
spyrnufélagsins Víkings vió Stjörnugróf
miðvikudaginn 15. mars 2006 kl. 17:30.
Kynntar veróa tillögur aó skipulagi
íþróttasvæóis Víkings og fyrirhugaóar
framkvæmdir vió gervigrasvöll.
íþrótta- og tómstundaráð