blaðið - 14.03.2006, Qupperneq 8
8 I ERLENDAR FRÉTTIR
ÞRIÐJUDAGUR 14. MARS 2006 blaöiö
..allt stóðst
sem sagtvar."
Ummæli fólks sem lent hefur í tjónl segja
mest um þjónustu tryggingafélaga.
„Ég vil koma á framfæri þakklæti mínu til TM
fyrir mjög góða þjónustu. Ég lenti í nokkuð
stóru tjóni í byrjun árs. Upplifun mín af þjónustu
TM varmjöggóð áallan hátt, gott viðmótog
skjót viðbrögð. Allt stóðst sem sagt var auk
þess sem bent var á hagstæðustu leiðina
varðandi bílaleigu. Þetta er besta auglýsingin
fyrir ykkur og tryggir tryggð viðskiptavina.
Kveöja, Anna Inga Grímsdóttir."
Ánægjuvog tryggingafélaga 2005
TM
VÍS
Sjóvá
2003 2004 2005
Samkvæmtíslensku ánægjuvoginni eru við-
skiptavinirTM þeir ánægðustu af viðskiptavin-
um tryggingafélaga.
TRYGCINGAMIÐSTÖÐIN / Sími 515 2000 / tm@tryggingamidstodin.is / www.tryggingamidstodin.is
Einvígi skemmtikrafts
og menntamanns
Silvio Berlusconi, forsœtisráðherra Ítalíu, og Romano Prodi, leiðtogi
vinstri manna, leiða saman hesta sína í sjónvarpskapprœðum í kvöld.
Silvio Berlusconi er undir í skoðanakönnunum en treystir á persónutöfra og fjölmiðla-
veldi.
Stálin stinn mætast þegar Silvio
Berlusconi, forsætisráðherra
Ítalíu, mætir Romano Prodi, sem
leiðir bandalag mið- og vinstri-
flokka, í sjónvarpskappræðum
í kvöld. Þingkosningar verða á
Ítalíu 9. - 10. apríl. Samkvæmt
nýjustu könnunum eru mið- og
vinstri flokkarnir með tæplega
4% forskot á kosningabandalag
Berlusconis. Talið er að kappræð-
urnar í kvöld geti ráðið miklu um
hvort að forsætisráðherrann saxi
á forskotið en hann hefur farið
mikinn í fjölmiðlum undanfarið.
Flestir fjölmiðlar á vinstri væng
ítalskra stjórnmála gagnrýndu
háttalag Berlusconis á sunnudag
en þá gekk hann út úr sjónvarpssal
í beinni útsendingu. Honum mislík-
aði spurningar fjölmiðlakonunnar
Luciu Annunziata en hún spurði
hann ítrekað um hvernig honum
þætti að vera fyrst og fremst þekktur
á erlendum vettvangi fyrir spilling-
arásakanir og stuðning við Iraks-
stríðið. Berlusconi brást ókvæða
við og sakaði Annunziata meðal
annars um að reka stríðsmálaráðu-
neyti gegn stjórn hans. Fjölmiðlar
sem styðja forsætisráðherrann tóku
í sama streng í umfjöllun sinni um
málið í gær.
Minnkandi sjálfstraust Berlusconi?
Uppákoman þykir til marks um að
Berlusconi sé tekinn að óttast um
sigurlíkur sinar í kosningunum.
Annunziata þykir einn ágengasti
blaðamaður Italíu og er yfirlýstur
andstæðingur forsætisráðherrans.
Undir venjulegum kringumstæðum
hefði Berlusconi haldið sig fjarri
slíkum blaðamanni og treyst á um-
fjöllun fjölmiðla í eigin eigu eða
ríkisins. Ekki er víst að þetta mál
skaði Berlusconis en ekki er óþekkt
að hann fari ótroðnar slóðir í sam-
skiptum sínum við blaðamenn og
láti umdeild ummæli falla. Þetta
þykir vera hluti af kjörþokka forsæt-
isráðherrans. Þrátt fyrir það hafa
ummæli hans að undanförnu vakið
furðu. I síðustu viku vöktu yfirlýs-
ingar forsætisráðherrans í sjónvarp-
sviðtali athygli en þá sagði hann að
lausn vandamála þeirra Itala sem
öfluðu minna en 100 þúsund króna
á mánuði fælist í þvi að vinna meira.
Þessi skoðun hans þykir ekki líkleg
til þess að afla fylgis meðal kjósenda
á lægstu launum og teljast klaufaleg
!>ar sem efnahagssamdráttur er á
taliu.
Segist fórnarlamb ofsókna
En þrátt fyrir klaufalega framgöngu
Berslusconis undanfarið telja stjórn-
málaskýrendur að enn sé mjótt
á munum á milli Berlusconis og
Prodis og of snemmt að spá um nið-
urstöðu kosninganna. Ákærur um
spillingu virðast ekki hafa haft jafn-
mikil áhrif á fylgi forsætisráðherr-
ans og búist var við. Forsætisráðherr-
ann þykir hafa varist ásökum gegn
sér fimlega og náð að höfða til sam-
úðar kjósenda úr sínum röðum og
komið í veg fyrir að þeir snúist gegn
honum. Málsvörn Berslusconis felst
í því að gera sig að fórnarlambi of-
sókna dómara og saksóknara sem
séu kommúnistar. Á fundi með
stuðningsmönnum í síðasta mánuði
tók Berlusconi fórnarlambslíking-
una einu skrefi lengra þegar hann
sagðist vera Jesús Kristur stjórnmál-
anna - hann væri þolinmótt fórnar-
lamb sem fórnaði sjálfum sér í þágu
heildarinnar.
Barátta ólíkra manna
Vart er hægt að hugsa sér ólíkari
menn en Berlusconi og Prodi. Sá
fyrrnefndi er milljarðamæringur
sem byggði upp veldi sitt fyrir eigin
rammleik meðan sá síðarnefndi er
yfirvegaður menntamaður með yfir-
gripsmikinn feril að baki í ítölskum
og evrópskum stjórnmálum. Prodi
leiddi fyrstu vinstri-stjórnina á
Italíu frá því að stjórn fasista féll í
seinni heimstyrjöldinni og afrekaði
öllum á óvörum að koma ítölum inn
í efnahags- og myntbandalag Evrópu.
Hann var síðar forseti framkvæmd-
arstjórnar Evrópusambandsins.
Baráttan á milli Prodi og Bersl-
usconis þykir undirstrika ákveðna
gjá sem hefur myndast í ítölsku
samfélagi. Sífelldar stjórnarkreppur
og endalaus spillingamál gegnum
tíðina hafi getið af sér tvo kjósenda-
hópa. Annarsvegar þá sem vilja
breytingar og eru tilbúnir að leggja
sitt af mörkum og þá sem hafa orðið
afhuga stjórnmálum.
Prodi höfðar til menntafólks sem
hefur áhuga á stjórnmálum
og hagar kosningabaráttu sinni
þannig. Berslusconi leggur hins-
vegar meira upp úr ímynd sinni og
umbreytir stjórnmálum í skemmti-
efni sem höfðar til þeirra sem eru
afhuga hefðbundinni flokkapólitík
og horfa mikið á sjónvarp. Sjón-
varpsstöðvar forsætisráðherrans
innleiddu á sínum tíma skemmti-
þætti sem einkenndust af söng og
léttklæddum fegurðardísum og hafa
þeir höfðað mjög sterkt til ítala. And-
stæðingar Berlusconis saka hann um
að vera að gera hið sama við ítölsk
stjórnmál; Berlusconi sé skemmti-
kraftur en ekki stjórnmálamaður.
Þeir benda máli sínu til stuðnings
á að fyrstu tvo mánuði þessa árs
hafi hann verið á skjá landsmanna
í meira en fimm klukkustundir á
meðan að Prodi hafði aðeins birst í
20 mínútur.