blaðið - 14.03.2006, Qupperneq 16
16 I HEILSA
ÞRIÐJUDAGUR 14. MARS 2006 blaðið
Marvísleg krabbamein eins og leghálskrabbamein, krabbamein í maga, lifur, nefgöngum, eitlum og hvrtblæði geta myndast vegna
sýkinga.
Bóluefni gœti komið i veg
fyrír myndun krabbameina
Veiruvarnarbóluefni gætu komið
í veg fyrir myndun krabbameina í
einum tíunda hluta tilfella og allt að
fjórðungi tilfella í þriðja heiminum
samkvæmt nýrri skýrslu frá bresku
krabbameinssamtökunum. f skýrsl-
unni kemur fram að vírustengdar
krabbameinsmyndanir verði hjá
um i,8 milljón manns á ári hverju.
Krabbamein sem tengjast vírusum
Einungis örfáir vírusar eru taldir
valda myndun krabbameina en vír-
ussmit valda krabbameini m.a. í
leghálsi, maga, lifur, nefgöngum,
eitlum og hvítblæði. í skýrslunni er
lögð áhersla á að einungis lítið hlut-
fall fólks sem er vírussmitað þróar
með sér krabbamein þó ætlað sé
að allt að 18% nýrra krabbameins-
tilfella tengist vírussýkingum. Alan
Rickinson, fremsti sérfræðingur
Breta í krabbameinsrannsóknum,
segir rannsóknir á vírustengdum
krabbameinstilfellum gríðarlega
mikilvægar því þau tilfelli skilgreini
mikilvægan hlekk í krabbameins-
þróun og hjálpi mönnum að skilja
hvernig krabbameinsþróun á sér
stað. „Þessar rannsóknir hjálpa
okkur að skilja heildarmyndina og
það sem er allra mikilvægast; ef við
getum rofið þróunina getum við
komið í veg fyrir myndun krabba-
meina,“ sagði Alan í viðtali við
breska ríksissjónvarpið í gærdag.
Bóluefni gegn leghálskrabba
á markað
Bóluefni gegn leghálskrabbameini
er það bóluefni sem mest hefur
verið þróað en leghálskrabbamein
getur myndast hafi kona sýkst af
svokölluðum HPV vírus. Mörg
lyfjafyrirtæki keppast nú við að
kynna markaðnum vörur sem vonir
standa til að geti komið í veg fyrir
um 70% leghálskrabbameina. Lyfja-
fyrirtækið Glaxo Smith Kline (GSK)
hefur sótt um markaðsleyfi til Evr-
ópsku lyfjastofnunarinnar fyrir nýtt
bóluefni, Cervarix, sem vinnur gegn
leghálskrabbameini. Evrópska íyfja-
stofnunin mun á á næstu mánuðum
meta umsóknina fyrir hönd íslands
og annara Evrópulanda. Lyfið hefur
verið þróað til þess að verjast sýk-
ingu af völdum tveggja algengustu
tegunda HPV veira. Leghálskrabba-
mein er annað algengasta krabba-
mein í konum í heiminum í dag en
áætlað er að um 270.000 konur deyi
árlega úr sjúkdómnum. Á Islandi
greinast um 15 konur á hverju ári
með þessa meinsemd.
Sérfræðingar í Bretlandi benda þó
á að enn sé óvitað hversu lengi bólu-
setning gegn leghálskrabbameini
virkar og hvort þörf er á endurnýjun
bólusetningarinnar eftir einhvern
tíma en enn sem komið er hefur ekki
verið fýlgst með þeim sjúklingum
sem hafa verið bólusettir gegn leg-
hálskrabbameini lengur en í fjögur
ár. Bóluefni gegn lifrarbólgu B hefur
einnig verið í þróun en sú sýking er
tengd myndun lifrarkrabbameins.
Engin bóluefni hafa enn sem komið
er verið þróuð gegn magakrabba-
meini, krabbameini í nefgöngum,
eitlum eða hvítblæði.
Þriggjci daga
hr ísgrj ónafasta
Sólveig Eiríksdóttir mœlir með vor-
hreingerningu fyrir líkamann.
Það er hægt að fara margar ólíkar
leiðir til þess að hjálpa líkam-
anum að hreinsa sig, en hrís-
grjónafastan ætti ekki að vera allt
of krefjandi fyrir byrjendur.
„Á hrísgrjónaföstu eru eingöngu
borðuð lífræn hýðishrísgrjón í 3
daga,“ segir Sólveig. „Hrísgrjóna-
fastan krefst þess reyndar líka að
vikuna áður en hún byrjar er nauð-
synlegt að sleppa öllum matvælum
sem koma úr dýraríkinu til að auð-
velda föstuna og minnka fráhvörf.
Þetta er ekta hippahreinsun sem ég
prófaði í fyrsta sinn um 1980 og þá
var þetta mín fyrsta fasta. Eftir viku
án afurða úr dýraríkinu er tekið
til við að borða hrísgrjónin, en þau
stuttu eru heppilegust í þessa föstu.
Grjónin þarf að sjóða í miklu vatni;
1 hluta af hrísgrjónum á móti 7-10
hlutum af vatni sem eru látin sjóða
við vægan hita í 2-3 klst, eða þar til
allt vatnið er horfið inn í grjónin
og þau eru orðin mjúk og meyr. Út
á grjónin má nota gomasio sem
er blanda af sesamfræjum og sjáv-
arsalti (1 hluti sjávarsalt á móti 20
Sólveig Eiríksdóttir.
Blaöiö/Frikki
hlutum af sesamfræjum sem hafa
verið þurrristuð í ofni í 5 mín við
200°c) en þá verður bragðið aðeins
meira spennandi," bætir Sólveig við
að lokum og hlær.
Hafragrautur
slœr í gegn
Sala á höfrum og hafragraut hefur
tvöfaldast í Bretlandi síðastliðinn
fimm ár en hafrar eru eitt mikil-
vægasta einkenni keltneskar mat-
argerðar sem einnig hefur verið
áberandi á íslandi frá landnámi.
Ástæða söluaukningar hafra í Bret-
landi, á kostnað tilbúinna morgun-
korna, er að rekja til heilsubótar og
þess hversu fljótlegt það er að elda
úr höfrum. Margar kaffiteríur og
matsölustaðir hafa tekið upp á því
að selja hafragraut auk þess sem
heimili í landinu hafa á ný tekið upp
þennan forna matargerðarsið.
Viðbit fyrir hjartað
Viðbót hefur bæst í flóru viðbita á
íslandi. Viðbitið er hið svokallaða
Flora pro.active smjörlíki sem er
hannað til að viðhalda góðri hjarta-
heilsu með því að draga úr kólest-
rólmagni í blóði.
Sífellt fleiri átta sig á mikilvægi
þess að borða hollara fæði en
margir Islendingar þurfa að velta
fyrir sér fituinnihaldi þess sem
þeir borða vegna hækkaðs kólest-
rólmagns í blóði og aukins blóð-
þrýstings. Árið 2004 létust ríflega
sjöhundruð manns úr hjarta- og
æðasjúkdómum hér á landi en
hjarta- og æðasjúkdómar eru ein
helsta ástæða veikinda og dauðs-
falla í hinum iðnvædda heimi og
verða stöðugt algengari í þróunar-
löndunum. Flora er hluti af breskri
vöruframleiðslu undir merkjum
pro.active sem allar miða að því að
draga markvisst úr magni kólest-
róls í blóði.
Heilsusamlegra en ekkí
Pro.active vörulínan var samþykkt
sem nýfæði af Evrópusambandinu
fyrir sex árum og er nú seld í tutt-
ugu löndum í heiminum og er
Flora viðbitið fyrsta varan sem
Islendingum stendur til boða. I yf-
irlýsingu framleiðanda vörunnar
segir að notkun á Flora smjörlíki
geti verið heilsusamlegra en að
nota alls ekkert viðbit vegna þess
að Flora inniheldur margar góðar
fitusýrur sem eru nauðsynlegar
heilbrigðum líkama. Flora er unnið
Flora pro.active er hluti af breskri vörulínu sem er hönnuð til að draga úr kólestról-
magni í blóði og er sérstaklega ætluð þeim sem er hætt við hjarta- og æðasjúkdómum.
úr plöntusterólum sem eru nátt-
úruleg efni sem hafa verið hluti af
mataræði mannsins í þúsundir ára.
Aukin neysla plöntusteróla getur
haft áhrif á frásog kólestróls í lík-
amanum en ýmsar leiðbeiningar
heilbrigðisstofnana um mataræði
til lækkunar á kólestróli mæla með
neyslu plöntusteróla.
Ekki fyrir börn
Á síðustu árum hefur plöntuste-
rólum verið bætt við matvöru í
því skyni að draga úr kólestról-
myndun og um merkingu þeirra í
matvöru var sett sérstök reglugerð
hér á landi í júlí í fyrra. Brynhildur
Briem, næringafræðingur hjá Um-
hverfisstofnun staðfestir að nýlegar
rannsóknir hafi sýnt að regluleg
neysla plöntusteróla í ákveðinn
tíma geti dregið úr kólestrólmagni
í blóði og þannig minnkað líkur á
kransæðasjúkdómum. „Þessi vara
er þó eingöngu hugsuð fyrir full-
orðið fólk til þessara nota og hún
er ekki ætluð börnum undir fimm
ára aldri, ófrískum konum né
konum með börn á brjósti“, segir
Brynhildur.