blaðið - 14.03.2006, Side 18
18 I FJÖLSKYLDAN
ÞRIÐJUDAGUR 14. MARS 2006 MaöÍA
Stœrðfrœði-
snillingarnir
Louise Harris ásamt tvíburum sínum:„Það er örlítið skrýtið að venjast þvf hvað fjölskyldan er allt i einu orðin stór."
Erfiðar og tímafrek-
ar verslunarferðir
Louise Harris gagnrýnir stórmarkaði fyrir að vera ekki með innkaupakerrur með sæti
fyrirfleiri en eitt barn enda á hún þrjú börn og verslunarferðir geta orðið ansiflóknar.
Nú stendur yfir skemmtilegt
verkefni sem Alcan á íslandi
hefur hleypt af stokkunum og er
ætlað að auka stærðfræðiáhuga n
þúsund barna sem fædd eru á ár-
unum 1997,1998 og 1999. Ef farið .
er inn á síðuna www.alcan.is þá
geta börnin leyst nokkrar stærð-
fræðiþrautir en leikurinn ber
heitið Stærðfræðisnillingarnir.
Samkvæmt Hrannari Péturssyni,
upplýsingafulltrúa Alcan á íslandi
hafa nú
þegar 2400
börn sent
inn svör en
leikurinn
stendur til
17. mars.
,Við erum
alveg himin-
lifandi með
þátttökuna.
Það var
búið að
segja okkur
að við gætum
verið ánægðir
með 10% þátt-
töku en hún
er orðin 25% og enn nokkrir dagar
eftir.“ Þann 17. mars verður dregið úr
réttum innsendum lausnum og 500
heppin börn fá sendan margmiðlun-
ardiskinn Tívolí tölur frá Kennslu-
forrit.is. Tívolí tölur var upphaflega
amerískur margmiðlunardiskur
og fékk fjöldamörg verðlaun ytra
en hefur nú verið íslenskaður. Auk
þess fá öll börn sem taka þátt í Stærð-
fræðisnillingunum gjöf í viðurkenn-
ingarskyni fyrir þátttökuna.
Dropinn holar steininn
Hrannar segir að hugmyndin að
leiknum hafi komið þegar kennslu-
efnið Tívolí tölur hafi orðið á vegi
þeirra. „Okkur langaði að styrkja
gerð þessa efnis. 1 staðinn fyrir að
gera það beint þá datt okkur í hug að
efna til þessa leiks og stuðla að því að
börn fengju
j á k v æ ð a
upplifun af
stærðfræði
en oft er
talað um
að börn séu
áhugalaus
um fagið.
Við erum
vitanlega
fyrirtæki
sem þarf
mikið á því
að halda að
raungreina-
þ e k k i n g
sé góð og
mikil. Þó þetta einstaka verkefni
geri ekki kraftaverk þá verður það
kannski til þess að ungir og ómót-
aðir hugar verða jákvæðari gagnvart
faginu. Vitanlega ætlumst við ekki
til að allir verði stærðfræðingar
þegar þeir alast upp en dropinn
holar steininn.“
Louise Harris hefur búið á íslandi
í níu mánuði og er himinlifandi
með land og þjóð. Sérstaklega er
hún ánægð með hve barnvænt
íslenskt samfélag er. Hins vegar
kom það henni á óvart að henni
reynist aldeilis ómögulegt að
versla með börnin sín þrjú vegna
skorts á svokölluðum tvíbura-inn-
kaupakerrum. Hún þarf því að
skipuleggja verslunarferðir sínar
í kringum vinnu eiginmannsins
auk þess sem hún þarf jafnan að
ýta bæði kerru og innkaupakerru
í verslunarferðum sínum.
Louise á fimm mánaða tvíbura og
þriggja ára son. „Það getur verið
mjög erfitt að fara að versla og í raun-
inni er ekki möguleiki fyrir mig að
fara með öll börnin. Yfirleitt tek ég
bara tvíburana með mér í búðir og
þá sitja þeir í kerrunni og ég dreg
innkaupakerruna á eftir mér,“ segir
Louise. „Reykjavík er mjög barnvæn
borg miðað við London en samt sem
áður er mun auðveldara að finna
innkaupakerrur með tvö sæti í stór-
mörkuðum í London. Slíkar kerrur
eru nefnilega ekki bara fyrir tví-
bura heldur eru þær líka nýttar af
foreldrum sem eiga tvö börn á svip-
uðum aldri.“
Stór tjölskylda
Louise fer fögrum orðum um Island
og samfélagið hér en segist hafa
verið annað hvort ólétt eða með
ungabörn síðan hún kom til lands-
ins og því ekki getað skoðað landið.
Hún hrósar sérstaklega heilbrigðis-
kerfinu og segir að það hafi verið
yndislegt að fá tækifæri til að hvíla
sig á spítalanum eftir fæðingu tví-
buranna sem er ólík reynslu hennar
af fæðingu frumburðarins. „Þegar
ég eignaðist tvíburana voru fimm
aðrar konur að eignast tvibura á
sama tíma. Það er því án efa næg eft-
irspurn eftir innkaupakerrum með
fleiri en eitt sæti. Þegar ég versla þá
kaupi ég mikið af bleyjum og öðrum
stórum umbúðum og versla jafnan
mikið í einu enda stór fjölskylda,"
segir Louise og hlær. „Það er ör-
lítið skrýtið að venjast þvi hvað fjöl-
skyldan er allt í einu orðin stór.“
Hleyp eftir því sem þarf
„Ég reyni að fara ein að versla en það
er ekki alltaf auðvelt fyrir mig. Mað-
urinn minn vinnur stundum heima
við og því reyni ég að skipuleggja
verslunarferðir mínar í kringum
hann. Oft tek ég tvö barnanna með
mér og þá þarf ég oft að skilja annað
hvort innkaupakerruna eða kerr-
una eftir einhvers staðar i búðinni
og hlaupa eftir því sem ég þarf. Versl-
unarferðin verður því töluvert erfið-
ari auk þess sem hún tekur lengri
tíma,“ segir Louise og bætir við að
verslunarferðin verði enn erfiðari ef
eitthvert barnanna fer að gráta. „Ef
það gerist þá neyðist ég til að stoppa
í miðri versluninni enda get ég ekki
haldið á barni auk þess að ýta inn-
kaupakerru og kerru. Það væri því
líkt og draumur að þurfa einungis
að vera með eina innkaupakerru og
geta haldið á barninu líka.“
Nýjar kerrur væntanlegar
Louise segist hafa spurst fyrir bæði
hjá Hagkaup og Bónus hvort ekki sé
mögulegt að kaupa svona kerrur og
samkvæmt Gunnari Inga Sigurðs-
syni, framkvæmdastjóra Hagkaupa,
verður það gert mjög fljótlega. „Við
vorum með svona kerrur fyrir ein-
hverju síðan en það er kominn tími
til að fjárfesta í nýjum og það verður
gert sem fyrst.“
svanhvit@bladid. net
99
Oft tek ég tvö barnanna með mér og þá þarfég
oft að skilja annað hvort innkaupakerruna eða
kerruna eftir einhvers staðar í búðinni og hlaupa
eftir því sem égþarf. Verslunarferðin verðurþví
töluvert erfiðari auk þess sem hún tekur lengri tíma
ALLT UM
FERMINGAR
Miðvikudaginn 15.mars
Auglýsendur, upplýsingar veita:
Kolbrún Ragnarsdóttir • Sími 510 3722 • Gsm 848 0231 • kolla@bladid.net
Ellert Ágúst Pálsson • Sími 510 3746 • Gsm 869 9903 • elli@bladid.net
Bjarni Danielsson • Sími 510 3725 • Gsm 856 4299 • bjarni@bladid.net
Á síðunni www.alcan.is má finna skemmtilegan
stærðfræðileik fyrir börn sem eru fædd á árunum
1997,1998 og 1999 geta tekið þátt í.