blaðið - 14.03.2006, Side 22
22 I ÍPRÓTTIR
ÞRIÐJUDAGUR 14. MARS 2006 MaöÍA
SKYNDIPRÓFIÐ
Marsfár í bandarískum körfuknattleik
Úrslitakeppni háskólakörfuboltans hefst áfimmtudag og má búast við sannkallaðri veislu.
Ferguson við
með sóknina
Alex Ferguson, stjóri Manchester Un-
ited, segir að liðið sé loksins að verða
jafn gott sóknarlega og . —
þaðvarárið 1999þegar
það vann þrennuna «1. _
miklu. „Með Wayne
Rooney, Ruud van Ni- mw r
stelrooy, Louis Saha
og hinn unga Gius- I
eppe Rossi í fantagóðu A|ex Ferguson
formi erum við að na
því markmiði sem við höfum stefnt
að lengi,“ sagði Ferguson. „Louis
hefur þjáðst af erfiðum meiðslum en
verið þolinmóður og nú er hann að
uppskera,“ bætti hann við.
Hollendingurinn Nistelrooy hefur
fengið að verma varamannabekkinn
í undanförnum leikjum á kostnað
Saha og ganga þær sögur fjöllum
hærra að hann vilji yfirgefa liðið.
Hefur Tottenham verið nefnt sem lík-
legur áfangastaður en þar er landi Ni-
stelrooy, Martin Jol, við stjórn. Fergu-
son gerði lítið úr þessum orðrómi og
sagði að hjá United ríkti heilbrigð
samkeppni um stöður sem gerði lið-
inu ekkert nema gott.
í marsmánuði ár hvert herjar
mikið körfuknattleiksfár á Banda-
ríkjamenn sem tilkomið er vegna
úrslita í NCAA háskólakeppninni
í körfuknattleik. Vestra tala menn
iðulega um „March madness." 64
lið leika í úrslitunum en þau fara
fram með útsláttarfyrirkomulagi og
tekur keppnin 19 daga. Fyrir þá sem
þekkja til bandarísks háskólakörfu-
knattleiks og hafa fylgst með keppn-
inni er þetta algjör sælumánuður
fyrir körfuknattleiksunnendur.
í efstu deild NCAA eru um 230 lið
sem leika í 31 riðli. í upphafi keppnis-
tímabilsins etja lið úr mismunandi
riðlum kappi og mæta jafnvel liðum
úr neðri deildum. 1 desembermán-
uði hefst svo riðlakeppnin en henni
lýkur í byrjun mars. Á þessu tíma-
bili leika liðin um 30 leiki.
Flest liðin sem vinna sinn riðil
öðlast sjálfkrafa þátttökurétt í úr-
slitakeppninni. Þetta gera þau ann-
aðhvort með því að vera efst í sínum
riðli, eða með því að vinna helgar-
úrslitakeppni þar sem liðið í 1. sæti
mætir liðinu í 8., 7. sæti mætir 2., og
svo koll af kolli.
Valnefnd raðar upp
leikjafyrirkomulagi
Sérstök valnefnd velur síðan um 35
lið til viðbótar eftir frammistöðu
sinni á keppnistímabilinu til að taka
þátt i úrslitakepnninni. Þessi val-
nefnd lýkur störfum sínum sunnu-
daginn 12. mars. Nefndin styrkleika-
raðar liðunum þannig að sterkasta
liðið leikur við lakasta liðið og svo
framvegis. Einnig er betri liðunum
umbunað með því að þurfa að ferð-
ast styttri vegalengdir á keppni-
stað. 1 ár valdi valnefndin lið Duke,
Memphis, Villanova og Connecticut
í fyrsta styrkleikaflokk
1 keppninni í ár eru fjölmargir at-
Shelden Williams hjá Duke-háskóla þykir með efnilegri leikmönnum Bandaríkjanna.
hyglisverðir leikmenn. Áhugavert
verður að fylgjast með mönnum
eins og Adam Morrisson (Gonzaga),
J .J. Redick (Duke), Shelden Williams
(Duke), Gerry Mcnamara (Syracuse),
Mike Gansey (West Virginia) og Ke-
vin Pittsnogle (West Virginia).
Fimmtudaginn 16. mars hefjast
64-liða úrslitin með 16 leikjum og
lýkur þeim daginn eftir. Um helg-
ina klárast síðan 32-liða úrslitin og
verða 16-liða úrslitin leikin fimmtu-
daginn þar á eftir.
Stefán Arnarson
Michael Ballaek
1. Hvers vegna lék hann ekki
úrslitaleik Þýskalands gegn
Brasilíu á HM 2002?
2. Hvað lið yfirgaf hann
árið 2002 fyrir Bayern
Munchen?
3. Hvað er hann gamall?
4. Hver stýrði þýska landslið-
inu þegar hann lék sinn
fyrsta landsleik 1999?
5. Hvert er gælunafn
kappans?
Dnog -s 'paqqig tpiig t '{9C6o'6z ■/) oip
61 ’f ‘uxnqmDi istog 1 '/uiwijyB; j m uuon
Johnstone látinn
Goðsögnin Jimmy Johnstone, sem
gerði garðinn frægan með Celtic á
sínum tíma, lést í gær eftir langa
baráttu við taugasjúkdóm. Johnston
var lykilmaður Celtic þegar það
varð fyrsta knattspyrnufélagið frá
Bretlandseyjum til að vinna Evrópu-
keppni bikarhafa árið 1967.
Johnstone skoraði yfir 100 mörk
fyrir félagið, lék 23 landsleiki fyrir
Skotland og árið 2002 var hann
kjörinn besti leikmaður Celtic fyrr
og síðar af stuðningsmönnum. Jock
Stein, sem stýrði Celtic þegar það
vann Evrópubikarinn, lýsti því eitt
sinn yfir að Johnstone væri í hópi
allra bestu
leikmanna
sögunnar
og hann
hefði t.a.m.
verið mun
hæfileika-
ríkari en
Stanley Matthews.
Johnstone greindist með tauga-
sjúkdóminn árið 2001. Frá þeim
tíma hafði hann verið ötull stuðn-
ingsrnaður stofnfrumurannsókna
og varið miklum fjármunum til
rannsókna þeim tengdum.
LENGJAN
LEIKIR DACSINS
Spilaðu á næsta sölustað eða á lengjan.is
Espoo Blues - TPS Ábo 1,80 3,90 2,30
Tappara - HIFK 1,70 4,10 2,40
Greuther Fúrth - Aachen 2,10 2,65 2,55
Brynás - V.Frölunda 2,95 3,10 1,70
Mora - HV 71 2,95 3,10 1,70
Gratkorn - Karnten 1,90 2,75 2,80
LASK - Schwanenstadt 1,35 3,35 4,75
Leoben - Kapfenberg 1,70 2,85 3,25
Scunthorpe - Hartlepool 1,80 2,80 3,00
Brechin - St. Mirren 5,15 3,50 1,30
Forfar - Raith 2,15 2,60 2,50
Preston - Ipswich 1,65 2,90 3,35
Colchester - Swansea 1,90 2,75 2,80
Manchester City - Aston Villa 1,80 2,80 3,00
Rotherham - Oldham 2,50 2,60 2,15
Macclesfield - Wrexham 2,00 2,70 2,65
Rochdale - Grimsby 2,50 2,60 2,15
Exeter - Stevenage 1,90 2,75 2,80
Southport - Hereford 3,50 2,95 1,60
Inter - Ajax 1,25 3,65 5,70
Drogheda Utd. - Portadown 1,80 2,80 3,00
Minnesota - Edmonton 1,95 3,35 2,30
Nashville - Vancouver 1,80 3,50 2,45
Toronto - Boston 1,85 3,45 2,40
/ BALUCK í
Reuters
Þýski landsliðsfyrirliðinn Michael Ballack snýr baki við Miinchen og horfir til Lundúna.
Mourinho dreymir
um Ballack
Segir að með Ballack og Lampard innan-
borðsfái ekkert stöðvað Chelsea
Jose Mourinho, stjóri Chelsea, hefur
játað að draumur hans sé að fá Mi-
chael Ballack til liðsins og mynda
þar með draumapar á miðjunni, sem
samanstæði af þýska snillingnum
og Frank Lampard. Samningur Ball-
acks við Bayern Munchen rennur út
í maí og er næsta víst að hann muni
reyna fyrir sér á annarri grundu á
næsta tímabili.
„Þetta er einfalt, ég vil fá hann til
mín. Hann hefur sagst þurfa tíma
til að hugsa málið og ég virði það að
sjálfsögðu. En boltinn er hjá honum,“
sagði Mourinho og bætti við að
hann teldi Ballack einn fremsta
knattspyrnumann heims. „Hann
er fluggáfaður, teknískur með af-
brigðum og skorar í tugavís. Að
mínu mati er Frank Lampard eini
leikmaðurinn sem stendur Ballack
jafnfætis að getu.“
Manchester United, Inter Milan
og Real Madrid hafa einnig verið
orðuð sterklega við kappann en lang-
líklegast þykir að Ballack fái laun
sín greidd í Rússagulli frá og með
sumri.
Skeytín inn
Sol Campbell og Robin van
Persie, leikmenn Arsenal,
eru óðum að jafna sig af
meiðslum
sem hafa
hrjáð þá og
munu þeir
að öllum lík-
indum spila
æfingaleik í
dag. Camp-
bell hefur
verið meiddur á ökkla en van
Persie þjáist af þrálátum tá-
meiðslum. Tvíeykið hefur misst
af síðustu átta leikjum liðsins
eða allt frá því Arsenal tapaði
fyrir West Ham þann 1. febrúar
síðastliðinn.
Arsenal tekur á móti Juventus
í fjórðungsúrslitum Meistara-
deildarinnarþann 28. mars næst-
komandi og þá á liðið einnig í
harðri baráttu við erkifjendurna
í Tottenham um fjórða sætið í
deildinni.
Jose Reina, markvörður Li-
verpool, segir liðið þurfa
á sóknarmanni áþekkum
Thierry Henry að halda. Franski
landsliðsmaðurinn var arkitekt-
inn að 2-1 sigri Arsenal á Rauða
hernum á High-
bury á laugar-
dag og skoraði
bæði mörk
liðsins.
„Henryvarallt
í öllu í leiknum
og er algjör lyk-
ilmaður Arsenal. Með svona
mann innanborðs er lið til alls
líklegt,“ sagði Reina, en marka-
þurrð Liverpool hefur verið með
eindæmum í vetur. Hefur stjór-
inn Rafa Benitez enda krafist
þess að fá fúlgur fjár til að fjár-
festa í skæðum sóknarmanni.
Snörtur frá Kópaskeri
hefur hætt við þátttöku í 3.
deild karla í knattspyrnu.
Snörtur hefur sent lið til keppni
undanfarin þrjú ár en sökum
manneklu sáu Snartarmenn
hag sínum best borgið með fyrr-
greindum hætti. Liðið leikur þó
eftir sem áður í deildarbikar KSl
og í bikarkeppninni.
1 stað Snartar var lið Snæfells
samþykkt til keppni og munu
þeir að óbreyttu leika í C riðli. Á
fundi KSl var einnig ákveðið að
áður útgefin riðlaskipting yrði
endurskoðuð, að ósk félaga frá
Austurlandi.
Fernando Alonso segist
telja að Formúlan í ár
verði afar jöfn og spenn-
andi og að fjö ’ " " ’
um titilinn.
Það væru
Renault, Ferr-
ari, McLaren
og þá gæti
Honda einnig
blandað sér í
baráttuna.
ÞeirAlonso,
Michael Schumacher og Kimi
Ráikkonen voru allir jákvæðir
þegar þær ræddu við blaðamenn
eftir kappaksturinn í Barein og
sögðust horfa björtum augum
á tímabilið. Schumacher sagð-
ist sérlega ánægður með annað
sætið og að allt annað væri að
keyra Ferrari-bílinn nú en í
fyrra.
Renault hefur staðfest þær
fregnir að forseti liðsins,
Patrick Faure, muni láta
af störfum undir lok þessa mán-
aðar. Faure hefur gegnt forsæti
liðsins undanfarna tvo áratugi
en arftaki hans verður Alain
Dassas.