blaðið - 14.03.2006, Page 24
24 I MENNING
ÞRIÐJUDAGUR 14. MARS 2006 I blaðiö
Lífið er lotterí -
taktu þátt í því!
Treystu á lukkuna og kauptu
þór miða á næsta sölustað.
Potturinn stefnir í 100 milljónir. Ofurpotturinn stefnir
í 100 milljónir og bónusvinningurinn í 7 milljónir.
Veitu
™eð fyrÍrkTiT~
morgun.
V I K I N G A
LðTTi
AUtaf á miðvikudögum!
lotto.is
Dóttir John Osborne berföður sínum ekki vel söguna
Kaldlyndur og reiður faðir
Frægasta leikrit Osborne Horfðu reiður um öxl er sigilt verk. Meðal þeirra leikara sem
leikið hafa I því eru hjónin fyrrverandi Kenneth Branagh og Emma Thompson.
John Osborne. Leikritaskáldið fræga var
kaldlyndurfaðir.
Fyrir hálfri öld olli John Os-
borne straumhvörfum í bresku
leikhúsi þegar leikrit hans
Horfðu reiður um öxl var frum-
sýnt. Óheflað málfar og ofsafull
framkoma aðalpersónunnar
Jimmy Porter kom mönnum
á óvart og vakti annað hvort
hneykslan eða hrifningu sýn-
ingargesta. Hinni ungi og reiði
maður var kominn í sviðsljósið.
Osborne hélt áfram að skrifa og
ávann sér mikla frægð. Hann
lést árið 1994.
Nú hefur dóttir Osborne, Nolan
Parker, stigið fram í sviðsljósið
og tjáð sig í fyrsta sinn opinber-
lega um samskiptin við föður
sinn. Hún segir hann hafa verið
geðvondan mann sem hafi rekið
hana að heiman þegar hún var ung-
lingur og neitað að tala við hana
eftir það. í bréfum sem hann sendi
henni vandaði hann henni ekki
kveðjurnar og sagði hana vera
ómerkilega og kaldlynda.
Rekin að heiman
Osborne kvæntist fimm sinnum
og fjallað hefur verið ítarlega um
samband hans við eiginkonur
sínar en fram að þessu hefur lítið
sem ekkert verið vitað um sam-
skipti hans við Nolan, sem er eina
barn hans. Nolan, sem er 41 árs,
segist ekki bera kala til föður síns.
„Það er langt um liðið og ég yppti
bara öxlum,“ segir hún. Nolan
er dóttir Osborne og þriðju eigin-
konu hans, Penelope Gilliatt, sem
var kvikmyndagagnrýnandi og
handritahöfundur myndarinnar
Sunday Bloody Sunday þar sem
Glenda Jackson og Peter Finch
fóru með aðalhlutverk. Osborne
yfirgaf Gillatt árið 1968 til að
kvænast leikkonunni Jill Bennett.
Nolan bjó hjá móður sinni í Banda-
ríkjunum en heimsótti föður sinn
öðru hvoru. Osborne sýndi dóttur
sinni hlýju meðan hún var barn en
sambandið versnaði þegar hún tók
að þroskast. Hún bjó um tíma hjá
honum á unglingsárum en loks
henti hann henni út og hún flutti
til vina sinna. Eftir það sendi
faðir hennar henni bréf og póst-
kort með svívirðingum. 1 síðasta
bréfinu sem hann skrifaði henni
sagðist hann hvorki vilja heyra frá
henni né sjá hana framar. Nolan
hitti föður sinn af tilviljun árið
1987, skömmu áður en hún gekk
í hjónaband. Hún rakst á hann á
götu. Þau horfðu hvort á annað en
hvorugt sagði orð. Þau sáust ekki
aftur. „Ég sé ekki eftir því að hafa
ekki talað við hann,“ segir Nolan.
Bréf rata í ævisögu
Hluti af bréfaskrifum Osborne til
dóttur sinnar munu birtast í ævi-
sögu leikritaskáldsins sem kemur
út í maí næstkomandi. Höfundur
bókarinnar John Heilpern segir að
Osborne hafi ekki kunnað á sam-
skipti við unglingsstúlku og við-
urkennir að hann hafi sýnt dóttur
sinni mikla grimmd.
Nolan hefur séð nokkurra verka
föður síns. „Margir meta hann
mikils sem leikritaskáld. En ég
hugsa ekki um að hann hafi skrifað
leikritin eða um hann sem leikrita-
skáld, ég hugsa eiginlega ekkert
um hann. Ég er hamingjusöm og
held áfram að lifa,“ segir hún.
SU DOKU talnaþrautir
Lausn síðustu gátu
3 4 7 2 6 9 5 8 1
5 6 8 7 3 1 4 9 2
9 1 2 5 4 8 6 3 7
1 2 3 8 5 6 7 4 9
4 5 6 9 7 2 3 1 8
7 8 9 3 1 4 2 5 6
6 7 4 1 9 3 8 2 5
2 9 5 4 8 7 1 6 3
8 3 1 6 2 5 9 7 4
Su Doku þrautin snýst um
aö raöa tölunum frá 1 -9
lárétt og lóðrétt 1 reitina,
þannig aö hver tala komi
ekki nema einu sinni fyrir
i hverri Mnu, hvort sem er
lárétt eða lóðrétt. Sömu tölu
má aukin heldur aðeins
nota einu sinni innan hvers
níu reita fylkis. Unnt er að
leysa þrautina út frá þeim
tölum, sem upp eru gefnar.
Gáta dagsins
1 3 7 5
7 9 8 3 6
6 1 3 8
8 2 5 3
9 4 6 7 2
4 9
6 2
4 9 8
5 3 2
KISSFMB9S^f/
ÓjTV/A R PS.SJiJjA RNlA
☆ ÍSLANDSfti
■ Híldur
verðúrnæsta1
útvarpsstjarna íslands P
Ertu búinn að kjðsa ?
WWW.KISSFM.IS