blaðið - 14.03.2006, Blaðsíða 29
blaðið ÞRIÐJUDAGUR 14. MARS 2006
DAGSKRÁ I 29 *
EITTHVAÐ FYRIR...
Aloe Vera heilsudrykkur
Góður við ristil, maga og húðvandamólum,
styrkir ónæmiskerfio og er bólgueyðandi.
Þú getur hiklaust prófað vörurnar fró okkur,
það er 60 daga skilyrðislaus skilafrestur.
...börnin
Stöð 2, 20.50 Las Vegas 3 (3:22)
Þáttur sem sýnir glæfralífið í borg
syndanna, Las Vegas. Þarna er fal-
lega fólkið í fyrirrúmi. Danny fylgist
með náunga sem er með hárkollu og
svindlar í tuttugu og einum með því
að telja spilin. Maðurinn neitar að
hætta að spila því hann segist verða
að vinna til að geta borgað mann-
ræningjum lausnarfé sem hann seg-
ir hafa rænt dóttur hans.
Stöð 2,
21.35 Pri-
son Break
(7:22) (Bak
við lás og
slá) Frábær-
ir þættir
sem gerast
að mestu
innan veggja fangelsis í Bandaríkj-
unum. í síðasta þætti varð uppþot
sem ógnaði lækninum á staðnum.
Uppþotin í fangelsinu ágerast og
Michael verður að gera upp við sig
hvort hann vilji bjarga lífi Dr. Tan-
credi.
Silverstone
klœðist
bleiku
Alicia Silverstone mun fara með
aðalhlutverkið í nýjum sjónvarps-
þáttum sem ABC sjónvarpsstöðin er
með í vinnslu. Þættirnir verða grín-
þættir og ganga undir nafninu Pink
Collar. Þeir munu kanna spaugilegu
hliðina á samskiptum kvenna á
vinnustöðum.
Þetta er fýrsta stórverkefni Sil-
verstone síðan hún lék í þáttunum
Miss Match árið 2003. Þar lék hún
lögfræðing sem var hjónabandsráð-
gjafi í frístundum sínum.
Nýverið sást hún þó í grínþáttun-
um Beauty Shop auk þess sem hún
lék gegnt David Mamet í Boston
Marriage. Næsta kvikmyndin sem
Alicia Silverstone mun sjást í er
Stormbreaker.
Eins og margir vita reis frægðar-
sól Aliciu Silverstone hátt í kjölfar
velgengni ung-
lingamyndar-
innar Glóru-
laus þar sem
hún lék m.a.
á móti Britt-
any Murphy.
Velgengnin
fleytti henni
þó skammt og
hefur hún ekki
fengið mikið af
bitastæð-
um hlut-
verkum.
r
Stöð2,i6.oo
Barnatími
Stöðvar 2
Töframaður-
inn, He Man,
Shin Chan,
Töfrastíg-
vélin. Hvernig væri að endurvekja
barnið í sjálfum/ sjálfri sér? Að
minnsta kosti fylgjast með því sem
börnin horfa á. He-Man er t.d. ávallt
með mikinn og góðan boðskap í lok
hvers þáttar.
Sjónvarpið, 20.30 Mæðgurnar
(2:22) Bandarísk þáttaröð um ein-
stæða móður sem rekur gistihús í
smábæ í Connecticut-fylki og dóttur
hennar á unglingsaldri, vini þeirra
og kunningja. Þættirnir eru á létt-
um nótum en leiðarstefið í þeim er
vináttan og fjölskylduböndin.
Sjálfstæður dreifingaraðili
á Forever Living Products
Aloe.verslunin.net
sími:8696448
ALOE VEfíA
GEL
* *%
'*S
Þyngdar sinnar virði i þúsund köllum
Útvarpsstöðin X-ið 97.9 er að leita að þyngstu mömmu Islands. Sigurvegarinn fær vegleg
peningaverðlaun, eitt þúsund krónur fyrir hvert kíló af mömmu.
„Þetta er semsagt í tengslum við kvikmyndina Big Momma’s House 2 sem verður
frumsýnd um næstu helgi,“ segir Viðar Ingi Pétursson, dagskrárgerðarmaður á X-
inu. „Leikurinn er þannig að hlustendur geta komið með móður sína uppeftir til
okkar en við erum að leita að þyngstu mömmunni. Síðan er þúsundkall á kílóið
fyrir stærstu og þyngstu mömmuna.“
„Við erum með vog hérna sem við köllum X-vigtina og hingað geta keppendur
mætt til að reyna að ná verðlaununum. Það er eftir miklu að sækjast og gæti
upphæðin hæglega náð sex stafa tölum. Svo er þetta náttúrulega spurning um
það hversu kræfir menn eru að mæta með mæður sínar.“
Keppnin stendur fram á fimmtudag. Hægt er að koma hvenær sem er á
skrifstofutíma í húsnæði 365 miðla að Lynghálsi í Reykjavík og vigta sig.
Framtíðin
„Við erum hér og tíminti er nú. Lengra í
framtíðina nœr viska mannsins ekki.“
H. L. Mencken,
bandarískur ritstjóri (1880 -1956)
Þennan dag...
...árið 2004 varð Chris Benoit heimsmeistari í fjölbragðaglímu á
WrestleMania XX mótinu í New York. Þetta þótti tímamótakeppni þar
sem fjölbragðaglíman kom aftur til borgarinnar þar sem hún hófst.
Benoit er fæddur og uppalinn í Kanada en hann þykir hafa yfir mestri
tækni að ráða í heimi atvinnumanna í fjölbragðaglímu.
Connery
kveður
Skoski stórleikarinn, Sir Sean Conn-
ery, hefur ýjað að því undanfarið
að hann sé hættur öllum leik með
því að segja að einungis stórkostlegt
tilboð fengi hann til að snúa aftur
á svið. Gamli Bond leikarinn er nú
staddur á Bahama-eyjum þar sem
hann jafnar sig eftir skurðaðgerð
í janúar þegar æxli var fjarlægt úr
nýrum hans.
Vinir Connery búast við því að
hann snúi ekki aftur sem leikari,
heldur einbeiti sér frekar að öðru
áhugamáli sínu, stjórnmálum, þeg-
ar hann nær heilsu. Hann hefur m.a.
sagst ætla að tala inn á auglýsingu
fyrir stjórnmálaflokk sinn.
I fyrra hafnaði Connery samn-
ingi upp á rúmlega einn milljarð
króna fyrir að leika bankaræningja
í spennumynd.
FRJÁLST
ÓHÁÐ
blaðiö=
LÉTTKOLSÝRT
...mœðgur
...ferðalanga