blaðið - 14.03.2006, Page 30
• 30IFÓLK
ÞRIÐJUDAGUR 14. MARS 2006 blaöió
SMÁ
borgarinn
SKULDADAGAR
Smáborgarinn man eftir því þegar hann
sló sinn fyrsta víxil. Þetta var fyrir mörg-
um árum þegar enn þótti fínt að vera
í snjóþvegnum gallabuxum og stúlkur
gengu um með vængi i hárinu. Smáborg-
arinn var látinn bíða drykklanga stund
fyrir utan skrifstofu bankastjórans áður
en hann fékk náðarsamlega að ganga á
fund hins háa herra. Þar inni sat hann á
bak við feikilega stórt skrifborð og virt-
ist bera allar áhyggjur þjóðfélagsins á
herðum sér. Smáborgarinn fékk lánið að
lokum en þó ekki fyrr en bankastjórinn
hafði gefið honum nokkur föðurleg ráð
um fjármál. Þetta voru sannarlega öðru-
visi tímar.
Smáborgarinn man ennfremur eftir
því hversu stoltur hann var af þessu láni.
Að taka lán var eins og einhver mann-
dómsvígsla í hans huga. Hann var að
stíga sín fyrstu skref inn f heim hinna full-
orðnu. Að vera skuldugur maður var að
vera sjálfstæður maður. Eða það fannst
allavega Smáborgaranum þá.
Seinna fylgdu að sjálfsögðu öðruvísi
lán þegar Smáborgarinn uppgötvaði
alla þessa endalausu lánamöguleika sem
honum stóðu til boða. Skuldabréfalán,
yfirdráttarlán, krítarkortalán osfrv. osfrv.
Þetta var heill heimur lána.
I dag hefur hinn aldni bankastjóri stig-
ið úr hásæti sínu fyrir sér yngri mönnum
sem eru á aldur við Smáborgarann. Þetta
eru menn sem hlutu sömu manndóms-
vígslu og Smáborgarinn og líta öðrvísi
augum á hið gamla góða debet og kredit.
Þeir hafa endanlega galopnað dyrnar fyr-
ir fslendingum til að taka hvers konar lán.
Það heyrir eiginlega til undantekningar
að hlutur sé keyptur án þess að á bak við
þá sölu standi eitthvað lán. Tölvulán, bíla-
lán, húsnæðislán og alltsem nöfnum tjáir
að nefna. Allt er falt fyrir vaxtalaust lán.
Smáborgarinn er bara álitinn eitthvað
skrítinn ef hann hyggst greiða eitthvað
út í hönd. „Hva! Viltu ekki bara skella
þessu á rað?" Bara eitt símtal og „Bingó!"
yfirdrátturinn er hækkaður eftir þörfum.
Þessi sami andi hefur síðan stýrt útrás
íslenskra fjármálafyrirtækja. Hægri og
vinstri hafa verið slegin lán fyrir upphæð-
ir sem eru ofar mannlegum skilningi. Alla-
vega gerir Smáborgarinn sér enga grein
fyrir þessum fjárhæðum þegar hann rýn-
ir ofan í þessartölur.
Núna eru einhverjir útlendingar að
fetta fingur út í þetta og benda á að
þetta geti nú ekki gengið til lengdar.
„Bara öfund" svara ráðamenn og banka-
stjórar og reyna með því að stappa stál-
inu eða öllu heldur láninu í þjóðina. En að
Smáborgaranum læðist sá ótti að nú sé
loks komið að skuldadögum.
HVAÐ FINNST ÞÉR?
Einar Bárðarson, athafnamaður.
Hvaö finnst þér um skattlagningu á neyðarhjálp?
„Mér finnst siðferðilega rangt að ríkið skuli hafa tekjur af allri þessari
vinnu sem þarna var gefin. Eg hef reynt að beita mér í þessu máli en hef
ekki fengið svör frá ráðuneytinu. Hins vegar skil ég ráðuneytið að því leyti
að það er erfitt að draga mörkin í svona málum. En það hlýtur að vera
hægt að koma hlutunum þannig fyrir, að þegar allir gefa vinnu sína og eng-
inn kostnaður fellur til, þá sé hægt að sleppa skattlagningu.“
Hjálparstofnun kirkjunnar hefur faríð fram á endurgreiðslu þeirra tveggja milljóna sem teknar voru í ríkissjóð af 10 milljóna króna
framlagi til neyðaraðstoðar í Pakistan sem aflað var með sölu á geisladiskinum Hjálpum þeim.
„Ég held aftur af
manninum mínum“
Sarah Jessica Parker sér eftir því að hafa gifst leikaranum Matthew Broderick þar
sem henni finnst hann eiga að vera með einhverri annarri konu.
Leikkonan sem er þekktust fyrir túlkun sína á New York dömunni
Carrie Bradshaw segist fá „samviskuköst“ yfir að hafa stolið eiginmannin-
um frá mögulegum mökum sem myndu henta honum betur en hún sjálf.
„Mér þykir mjög leitt að hann sé ekki á markaðnum. Mér finnst eins og
ég haldi aftur af honum á ákveðinn hátt. Ég elska hann svo mikið,“ segir
Parker. „Hann er að ná besta aldri og ég held aftur af honum. Hann segir mér
samt að hann sé ánægður með það.“
„Af og til sé ég hann með konu sem er gáfuð og falleg og þá hugsa ég með mér,
Guð hvað þau eiga vel saman. Þau væru frábær sem par.“
Quaid segir frá átröskunum
Kvikmyndarefurinn Dennis Quaid hefur haldið miklu leyndarmáli frá aðdáendum sínum.
Meirihluta ío. áratugar síðustu aldar barðist hann við átraskanir.
Leikarinn viðurkenndi nýlega að hafa barist við anorexíu í kjölfar þess að hafa lést um
tæp 20 kíló til að geta farið með hlutverk Doc Holliday í vestra um Wyatt Earp árið 1994.
I viðtali í bandaríska tímaritinu Men’s Health Best Life segir Quaid; „1 mörg ár var ég illa
haldinn þar sem ég hugsaði áráttukennt um það sem ég lét inn fyrir mínar varir, hversu mikil
orka var í því og hversu mikið ég þyrfti að æfa til að brenna því.“
„Á tímabili voru handleggir mínir svo veikburða að ég gat ekki lyft mér hjálparlaust upp
úr sundlaug. Þegar ég leit á spegilmynd mína sá ég samt sem áður 90 kílóa mann þrátt
fyrir að vera í raun tæp 70 kíló.“ „Ég var ekki með búlemíu en ég get vel skilið hvað fólk
gengur í gegnum þegar það hefur hana.“
Jackson dýraníðingur
Dýraverndunarsamtökin róttæku, PETA, hafa beðið poppstjörnuna Michael Jackson um að
vinsamlegast færa framandi dýr sem hann geymir á lóðinni við Hvergiland þar sem nú á að
loka búgarðinum.
I síðustu viku skipuðu yfirvöld að þessi fræga búgarði í Santa Ynez dalnum yrði lokað
vegna vangoldinna launa auk þess sem ekki var búið að greiða launatengd gjöld.
Nú vilja PETA að Jackson taki tillit til dýranna sem mynda Hvergilands dýra-
garðinn. 1 bréfi til Jackson segir; „Við biðjum Hr. Jackson að þiggja boð PETA
um að færa öll dýr á Hvergilandi á betri stað þar sem vel verður hlúð að þeim.
Slíkur staður þarf að uppfylla skilyrði og staðla um þjónustu fyrir dýrin, öryggi
þeirra og almennings. Þar myndu dýrin örugglega lifa við fyrirmyndaraðstæð-
ur. Hr. Jackson er þekktur fyrir að vera mildll dýravinur. Við vonum að hann
taki boðinu í stað þess að selja eða bjóða dýrin upp.“
Viltu losna við
gamla sófann?
Blaðið hjálpar þér fyrir aðeins 795 kr
Smáauglýsingar Blaðsins
S: 5103737 www.bladid.net
eftir Jim Unger
Og þú varst á bjarnarveiðum
þegar byssan stóð á sér?
5-25
O Jlm Unger/dlst by Unlted Medla. 2001
HEYRST HEFUR...
Ekki er hægt
að segja
að til stúdenta-
óeirða hafi
komið í gær
á fyrirlestri
dr. Michaeis
Rubins, sem
haldinn var á vegum Alþjóða-
málastofnunar Háskóla íslands,
þó hópur manna hafi kynnt að
reynt yrði að koma í veg fyrir
fyrirlesturinn með mótmælum
og fyrirlesarinn raunar kærður
til lögreglu fyrir að hafa hvatt
til hernaðar gegn stjórn Sadd-
ams Hussein í Irak. Fundurinn
fór þó friðsamlega fram og var
miklum hluta hans varið í spurn-
ingar og svör. Aldnir friðarhöfð-
ingjar á borð við Elías Davíðs-
son og Hans Kristján Árnason
höfðu sig nokkuð í frammi, en
mesta athygli vöktu þó sjálfsagt
um tíu spurningar Höllu Gunn-
arsdóttur, blaðamanns, þegar
stutt var eftir af fyrirlestrinum,
þar sem hún bað dr. Rubin - i ör-
stuttu máli - að gera grein fyrir
utanrikisstefnu Bandaríkjanna
í Miðausturlöndum, skýra kjarn-
orkustefnu þeirra og rökstyðja
hvers vegna Irönum væri síður
treystandi fyrir kjarnorkuvopn-
um en Bandaríkjamönnum,
hver staða kvenréttindabaráttu
í íran væri og svo framvegis...
Ha 11 d ó r
Ásgríms-
son forsætis-
ráðherra hélt
í gær blaða-
mannafund
í Ráðherra-
bústaðnum,
sæmilega fróðlegan. Meðal þess,
sem þar kom fram var það álit
ráðherrans að þjóðin hefði auðg-
ast á hækkun fasteignaverðs að
undanförnu. En ætli hún græði
mikið á því að hver selji öðrum,
þó krónunum fjölgi sem skipta
höndum? Þá virðist ráðherrann
alveg líta framhjá því að um leið
hefur kostnaður fólks af fast-
eignum aukist. Kannski endur-
skoðandinn ætti að endurskoða
afstöðu sína...
m
Igær fjall-
ar DV um
Þorstein Páls-
son, ritstjóra
Fréttablaðs-
ins, í dálkin-
um Kostir
& gallar. At-
hygli vekur að þeir, sem fengnir
eru til þess að lasta og lofa Þor-
stein, eru Ari Edwald, forstjóri
og æðsti yfirmaður Fréttablaðs-
ins og DV, Ingvi Hrafn Jónsson,
orðhákur á NFS, og Salome Þor-
kelsdóttir, fyrrverandi forseti
Alþingis. Klóra gárungarnir sér
nú í höfðinu og velta fyrir sér
hvaða yfirmannsstöðu hjá Dags-
brún Salome muni hreppa...
Spjallborðið
Málefnin
(www.malefnin.
com) hefur ver-
ið opnað á nýj-
an leik eftir það
fjaðrafok, sem
varð eftir að slóð
að illa fengnum tölvupóstum
var birt þar. í framhaldinu kom
svo í ljós að umsjónarmaðurinn
hafði komið málsaðilum á slóð
þeirra, sem hafa skrifað þar
undir dulnefni. Þessi trúnaðar-
brestur varð til þess að hann
dró sig í hlé, en nýr umsjónar-
og ábyrgðarmaður tók við, en
það er Áshildur Cesil Þórðar-
dóttir, garðyrkjustjóri á ísafirði,
en hún er jafnframt varamaður
í bæjarstjórn fyrir Frjálslynda
flokkinn...