blaðið - 25.03.2006, Blaðsíða 6
6 I INNLENDAR FRÉTTIR
LAUGARDAGUR 25. MARS 2006 blaðiö
r
\ 0?m>
' yf "
Gulhffliðia Uia I SMARALIND
Krefst tuga
milljóna
Lögfræðingur Inga Sigurðssonar,
fyrrverandi bæjarstjóra í Vest-
mannaeyjum, hefur sent bæjar-
yfirvöldum kröfu upp á rúmar
26 milljónir króna. Krafan er
vegna biðlauna, en Inga var sagt
upp störfum þegar upp úr meiri-
hlutasamstarfi Sjálfstæðisflokks
og Framsóknarflokks slitnaði
fyrr á kjörtímabilinu. I kjöfarið
var Bergur Elías Ágústsson ráð-
inn bæjarstjóri. Frá þessu er sagt
á siðunni www.sudurland.is
Dagsbrún kaupir
breskt prentfyrirtæki
Tilboð í prentfyrirtœkið Wyndeham Press
Group hljóðar upp á rúma 10 milljarða.
Dagsbrún, móðurfélag 365 fjölmiðla
og OgVodafone tilkynnti í gær áætl-
anir sínar um kaup á breska prent- og
samskiptafyrirtækinu Wyndeham
Press Group. í tilkynningu frá félag-
inu í gær kemur fram að dótturfélag
Dagsbrúnar, Daybreak, hefur gert
hluthöfum í hinu breska fyrirtæki
yfirtökutilboð. Nemur tilboðsfjár-
hæðin um 80,6 milljónum punda,
sem samsvarar rúmum 10 millj-
örðum íslenskra króna.
Skapar sterka fótfestu í Bretlandi
„Tilboðið í Wyndeham er jákvætt
skref fyrir Dagsbrún af þremur
ástæðum. í fyrsta lagi er Wyndeham
góð fjárfesting í ljósi langrar sögu af
arðsemi og vexti. Fyrirtækið hefur
leiðandi stöðu á markaði meðal ann-
HHS á Bifröst
„Þegar ég frétti af nýju HHS deildinni á Bifröst
vissi ég að þar væri komið námið sem ég hef
alltaf beðið eftir. Þetta nám er nýtt hér
á landi og er óvenjulegt og fjölbreytt. Nú hef ég
stundað nám við deildina í eitt ár og get með
sanni sagt að það hefur staðið fyllilega undir
væntingum. Þessi blanda af hagfræði, heimspeki
og stjórnmálafræði kemur verulega vel út og
skilar sér (nýrri og dýpri sýn á fréttir og umræðu
í þjóðfélaginu. Auk þess koma þessi fög að
flestu því sem mér finnst skipta máli varðandi
heimsmálin (dag, hvernig núverandi staða er
tilkomin, hvaðan við erum að koma og hvert við
erum að fara. Ég er sannfærð um að þetta nám
eigi ekki aðeins eftir að víkka sjóndeildarhring
minn og auka skilning minn á stöðu mála, heldur
eigi námið einnig eftir að skila sér í fjölbreyttu
og líflegu starfi, gjarnan við alþjóðastörf þar sem
áhugasvið mitt liggur."
Frekari upplýsingar:
www.hhs.is
Ingveldur Björg Jónsdóttir,
nemi i HHS við félagsvisinda-
og hagfræðideild
'IÐSKIPTAHÁSKÓLINN
BIFRÖST
Wyndeham er meðal annars með stóran
prentsamning við fyrirtækið New IPC
Weekly, sem gefur út fjölda þekktra
vikurita.
ars vegna góðra viðskiptatengsla við
meirihluta tímaritaútgefanda í Bret-
landi. 1 öðru lagi fellur Wyndeham
mjög vel að starfsemi Dagsbrúnar og
munu kaupin færa Dagsbrún ýmsan
ávinning, meðal annars áhættudreif-
ingu sem felur í sér að hluti af tekjum
Dagsbrúnar mun nú koma erlendis
frá. 1 þriðja lagi, munu kaupin veita
okkur sterka fótfestu í Bretlandi,
þar sem við munum geta þróað enn
frekar starfsemi félagsins,“ sagði Þór-
dís Sigurðardóttir, stjórnarformaður
Dagsbrúnar.
Stofnaðárið 1991
í tilkynningu frá Dagsbrún i gær
kemur fram að Wyndeham sé eitt af
stærstu prentfyrirtækjum í Bretlandi.
Fyrirtækið var stofnað árið 1991 og
varð, í kjölfar fjölmargra sameininga
og fjárfestinga, að einu framsækn-
asta fyrirtæki á þessu sviði í Bret-
landi. I prentsmiðjum fyrirtækisins
eru prentuð yfir 600 titlar tímarita í
Bretlandi.
- Jr:*m -
v ■. - ■ -■ : - . ■
Til greina kemur að leigja þyrlu eða þyrlur til að leysa þann vanda sem koma mun upp
þegar þyrlur varnarliðsins fara af landi brott.
Björgunarþyrlur
hugsanlega leigóar
f ljósi þeirra tíðinda að bandaríski
herinn er á leið af landi brott, og
með honum björgunarþyrlur þær
sem verið hafa á fslandi árum
saman, hefur dómsmálaráðuneytið
hafið vinnu við að skoða hvernig
koma má til móts við þessa þróun.
Ljóst þykir að efla þarf þyrlusveit
Landhelgisgæslu íslands talsvert á
stuttum tíma. í gær kynnti Björn
Bjarnason, dómsmálaráðherra,
hvernig staðið yrði að undirbúningi
þessa.
Samstarf við nágrannaþjóðir
f tilkynningu frá dómsmálaráðu-
neytinu í gær segir að þar sem við
blasi að þyrlusveit Bandaríkjahers
verði kölluð frá landinu eigi síðar
en í september telji ráðuneytið óhjá-
kvæmilegt að efla þyrlusveitina í
tveimur áföngum. Til bráðabirgða
með leigu á þyrlum og með nánu
samstarfi við nágrannaþjóðir og
síðan til langframa með kaupum
eða leigu á nýjum þyrlum. f tilkynn-
ingunni segir svo:
„Ráðherra hefur falið Stefáni Ei-
ríkssyni, skrifstofustjóra í dóms- og
kirkjumálaráðuneytinu, að leiða
þetta starf á vegum ráðuneytisins
í samráði við Georg Lárusson, for-
stjóra Landhelgisgæslu íslands, og
samstarfsmenn hans. Þá hefur
Leifur Magnússon, verkfræðingur,
tekið að sér að verða ráðgjafi dóms-
og kirkjumálaráðherra um þá þætti
málsins, sem lúta að vali á þyrlum,
og í viðræðum við aðila, innlenda
og erlenda.
Stefnt er að því að tillögur um
bráðabirgðalausn liggi fyrir innan
þriggja vikna og tillögur um fram-
tíðarskipulag innan tveggja mánaða.
Að fengnum þeim tillögum mun
dóms- og kirkjumálaráðherra leggja
málið að nýju fyrir ríkisstjórn".
Við eigum afmæli!
3l1Borgarnes I Sími 433 3000
Stjórnenda- og leiðtogaskóli í 88 ár
Útsölustaðir:
Leonard Kringlunni ■ Leonard Keflavíkurflugvelli • Jens Kringlunni
Gilbert úrsmíður Laugavegi 62 ■ Helgi Sigurðsson úrsmiður Skólavörðustíg 3
Georg Hannah úrsmiður Keflavík ■ Guömundur B. Hannah úrsmiður Akranesi
Úra- og skartgripaverslun Karls R. Guðmundssonar Selfossi
SEKSY armbandsúr frá SEK0NDA
iV
*
*atr'
m
wrist wear
by SEKONDA
Við blásum á kerti fyrir hvert ár sem við höfum verið hér í Kópa-
vogi. Þessi tími hefur einkennst af Ijúfri sambúð og ánægju-
legum samskiptum við viðskiptavini okkar og Kópavogsbúa
alla. Við hlökkum til næstu 50 ára! Starfsfólk SPK
#spk
X 50 ár í Kópavogl
Blaðið/lngó