blaðið - 25.03.2006, Blaðsíða 32

blaðið - 25.03.2006, Blaðsíða 32
321 VIÐTAL LAUGARDAGUR 25. MARS 2006 blaöiö Trúin gegnir stœrra hlutverki i stjórnmálum Mið-Austurlanda Nemendum í meistaranámi í alþjóða- samskiptum við Háskóla Islands gefst næsta vetur kostur á að sækja námskeið hjá Magnúsi Þorkatli Bernharðssyni lektor í nútímasögu Mið-Austurlanda við Williams há- skóla í Bandaríkjunum. Það er óneitanlega mikill fengur fyrir háskólann að fá Magnús Þorkel til að vera með námskeið en hann er helsti sérfræðingur lands- ins um málefni þessa heimshluta. Áður hefur hann kennt einstaka námskeið við Guðfræðideild skól- ans og Endurmenntunarstofnun en að þessu sinni hyggst hann halda tvö stutt námskeið. Á fyrra nám- skeiðinu mun hann fjalla um sam- þættingu trúmála og stjórnmála með sérstakri hliðsjón af íslam í Mið-Austurlöndum. Á því seinna fjallar hann um mismunandi menn- ingarheima og hvaða þátt menn- ingin, ekki síst trúarbrögðin, leika í mismunandi heimshlutum. Magnús segir að trúin gegni stærra hlutverki í Miðausturlöndum nú á dögum en fyrir nokkrum áratugum. „Framan af tuttugustu öldinni voru stærstu og veigamestu ákvarð- anirnar í flestum ríkjum í Mið-Aust- urlöndum ekki endilega teknar á trúarlegum forsendum. Þvert á móti voru þau að nútímavæðast, að iðnvæða efnahagskerfið og þar skipti trúin ekki neinu máli,“ segir Magnús og bætir við að núna hafi komið fram mikil gagnrýni á þessa samfélagsþróun í þessum löndum. Islamistar draga í efa þá leið sem farin hefur verið og vilja að þáttur trúarinnar og ritningarinnar skipti meiri máli þegar teknar eru stórar ákvarðanir. fslamsvæðing íMið-Austurlöndum ,Það hefur að mínu mati orðið mjög áþreifanleg íslamvæðing í Mið-Aust- urlöndum og það er ekki ljóst enn þá hvar hún endar. Ég held að það sé eðli þessarar væðingar að hún ein- BlcliS/Frikki skorðast ekki við Mið-Austurlönd heldur gæti þetta haft veruleg áhrif á önnur ríki og önnur svæði bæði vegna þess að þetta skapar ákveðna spennu og gæti líka leitt til þess að fólk á öðrum stöðum sem er ekki endilega trúað sjálft eða lítur á sig sem trúað fer að huga meira að sinni stöðu,“ segir Magnús og bendir á að hliðstæða þróun megi sjá víðar. „í Bandaríkjunum hef ég tekið eftir því að í kjölfar hryðjuverkaárás- anna n. september 2001 og innrásar- innar í Irak hefur kristnidómurinn og umræða um stöðu trúarinnar blandast í auknum mæli í umræðu um umdeild þjóðfélagsmál eins og fóstureyðingar og samkynhneigð," segir hann. Engar einhlítar skýringar Margar ólíkar ástæður liggja að baki þeirri íslamsvæðingu sem Magnús segir að hafi átt sér stað á undan- förnum árum og ekki sé hægt að útskýra hana á einfaldan hátt. Hluti skýringarinnar kann þó að vera að sú samfélagsþróun sem reynt hafi verið að koma af stað í þessum löndum hafi ekki gengið upp. Menn hafi haft háleitar hugmyndir um að nútímavæða þau og byggja upp en reyndin hafi verið önnur og nú séu mörg þessara samfélaga nánast að hruni komin stofnanalega og efnahagslega. „Þar er mikið atvinnuleysi, engin bjartsýni eða hugur í fólki. Menn höfðu mjög háleitar hugmyndir og markmið en hafa ekki náð því sem þau ætluðu sér. Þetta voru þriðja heims ríki sem ætluðu á innan við 20 árum að verða fyrsta heims ríki. Þau bjuggu yfir olíuiðnaði og það var margt sem benti til að þau gætu náð því marki sem þau hafa ekki gert,“ segir Magnús og bendir á að margir sjái sökudólginn í Vestur- löndum. „Margir í þessum ríkjum skella náttúrlega skuldinni á vestur- landabúa, vestrænar stofnanir og heimsvaldastefnuna. Þeir telja að Or. Magnús Þorkeil Bernharðsson sérfræðingur í nútímasögu Mið-Austurlanda segir að íslamsvæðing hafi átt sér stað i þessum heims- hluta á síðustu árum sem ekki sjái fyrir endann á. Alþjóðasamskipti i víðu samhengi Meistaranámi í alþjóðasamskiptum við stjórnmálafræðiskor Háskóla Islands var hleypt af stokkunum í fyrrahaust en einnig er í boði dip- lómanám í þessum fræðum. Um er að ræða hagnýtt og fræðilegt nám sem býr fólk undir margvísleg störf hjá alþjóðastofnunum og -sam- tökum, fyrirtækjum í útrás og opin- berum stofnunum. Námið er ætlað þeim sem lokið hafa BA eða BSc- gráðu í einhverri grein. Meðal ann- ars er lögð áhersla á fag- og fræða- svið sem varða ísland miklu svo sem Evrópufræði, varnar- og öryggismál, fjölmenningu og alþjóðavæðingu, smáríkjafræði og alþjóðaviðskipti. Þverfaglegar áherslur Baldur Þórhallsson lektor er aðalum- sjónarmaður námsins og segir hann að verið sé að auka fjölbreytni náms- ins enn frekar. „Það sem við höfum lagt áherslu á í náminu er þessi fjöl- menning, Evrópufræðin, smáríkja- fræðin, opinber stjórnsýsla og al- þjóðaviðskipti. Það sem bætist núna nýtt við og verður í fyrsta skipti kennt á næsta ári er að stúdentar geta sérhæft sig í alþjóðalögum og mannréttindum, alþjóðalögum og vopnuðum átökum, samtímasögu ogþróunarfræði,“ segir Baldur. Námið byggist að miklu leyti á samvinnu ólíkra skora, deilda og rannsóknarstofnanna Háskólans og geta því nemendur sótt nám- skeið sem kennd eru við lagadeild, viðskipta- og hagfræðideild, mann- fræðiskor og sagnfræðiskor svo nokkuð sé nefnt. Baldur telur mjög mikilvægt að nýta þá fagþekkingu sem til sé á ýmsum fræðasviðum innan háskólans. „Við höfum dá- lítið verið að vinna hvert í sínu horn- inu en hér erum við að gera tilraun sem ég held að muni takast, að safna saman kennurum úr mismunandi deildum og bjóða nemendum upp á heildstæðan pakka. Þeir geta því bæði tekið námskeið almenns eðlis en um leið gefst þeim kostur á að sér- hæfa sig,“ segir hann. Baldur leggur sérstaka áherslu á þá sérhæfingu sem námið bjóði upp á fyrir hvern og einn enda hafi verið lagt upp með það að bjóða upp á fjöl- breytt og þverfaglegt nám. Námskeið virtra er- lendra fræðimanna Aukþess sem margir afhelstu fræði- mönnum Háskóla íslands kenna námskeið munu nokkrir virtir fræðimenn við erlenda háskóla vera með stutt námskeið. Má þar nefna dr. Christopher Coker prófessor ví alþjóðasamskiptum við London Scbool of Economic og dr. Michael Corgan prófessor við Boston háskóla. Baldur Þórhallsson segir það hafa verið mjög auðvelt að fá þá til að taka þátt í þessu. „Það tók kannski tíma og þeir koma ekki strax. Það getur tekið eitt til tvö ár að fá þá hingað enda eru þessir menn þekktir og virtir og því eftirsóttir en það vilja flestallir koma,“ segir hann. Félagsvísindadeild Háskóla í slands veitir frekari upplýsingar um meistaranám í alþjóðasamskiptum. BioSiB/Frikki Baldur Þórhallson lektor í stjórnmálafræöi og aðalumsjónarmaður meistaranáms í alþjóðasamskiptum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.