blaðið - 25.03.2006, Blaðsíða 40
40 I MEWNING
LAUGARDAGUR 25. MARS 2006 blaðið
Söngvari Buena Vista
Social Club fallinn frá
Kúbanski söngvarinn Pio Leyva
sem hlaut heimsfrægð með
hljómsveit sinni Buena Vista
Social Club er látinn 88 ára að
aldri. Levya lést úr hjartaslagi á
miðvikudag en hann hafði átt við
heilsubrest að stríða.
Samstarf hans við gítarleikarann
Compay Segundo náði aftur til sjötta
áratugarins en Segundo sem einnig
er fallinn frá var sennilega þekktasti
meðlimur hljómsveitarinnar.
Þeir endurnýjuðu samstarf sitt
seint á tíunda áratugnum og stofn-
uðu Buena Vista Social Club.
Leyva sýndi snemma hæfileika á
tónlistarsviðinu og þegar hann var
aðeins sex ára að aldri vann hann
sigur í samkeppni bongótrommu-
leikara. Síðar á ævinni söng hann
meðýmsum goðsagnakenndum kúb-
verskum tónlistarmönnum á borð
við Beny More og Bebo Valdes og tók
þátt í gerð meira en 25 hljómplatna.
Frægð og frami á gamals aldri
Hljómsveitin Buena Vista Social
Club öðlaðist frægð og frama um
heim allan eftir samstarf hennar við
bandaríska gítarleikarann Ry Coo-
der. Plata hennar seldist sem heitar
lummur víða um veröld og átti sinn
þátt í að endurvekja áhuga fólks á
hefðbundinni kúbverskri tónlist.
Árið 1999 var frumsýnd kvikmynd
þýska kvikmyndagerðarmannsins
Wim Wenders um hljómsveitina.
Kvikmyndin var tilnefnd var til
Óskarsverðlauna og jók enn frekar
Pio Leyva söngvari hinnar goðsagnakenndu hljómsveitar Buena Vista Social Club púar vindil á blaðamannfundi fyrir nokkrum árum.
Leyva féll frá f vikunni, 88 ára að aldri.
hróður Buena Vista Social Club. píanóleikari létust árið 2003 en
Fjórir félagar sveitarinnar hafa söngvarinn Ibrahim Ferrer lést á
fallið í valinn á síðustu þremur sjúkrahúsi í Havana í ágústmánuði
árum. Segundo og Ruben Gonzalez 2005.
Buena Vista Social Club kom til
íslands árið 2001 og hélt tónleika í
Laugardalshöll.
Reykjavíkurborg
- Einn vinnustaður
Velferðarsvið
wmm
■ ■
C°py/paste í
Gallerí Fold
Lilja Kristjánsdóttir opnar málverka-
sýningu í Baksalnum í Galleríi Fold
við Rauðarárstíg í dag kl. 15. Sýning-
una nefnir hstamaðurinn Copy/Paste.
Sýningin er hluti af sýningaröð
ungra myndlistarmanna í Gall-
eríi Fold og stendur til 9. apríl.
Lilja Kristjánsdóttir er fædd 1971 og
stundaði nám á listabraut Fjölbrauta-
skólans í Breiðholti 1988-92, Mynd-
hsta- og handíðaskóla íslands 1993-96
og sem Nordplusnemi við Konung-
lega Listaháskólann í Stokkhólmi 1996.
Eftir að Lilja útskrifaðist frá
Myndhsta- og handíðaskóla ís-
lands 1996 hélt hún áffam að mála
drungalegar myndir af fólki. Helstu
áhrifavaldar hennar voru forfeður
hennar, ættmenni og ljósmyndir
Þorsteins Símonarsonar. 1 dag eru
forfeðraminnin að mestu horfin en
drungalegar persónur og munstur
gamalla muna komin í stað þeirra.
Þetta er fjórða einkasýning Lilju.
Listamanna-
spjall Olgu
Bergmann
Á morgun kl. 15 ræðir Olga Bergmann
um sýningu sína Innan garðs og
utan í Listasafni ASÍ við Freyjugötu.
Olga hefiir í samvinnu við hliðarsjálf
hennar doktor B. um nokkurt skeið
krukkað í möguleika erfðavísindanna
og hugsanleg áhrif þeirra á þróun-
arsöguna er til langs tíma er litið.
Á sýningunni eru m.a. vett-
vangsathuganir Olgu á atferh dýra,
postulínsstyttur og leynisafn.
Verkin á sýningunni fjalla um
villta náttúru og tamda, dýrahf
og hugmyndir um fr amtíðina
sem meðal annars tengjast ævin-
týrum og óljósum minningum.
Aðgangur er ókeypis.
Frumsamin messa
Gunnars Þórðarsonar
Búsetuþjónusta fyrir geðfatlaða
Laust er til umsóknar starf hjá
Búsetuþjónustu geðfatlaðra. Um er að
ræða fullt starf og þarf viðkomandi að
geta unnið vaktavinnu; morgunvaktir,
kvöldvaktir og vaktir aðra hverja helgi.
Starfið felur að mestu leiti í sér að styðja
íbúa til sjálfshjálpar m.a. með því að
styrkja þá til félagslegrar þátttöku þannig
að þeir geti tekið sem mestan þátt í
samfélaginu á sínum forsendum og þurfi
sem minnst á stofnanadvöl að halda.
Menntun og hæfni: Æskilegt er að
umsækjandi hafi lokið félagsliðanámi eða
hafi nám sem nýtist ístarfi. Ennfremur er
æskilegt að umsækjandi hafi reynslu af því
að vinna með fötluðum.
Launakjör eru skv. kjarasamningum
Reykjavíkurborgar og viðkomandi
stéttarfélags.
Skriflegar umsóknir berist Velferðarsviði
Reykjavíkurborgar,Tryggvagötu 17,
merktar"Búsetuþjónusta fyrir
geðfatlaða"fyrir 15. apríl nk..
Nánari upplýsingar veitir Jóna Rut
Guðmundsdóttir,forstöðumaður í síma
822-3078 eða á netfangið
jona.rut.gudmundsdottir@reykjavik.is
Velferðarsvið fer með ábyrgð á
velferðarþjónustu Reykjavíkurborgar
þ.m.t. barnavernd og félagsþjónustu.
Það ber ábyrgð á að framfylgt sé
stefnumótun og áætlanagerð í
velferðarmálum,eftirliti og mati á
árangri,samhæfingu og samþættingu
í málaflokknun. Þróun á mati á gæðum
velferðarþjónustu, tengslum rannsókna
og þjónustu, nýsköpun og þróun nýrra
úrræða í velferðarþjónustu. Að auki
annast Velferðarsvið rekstur ýmissa
úrræða.
Vakin er athygli á stefnu Reykjavikurborgar um jafnan hlut kynja ístörfum hjá borginni.Atvinnu-
auglýsingarmá einnig skoða á heimasiðu Reykjavikurborgar: www.reykjavik.is/storf.
Hjá simaveri Reykjavíkurborgar,4 II 11 11, færð þú allar upplýsingar um þjónustu og starfsemi
borgarinnar og samband við þá starfsmenn sem þú þarft að ná í.
Á morgun kl. 20 verður flutt frum-
samin messa, Brynjólfsmessa, eftir
Gunnar Þórðarson í Skálholtskirkju.
Gunnar fékk meðal annars styrk
úr Kristnihátíðarsjóði til að semja
messuna og tileinkar hana 400 ára
minningu Brynjólfs biskups. Fyrr
um daginn eða kl. 16 verða flutt þrjú
erindi um kveðskap Brynjólfs og
tengsl hans við Maríu guðsmóður.
Fyrirlesarar verða Sigurður Péturs-
son, lektor í klassískum málum
við H.Í., Einar Sigurbjörnsson, pró-
fessor í guðfræði við sama skóla og
Kári Bjarnason, handritafræðingur.
Gunnar Þórðarson mun jafnframt
segja frá tilurð messunnar sem flutt
verður um kvöldið. Aðgangur er
ókeypis á alla dagskrána.
Viðburðirnir eru liðir í sérstakri
dagskrá sem Hugvísindastofnun,
Biblíufélgið og fleiri standa að í til-
efni 400 ára fæðingarafmælis Brynj-
ólfs Sveinssonar biskups. Dagskráin
hófst í september síðastliðnum og
lýkur í september á þessu ári.
Leikritið„Emma og Ófeigur" sem Stoppleikhópurinn frumsýnir í dag er byggt á leikrit-
inu Hamlet eftir William Shakespeare.
Nýtt leikrit á gömlum grunni
Stoppleikhópurinn frumsýnir
í dag kl. 15 leikritið „Emma og
Ófeigur" í Iðnó. Höfundur verks-
ins er Árni Ibsen og vann hann
það í samstarfi við leikhópinn
og Völu Þórsdóttur. Leikstjóri
er Ágústa Skúladóttir en leik-
arar eru Eggert Kaaber, Katrín
Þorkelsdóttir og Sigurþór Albert
Heimisson.
Stoppleikhópurinn fagnar tíu
ára leikafmæli sínu um þessar
mundir en hann hefur sérhæft sig
í sýningum fyrir börn og unglinga.
Líkt og fyrri verk Stoppleikhópsins
er „Emma og Ófeigur" ætlað yngsta
aldurshópnum og fjallar um tvö ung-
menni og raunir þeirra
Leikritið er byggt á einu frægasta
verki leikbókmenntanna „Hamlet"
eftir William Shakespeare og í sýn-
ingunni er blandað saman tónlist,
leik, dans og trúðstækni.