blaðið - 25.03.2006, Blaðsíða 54

blaðið - 25.03.2006, Blaðsíða 54
541 FÓLK FÖSTUDAGUR 25. MARS 2006 blaðið borgarinn ZOLA-VÆÐING ÍSLENSKRA RITHÖFUNDA Smáborgarinn þjáist af skorti á and legri leið- sðgn. Gegnum tíðina hefur honum verið tamt að líta til helstu frelsisblysa íslenskra hugsunar: rithöfundanna, sem nánastallir eru á heimsmáelikvarða. Undanfarin ár hafa þeir lítið skipt sér af hinni svokölluðu „umræðu" og þar af leiðandi viðhaldið fá- tækt andans í Smáborgaranum. Það er að breytast. Þrír rithöfundar hafa látið heyra í sér i vikunni og fyllt anda Smáborgarans af slíkri dýpt að hann er nánast af kafna. I byrjun vikunar afhjúpaði einn fremsti hugsuður landsins að umfangsmikil hergagnaframleiðsla eigi sér stað á Reyð- arfirði. Það em vissulega sorgleg tíðindi að fyrir austuan verki menn ákaflega braðgóðan harðfisk og framleiði jöfnun höndum skriðdreka og stýriflaugar fyrir Bandaríkjaher. Eins og hendi væri veifað eru austfirskir sjómenn og bændur orðnir andlega skyldir ráðamönnum í Pentagon: heimsskautahaukar. Annar rithöfundur kvað sér hljóðs í vikunni. Þessi rithöfundur er ekki síður mikilvægur, enda hefur hann fært óyggj- andi sannanir fyrir því að hér á íslandi riki einræði og skoðanakúgun af verstu sort. Hann hefur miklar áhyggjur af því að fólk lesi blað sem hann augljóslega er ekki hrifinn af. Þess vegna skrifar hann einmitt i þetta blað og furðar sig á því að fólk lesi blaðið. Einnig furðar hann sig á þvi að fólk láti þetta blað raska ró sinni. Þessi rithöf- undur hefur einmitt sýnt íslensku þjóðinni ákaflega gott fordæmi síðustu árin með því að láta þetta blað alls ekki raska rósinni. Það er fólki eins og Smáborgaranum hollt að geta tekið slíka menn til fyrirmyndar. Þriðji rithöfundurinn sem tendraði hug Smáborgarans reit stórkostlega grein í Morgunblaðið i gær. I þeirri grein bendir hann á þá augljósu staðreynd að íslenskir borgarar beri ábyrgð á morði á palestínskri stúlku vegna þess að íslenskir ráðamenn hafa hvorki lesið Njálu né aðrar (slendinga- sögur nægilega vel. Auk þess ítrekar hann að alþjóðasamfélaginu verði vart bjargað nema Islendingar hysji upp um sig brækum- ar og deili hinum einstaka friðarboðskap ís- lenskrar menningar með umheiminum. Það er ákaflega gott þegar íslenskir rit- höfundar koma ofan úr fjöllum, rétt eins og Zaraþústra forðum eða eins og Giljagaur og bræður hans gera árlega, og deila visku sinni með okkur smáborgurunum. Þetta setur islenska menningu líka í stærra sam- hengi: Frakkar eru fátæk þjóð, þeir áttu bara einn Zola, við Fslendingar eigum slíka menníþúsundatali. HVAÐ FINNST ÞÉR? Óskar Bergsson, frambjóðandi Framsóknarflokks Er einföld Sundabraut ekki inni í myndinni? „Þetta kemur okkur alveg í opna skjöldu. Þetta hefur aldrei verið í umræðunni og kemur eins og þruma úr heiðskíru lofti. Þetta kemur ekki til greina að okk- ar mati, það er alveg á hreinu.Við munum kynna okkar hugmyndir í málinu í næstu viku.“ Dagur B. Eggertsson hefur kastað fram þeirri hugmynd að Sundabraut verði lögð einbreið upp á Kjalarnes. Lachey sýnir tilíinningar Söngvarinn sykursæti, Nick Lachey, tók upp lagið What’s Left Of Me sama dag og fyrrverandi eiginkona hans, Jessica Simpson, sagðist vilja skilnað. Lagið, sem er fyrsta smáskífulag nýjustu plötu hans, var tekið upp rétt fyrir þakk- argjörðarhátíðina sem hann áformaði að eyða með sinni heittelskuðu. Símtal frá Simpson þar sem hún sagði sambandinu lokið batt enda á vonir hans. Lachey, sem söng áður með strákasveitinni 98 Degrees, sýnir á sér nýja tilfinn- ingalega hlið á nýju breiðskífunni sinni sem kemur út 23. maí. „Platan er mjög persónuleg," sagði Lachey í viðtali við Mtv sjónvarpsstöðina. „Hún er hálfgerð dagbók fyrir síðastliðið ár í lífi mínu.“ Skinner stal tuskutigri Breski rapparinn Mike Skinner hefur beðið þýsk lögregluyfirvöld afsökunar vegna þjófnað- W cr T ar a risastóru tuskutígrisdýri. J i „Ég bið þýsk lögregluyfirvöld afsökunar," sagði Skinner í yfirlýsingu um málið. „Tí- grinum stal ég af bensínstöð á þjóðveginum milli Hamborgar og Köln um klukkan þrjú um nótt, eða var það á rnilli Hamborgar og Berlin? Ég man það ekki.“ Skinner segir tígurinn hafa litið einmanalega út á milli klámblaða og vélarolíu. Starfsmaður bensínstöðvarinnar tók ekki eftir því þegar ég stal honum en ég geri mér fulla grein fyrir því að hann er yfir 16.000 þúsund króna virði. Ef hann hefur samband við mig skal ég skila Tony (nafnið sem við gáfum honum) með því skil- yrði að ég verði ekki kærður.“ Pitt ennþá sœtur Talsmaður hins bráðhuggulega Brad Pitt harðneitar þrálátum orðrómi um að eitthvað sé að andliti leikarans en sjónarvottar segja að hann hafi mætt á veitingastað í Frakklandi marinn og blár. „Hann var með ljótt mar í andlitinu, sprungna vör og glóðarauga," sagði ónefndur sjónarvottur. Ýmsar sögur fóru á kreik um ástand leikarans og birti slúðurpressan í Hollywood frásagnir fólks sem sagðist hafa séð leikarann í slagsmálum. Aðrir sögðu hann hafa lent í bílslysi á meðan enn aðrir töldu hann hafa lent í ofbeldisfullu rifrildi við kærustuna sína, Angelinu Jolie. Talsmaður Pitt neitar öllum sögusögnum og segir Brad ennþá vera með þeim fríð- ari í Hollywood. VIÐSKIPTI & FJÁRMÁL HEIMILANNA Mánudaginn 27.mars. mmmmmmmmmmmmmm Auglýsendur, upplýsingar veita: K'olbiúii Ragnansdóttir * Simi 510 3722 • inm 848 0231 • kolla#bladid.net Ellert Ágúst Pálsson • Sími 510 3746 • Gsm 869 9903 • elli@bladid.net Bjarm Danielsson • Simi 510 3725 • Gsm 856 4299 • bjarni@bladid.net eftir Jim Unger Jim Unger/dist. by Uniled Media, a001 Ég held nú samt að við ættum að grafa göng. HEYRST HEFUR... Akveðið hefur verið að hefja viðræður um framhald varnarsamstarfs íslands og Bandaríkjanna í næstu viku. Þá kemur hingað til lands banda- rísk sendinefnd sem skipuð verður fulltrúum úr utanríkis- og varnarmálaráðuneytinu. Nú velta margir vöngum yfir því hver verði formaður íslensku samninganefndarinnar. Albert Jónsson sendiherra var formað- ur íslensku samninga- nefndarinn- ar í síðustu lotu viðræn- anna sem lauk með því að einn af aðstoðar- utanríkisráðherrum Bandaríkj- anna hringdi í Geir H. Haarde utanríkisráðherra og sagði hon- umað málið væri útrætt, Banda- ríkjamenn hefðu ákveð- ið að flytja orrustuþot- urnar og þyrl- urnar á brott. í utanríkis- ráðuneytinu telja menn líklegra en hitt að Albert Jóns- son fari áfram fyrir íslensku samninganefndinni. Snjallt sé að gera ekki breytingu nú enda þekki Kanar vel hörku Alberts og hreina þrjósku. Aðrir við- mælendur segja að sjónarmið- um íslenskra stjórnvalda allt frá upphafi valdatíðar Davíðs Odds- sonar hafi verið hafnað svo afdráttarlaust með símtalinu fræga að ekki komi til greina að Albert Jóns- son fari fyrir nefndinni.Nið- urstaðan er því sú að verði Albert formað- ur samninga- nefndarinnar sýnir það að ríkisstjórnin ætlar að sýna fulla hörku í málinu. Sérfræðingar í diplómasíu segja eðlilegt að hefja við- ræðurnar með þessum hætti. Þær séu nú á upphafsreit og eðlilegt sé að möppudýr úr ráðu- neytunum kanni jarðveginn áður en hákarlarnir tala saman. Fulltrúar fslands bíða spennt- ir eftir tillögum Bandaríkja- manna og munu krefja embætt- ismennina um skýr svör. Innan úr kerfinu heyrist aftur á móti að ekki sé búist við því að þau verði gefin á fundinum hér á landi i næstu viku. Á sama tíma gera Kanar allt hvað þeir geta til að flýta brottflutningnum með tilheyrandi uppsögnum í Kefla- vík. Ef eitthvað er hefur fýlan í garð Bandaríkjamanna frekar aukist á síðustu dögum á æðstu stöðum í stjórnkerfinu. Vera kann að varnarmálin komi til tals á NATO-fundi í Búlgaríu í næsta mánuði fari svo að Geir H. Haarde eigi þar viðræður við Condoleezza Rice, utanrík- isráðherra Bandaríkj- anna. Kerfisk- arlar segja að enginn grund- völlur sé fyrir formlegum fundi utanríkisráðherranna um varnarmálin. Trúnaðarbrestur hafi orðið með einhliða ákvörð- un Bandaríkjamanna og búast megi við því að íslendingar fylgi kröfum sínum eftir af fullum þunga.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.