blaðið - 25.03.2006, Blaðsíða 8

blaðið - 25.03.2006, Blaðsíða 8
8 I ERLENDAR FRÉTTIR LAUGARDAGUR 25. MARS 2006 bla6iö Femínisti verður forsætisráðherra Forseti Suður-Kóreu, Roh Moo, tilnefndi í gær Han Myeong í emb- ætti forsætisráðherra landsins. Ef kóreska þingið samþykkir tilnefn- inguna verður hún fyrsta konan í S- Kóreu til að gegna embættinu. Fyrr í mánuðinum þurfti Lee Hae Chan að segja af sér embættinu en hann lá undir ámælum fyrir að taka golfiþróttina fram yfir embætt- isstörf - og hvarf iðulega til þeirrar iðju þegar eitthvað bjátaði á í landinu. Forsætisráðherraembættið er næst valdamesta embætti Kóreu, á eftir forsetaembættinu, en starfið felst aðallega í verkstjórn ríkisstjórnar landsins í umboði forseta og þings. Han Myeong fæddist í Pjongjang 1944. Hún lagði stund á nám í bók- menntum og guðfræði og lauk loks doktorsprófi í kynjafræðum 1985. Hún hefur verið ötul báráttukona fyrir borgaralegum réttindum í Kóreu og sat meðal annars í fangelsi á áttunda áratugnum fyrir þátttöku sína í kvenréttindahreyfingu lands- ins. Hún hóf formleg afskipti af stjórn- málum árið 2000 en síðan þá hefur hún gegnt embætti jafnréttismála- ráðherra og umhverfismálaráðherra. Trans-Atlantic og MasterCard efna til ferðar til Mexíkó. 10.500 kr.afsláttur á hvern fjölskyldumeðlim MasterCard korthafa 12 ára og eldri. 4 og 5 stjörnu lúxus hótel með allt innifalið: Ótakmarkaður matur og drykkir, óáfengir og áfengir, öll afþreying, skipulögð skemmtidagskrá og stórsýningar (show) á hverju kvöldi. Brottfarir: 25. maí, 8. júní og 22. júní. í 13 nætur. (ath. takmarkað sætamagn) SSHé) Trans-Atiantic Sími 588 8900 • www.transatlantic.is XI Utanríkisráöherra Saddams seldi Frökkum upplýsingar Bandarískir fjölmiðlar greindu frá því í gær að Naji Sabri, síðasti utan- ríkisráðherra í valdatíð Saddams Husseins í írak, hafi verið njósnari. Hann þáði laun frá frönsku leyni- þjónustunni gegn upplýsingum um gereyðingavopn í írak. Er þetta haft eftir fyrrverandi embættis- manni innan bandarísku leyniþjón- ustunar sem vill ekki koma fram undir nafni. f aðdraganda innrásar Bandaríkjanna í írak deildu frönsk yfirvöld þeim upplýsingum sem þau höfðu fengið frá utanríkisráð- herranum. En þær virðast ekki hafa haft mikil áhrif á ákvarðanatökuna í bandaríska stjórnkerfinu í aðdrag- anda stríðsins. Bandarískadag- blaðið The Washington Post segir í gær að Sabri hafi selt frönskum stjórnvöldum þær upplýsingar að ríkisstjórn Saddam Husseins hafi ekki ráðið yfir kjarnavopnum á þeim tíma sem Bush-stjórnin var að íhuga innrás í landið. Þrátt fyrir það staðfesti ráðherrann að stjórn Margir vildu ná tali af Naji Sabri á sínum tíma Saddams vildi koma upp slíku vopnabúri en getuna skorti. Einnig staðfesti Sabri að írakar starfræktu rannsóknaráætlun um framleiðslu efnavopna og þau efnavopn sem Saddam hefði yfir að ráða, frá því í stríðinu gegn íran, væru falin í þorpum ættbálka sem sýndu forset- anum hollustu. Síðarnefnda stað- hæfingin reyndist vera röng. Sabri var skipaður utanríkisráð- herra fraks árið 2001 eftir miklar hreinsanir í embættismannakerfi stjórnar Saddams Husseins. Ári síðar leiddi hann samningavið- ræður við alþjóðakjarnorkumála- stofnunina um framkvæmd vopna- eftirlits í landinu. Blaðamenn Washington Post hafa eftir heimildarmanninum að stjórnvöld í Washington hafi sýnt upplýsingum utanríkisráðherrans lítinn áhuga. Hinsvegar höfðu þau í gegnum þriðja aðila reynt að fá hann til þess að gerast liðhlaupi og töldu að það myndi hjálpa Banda- ríkjamönnum að sannfæra um- heiminn um hættuna sem steðjaði að vegna stjórnar Saddams í írak. Sabri reyndist ófáanlegur til þess. Þrátt fyrir upplýsingarnar frá Sa- bri settu bandarísk yfirvöld hann á lista yfir eftirlýsta samverkamenn Saddam Husseins í kjölfar þess að innrásarliðið náði völdum í Bagdad. Mótmæli í Hvíta-Rússlandi Alexander Lukashenko, forseti Hvíta- Rússlands, skipaði í gær óeirðalög- reglu að stöðva mótmæli í Minsk, höfuðborg landsins. Samkvæmt stjórnvöldum í Hvíta-Rússlandi voru tvö hundruð mótmælendur handteknir og fjarlægðir af lögreglu. Talsmenn mótmælenda segja að talan hafi verið nær fimm hundruð. Þrátt fyrir aðgerðir lögreglu og bann við mótmælum hafa aðstandendur mótmælanna lýst því yfir að þeim verði haldið áfram í dag, laugardag. Mótmælendurnir krefjast þess að forsetakosningarnar, sem voru haldnar 19. mars s.l. verði endur- teknar. Þeir halda því fram að víð- tækt kosningasvindl hafi átt sér stað við framkvæmd þeirra. I kosning- unum fékk Lukashenko yfir 80% at- kvæða en helsti andstæðingur hans, umbótasinninn Alexander Milinkev- ich, fékk aðeins um 6% atkvæða. Tímasetning fyrirhugaðra mót- mæla í dag er táknræn. Þann 25. mars 1918 var skammlíft lýðveldi stofnað í Hvíta-Rússlandi. Búist er við stjórnvöld reyni að stöðva mót- mælin. Milinkevich hefur lýst því yfir að mótmælin muni fara fram þrátt fyrir að lögregla skakki leik- inn en hvetur stuðningsmenn sína að sýna stillingu og forðast átök við yfirvöld. ESB og Bandaríkin boða þvinganir Leiðtogar Evrópusambandsins og stjórnvöld í Bandaríkjunum hafa fordæmt inngrip stjórnvalda Hvíta- Rússlands í mótmælin. Bæði ESB og bandarísk stjórnvöld hafa ákveðið að grípa til efnahagsþvingana gegn stjórn Lukashenko. Þrátt fyrir að tímarammi Og útfærsla þvingana hafi ekki verið ákveðin er talið lík- legt að þær muni felast í ferðabanni á háttsetta embættismenn og að þrengt verði að aðgengi þeirra að er- lendu fjármagni. Rússar hafa brugðist illa við hót- unumEvrópusambandsinsogBanda- ríkjanna. f gær lýsti Sergei Lavrov, utanríkisráðherra Rússlands, því yfir að vestrænir kosningaeftirlits- menn hefðu gert upp hug sinn um lögmæti kosninganna áður en þær fóru fram. Hann lýsti jafnframt yfir að rússneskir eftirlitsmenn hefðu ekki fundið að framkvæmd kosning- anna.. Félagsvísindadeild Háskóla íslands KYNNINGARFUNDUR um námið verður haldinn 6. apríl kl. 12:15 í stofu 101 í Odda v/Sturlugötu. Allarupplýsingar: www.fela2s.hi.is fjpiÉp UmsóRnanresturertill8.april ’lplp raagsvcindi íþáguframfera.. nanai GÓÐARAÐSTÆÐURTIL NÁMS. FJÖLBREYTNI OG SVEIGJANLEIKI. STARFSTENGT RANNSÓKNARNÁM. NÁM STUTT RANNSÓKNUM KENNARA. NÁM MEÐ STARFI.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.