blaðið - 25.03.2006, Qupperneq 12
12 I FRÉTTASKÝRIWG
LAUGARDAGUR 25. MARS 2006 blaöió
Áhrif af fijálsri för launafólks jákvæð
Atþýðusamband fsiands telur að skoða verði stöðu útlendinga á íslenskum vinnumark-
aði í heild sinni enda tengist stærstu vandamálin ekki frjálsri för launafólks innan
EES-svæðisins.
Frjáls för starfsfólks innan EES-
svæðisins í kjölfar stækkunar sam-
bandsins árið 2004 hefur einkum
haft jákvæð áhrif að mati höfunda
skýrslu sem framkvæmdastjórn Evr-
ópusambandsins lét gera og kynnt
var í síðasta mánuði. Starfsfólk frá
nýju aðildarríkjunum tíu léttu undir
þar sem skortur var á vinuuafli og
stuðluðu að betri efnahagsafkomu
í Evrópu. Tólf af fimmtán eldri að-
ildarríkjum Evrópusambandsins
nýttu sér heimildir til takmörk-
unar á aðgangi starfsfólks frá átta
af nýju aðildarríkjunum (öllum
nema Möltu og Kýpur). í Svíþjóð,
Bretlandi og Irlandi þar sem slíkum
takmörkunum var ekki beitt hefur
verið mikill hagvöxtur og dregið úr
atvinnuleysi. Bráðabirgðaákvæði
við aðildarsamninga ríkjanna átta
heimilar hverju ríki fyrir sig að tak-
marka frjálsa för starfsfólks í allt að
sjö ár frá gildistöku. Ríkin hafa því
heimild til að framlengja takmark-
anirnar til aprílloka árið 2011.
Ýmsar neikvæðar aukaverkanir
I ríkjunum 12 þar sem takmörk-
unum er beitt hefur aðlögun starfs-
fólks frá nýju ríkjunum gengið vel
fyrir sig en ýmissa aukaverkanna
hefur orðið vart svo sem aukning
svartrar atvinnustarfsemi. I Evrópu-
sambandinu hefur flæði starfsfólks
þó verið frekar takmarkað.
Skýrslan leiðir í Ijós að flæði starfs-
fólks frá ríkjum Mið- og Austur Evr-
ópu var minna í flestum ríkjum en
búist hafði verið við. Fólk frá nýju að-
ildarríkjunum var innan við eitt pró-
sent fólks á vinnualdri í öllum lönd-
unum nema í Austurríki (1,4% árið
2005) og írlandi (3,8% árið 2005).
Hlutfallslega hafa flestir starfsmenn
haldið til írlands í atvinnuleit.
Engin merki voru um fjölgun
starfsfólks eða aukin útgjöld í velferð-
armálum í kjölfar stækkunarinnar
miðað við árin tvö fyrir stækkun.
Þetta hafði góð áhrif á hagvöxt í
þessum löndum. Starfsfólk frá nýju
aðildarríkjunum tíu dró úr skorti á
hæfu starfsfólki heima fyrir.
Hvatttil afnáms
aðlögunartakmarkanna
Vladimir Spidla sem fer með at-
vinnumál, félags- og jafnrétismál
hjá Evrópusambandinu, segir að
þó að hann viðurkenni rétt aðildar-
ríkja til að ákveða sjálf hvort þau
beiti áfram takmörkunum á aðgang
hvetji hann þau engu að síður til að
íhuga vandlega hvort þeirra sé þörf
í ljósi þeirrar þróunar sem hefur átt
sér stað á atvinnumarkaði og niður-
staðna skýrslunnar.
„Frjálst flæði starfsfólks er ein
af grundvallarstoðum fjórfrelsis
Evrópusambandsins. Þessi skýrsla
sýnir greinilega að frjáls för starfs-
fólks hefur ekki haft skaðleg áhrif
á atvinnumarkað í hinum 15 gömlu
aðildarríkjum Evrópusambandsins.
Þvert á móti hafa einstök lönd og
Evrópa í heild sinni notið góðs af
því,“ sagði hann þegar skýrslan var
kynnt.
Niðurstöður skýrslunnar benda
til að takmarkanir í hverju ríki
fyrir sig hafi haft lítil áhrif á flæði
starfsfólks.
„Hvað varðar tímabundnar tak-
markanir þá benda gögn til þess
að það séu engin bein tengsl milli
umfangs flæðis starfsfólks frá nýju
aðildarríkjunum tíu og þeirra tak-
markana sem eru í gildi,“ segir í
skýrslunni.
I henni er jafnframt bent á að flæði
starfsfólks stjórnist öðru fremur af
framboði og eftirspurn og að mörg
atvinnuleyfanna sem gefin hafi
verið út hafi verið til bráðabirgða
eða vegna tímabundinnar vinnu.
íslensk stjórnvöld íhuga hvort af-
létta eigi takmörkunum
Aðildarríki Evrópusambandsins
hafa frest til 30. apríl á þessu ári
til að taka ákvörðun um hvort tak-
mörkunum á frjálsa för vinnuafls í
Evrópusambandinu verði aflétt.
Austurríkismenn, Danir, Frakkar
og Þjóðverjar hafa þegar ákveðið að
aflétta ekki takmörkunum á frjálst
flæði launafólks frá ríkjunum átta
eftir 1. maí næstkomandi. Finnar og
Spánverjar hyggjast ekki framlengja
takmarkanirnar í allt að þrjú ár og
stjórnvöld í öðrum ríkjum, þar á
meðal á íslandi, eru að hugsa sinn
gang.
Samtök atvinnulífsins hafa lýst
yfir að þau telji eðlilegt að þessum
takmörkunum verði aflétt hér á
landi þann 1. maí næstkomandi.
„Reynsla Islendinga hefur verið
góð af flutningi starfsfólks hingað
frá nýjum aðildarríkjum ESB. Starfs-
fólk frá þessum ríkjum hefur gengið
í laus störf sem ekki hefur reynst
unnt að manna með íslendingum
og það hefur þannig stuðlað að
meiri hagvexti, betri þjónustu og
aukinni velferð fyrir landsmenn en
ella. Líklega býr ekkert ríki á EES-
svæðinu við meiri þenslu á vinnu-
markaði, meiri umframeftirspurn
eftir starfsfólki, en íslendingar og
þar af leiðandi eru hvergi sterkari
rök fyrir afnámi takmarkananna
en hér á landi,“ segir Hannes G. Sig-
urðsson aðstoðarframkvæmdastjóri
Samtaka atvinnulífsins í grein sem
hann skrifaði á vef samtakanna fyrr
í mánuðinum. Bendir Hannes jafn-
framt á að takmarkanir hafi haft þau
hliðaráhrif hér á landi að ýta undir
umdeilda starfsemi starfsmanna-
leiga sem margar hverjar hafa verið
ásakaðar um að virða ekki lágmarks-
ákvæði kjarasamninga.
Heildræn endurskoðun
á stöðu útlendinqa
Alþýðusamband Islands hefur mælt
með því við stjórnvöld að beitt verði
hinni svo kölluðu „dönsku leið“ í
málinu. „Danir hafa leyft fólki frá
þessum átta nýju ríkjum Evrópusam-
bandsins að koma til Danmerkur og
leita þar að starfi með sama hætti
og gildir um aðra borgara EES-ríkj-
anna. Þegar það fær starf verður það
hins vegar að sækja um starfsleyfi
og leggja fram fullgildan ráðning-
arsamning. Geti fólk gert það þá er
starfsleyfið gefið út sjálfkrafa og þar
með dvalarleyfið líka,“ segir Halldór
Grönvold aðstoðarframkvæmda-
stjóri ASÍ.
Halldór segir mikilvægt að tæki-
færið verði notað til að skoða stöðu
útlendinga á íslenskum vinnumark-
aði í heild sinni. „Stærstu vanda-
málin tengjast kannski ekki í sjálfu
sér þessari frjálsu för og frestun
á henni. Stærstu vandamálin
tengjast að okkar mati starfsemi
starfsmannaleigna og þjónustuveit-
enda af ýmsu tagi og með hvaða
hætti þeir hafa sent hingað fólk og
brotið á rétti þess eins og við höfum
fjölmörg dæmi um,“ segir Halldór
og bætir við að af þeim sökum telji
ASÍ besta kostinn þann að fólk sé
með beina ráðningarsamninga við
fyrirtæki sem séu með starfsemi hér
á landi.
Hreyfanleiki á vinnumarkaði
of lítill í Evrópusambandinu
„Til afi lifa af þær breytingar sem verfia í framtíðinni verður Evrópa að leita nýrra leiða til
að auka skilvirkni og afilögunarhæfni vinnuafla síns. Hún verfiur einnig að kanna hvern-
ig eigi afi taka á skorti á hæfu starfsfólki á ólíkum svæfium " segir José Manuel Barroso
forseti framkvæmdastjórnar ESB.
Árið 2006 er tileinkað hreyfanleika
á vinnumarkaði í ríkjum Evrópu-
sambandsins (ESB) og Evrópska
efnahagssvæðisins (EES). Af því til-
efni var haldin viðamikil ráðstefna
um þennan málaflokk í Brussel í síð-
asta mánuði þar sem fræðimenn frá
Evrópu, Bandaríkjunum og víðar
veltu upp ýmsum hliðum á frjálsri
för launafólks innan EES. Margir
telja að hreyfanleiki vinnuafls sé
of lítill í Evrópu, ekki síst í saman-
burði við Bandaríkin og óttast að
það kunni að hafa slæm áhrif á efna-
hagslíf, hagvöxt og atvinnuleysi svo
nokkuð sé nefnt.
Meiri hreyfanleiki í Bandaríkjunum
Aðeins um tvö prósent þegna ríkja
Evrópusambandsins búa í öðru
landi en heimalandi sínu og hefur
það hlutfall lítið breyst á undan-
förnum 30 árum. Evrópubúar eru
aukinheldur lengur í sama starfi en
Bandaríkjamenn. I Evrópusamband-
inu eru menn að meðaltali 10,6 ár í
starfi en í Bandaríkjunum 6,5 ár.
Þar sem Evrópusambandið leitast
við að skapa meiri hagvöxt og störf
hefur mikilvægi frjáls flæðis launa-
fólks aukist til muna. Það veitir
launafólki nýja reynslu og þekkingu
sem kemur jafnt því sjálfu sem at-
vinnuveitendum til góða.
„Frjálst flæði eru grundvallar-
réttindi í Evrópusambandinu. Við
ættum að nýta okkur þau til hins
ýtrasta. Það getur veitt okkur tæki-
færi til að læra, til að vinna og end-
iírmenntast,“ sagði Vladimir Spidla
sem fer með atvinnumál, félags- og
jafnréttismál innan ESB við upphaf
ráðstefnunnar.
José Manuel Barroso forseti fram-
kvæmdastjórnar ESB tók í sama
streng í ávarpi sem hann flutti við
upphaf ráðstefnunnar. „Til að lifa
af þær breytingar sem verða í fram-
tíðinni verður Evrópa að leita nýrra
leiða til að auka skilvirkni og að-
lögunarhæfni vinnafla síns. Hún
verður einnig að kanna hvernig eigi
að taka á skorti á hæfu starfsfólki á
ólikum svæðum,“ sagði Barroso.
Leiðirtil aukins hagvaxtar
José Manuel Barroso benti á að hreyf-
anleiki launafólks leiddi til aukins
hagvaxtar og betri nýtingar atvinnu-
tækifæra auk þess sem markaðir
yrðu skilvirkari og gætu betur brugð-
ist við breytingum.
Meira en helmingur íbúa ESB-
ríkja telur að Evrópusambandið
standi öðru fremur fyrir réttinn
til frjáls flæðis fólks. Það skýtur
því skökku við að hreyfanleiki á
vinnumarkaði er afar lítill innan
sambandsins.
José Manuel Barroso bendir
að auki á að oft eigi flutningar
launafólks sér ekki stað við bestu að-
stæður. Þar er einkum um að ræða
láglaunafólk með tímabundna samn-
inga sem flytur sig um set af illri
nauðsyn. Einn af hverjum átta verka-
mönnum í ESB óttast í raun og veru
að þurfa að leita vinnu annars staðar
vegna atvinnumissis eða útrunnins
starfssamnings samkvæmt nýlegri
könnun. Stór hluti þeirra launþega
sem flytjast á milli ríkja Evrópusam-
bandsins er ófaglært verkafólk.
Þarf að ryðja hindrunum úr vegi
Síðast en ekki síst standa ýmsar
lagalegar og stjórnsýslulegar hindr-
anir í vegi fyrir að fólk nýti sér þetta
tækifæri. Sem dæmi má nefna ósam-
ræmi milli sjúkrasamlagsreglna,
skattalöggjafar, lífeyrisréttinda, at-
vinnuleysisbóta og námsgráða milli
aðildarríkja. „Ef okkur er alvara
með að auka hreyfanleika verðum
við að gera fólki auðveldara fyrir.
Við verðum að ryðja þessum hindr-
unum úr vegi,“ sagði Barroso.
Markaðsvaktin - Veist þú hvað er að gerast á markaðnum í dag?
ÓKEYPIS
á www.mentis.is
Microsoft
CERTIFIED
Parner
Slgtúni 42 105 Reykjavfk Sími 570 7600 infoOmentls.is
HUGBÚNAÐUR