blaðið - 25.03.2006, Blaðsíða 18
18 I FRÉTTASKÝRING
LAUGARDAGUR 25. MARS 2006 blaöiö
líoads l>v
'2L © F3 R3 I hvl I
V-M P I R E N Z E
www.zoppini.com
Meba - Kringlunni
Rhodium - Kringlunni
Meba Rhodium - Smáralind
Úr & Gull - Firði Hafnarfirði
Georg V. Hannah - Keflavík
Guðmundur B. Hannah - Akranesi
Karl R. Guðmundsson - Selfossi
Klassík - Egilsstöðum
Undir
linditrjám
A
BRÉF FRÁ Sjk.
BRYNDNjmgl
Frá miðborg Berlrnar.
Þjóðvegurinn frá Lubeck lá bara
beint inn í hjarta gömlu Austur-
Berlínar. Og þarna var þetta allt -
enn á sínum stað: Alexanderplatz,
Unter den Linden, Brandenburger
Tor, Potsdamer Platz. Öll þessi
nöfn klingdu bjöllum. Vááá...!
Við vorum bara komin, og dagur-
inn rétt að byrja.
Én Drottinn minn dýri, hvað allt
hafði breyst, tekið miklum stakka-
skiptum. Það voru tíu ár síðan ég
hafði komið til Berlínar seinast.
Þá var varla farið að hreyfa við
nokkrum hlut frá því að Berlínar-
múrinn féll í nóvember 1989. Allt
stóð í stað. Þjóðverjar á báðum
áttum. Hvaða stefnu skyldi taka?
Hvað átti að rífa? Hvað átti að end-
urbyggja? Sótsvartar asbestblokkir
voru þá enn hrollvekjur, dapurleg
minnismerki um söguleg mistök
og beiska ósigra. Austurþjóðverjar
enn ekki orðnir hluti af hagkerfinu.
Voru rétt að byrja að fóta sig í hinni
langþráðu paradís vestursins.
En nú var allt með öðrum svip.
Jafnvel asbestblokkirnar voru
orðnar augnayndi, málaðar í rós-
rauðum lit, með svalir og veltu-
glugga og eflaust önnur þægindi.
Unter den Linden hafði endur-
heimt fyrri glæsileika. (Að vísu var
allt á rúi og stúi í enda götunnar.
Þar voru þeir í óða önn að klessa ein-
hverju peningamusteri upp að hlið-
inni á Brandenborgarhliði. Þvílík
smekkleysa!) En þetta sögufræga
breiðstræti - sem á engan sinn líka,
nema ef vera kynni Champs Élysée
í París - státar af því fegursta úr
arkitektúr nítjándu aldar, og end-
urspeglar vaxandi auð hins rísandi
stórveldis þess tíma. Það eina sem
spillir trúverðugleika myndarinnar
er sprangandi gallabuxnalið úr
öllum heimsins hornum. Þetta lið
fellur engan veginn inn í svona tign-
arlegt umhverfi. Undir linditrjám
eiga konur að ganga um í krínólíni
og með barðastóra hatta. Annað er
ekki við hæfi!
Elskulegheit í stórborginni.
Við vorum ótrúlega snögg að hafa
upp á húsinu, sem ætlaði að hýsa
okkur þessa viku í Berlín. Það
stendur í Bellevue hverfi, miðja vegu
á milli austurs og vesturs. Þarna
stóðu nokkrar blokkir í hnapp, sem
áttu það sameiginlegt, að höfundar
þeirra höfðu unnið alþjóðlega arki-
tektasamkeppni eftir stríð. Eigand-
inn kom á staðinn, afhenti okkur
lykla og óskaði okkur ánægjulegrar
dvalar í höfuðborginni. Við sátum
eftir, tvö ein, í fallegri öríbúð (40
fermetrar) og horfðum út um glugg-
ann á fölnað haustlaufið, sem bað-
aði sig í geislum síðdegissólarinnar.
Eiginlega gat þetta ekki betra verið.
Stutt í allar áttir. Króatískur veit-
ingastaður í næsta húsi og matvöru-
verslun á horninu. Allir svo elsku-
legir: Guten Tag. Können wir ihnen
helfen? Þetta voru ótrúleg viðbrigði.
Við áttum þessu ekki að venjast úr
norðrinu. Jón Baldvin skrapp út í
bakarí til að kaupa brauð. Kom al-
sæll til baka: það voru allir svo al-
mennilegir við mig, vildu allt fyrir
mig gera! - Ég hef nú grun um, að
það hafi aðallega verið eldri döm-
ur,sem höfðu ekkert annað betra
að gera! En samt.... Elskulegheit í
stórborginni!
Ég hafði verið tilnefnd fararstjóri
og tók það starf mjög alvarlega. Ég
sat tímunum saman og stúderaði
kort af Berlín, ofanjarðarlestir og
neðanjarðarlestir, fann út, hvar
söfnin voru, kirkjur, minnismerki
og sögufrægir staðir. Það er að vísu
töluverður galdur að læra á lesta-
kerfið, en stöðin var handan við göt-
una. Strjúka skjáinn, finna áfanga-
staði, eiga rétt klink í vasanum, fá
miða fram og til baka og skrá svo
miðann á öðrum stað. Ég var ekki
lítið ánægð með sjálfa mig að geta
leyst úr þessu öllu á undrahraða.
Ótrúlegt, hvað svona smásigrar
gefa manni aukið sjálfstraust, ekki
satt?
Nú, fyrsti áfangi var Ku'damm,
og þar keyptum við miða fyrir
fjögurra tíma kynnisferð um
borgina, hina fornu og nýju. Við
fórum í gegnum söguna um ris og
fall þýska stórveldisins án þess að
það væri nokkurn tíma minnst á
Hitler!! (Merkilegt nokk). Hvernig
hinn hernaðarlega sinnaði landeig-
endaaðall Prússlands náði að sam-
eina þýsku furstadæmin undir sína
forystu, hvernig Þýskaland óx ná-
grönnum sínum yfir höfuð og gerði
tvær atrennur að heimsyfirráðúm,
sem báðar enduðu í rústum. Sorg-
arsaga um skammsýni og heimsku.
Og þetta var “best menntaða þjóð
Evrópu.” Brandenburger Tor og
Reichstag, Berlínarmúr og tvískipt
borg Kalda stríðsins, fall kommún-
ismans og síðan endurbyggingin,
nýja þinghúsið, endalausar þing-
mannaskrifstofur, kanslaraamtið.
Hundruð milljarða evra á ári í
vegi, brýr, orku og sorpeyðingu
í Austur-Berlín og Austur-Þýska-
landi. En þrátt fyrir allan fjáraust-
urinn engin gróska, (hér er ég hætt
að vitna í leiðsögumanninn, vit-
anlega), því að Kohl gerði Austur-
Þýskaland að framfærsluamti með
einni ákvörðun - að austurþýska
markið skyldi jafngilda vestur-
þýska markinu. (1 raun var það
einn fjórði). Þetta þýddi, að laun og
verðlag í Austur-Þýskalandi varð
hið sama og í vestrinu, þótt landið
væri í rúst og framleiðnin engin. -
Nú, fimmtán árum síðar er Austur-
Þýskaland enn á opinberri fram-
færslu, og Vestur-Þýskaland orðið
svo skuldugt, að það getur ekki
lengur haldið uppi Austur-Þýska-
landi og frönskum landbúnaði.
Þess vegna þarf að endurskipu-
leggja hagkerfið. Þess vegna féll
Schröder á liðnu hausti. Þess vegna
voru aukakosningar. Og þess vegna
langdregnar stjórnarmyndunarvið-
ræður - af því að enginn vill bera
ábyrgð. Voilá!
Atvinnuleysið er mikið. Eigin-
lega svipað og í Weimar, áður en
Hitler komst til valda. Við lásum í
blöðunum, að í Berlín einni væru
530.000 manns á opinberri fram-
færslu af þremur og hálfri milljón.
Atvinnulausir, öryrkjar, aldraðir.
Þegar við setjumst inn á veitinga-
hús, þá finnst okkur við vera stödd
á elliheimili. Þýska þjóðin er orðin
aldurhnigin. Eða finnst okkur við
sjálf vera svona ungleg?!
V
r
s
/
/
Vaxtalaus greiðslukjör í allt að 24 mánuði
(visa/euro) Engin útborgun
Sjóntækjafræöingur meö réttindi til
sjónmælinga og linsumælinga
\
GLERAUGNAVERSLUN
Gleraugað
í bláu húsunum við Faxafen Sími: 568 1800