blaðið - 25.03.2006, Síða 20
20IFERÐALÖG
LAUGARDAGUR 25. MARS 2006 blaðið
Póstkort frá París
Parísarborg kallar fram mismunandi myndir í hugum fólks. Margir sjá hana í rómantísku ljósi, aðrir líta
á hana fyrst og fremst sem höfuðborg hátísku og lista og enn aðrir tengja hana við óeirðir, mótmæli og bylt-
ingar. í borginni er margt að sjá og skoða og þar eru skemmtistaðir, verslanir, veitingastaðir, byggingalist og
söfn á heimsklassa. Mannlífsflóran í borginni við Signu er ekki síður fjölbreytt og fátt sem jafnast á við það
að rölta í hægðum sínum um götur og torg og virða fyrir sér mannlífið. Einar Jónsson blaðamaður Blaðsins
bjó um tíma í borginni og festi þá gjarnan á filmu það sem á vegi hans varð og skráði hugleiðingar sínar á
blað.
Fljód á fleygiferð
Ég hafði aldrei séð jaf nmikið af fólki á hlaupum á götu úti og þegar ég kom til Parísar í
fyrsta skipti. Þá er ég ekki að tala um frístundaskokkara eða börn að leik heldur ósköp
venjulegt fólk á leið til vinnu eða skóla. Mest bar að sjálfsögðu á þessu í kringum
járnbrauta- og neðanjarðarlestastöðvar en einnig mátti sjá fólk á harðahlaupum í hefð-
bundnum íbúðahverfum og verslunargötum. Dag einn sá ég eina hlaupadrottninguna
koma á fleygiferð í átt að mér þar sem ég stóð á Champs Elysées breiðgötunni. Ég lyfti
vélinni upp að auganu og smellti af um leið og hún þaut hjá. Ég lét vélina síga og horfði
á eftir henni. Hún leit snöggt til baka en hvarf síðan í mannmergðina. Mér hefur alltaf
fundist eins og fyrstu áhrifin sem borgin við Signu hafði á mig kristallist í myndinni af
Parísardömunni hlaupandi.
Do you speak English?
Tötralegar konur ganga að fólki á ferðamannastöðunum og bera upp þessa spurningu.
Ef maður kveður já við rétta þær manni póstkort sem á er letruð harmsaga þeirra, að
þær hafi hvorki húsaskjól né peninga og/eða eigi veika foreldra eða börn og þar fram
eftir götunum. Flestir hrista bara hausinn þegar þeir mæta þeim eða láta sem þeir sjái
þærekki.
Fyrir utan konurnar er fjöldi annarra betlara um alla borg. Það kemur manni svo sem
ekki á óvart en það er alltaf jafnátakanlegt að sjá þær ömurlegu aðstæður sem þetta
fólk býr við. Þó að maður láti smáfé af hendi rakna hefur maður á tilfinningunni að það
komi ekki til með að breyta miklu. Betlararnir verða enn á sínum stað daginn eftir.
■ÍÆH
íjúlí og ágúst
Frá aðeins kr. 49.990
Skógarhlíð 18 ■ 105 Reykjavík ■ Sími: 591 9000 \
www.terranova.is ■ Akureyri sími: 461 1099
Hafnarfjörður sími: 510 9500
Frábært helgartilboð - 4 nætur
Terra Nova býður einstakt tækifæri á helgarferðum í sumartil þessarar
einstöku borgar.
Góð gisting á frábærum kjörum.Eiffelturninn, Sigurboginn,
Latínuhverfið, Montmartre, Signa, Champs Elysées, Concordetorgið.
París kemur sífellt á óvart og er endalaus uppspretta mannlífs,
menningar og rómantíkur.Tryggðu þérflug og gistingu strax því
framboðið á þessu einstaka tilboði er mjög takmarkað.
VBIB!
Kr. 49.990
Flug.skattarog gisting itvíbýli
á Holiday Inn Biblioteque með morgunverði (4 nætur.
Netverð á mann.
Bókaðu á
www.terranova.is
Brúðuleikhús
í lestinni
Hljóðfæraleikarar stytta gjarnan farþegum
neðanjarðarlestanna stundir með leik og
söng. Þeir stíga upp í vagninn á einhverri
stöðinni, leika tvö til þrjú lög og ganga síðan
um með plastglas og biðja um laun fyrir
tónlistina. Gamli slagarinn Bessame mucho
virðist njóta fádæma vinsælda í þessum
hópi en samkvæmt lauslegri könnun er
ríflega helmlngur metróleikaranna með
hann á efnisskránni. Gæði tónlistarinnar eru
misjöfn eins og við er að búast. Sumir kunna
svo illa á hljóðfærin sín að manni er skapi
næst að borga þeim fyrir að láta af leiknum. f
öðrum tilfellum skilur maður ekki af hverju
viðkomandi tónlistarmaður þarf að hafa í sig
og á með þessum hætti. Einnig eru þeirtil
sem skemmta farþegum með brúðuleikhús-
sýningu. Dag einn sat ég baksviðs hjá einum
slíkum brúðuleikhússtjóra og smellti af þess-
arí mynd þegar sýningin stóð sem hæst.
Sunnudagsmorgun 1 Latínuhverfinu
f París eru nær allar verslanir lokaðar á sunnudögum. Þó að svo hafi einnig verið á fslandi þegar ég var yngri átti ég erfitt með að
venjast því til að byrja með. Ef til vill er það til marks um hve vanur ég var orðinn því að geta sótt þjónustu og verslað hvenær sem
mér hentaði. Ég er ekki frá því að þessar sunnudagsiokanir hafi jafnvel farið svolítið í taugarnar á mér í upphafi dvaiarinnar. Smátt og
smátt lærði ég þó að meta þær enda uppgötvaði ég að borgin tók á sig allt annan og rólegri blæ á þessum helga degi þegar ekki var
iengur skarkali, ys og þys á götunum.