blaðið - 25.03.2006, Page 21
blaðið LAUGARDAGUR 25. MARS 2006
FERÐALÖG I 21
Ferdamenn
vid Eiffel-
turninn
París er ein mesta ferðamannaborg
í heimi og öfugt við Reykjavtk er þar
stöðugur straumur ferðamanna. Gildir
einu hvort maður komi að sumri til eða
vetri. Sjálfur hef ég alltaf haft lúmskt
gaman af feröamönnum, sérstaklega
þeim sem fara ekki leynt með það. Mér
finnst gaman að fylgjast með þessu fólki
sem fer frá einum merkisstaðnum til
annars á milli þess sem það kemur við
í minjagripasjoppunum og fyllir töskur
sínar af Eiffel-turnum og Sigurbogum. (
úlpuvasanum glittir gjarnan I upplýsinga-
bækling eða borgarkort og myndavélin
er stöðugt á lofti takandi myndir af hverri
styttu og minnismerki sem fyrir augu ber.
Oft grunar mig jafnvel að fólk hafi ekki
hugmynd um hvað það er að festa á filmu,
viti ekki hver maðurinn á hestinum hafi
verið eða hvaða hlutverki kastalinn hafi
gegnt. Enda skiptir það kannski ekki öllu
máli. Það sem mestu skiptir er að geta
sýnt vinum og fjölskyldu að maður hafi
verið á staðnum.
Skuggavera
á hlaupum í
La Défense
f fjármála- og viðskiptahverfinu La
Défense eru mörg stórfyrirtæki með
skrifstofur sínar og því ekki óalgengt
að sjá vel til haft fólk með skjalatöskur í
annarri hendi og farsíma í hinni þeytast á
milli bygginga. Þangað sækja ennfremur
fjölmargir ferðamenn enda hverfið frægt
fyrir fallega nútímabyggingarlist. La
Défense er skemmtileg tilbreyting frá
„gömlu" París þar sem byggingarlist er víð-
ast hvar með hefðbundnari hætti og heilu
göturnar hafa tekið litlum breytingum
áratugum saman.
opið virka daga 10-18 laugardaga 11-16 sunnudaga 13-16
Jardin des
Tuileries
Eftir að hafa búið I Reykjavík finnst
manni París frekar náttúrulaus borg.
Vissulega eru víðfeðmir skógar handan
við borgarmörkin eru innan þeirra eru
græn svæði ekki á hverju strái. Fáeinir
almenningsgarðar eru reyndar í borginni
en þeir bera þess flestir merki að vera
fyrst og fremst mannanna verk, frekar
en náttúrunnar enda er þar allur gróður
vandlega klipptur og skorinn samkvæmt
kúnstarinnar reglum. Þessir garðar
eru engu að síður sannkallaðar vinjar í
eyðimörkinni og þangað leita borgarbúar
gjarnan þegar þeir vilja slaka á eða leyfa
börnum sínum að leika sér áhyggjulaus.
Þar koma menn saman til að reyna með
sér í íþróttum, blaða í bók eða tímariti
eða gefafuglunum.
Þj óðaríþr óttin
Sumir segja að mótmæli séu þjóðaríþrótt
Frakka. Ekki veit ég hvað er til í því en eitt
er vist að þar i landi láta menn ekki bjóða
sér hvað sem er og eru ófeimnir við að
láta óánægju sina f Ijósi ef þeim þykir á
þeim brotið.
30% afsl. af allri indverskri vöru
20% afsl. öllum sófum
œlia
a r || t
H Ú S G Ö G N
bæjarlind 6 201 kópavogi simi 554 6300 www.miraart.is