blaðið - 25.03.2006, Síða 22

blaðið - 25.03.2006, Síða 22
22 I VIÐTAL LAUGARDAGUR 25. MARS 2006 blaðid „Halldór var tabú á minu œskuheimili" Blaðið/SteinarHugi Náttúruunnandinn, þingmað- urinn og ráðherran fyrrverandi, Hjörleifur Guttormsson, ólst upp við aðstæður alls ólíkar þeim sem aðrir íslendingar hafa notið. Faðir hans var um áratugi skóg- arvörður i Hallormsstað og þar innan um hávaxinn gróðurinn eyddi Hjörleifur uppvaxtarár- unum. Hjörleifur hefur að miklu leyti eytt starfskröftum sínum í þágu náttúruverndar. Frá því hann kom heim frá háskólanámi í Þýskalandi árið 1963 hefur hann verið í forystu opinberrar umræðu um umhverfis- og nátt- úruvernd. Hann var frumkvöðull við lagasmíðar á sviði umhverfis- og náttúruverndarmála og sat lengi í Náttúruverndarráði. í dag verður haldið málþing til heiðurs Hjörleifi í tilefni af sjötugsafmæli hans síðasta haust. Að málþing- inu stendur fjöldi útvistar- og náttúruverndarsamtaka sem vilja með því sýna Hjörleifi virðingu og þakklæti fyrir mikið og gott starf í þágu umhverfis- og nátt- úruverndar. Erna Kaaber hitti Hjörleif og spjallaði við hann um uppeldisárin og ævistarfið. Hvernig var að alast upp í skóginum? „Það var yndislegt í einu orði sagt og ég varð eiginlega hissa sem barn þegar ég fór út fyrir og sá þetta nakta land og allt aðra náttúru. Kostir Hall- ormsstaðar voru að þó þetta væri sveit þá var þarna iðandi mannlíf aðkomufólks bæði vetur og sumar. Það var þarna húsmæðraskóli sem föðursystir mín stofnaði 1930 og þar fengum við tvíburabróðir minn að sækja tíma. Við kláruðum barna- skólann ellefu ára og fengum svo að sækja nokkra tíma þar. Okkur var auðvitað strítt á þessu en við létum það ekkert á okkur fá. Á þessum árum, upp úr stríðinu þegar bílaeign jókst, komu margir ferðamenn og þá vorum við fengnir sem leiðsögumenn til að fara með fólk um skóginn. Greina þessar uppeldisað- stœður þig kannski frá öðrum íslendingum? Ekki myndi ég vilja taka svo stórt upp í mig en auðvitað hefur það mótandi áhrif á sýnina til mögu- leika íslenskrar náttúru til að spjara sig eftir eigin lögmálum. Það vill reyndar svo til að náttúrufræðiáhug- inn liggur í legg forfeðra minna alveg aftur á átjándu öldina. Langa langafi minn, Guttormur Pálsson, lærði í Skálholtsskóla í kringum 1790 hjá Hannesi Finnssyni biskupi og komst þar í erlend rit. m.a. Flora Danica. Hann var mjög grasafróður og útlendingar heimsóttu hann. Hen- derson lýsir honum sem mjög nátt- úrufróðum manni. Tengdasonur hans, Sigurður Gunnarsson, langafi minn var einnig náttúrufræðingur og sá maður sem þá þekkti öðrum betur hálendi Islands. Mér verður oft hugsað til þessa forföður míns vegna ferða minna og starfa. Lærði iandafræði í gegnum styrjaldafréttir Hvencer kviknar áhugi þinn á stjórnmálum? Ég var mikill áhugamaður um stjórnmál alveg frá blautu barns- beini. Ég ólst upp á tímum seinni heimstyrjaldar en ég var fjögurra ára þegar stríðið braust út. Það var í fyrsta skipti keypt útvarp á heimilið árið 1940 og það var setið við það og fylgst með þessum mikla hildarleik með landabréfið fyrir framan sig. Þannig lærði ég mína landafræði, í gegnum styrjaldarfréttir. Þetta ýtti undir áhuga á alþjóðamálum og þar af leiðandi stjórnmálum. Ég hef alla tíð litið á stjórnmál sem sjálfsagðan hluta tilverunnar. Ég lít ekki svo á að heitið stjórnmálamaður eigi að gilda um þá sem hafa atvinnu af stjórn- málastarfi. Stjórnmálin ættu að vera sjálfsagður hluti af lífi hvers manns og eru auðvitað undistaða lýðræðis, það að almenningur taki virkan þátt og hafi áhuga á stjórnmálum. Hvernigfinnstþérhorfa um áhuga ogþátttöku almennings í dag? Mér finnst því miður áhugi manna hafa dalað mikið. Það hefur þrengst mikið sýn manna til sam- félagslegrar þátttöku. Það á ekki bara við um stjórnmálaflokkana og hin hörðu stjórnmál. Það á við um svo fjölmargt annað sem varðar samfélagið. Fólk sinnir öllum mögu- legum hlutum og hefur áhuga en það er miklu þrengra sjónarhorn og þrengra svið sem menn eru að skipta sér af. Þetta er hluti af einstaklings- hyggju sem hefur vaxið til muna í seini tíð. Sú sýn að hver og einn eigi að hugsa um sig og að menn eigi fyrst og fremst að skara eld að sinni köku efnalega séð er ekki æskileg. Ef ná á samfélagslegum árangri þarf að hlúa að samfélaginu í heild en hver og einn ekki bara hugsa um sitt þrönga svið. Neyslukapphlaupið er mjög tímafrekt og íslendingar eru jú þekktir fyrir það að vera vinnusamir og taka að sér aukastörf í brauðstrit- inu til þess að geta tryggt sér efnis- leg gæði. Þetta hefur að mínu viti oft verið á kostnað þess að standa vörð um samfélagsleg gildi. Einkabréf áforsíðu Morgunblaðsins Hvað mótaði þína hugmyndafræði? Eg taldi mig sósíalista þegar ég fór til náms í Austur-Þýskalandi. A menntaskólaárunum á Akureyri yf- irgaf ég æskuýðssamtök Framsókn- arflokksins þegar bandaríski her- inn kom hér á einni nóttu 1951. Þá hrundi það traust sem ég bar til for- ystu þess flokks. Menn gengu á bak orða sinna með mjög grófum hætti. Menn lofuðu því þegar þeir studdu inngöngu í Atlantshafsbandalagið 1949 að hér yrði aldrei her á friðar- tímum. Svo kemur í ljós vorið 1951 að búið er að gera íeynisamning sem enginn vissi af, ekki Alþingi, heldur aðeins fáir útvaldir. Það var engin umræða. Hér var bara allt í einu kominn her. Ég var leitandi i tvö ár og að velta hlutunum fyrir mér. Ég náði tengslum við róttæka námsmenn fyrir norðan, gerðist þar formaður í málfundafélagi og var þá komin í fyrsta félagsmálahlutverkið sem ég tók að mér. Allt þetta blandast saman, stríðið, alþjóðapólitíkin, innanlandspólit- íkin og kalda stríðið. Maður komst á bragð róttækra höfunda eins og Halldórs og Þórbergs á mennta- skólaárunum. Halldór var tabú á mínu æskuheimili en ég lá í bókum hans og fleiri róttækra rithöfunda á menntaskólaárunum. Hvernig stóð á því að þú fórst til náms í Austur-Þýskalandi? Ég ætlaði að nema líffræði sem var þá ekki kennd víða. í náttúru- fræðum voru í þá daga kenndar þröngar sérgreinar, dýrafræði, grasa- fræði, fuglafræði o.s.frv. Ég vildi fara í breitt nám og var að leita eftir skóla sem kenndi líffræði. Á Norður- löndum var enn verið að greina nátt- úrufræðina niður I einstaka þætti í háskólum. Það var byrjað að kenna líffræði í Þýskalandi og það var ein ástæðan fyrir því að ég valdi há- skólann í Leipzig til náms. Öðrum þræði var það heimspekilegur áhugi líka. Ég hafði á menntaskóla- árunum vaxandi áhuga á að skapa mér heimsmynd og safna í sarpinn til að reyna að skilja tilveruna. Mér fannst að náttúrufræði á breiðum grunni hlyti að vera gefandi í þeim efnum og ég hef ekki orðið fyrir von- brigðum með það. Hvernig var reynslan af náminu fyrir austan tjald? Ég var tiltölulega sáttur við námið í Þýskalandi. Menn fengu til þess styrki og það var mikill agi. Það var nánast skylda að sækja kúrsa og halda sig að námi. Austur- Þýskaland var ekki til á kortinu hérlendis á mínum námsárum, það var ekki viðurkennt af íslandi sem ríki á þeim tíma. Það var ekki fyrr en síðar að það var tekið Upp stjórnmálasamband. Það var mikil reynsla að vera þarna fyrir austan tjald á þessum tíma. Það var mikil spenna milli þýsku ríkjana. Þarna fékk maður innsýn í veruleika sem fáir höfðu kynni af vegna þess að járntjaldið skildi að. Það voru stúd- entar í flestum austantjaldsrikjum á þessum árum og flestir voru þeir í Austur-Þýskalandi. Við bárum saman bækur okkar og héldum hópinn og höfðum mikinn pólit- ískan áhuga. Það leiddi til tíðinda hér heima í pólitíkinni. Bréfaskipti okkar komust í óvandaðra hendur og var slegið upp í Morgunblaðinu sem lið í kosningabaráttu árið 1962. Bréfin voru kölluð SlA-skýrslurnar því við höfðum með okkur félags- skap sem kallaðist Sósíalistafélag Is- lendinga austantjalds. Voru þetta einkabréf? Þetta voru einkabréf. Bæði sendi- bréf og rapportar sem við skiptumst á og fjölfölduðum með kalkipappír á ritvélar okkar. Innihald þeirra þótti efni í umræðu um kalda stríðið sem var í hápunkti á þessum árum. Þetta var nú svolítið kómískt því annars- vegar áttu frásagnir okkar að stað- festa hversu skelfilegt ástand væri þarna megin tjalds, því við vorum mjög gagnrýnir á margt, og að hinu ley tinu var málið sett upp þannig að verið væri að ala þarna upp fimmtu herdeild einhverskonar. Þetta var ekki mjög sannfærandi og rímaði illa saman. Hvernig varð þér við þegar einka- bréfþín voru komin til birtingar í opinberu blaði? Þetta hreyfði auðvitað við manni og var ekki mjög skemmtilegt. Ég var á kafi í námi á þessum tíma við að skila lokaritgerð og þess háttar, svo ég hafði ekki mikinn tíma til að skipta mér af þessu en það voru nokkrir komnir heim sem svöruðu fyrir sig. Það var í kjölfarið farið í mál og við fengum dæmd höfundarlaun og Heimdallur borgaði sektir því hann matreiddi bréfin á sinn hátt í bókarformi. Hvernig komust þessi bréf í hend- urnar á Heimdellingum? Þessu var stolið ofan af háalofti úr föggum eins úr hópnum. Það getur verið fróðlegt fyrir þá sem rýna í liðna tíð að skoða þetta nánar. Við af- hentum Landsbókasafninu gögnin. Vítamínsprauta í Qórðunginn Þú kynntist konunniþinni á náms- árunum erþað ekki? Jú, hún stundaði nám í læknis- fræði við sama háskóla og er jafn- gömul mér. Við kynntumst þarna, tókum saman og stofnuðum heimili og eignuðumst son, okkar einka- barn. Við fluttum svo til íslands á miðju sumri 1963. Það var nú ekki algengt á þessum tíma að útlend- ingar kæmu hingað með læknapróf og spurning var í fyrstu hvort það yrði viðurkennt eða ekki. Hún fékk starfsleyfi til bráðabirgða en skil- yrði samkvæmt lögum var að hún yrði íslenskur ríkisborgari áður en lækningaleyfi hennar yrði fullgilt. Það losnaði starf við sjúkrahúsið á Norðfirði um haustið 1963 og hún var ráðin í starf aðstoðarlæknis. Niðurstaðan varð sú að hún var þar starfandi læknir í 42 ár og lauk þar störfum síðastliðið haust. Henni var vel tekið af öllum og varð fljótt full- gildur borgari. Var ekkert erfitt að sannfæra hana um að flytja hingað upp á norðurhjara? Nei. Mig minnir það hafi verið sammæli um leið og við tókum saman að hún fylgdi mér til Islands. Það var aldrei nein spurning um það í mínum huga að setjast að erlendis. Það kom aldrei til greina. Hvað beið líffræðings við heimkomuna? Sérfræðistörfum var ekki mikið fyrir að fara fyrir náttúrufræðinga á þessum tíma og litlu fé veitt til náttúrurannsókna, reyndar er það ófullnægjandi enn í dag þótt margt hafi breyst til batnaðar. Ég réð mig til kennslu við Gagnfræðiskólann í Neskaupstaðog kenndi mörg fög, ís- lensku og náttúrufræði þó aðallega. Svo fóru að hlaðast á mig önnur verkefni sem ég tók að mér og smám saman dró ég úr kennslu og hætti svo alfarið eftir átta ár. Næstu ár var ég sjálfstætt starfandi við marg- vísleg verkefni sem ég skapaði mér sjálfur. Ég tók að mér að koma upp náttúrugripasafni á vegum Neskaup- staðar sem opnað var 1971 og sinnti rannsóknum á sumrin, aðallega gróðurrannsóknum, sem ég stund- aði út frá safninu. Einnig stýrði ég Safnastofnun Austurlands sem sett var á laggir að minni tillögu og varð mikil vítamínsprauta fyrir söfn í fjórðungnum. Svo tók ég að mér formennsku í nefnd um byggingu menntaskóla á Austurlandi sem byggður var frá grunni á árunum 1973-1979- hað var heljarinnar starf og um leið var lagður grunnur að framhaldsnámi almennt á Austur- landi. Ég hafði einnig forgöngu um að stofnuð voru náttúruverndarsam- tök fyrir fjórðunginn, Náttúruvernd- arsamtök Austurlands, NAUST. Þetta voru umsvifamikil ár. Árið 1971 hafði ég fylgst með undirbún- ingi vegna umhverfisráðstefnu Sam- einuðu þjóðanna í New York og var fulltrúi í sendinefnd Islands á Stokk- hólmsráðstefnunni 1972. Það sama ár var ég kosinn í Náttúruverndar- ráð á náttúruverndarþingi og í ráð- inu starfaði ég í sex ár til 1978 með mörgu góðu fólki. Beint í ráðherrastól Hvernig æxlast það að þú ferð í framboð til Alþingis? Það var ekki mitt keppikefli að verða stjórnmálamaður að aðal- starfi. Það voru tilviljanir sem réðu því að ég endaði inni á þingi árið 1978 og var þar þátttakandi í tuttugu og eitt ár. Ég fór beint í félagsskap fyrir austan, Sósíalistafélagið í Neskaups- stað, þegar ég fluttist heim. Þá var gerjun í gangi. Alþýðubandalagið var þá kosningabandalag vinstri krata og sósíalista en byrjað var að koma fótum undir Alþýðubanda- lagið sem félagslegt afl. Ég varð fyrsti formaður Alþýðubandalags- ins í Neskaupsstað og tók að mér formennsku í kjördæmaráði þess. Einnig lenti ég í þriðja sæti á fram- boðslista AB í kosningunum árið 1967. I framhaldinu vann ég að því markvisst að þrepa mig niður á framboðslistum en árið 1977 var á ný lagt að mér að taka þriðja sætið. Ég hugsaði með mér að það væri nú ekki hundrað í hættunni, ég myndi ekki lenda á þingi, en þá verður fylg- issveifla Alþýðubandalagsins slík að við erum þrír kosnir þarna fyrir austan og ég er allt í einu kominn inn á þing. Þetta var allt með sérstökum hætti því ég var kominn í ríkisstjórn áður en ég settist inn á þing. Eldri og reyndari menn i þingflokknum færðust undan því að taka að sér ráð- herrastöðu. Það sem auðveldaði mér að taka að mér iðnaðaráðuneytið var að ég var ásamt öðrum búinn að vinna að mótun orkustefnu fyrir Alþýðubandalagið en slík heildstæð stefnumótun var alger nýlunda á þessum árum. Við gáfum út rit, ís- lensk orkustefna, undirtitill orku- gjafar og nýting innlendra orku- linda. I þessari stefnumörkun voru mjög ákveðnar áherslur á umhverfis- málin og einnig það var nýbreytni. Og þessi kosning tnarkaði ríflega tuttugu ár á þingi. Ég var miklu lengur á Alþingi en ég hefði kosið út frá eign viðhorfum.

x

blaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.