blaðið - 25.03.2006, Side 24
241 UNGA fouhðT
LAUGARDAGUR 25. MARS 2006 blaAÍA
Tekist á með tunguna að vopni
Ræðulið Verzlunarskólans fagnar sigri í Morfís árið 2004. BlatmeiimHug!
Mælsku- og rökræðukeppni
framhaldsskóla á Islandi
(Morfís) hefur fyrir löngu
unnið sér fastan sess í félagslífi fram-
haldsskólanema hér á landi. Fram-
haldsskólanemar hafa att kappi sín á
milli í rökræðum og orðfimi frá því
í haust og á föstudaginn er komið
að úrslitarimmunni. Að þessu sinni
eru það ræðulið Menntaskólans
við Hamrahlíð og Menntaskólans
í Reykjavík sem munu leiða saman
hesta sína.
Spenna í lofti
Að sögn Brynjars Guðnasonar fram-
kvæmdastjóra Morfís ríkir mikil
BlaliS/Steinar Hugi
Brynjar Guðnason framkvæmdastjóri
Morfís telur að keppnin myndi njóta
sömu vinsælda og Gettu betur ef meira
yrði lagt í markaðssetningu hennar.
spenna fyrir keppnina enda tvö
stórveldi sem takast á. „Það er mjög
mikil stemning fyrir þessu. Þetta
eru líka lið sem hafa ekki unnið i
nokkur ár og hvorugt var í úrslitum
í fyrra. Verslunarskólinn hefur
unnið síðustu þrjú ár þannig að
það er meiri stemning en ella,“ segir
Brynjar.
Stundum er talað um lok níunda
áratugarins og upphaf þess tíunda
sem gullaldarskeið Morfís en þá
vakti keppnin mikla athygli, ekki
aðeins innan framhaldsskólanna
heldur í samfélaginu öllu. Liðsmenn
sigurliðanna urðu þjóðþekktir og
birtust í auglýsingum og sjónvarps-
þáttum. Brynjar tekur undir að áhug-
inn á keppninni hafi að einhverju
leyti dalað á undanförnum árum.
„Við erum nýbúin að setja á laggirnar
framtíðarnefnd sem fær það verk-
efni að ræða hvort það eigi að gera
einhverjar breytingar á keppninni
þannig að hún höfði til fleiri og vekji
meiri athygli," segir Brynjar.
Keppnin íyfirhalningu
Fyrirkomulag keppninnar hefur
verið með föstu formi í gegnum tíð-
ina og vonast Brynjar til að framtíð-
arnefndin muni skila einhverjum
tillögum og að breytingar gætu því
orðið á keppninni næsta vetur. „Það
er hætta á að svona keppnir staðni
og þess vegna ætlum við að setja
hana í yfirhalningu," segir hann.
Upptaka af úrslitakeppninni á
föstudag verður sýnd á sjónvarps-
stöðinni Sirkus síðar í vetur en
Brynjar telur að samstarf við sjón-
varpsstöðvar sé lykillinn að því að
Morfís veki athygli utan framhalds-
skólanna. „Ég hef þá kenningu að ef
Morfís myndi fá sömu markaðssetn-
ingu og Gettu betur hefur fengið
þá yrði það mun vinsælla efni en
sú keppni," segir hann. „Oft hefur
maður á tilfinningunni að maður
viti svo lítið þegar maður'horfir á
Gettu betur en þarna getur maður
myndað sér skoðun á efninu sem
er verið að ræða um og verið virkari
þátttakandi í því sem maður er að
horfa á,“ segir hann.
Undirbúningur fyrir
framtíðarleiðtoga
Brynjar segir að Morfís hafi ótví-
rætt fræðslugildi og sé aukinheldur
góður undirbúningur fyrir fólk sem
vilji láta á sér bera og í sér heyra í
framtíðinni. I því sambandi bendir
hann á að fjöldi fólks sem nú sé áber-
andi í þjóðfélaginu hafi fyrst vakið
athygli í Morfís-keppnum og megi
þar meðal annars nefna stjórnmála-
mennina Helga Hjörvar, Gísla Mar-
tein Baldursson og Dag B. Eggerts-
son og fjölmiðlamennina Ingu Lind
Karlsdóttur og Sigmar Guðmunds-
son. Ef til vill eiga ræðuskörung-
arnir sem stíga á svið Háskólabíós
á föstudag því eftir að láta meira að
sér kveða í framtíðinni.
Hvað er að gerast?
Blaðið fjallar reglulega um félags-
líf, tómstundastarf, afþreyingu og
annað sem ungt fólk tekur sér fyrir
hendur. Fólk er hvatt til að senda
okkur upplýsingar um efni sem
gæti átt heima á síðum unga fólks-
ins, gildir þá einu hvort um er að
ræða félagastarf, tónleikahald, leik-
sýningar eða eitthvað allt annað.
Koma má upplýsingum á framfæri
með því að senda tölvupóst á net-
fangið einar.jonsson@bladid.net.
Nordjobburum stendur ekki aðeins til boða fjölbreytt störf heldur gefst þeim jafnframt kostur á að stunda margvíslegt tómstunda-
starf og kynnast jaföldrum sínum frá hinum Norðurlöndunum.
Sumarvinna í úttöndum
hverju landi er boðið upp á dagskrá
sem felur í sér til dæmis námskeið,
ferðir, pöbbakvöld eða annað slíkt,“
segir Óðinn. „Augljóslega kynnist
maður landinu sem maður sækir
heim en maður kynnist líka fólki frá
öllum Norðurlöndunum vegna þess
að þegar vel tekst upp er hópurinn
samsettur af fólki frá öllum Norður-
löndunum. Upp úr þessu hafa mynd-
ast sambönd, vinátta, hjónabönd,
börn og hugsanlega barnabörn
bráðum," segir hann. „þetta er því
frábært tækifæri fyrir ungt fólk til
að fá alþjóðlega atvinnureynslu, efla
kunnáttu í Norðurlandamálunum
og mynda tengsl við fólk.“
Þeir sem hafa áhuga geta skilað
umsókn á sænsku, dönsku eða
norsku á netinu www.nordjobb.net.
Umsóknarfrestur rennur út í lok
maí. Umsækjendur skulu vera á aldr-
inum 18-28 ára og ríkisborgarar í ein-
hverju Norðurlandanna. „Ef maður
vinnur umsóknina sína vel þá eru
meiri líkur á að maður nái að sann-
færa vinnuveitenda í öðru landi um
að ráða sig í vinnu,“ segir Óðinn að
lokum.
Ef fólki langar að breyta til í sumar
og prófa eitthvað nýtt og spennandi
er Nordjobb ekki vitlaus kostur. Nor-
djobb hefur útvegað íslenskum ung-
mennum á aldrinum 18-28 ára sum-
arvinnu á Norðurlöndunum í rúma
tvo áratugi og er ásóknin enn góð
þrátt fyrir að hún hafi dalað aðeins á
undanförnum áratug enda ýmislegt
annað sem fólki stendur til boða. Að
auki koma um hundrað manns frá
Norðurlöndunum hingað til lands
og hefur gengið vel að útvega þeim
vinnu á þessu ári.
Óðinn Albertsson framkvæmda-
stjóri Norræna félagsins sem sér um
Nordjobb á Islandi segir að störfin
sem boðið sé upp á séu nokkuð fjöl-
breytt en einkum sé um að ræða
störf í verslun og þjónustu. Sum
fyrirtæki hafa tekið þátt í verk-
efninu árum saman, allt frá lítilli
framköllunarstofu í Helsinki til stór-
fyrirtækja á borð við Póstinn í Dan-
mörku. „Þá taka stærri vinnustaðir
eins og hjúkrunarheimili allt að 20
manns í einu og sveitarfélögin bjóða
upp á garðyrkjustörf eins og hér á
landi,“ segir Óðinn.
Ekki aðeins sumarvinna
Auk þess að útvega fólki vinnu í allt
að fjóra mánuði aðstoðar Nordjobb
fólk einnig við að finna húsnæði og
afgreiðslu hagnýtra atriða eins og
að útvega skattkort, kennitölu og
annað slíkt. „Þetta er Hka ákveðinn
félagsskapur og öryggisnet ef eitt-
hvað kemur upp á,“ segir Óðinn sem
bendir jafnframt á að Nordjobb snú-
ist um meira en aðeins atvinnu. „I
Óðinn Albertsson framkvæmdastjóri
Norræna félagsins segir Nordjobb vera
frábært tækifæri fyrir ungt fólk að öðlast
alþjóðlega atvinnureynslu, efla kunnáttu
í norðurlandamálum og mynda tengsl
viðfólk.