blaðið - 30.03.2006, Side 1

blaðið - 30.03.2006, Side 1
% - m vTur: # LOKSINS AISLENSKU RISA-POTTAR ALLA DAGA betsson.com Farðu þér hœgtl 3...þú hefur alla helgina daga helgi, ótakmarkaöur akstur. Verö frá kr 4.067 ,■ dagurinn. rbcars.is Sími: 581 1186 FÆST I OLLUM HÉLSTU BLOMA- OG BÓKAVERSLUNUM LANDSiNS MULALUNDUR VINNUSTOFA SÍBS « Hátúni 10c « Pósthólf 5137 « 125 Reykjávík Fjárhættuspil á Netinu til skoðunar Undanfarið hafa birst í blöðum og vefmiðlum auglýsingar frá fyrirtækinu betsson.com þar sem sagt er frá vefsíðunni, sem býður fólki upp á að leggja peninga undir í alls kyns fjár- hættuspilum. Þær spurningar hafa vaknað hvort auglýsingar af þessu tagi brjóti í bága við ís- lensk lög. í auglýsingunum er sagt frá því að nú gefist íslendingum loks tækifæri a því að veðja á Netinu og spila póker þar sem hægt er að vinna sér inn stórar fjárhæðir. Þessháttar síður hafa notið sívaxandi vinsælda hér á landi en bettson.com er fyrsta síðan sem býður þjónustuna á íslensku. Hörður Jóhannes- son hjá lögreglunni í Reykjavík staðfestir í samtali við Blaðið að lögreglan sé að kanna málið en að það er enn á frumstigi. „Við erum að athuga málið,“ segir hann. „Okkur var bent á þetta og mér sýnist að þetta geti stang- ast á við lög um happdrætti.“ Bannað að auglýsa fíárhættuspil I almennum hegningarlögum segir að „sá sem gerir sér fjár- hættuspil að atvinnu eða kemur öðrum til þátttöku í þeim,“ skuli sæta sektum eða fangelsi allt að einu ári. Vefsíðan sem um ræðir er hins vegar vistuð erlendis þannig að ólíklegt þykir að lögin nái yfir þessa starfsemi. „En það er að minnsta kosti bannað að aug- lýsa slíka starfsemi og kynna ef ekki er leyfi fýrir henni. Það er liður í því alþjóðlega banni sem er við fjárhættuspilum yfirleitt, það er að segja fjárhættuspilum sem ekki er leyfi fyrir. En þetta tiltekna mál er til skoðunar,“ segir Hörður Jóhannesson. Ekki náðist í forsvarsmenn betsson. com við vinnslu fréttarinnar. BMiö/SteinarHugi Vill innanlandsflug til Keflavíkur Stefán Jón Hafstein, borgarfulltrúi, ítrekarþá skoðun sína að innanlandsflugið eigi heima á Keflavíkurflugvelli, að því gefnu að samgöngur til Keflavíkur verði stórbœttar. „Ég er með þetta í umræðunni," segir Stefán Jón Hafstein, borgar- fulltrúi, aðspurður hvort hugmynd hans um að flytja innanlandsflugið til Keflavíkur og stórbæta í staðinn samgöngur við miðborgina komi enn til álita. í kjölfar frétta af því að Bandaríkjamenn hafa ákveðið að yfirgefa Keflavíkurflugvöll hafa vaknað spurningar um framtíð innanlandsflugsins í Vatnsmýri. Samstarfshópur borgar og sam- gönguráðuneytis er að störfum og segist Stefán halda að þar sé öðru fremur verið að líta til þess að byggður verði annar flugvöllur á höfuðborgarsvæðinu. Tengsl borgarinnar við umheiminn „Ég hef hins vegar alltaf sagt að þessi leið sé miklu skynsamlegri en að byggja annan flugvöll og sú skoðun mín hefur ekkert breyst.“ Stefán vill að hugmyndin verði að minnsta kosti einn af þeim kostum sem til greina komi. „Ef menn eru að skoða það að byggja annan flugvöll á Reykjavíkursvæðinu kæmi ef til vill til greina að byggja litinn flugvöll sem sinnt gæti sjúkraflugi, en inn- anlandsflugið sjálft finnst mér að eigi heima í Keflavík, að því gefnu, að hraðbraut verði þá lögð sem tengi miðborgina við Keflavíkurflugvöll. Þá er ég líka að hugsa um tengsl höf- uðborgarinnar við umheiminn ekki síður en við landsbyggðina.“ Til Keflavíkur á 20 mínútum Hugmynd Stefáns gengur út á að Skerjafjörður verði þveraður yfir á Álftanes og þaðan verði grafin göng til Straumsvíkur. Þannig væri hægt að aka til Keflavíkur á um 20 mín- útum úr miðborginni. „Þá er líka komin mjög mikilvæg hringtenging inn í borgina því þá þurfa ekki allir að ferðast eftir Miklubrautinni til þess að komast til og frá miðbænum.“ Aðspurður hvort hann hafi upplýs- ingar um að samstarfshópurinn sé með þennan möguleika til skoðunar segist Stefán ekki vita það. Stefáni skilst þó að aðallega sé verið að horfa til annars flugvallar í nágrenni borg- arinnar. „Ég hef hins vegar bent á að þessi hópur ætti ekki að útiloka þennan möguleika fýrirfram, það væri hið mesta óráð að gera það að mínu mati.” FERMINGARDAGURINN MINN Gestabók • Myndir • Skeyti m \rö.\^uniin minn 1 L__ Jcnníng.vtí»Agnnim minn C<csub6k - CDynbU Sko-tt

x

blaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.