blaðið - 30.03.2006, Blaðsíða 38
38IFÓLK
FIMMTUDAGUR 30. MARS 2006 blaöiö
borgarinn
VÖLUSPÁ
Smáborgarinn skemmtir sér oft óborgan-
lega þegar hann veltir fyrir sér skyldleika
oróanna. Svona eins og margir með skyld-
leika mannanna. Margar orðsifjar eru slikar
að þær setja skilning Smáborgarans á ver-
öldinni í allt annað samhengi. Gefa honum
svigrúm landnáms handan hins þekkta og
kannaða. Smáborgarinn hefur engin sérstök
vísindi fyrir sér við þessa iðju sína svo hér
reynir allverulega á almenna skynsemi. Ekki
ervanþörfá.
Smáborgarinn hefur oft og einatt tekið eftir
því þegar hann fer í gegnum fræðin íslensku
að íhaldssemi gegnsýrir skýringar fræði-
manna á hinum fornu fræðum Völuspár.
Fyrst þegar Smáþorgarinn lagði það fyrir sig
að kanna sögu kvæðisins og merkingu þess
þótti honum megnið af útskýringunum sam-
hengislausar, fumkenndar og sumar hverjar
algerlega óskiljanlegar.
Það var ekki fyrr en farið var í náskyld fræði
annarra og nátengdra þjóða eins og goð-
sagnir Kelta, já og goðsagnir almennt sem
Smáborgarinn áttaði sig á því að fræðunum
Völvu hafði verið velkt í höndum furðulost-
innaguðhræddra mannasem hölluðu sérað
einguðnum fremur en öðrum guðum, hvað
þá gyðjum. Þannig var ósköp fátt um fína
drætti þegar Smáborgarinn gerði leit að
fræðimönnum sem kunnu meira fyrir sér en
faðirvorið.
Auðvitað eru þetta svolitlar ýkjur en ekki
fjarri lagi þó. Öldum og áratugum saman
hafa miðaldra menn velt fyrir sér Völuspá,
þessum innstu rökum íslenska menningar-
arfsins, og komiðfram með heldurfurðuleg-
ar hugmyndir margir hverjir. Sem sérkenni-
lega oft missa algerlega marks og skýra fátt.
Kannski skortir þá skilning á þeim farvegi
sem spáin ersprottin úr.
Einhverju sinni hitti Smáborgarinn vísinda-
mann sem sagðiað upphaf vísindanna mætti
auðvitað rekja til þess hve forvitin maðurinn
væri um konuna. Vísindamenn væru eins og
litlir strákar sem vildu kíkja undir pilsin. Smá-
borgarinn er auðvitað hrokafullur en finnst
eins og það hafi kannski þurft konu til að
benda á hið augljósa (goðsagnafræðunum
íslensku.
Séu orðsifjarnar skoðaðar verða málin svo
dásamlega einföld. Völva er sú er segir frá
í Völuspá. Völva. Seiðandi orð. Kannski ekki
að ástæðulausu. Orðið er borið nákvæmlega
eins fram á skyldri tungu. Völva. Vulva, skrif-
að á ensku. Smáborgaranum er kannski
einum um að þykja þetta augljóst. En segir
þetta ekki allt sem segja þarf? Það þarf
líklega kvenlegt innsæi til.
HVAÐ FINNST ÞÉR?
Björgvin G. Sigurðsson, alþingismaður.
Ertu truntulegur?
„Nei, alls ekki. Allra síst við menntamálaráðherra sem átti erfiðan dag og brást
því ókvæða við ágengum spurningum okkar um framtíð Háskóla íslands."
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, menntamálaráðherra, var beðin um að gæta orða sinna í umræðum í gær af forseta Alþingis. I
umræðum um málefni Háskólans sagðist hún vona„að háttvirtir þingmenn hætti nú að vera svona truntulegir."
Mischa Barton hefur skotist griðarhratt upp á stjörnuhimin- Isabella Rosselini fór alla leið til Perú á frumsýningu næstu kvikmynd-
inn í Hollywood og lifir nú lífi stórstjörnu. A dögunum var ar sinnar, The Feast of the Goat. Myndin er gerð eftir sögu Mario
hún sérstakur gestur aðalhönnuðar Bebe fatalínunnar þegar Vargas Llosa frá Perú og mætti hann líka á sýninguna í Lima.
nýjasta tískulínan var kynnt í Los Angeles.
Gamli refurinn Tom Jones var kampakátur Destiny's Child stúlknahljómsveitinni, sem reyndar er í „pásu" þessa dagana, var veitt
eftir að Ellsabet II Englandsdrottning sló stjarna á Frægðargöngu Hollywood I gær. Þær mættu hressar þrátt fyrir rigningu og
hann til riddara í Buckinghamhöll. brostu slnu breiðasta.
eftir Jim Unger
SERBLAÐ
BILAR
Mánudaginn 3.apríl
= blaöió^ --!■■■■
Auglýsendur, upplýsingar veita:
O Pc.;:: : lót .f • .'N ’ |0 371 • !! ^.46 (líO ! • :: ;!
Eiten Ágúst Ráasori • Simí 510 37• tísm : idia • e
•■;:,-: • . ■ ■•■■: imi@I ■ ■ ■
Nákvæmlega hvað er júmbóborgari?
6-11
© Jim Unger/dist. by Unlted Media, 2001
HEYRST HEFUR...
Eins og greint var frá hér í
Blaðinu um daginn lét ís-
landsóvinurinn og snobbkrydd-
ið Victoria Beckham svo um
mælt á dögunum að hún vildi
fremur skera af sér handlegg-
ina og hárlengingarnar en að
auglýsa fyrir frystivörukeðjuna
Iceland, sem er í eigu Baugs.
Núverandi „andlit“ Iceland er
hin barmvæna Kerry Katona,
sem gerði garðinn frægan með
stúlknasveitinni Atomic Kit-
ten, og henni var ekki skemmt
yfir drambi frú Beckham í garð
Iceland. Talsmaður hennar lét
enda i sér heyra vegna málsins
og sagðist vel vita hvers vegna
Iceland fékk fr. Katona til starf-
ans fremur en frú Beckham.
„Þá vantaði unga móður, ekki
miðaldra móður.“ Ái...
Ofurbloggar-
inn Ossur
Skarphéðinsson
fer mikinn í
málgagni sínu
(ossur.hexia.net)
og tekur vörn ís-
lenskubankanna.
Segir hann þá ná
að beisla sköpunaþrá hinnar
ungu, velmenntuðu kynslóðar,
sem geti fundið viðnám krafta
sinna hér heima á Fróni. Það
sé eitthvað annað en hann
hafi mátt kynnast þegar hann
stóð á lopapeysu á hafnarbakk-
anum nýkominn úr námi á
kostnað Margrétar Thatcher.
Hins vegar átelur Össur Morg-
unblaðið fyrir fréttaflutning
sinn af málefnum bankanna að
undanförnu og segist sem gam-
all ritstjóri þekkja það hvað að
baki býr þegar rekið sé upp gól
á forsíðu. Þarna vísar Össur til
áranna sinna á Þjóðviljanum,
en þar á bæ var það kallað gól
þegar blaðið sló einhverjum
vandlætingum á forsíðu, yfir-
leitt til þess að komast hjá því
að ræða eitthvað annað óþægi-
legra...
■■
Oissur þykist viss um að
„Danski Moggi“ muni
fjalla um skrif sín á næstöft-
ustu síðu inn-
an skamms
og segja eitt-
hvað á þá leið
að bankarnir
séu líklega
líka búnir að
kaupa Össur
Skarphéðins-
son. Má vera.
En það er samt gaman að sjá
gamla Þjóðvilja-brýnið gerast
málsvara auðvaldsins! En það
er kannski í stíl við annað;
herra Ólafur Ragnar Grímsson
hefur lengi lofsungið útrásar-
furstana, Svavar Gestsson dró
penna sinn úr slíðri fyrir ís-
lenska auðmenn i dönsku press-
unni á dögunum og svo mætti
áfram telja. Er þess varla langt
að bíða að Hjörleifur Guttorms-
son komi fram í auglýsingu fyr-
ir einhvern bankann...
Egill Helga-
son veltir
því fyrir sér á
bloggi sínum
(www.visir.
is/silfur) hvort
Pétur Gunnars-
son hafi verið
ráðinn fréttastjóri á Fréttablað-
ið til þess að friða framsóknar-
menn, sem munu hafa verið
fúlir út í ritstjórnarstefnuna.
Minnir Egill á að Pétur hafi ver-
ið harður gagnrýnandi Frétta-
blaðsins og Baugsmiðlanna og
setið í fjölmiðlanefndinni fyrir
tveimur árum. Hlakkar Egill til
þess að lesa leiðara eftir Pétur...