blaðið - 30.03.2006, Blaðsíða 26
FIMMTUDAGUR 30. MARS 2006 blaöiö
Er aldurinn aístœður?
Hverjir eru kostir oggallar þess að makinn sé mörgum árum yngri, eða eldri?
Stórstjörnur á borð við Cameron
Diaz, Catherine Zeta Jones og
Demi Moore eru ekki einar um
að eiga menn sem eru miklu eldri,
eða yngri en þær sjálfar.
Að láta sig aldurinn litlu varða
virðst hreinlega vera í tísku
um þessar mundir en síðan á
sjötta áratug síðustu aldar hefur
aldursbil umfram fimm ár á milli
para, aukist um heil 36%
Og öllu áhugaverðari er sú staðreynd
að samböndum, þar sem konan er
töluvert eldri en maðurinn, hefur
fjölgað um meira en helming.
Það eru reyndar ekki til neinar
tölfræðilegar úttektir á þessu
sambandsformi í þeim tilfellum
þar sem pör búa saman í óskráðri
sambúð, -en það er talið er að
áberandi aldursmunur sé algengari
í þessum samböndum, þar sem fólk
sem ekki setur upp hringana er oft
minna undir áhrifum hefða eins og
það fólk sem gengur í það heilaga.
Um leið og hlutverkaskiptingar
karla og kvenna jafnast út innan
heimilisins sem utan, hefur
sjóndeildarhringur okkar hvað
varðar valið á hinum fullkomna
maka einnig breikkað. „Hvítlökkuð
girðing, jeppi, 9-5 vinna og tvö
falleg börn“ er ekki endilega lengur
sú hugmynd sem fólk gerir sér
fullkomið (fjölskyldu)líf og sambönd
okkar eru á allan hátt fjölbreyttari en
þau voru hér áður fyrr. í dag skiptir
það meira máli að persónuleikar
fólks, áhugasvið og lífsskoðanir fari
saman, frekar en aldurinn sem er
skráður í vegabréfin.
Fimmtug og flott
Hér áður fyrr var fólk svo gott sem
komið í grtjfina eftir þrítugt. Það er
kannski fullsterkt til orða tekið, en
ekki verður hjá því komist að átta
sig á þeirri staðreynd að konur og
karlar virðast á flestan hátt vera
ung, heilbrigð og virk, töluvert
lengur en í gamla daga og þá á ég
við fólk á aldrinum 30-50 ára. Ef
við sinnum okkur rétt er ekkert sem
segir að kona eða karl á fertugsaldri
geti ekki líkamlega staðið jafnfætis
manneskju sem u.þ.b. tíu árum
yngri. Og andlega eru þarfir okkar
stöðugt að breytast. Sumir fæðast
gamlir, verða svo ungir um fertugt
og öfugt.
Þetta aukna heilbrigði okkar
gæti verið ein ástæða þess að nú
á 21. öldinni setjum við það síður
fyrir okkur að meira en fimm ára
aldursmunur sé fyrir hendi, jafnvel
þó að hann sé á bilinu tíu til tuttugu
ár. 1 stað þess að lyfta brúnum yfir
aldursmuni hafa vinir ogkunningjar
nýja parsins yfirleitt meiri áhuga
á að heyra hvernig kynnum þeirra
var háttað heldur en að fussa yfir
aldursmuni og koma með vondar
spár um að þetta eigi nú ekki eftir
að ganga. Viðmælandi okkar sem
hefur átt í tæplega tveggja ára
sambandi við mann, rúmlega tíu
árum yngri en hún sjálf, segir að
það sem heilli hana mest við unga
kærastann sé ákafi hans fyrir lífinu
-og náttúrlega henni sjálfri. Önnur
frjálslynd á fertugsaldri segir að
flestir jafnaldrar hennar sem hún
hafi hitt til þessa séu of uppteknir af
fortíð hennar og fyrri samböndum
til að hún treysti sér til að byggja
upp eitthvað með þeim, en nýi vinur
hennar, sem er sjálfur töluvert eldri
en hún, sættir sig við hana eins og
elskar hana eins og hún er í fortíð og
nútíð.
Elskan á inniskónum
Og talandi um nútíðina þá eru
einmitt mörg pör af þessari tengund
Fimmtán ára aldursmunur er á glæsiparinu Ashton Kutcher og Demi Moore en þau
láta það sig litlu skipta, enda er aldur afstæður og kemur ekki í veg fyrir að fólk verði
ástfangið.
semtalaumaðþaulifieinmittmeira við jafnaldra sína. Þó er ekki laust
ínúinuenþegarþauvoruísambandi við að annað slagið læðist að þeim
bakþankar þegar spurningin um
hvernig þetta verði eftir tíu, tuttugu
ár bankar uppá. Fólk og þarfir þeirra
breytast stöðugt eftir því sem árin
færast yfir. Ellilífeyrisþegar eru ekki
algengir gestir á skemmtistöðum
miðborgarinnar og það eru
afskaplega fá ungmenni sem láta sjá
sig í föndurhópum eða skipulaðri
félagsvist, hvað þá á bingókvöldum
í Vinabæ.
Það er vitað mál að það eiga alltaf
eftir að mæta parinu ákveðnar
áskoranir sem þau verða að takast
á við og um leið gera upp við sig
hversu miklu þau eru tilbúin til
að fórna fyrir sambandið, ef það á
að endast til frambúðar. Því meiri
sem aldursmunurinn er, því meira
þarf að íhuga. Eru báðir aðilar til
dæmis tilbúnir til að viðurkenna að
annað ykkar á eftir að verða gamalt,
töluvert á undan hinu? Kannski
á hlutverk yngri aðilans eftir að
breytast frá ástkonu/manni yfir í
umsjónarkonu/mann og það verður
sífellt erfiðara fyrir þig að draga
elskuna á inniskónum út að dansa
við aðra tónlist en tangó og vals.
Þetta eru vandamál sem eftir að
koma upp og þá þarf að horfast í
augu við þau og taka á þeim, en hvað
sem því líður þá má hugga sig með
þeirri staðreynd að öll sambönd,
hjónabönd og sambúðir þurfa á
málamiðlunum að halda. Fólk þarf
alltaf að sætta sig við hluti í lífi
hins aðilans sem ekki samræmast
hugmyndum hins um fullkomna
framvindu mála. Leiðir ástarinnar
eru aldrei auðveldar og hvers vegna
ætti þá að láta eitthvað á borð við
nokkura ára aldursmun koma á
milli þín og hinnar, eða hins eina
sanna?
margret@bladid.net
Vaxtalaus greiðslukjör í allt að 24 mánuði
(visa/euro) Engin útborgun
Sjóntækjafræöingur meö réttindi til
sjónmælinga og linsumælinga
GLERAUGNAVERSLUN
Gleraugað
í bláu húsunum við Faxafen Sími:568 1800
WARNEICSdoaor
flllir Uiorner's Brjóstahaldaror 4.400 kr. vcrö
óður allt að
7.200 kr.
Síðumúlct 3, sími: 553 7355
Opið virko cloga kl: 11 - 18, laugardago kl: 11-15