blaðið - 30.03.2006, Blaðsíða 24
24 I FERÐALÖG
FIMMTUDAGUR 30. MARS 2006 blaöið
Ferðafrömuð-
ur íslands
Gestir sem leggja leið sína í Fifuna
í Kópavogi um helgina geta einnig
kynnt sér þá fjölbreyttu ferðamögu-
leika og afþreyingu sem í boði eru
hér á landi á sýningunni Ferðatorg
2006 sem haldin er í Smáranum
við hliðina á Fífunni, frá föstudegi
til sunnudags. Öll ferðamálasam-
tök landsins - átta talsins - standa
að Ferðatorginu sem nú er haldið
í fimmta sinn. Sýningin Matur
2006 verður haldin á sama stað
en tæplega 400 fyrirtæki bjóða
til sælkeraveislu í Fífunni um
helgina og kynna spennandi heim
íslenskrar matargerðarlistar.
FERD.IS
Út f heim með Ferð.is
ÖRFÁ DÆMl UM I •'LUGVERD
HJÁ OKKUR Á FERD.IS
Bangkok 52.000
Beijing 52.500
Bali 60.600
Boston 26.000
Cairo 16.000
Chicago 32.000
Christchurch 79.900
Izmir 27.500
Los Angeles 33.300
Lanzarote 23.100
Mexico 45.400
New York 24.800
Örlando 40.000
Shanghai 60.400
Singapore 55.400
Svdney 85.000
Tenerife 29.600
Flugverð frá Danmörku
báðar leiðir án skatta
www.Ferd.is
Nánari upplýsingar í sínia:
846 2510
Eldfjallaeyjan fagra
Hin gríska Santoríní er þekktfyrir sitt sérkennilega og
dularfulla landslag, magnaða menningu og bragðríkan mat.
Áður fyrr var eyjan kölluð Kalliste,
sú fagra, vegna sérlegrar fegurðar
hennar.
Eyjan er hálfmánalöguð og hefur
myndast smám saman, frá forsögu-
legum tímum. Síðasta stóra gosið
þar varð fyrir 3600 árum og hafa
menn velt því fyrir sér hvort það
kunni að skýra eina söguna um plág-
urnar sem dundu yfir Egypta sam-
kvæmt Biblíunni. Frá þeim tíma eru
lítil gos algeng, nýlegast árið 1950
sem fæddi af sér tvær minni eyjar,
Paleu og Neu. Undir metraþykku
gjóskulagi liggja fornar rústir sem
hafa gjarna blásið glæður í sögur
um hina týndu borg Atlantis. Talið
er að eyjan hafi verið i byggð allt frá
þvi 3000 árum f. kr. en hún hefur
verið setin af nokkrum ólíkum
þjóðum. Tyrkir réðu þar ríkjum frá
1579-1821 en eyjan hefur alltaf þótt
liggja vel enda í stuttri fjarlægð frá
helstu höfnum austur-miðjarðar-
hafslandanna. Náttúrufegurð, saga
og menning hafa fætt af sér margvís-
lega afþreyingarkosti eyjarinnar.
Bragðmikil matarhefð
Matarmenning eyjaskeggja þykir
bera með sér forna menningar-
strauma og hráefnið sem ræktað er
á eynni er auðþekkjanlegt á sérstæði
sínu enda ræktað í vikurríkum
jarðvegi sem orsakar fyllra bragð.
Dvergtómatar eyjunnar eru sérlega
ljúffengir, skærrautt þykkt ysta lag
og vottar fyrir dásamlegri beiskju
í kjötinu. Caper lauf eru annað sér-
stæði í framleiðslu eyjaskeggja sem
gefa fræbelgjunum ekkert eftir og
henta vel í margvíslega pastarétti og
salöt. Sérstæðar gular linsubaunir
eru uppistaðan í sérlegum rétti eyjar-
innar, fava, auk jógúrtköku, hrísbúð-
ings og sítrónuböku. Á eynni er milt
loftslag, þar er 19 stiga meðalhiti í
maí og 27 gráðu meðalhiti í ágúst.
Auðvelt er að komast til eyjunnar
frá Aþenu sem tekur um fjörutíu
mínútur í flugi.
Atson seölaveski til fermingagjafa
Ókeypis nafngylling fylgir.
VííMtf'.h XítvKlaniM
Leóuriójan ehf. Brautarholti 4, sími 561 - 0060
Út um helgina
British Airways
Hið rótgróna flugfélag British
Airways hóf flug til Keflavíkur
nú í vikunni og eykur það
á samkeppni á markaðnum.
Hægt er að skrá sig í flugklúbb
British Airways til morgun-
dagsins og njóta helmingsaf-
sláttar af flugmiðum á milli
Keflavíkur og Lundúna. Verð
á miðum aðra leið er frá 6.073
kr. Einnig býður þessi aðild
félögum upp á 20% afslátt af
hótelgistingu í borginni. Frekari
upplýsingar á www.ba.com
SAS
Skandinavíska flugfélagið SAS
hóf einnig flug nú í vikunni
á milli Keflavíkur og Osló.
Þaðan má fljúga áfram til
margra áfangastaða í Noregi
og getur verðið á innanland-
smiðum verið ffá um fimm
þúsund krónum. Ef farið væri
í helgarferð nú á föstudag til
mánudags kostar fargjaldið
33.580 - lægsta mögulega
fargjald í slíka ferð er almennt
18.180 kr. en þau eru uppseld
fyrir þessa helgina. Frekari upp-
lýsingar um áfangastaði SAS í
Noregi er að finna á www.flysas.
is eða í þjónustusíma 588-3600.
Icelandair
Á vef Icelandair er að
finna fjöldamörg tilboð á
ferðum viða um heiminn.
Berlín frá 23.900 með sköttum
Ferðatímabil til loka október.
Sölutímabil til og með 2. apríl.
London frá 19.900 með
sköttum
Ferðatímabil 1. maí - 31. ágúst.
Sölutímabil til og með 2. aprfl.
Manchester frá 19.900 með
sköttum
Ferðatímabil til 28. mars 2007.
Sölutímabil til og með 2. aprfl.
Osló frá 22.900 með sköttum
Ferðatímabil til loka september.
Sölutímabil til og með 2. aprfl.
Stokkhólmur frá 22.900 með
sköttum
Ferðatímabil til loka september.
Sölutímabil til og með 2. apríl.
San Francisco frá 39.900 með
sköttum
Ferðatímabil 17. mai -15. júni.
Sölutímabil til og með 7. aprfl
Tilboðsferð til Parísar
Pakkaferð til Parísar 31.
mars - 3. aprfl. Verð á mann í
tvíbýli f 3 nætur kr. 46.900.-
Iceland Express
Hjá Iceland Express er boðið
upp á ódýr flugsæti i Heita pott-
inum og þar gfldir að fylgjast
vel með því þau fara hratt út
eftir að þau eru sett í pottinn.
Sérstök tilboðsverð eru einnig
á 600 flugsætum á 6.000 kr. í
samstarfi Iceland Express og
Spron, e-kortsins.Hægt er að
bóka sæti til 3i.mars en nánari
upplýsingar um tilboðið er
að finna á www.ekort.is.
Fótboltaferð í apríl
Reading - Stoke, VlP-ferð á
39.900 krónur á mann. Frek-
ari upplýsingar er að finna
á www.expressferdir.is.