blaðið - 30.03.2006, Page 2
2 I INNLENDAR FRÉTTIR
FIMMTUDAGUR 30. MARS 2006 blaöiö
daga. Menn virðast hafa tekið við
sér þegar í ljós kom að engar sektir
þurfti að greiða af bókum sem höfðu
verið í láni, jafnvel í mjög langan
tíma,“ segir Ingibjörg.
Hún segir að þrátt fyrir að elsta
bókin hafi verið lánuð út árið 1975
hafi fjölmargar aðrar verið mjög
lengi í útláni.
„Eg tók sjálf á móti eintaki af Sjálf-
stœðu fólki sem hafði verið lánuð
út árið 1982. Ennfremur merkjum
við nýjar bækur sérstaklega og þær
er aðeins hægt að fá í skammtíma-
útlán. Ég tók við eintaki af Óbæri-
legum léttleika tilverunnar sem
fengin hafði verið að láni á þann
hátt árið 1986“
Aðspurð um hvort lánþegar sem
skilað höfðu bókum eftir þetta
langan tíma hafi ekki verið skömm-
ustulegir segir Ingibjörg að svo hafi
verið.
„Jú, sumir voru það, enda eru bæk-
urnar lánaðar út í einn mánuð.“ Hún
bætir við að ávallt sé tekið vel á móti
fólki þrátt fyrir að vanskil hafi varað
í langan tíma. Mestu máli skipti að
bækurnar séu sameign skattborg-
ara í Reykjavík og því mikilvægt að
þeim sé komið til skila.
Bækur sem verið höföu í vanskilum áratugum saman voru meðal þeirra sem skilað var í
skilaviku Borgarbókasafnsins fyrir skemmstu.
Tólf þúsund titlar í vanskilum
Vanskil á bókum er nokkurt vanda-
mál hjá Borgarbókasafni, sem og
öðrum bókasöfnum á landinu. Ingi-
björg segir að um tólf þúsund titlar
séu í vanskilum á hverjum tíma.
Það sé meðal annars ástæðan fyrir
þvi að safnið hafi nú hafið samstarf
við innheimtufyrirtækið Intrum á
Islandi.
„Það var meðal annars ástæðan
fyrir skilavikunni, þ.e. að gefa fólki
tækifæri til að skila inn bókum áður
en sá samningur tæki gildi. Ég vil
samt taka fram að þrátt fyrir að
gerður hafi verið samningur við
Intrum þá gerum við sjálf nokkrar
tilraunir til að fá bókum skilað áður
en málið er sent til Intrum. Því má
gera ráð fyrir að nokkrir mánuðir
líði milli þess að bók er komin í van-
skil þar til lánþegi fær innheimtu-
bréf frá Intrum,“ segir Ingibjörg.
O Heiöskirt (3 LéHskýjað Skýjað 0 fllskýjaö mgnlng, lltllsháttar ffj Rlgnlng 1 5 Súld * 'Í' Sniókoma
*
Slydda Snjóél
Skúr
Fjöldi ófaglærðra starfsmanna Hrafnistu í Reykjavik
greip til þess ráðs að fara í setuverkfall í gær. Starfs-
mennirnir, sem allir fá mánaðarlegan launaseðil sinn
frá ríkinu, söfnuðust saman í anddyri dvalarheimilis-
ins um hádegi til að ræða þá staðreynd að starfsmenn
sveitarfélaga sem vinna sömu störf fá mun hærri laun.
Að sögn Álfheiðar Bjarnadóttur, sem fer fyrir
hópnum, var reynt að haga setuverkfallinu þannig að
það kæmi sem minnst niður á vistmönnum, sem hún
segir að standi fullkomlega með starfsmönnum.
„Það verður borinn fram léttur hádegisverður og við
hjálpum fólki með að sinna grunnþörfum/ sagði Álf-
heiður sem bætti við að engin viðbrögð hefðu borist
frá yfirvöldum vegna aðgerðanna.
Starfsmenn á Hrafnistu í Hafnarfirði, Vílfsstöðum
og Víðinesi, sem og dvalarheimilunum Grund, Ás í
Hveragerði, Sunnuhlíð og Skógarbæ stóðu fyrir sam-
bærilegum aðgerðum í gær.
Algarve
Amsterdam
Barcelona
Berlín
Chicago
Dublin
Frankfurt
Glasgow
Hamborg
Helsinki
Kaupmannahöfn
London
Madrid
Mallorka
Montreal
New York
Orlando
Osló
París
Stokkhólmur
Vín
Þórshöfn
18
11
21
12
06
11
11
09
09
01
05
13
19
17
02
05
16
06
13
02
15
04
„Setuverkfall"
Æt-
.-2”
*
Veðurhorfur í dag kl: 15.00
Veðursíminn 902 0600
*
Á morgun
*
*
30* *
*
0
-3
Allar Teknos vörur eru framleíddar skv. IS0 9001 gæðastaöli.
“ÍSLANDS MÁLNING
Sætúni 4/Sími 5171500
Blaðið/Fríkki
Tveir á sjúkra-
hús í kjölfar
drykkjukeppni
mbl.is | Lögreglan á Sauðárkróki
hefur nú til rannsóknar mál er teng-
ist drykkjukeppni sem fram fór
á vínveitingastaðnum Bar-Inn sl.
laugardagskvöld. Tveir voru fluttir
á sjúkrahús með áfengiseitrun, að
því er talið er.
Að sögn Björns Mikaelssonar, yf-
irlögregluþjóns í bænum, var svo-
kölluð skotkeppni auglýst í blaðinu
Sjónarhorni í síðustu viku sem fór
svo fram á öldurhúsinu síðasta laug-
ardagskvöld. Frásagnir herma að
ungmenni undir tvítugu hafi tekið
þátt í keppninni en að sögn Björns
er um óstaðfestar sögusagnir að
ræða. Aðspurður segir Björn engar
kærur hafa borist vegna málsins
sem er í rannsókn.
Björn segir að lögreglan heim-
sæki reglulega vínveitingastaði bæj-
arins, en þeir eru þrír. Hann segir
að komið hafi fyrir að lögreglan hafi
verið kölluð til þess að vísa fólki út
en slíkt sé hins vegar afar fátítt.
Er kvíðinn að fara með þig?
IZhena's Gypsy Tea
gæti komið að gagni
Rasberry Earl Grey
Sölustaðir
Bakarameistarinn, Bernhöfts-bakarí,
Breiðholtsbakarí, Fjarðarkaup, Gjafir
Jarðar, Hjá Jóa Fel, Kaffi Hljomalind,
Kaffi Berg, LaVida, Maður Lifandi,
Melabúðin, Ostabúðin, Yggdrasill,
Kaffi Rós á Akureyri.
Englatár - www.englatar.is - 551 8686
/ Útimálning
/ Viðarvörn
/ Lakkmálning
/ Þakmálning
/ Gólfmálning
/ Gluggamálning
Innímálníng Gljástig 3,7,20
/ Verð frá kr. 298 pr.ltr.
^ Gæða málning á frábæru verði
Misnotuðu mark-
aðsráðandi stöðu
Flugþjónustan á Keflavíkurflugvelli
(IGS), sem er dótturfélag FL Group,
misnotaði markaðsráðandi stöðu
sína við afgreiðslu farþegaflugvéla.
Þetta er mat Samkeppniseftirlitsins
sem telur rétt að sekta fyrirtækið
um 80 milljónir króna vegna brota
sinna.
I úrskurðinum segir að fyrirtækið
hafi brotið samkepnislög þegar það
gerði 10 einkakaupssamningavið flug-
félög sem lenda á Keflavíkurflugveli.
IGS hefur um 95% markaðshlut-
deild við afgreiðslu á farþegaflug-
vélum við Flugstöð Leifs Eiríkssonar,
en fyrirtækið hafði einkaleyfi á af-
greiðslunni allt fram til ársins 2001
þegar félagið Vallarvinir hóf rekstur
og þar með samkeppni.
Flugfélagið LTU gekk til viðskipta
við Vallarvini árið 2001 en það hafði
áður verið í viðskiptum við IGS.
„Snemma ársins 2004 snéri IGS
sér til LTU, sem var þá í samnings-
bundnum viðskiptum við Vallarvini.
IGS gerði LTU tilboð um allmikla
lækkun frá því verði sem flugfélagið
greiddi Vallarvinum. Verðtilboð IGS
var lægra en það sem Vallarvinir
treystu sér til að bjóða.
Það er niðurstaða Samkeppniseft-
irlitsins að ekki hafi verið rekstrar-
legar forsendur hjá IGS fyrir því verð-
tilboði sem félagið gerði LTU,“
Með bók að láni í yfir þijátíu ár
Bók sem lánuð hafði verið út árið
1975 var meðal þeirra sem skilað
var í svokallaðri skilaviku Borgar-
bókasafnsins sem nýlega er lokið.
Fjölmargar bækur sem höfðu verið
í óskilum árum saman komust þar
aftur í réttar hendur.
Einstaklingurinn sem hafði áður-
nefnda bók að láni í rúm þrjátíu ár
hefði vart orðið gjaldþrota þó hann
hefði þurft að greiða vanskilasekt af
henni, þar sem hámarkssekt vegna
vanskila hjá Borgarbókasafninu
nemur aðeins 400 krónum.
„Við renndum blint í sjóinn með
þessa skilaviku. Við áttum von á
því að fá góð viðbrögð og einfald-
lega vonuðum að lánþegar tækju við
sér af þessu tilefni/ segir Ingibjörg
Rögnvaldsdóttir, verkefnisstjóri hjá
Borgarbókasafni.
Sameign sem mikilvægt er að skila
„Það var brjálað að gera, reyndar svo
mjög að við lengdum vikuna í tíu
blaðið=
Bæjarlind 14-16,201 Kópavogur
Sími: 510 3700 • www.vbl.is
FRÉTTASÍMI:
51Q 3799
netfang: frettir@ bladid.net
AUGLÝSINGADEILD:
510 3744
netfang: auglysingar@bladid.net