blaðið - 30.03.2006, Side 4

blaðið - 30.03.2006, Side 4
PiÁ/fberð fervriÍYi%CMr%jafvt'v\xxi' hjá/crkkur <30 Gullsmilía Óla í SMÁRALIND / Logið að lög- reglunni í Hafnarfirði mbl.is | Tilkynnt var um slys í grunnskóla í Hafnarfirði í gær. Tilkynningin hljómaði á þann veg að unglingur hefði fallið ofan af þaki skólans og voru sjúkra- og lögreglubílar sendir á staðinn með forgangi. í ljós kom að um gabb var að ræða af hálfu einhverra nemenda í skólanum. Aðalvarðstjóri lögreglunnar í Hafnarfirði segir málið litið al- varlegum augum og að nokkrir nemenda hafi verið teknir tali vegna þess. Lögreglan viti úr hvaða farsíma var hringt en ung- mennin séu ósakhæf vegna ald- urs. Nemendur hafi ekki viljað kannast við gabbið en mikill viðbúnaður hafi verið viðhafður vegna þess. Husgagna wuraigi Bæjarlind 16 - Kópavogi S: 517 6770 Dýnur með stillanlegri mýkt. Mýktinni breytt hvenær sem er með einum takka. Hún með mjúka & hann með harða, samt sama dýnan. Nuddstólar frá Góður nuddstóll frábær eftir erfiðan vinnudag 3 gerðir & nokkrir litir Besta verðið Ótrúlega margir litir Stærsta litla búðin á íslandi Yfir 10.000 möguleikar 4 I INNLENDAR FRÉTTIR FIMMTUDAGUR 30. MARS 2006 blaöiö Ekkert óeðlilegt við sölu Búnaðarbanka í gögnum málsins Ríkisendurskoðun telur ekkert nýtt hafa komið fram um kaup S-hópsins og þýska bankans á Búnaðarbankanum árið 2003 . Ríkisendurskoðun telur ekkert nýtt hafa komið fram um kaup S-hóps- ins á Búnaðarbankanum og hefur fyrir sitt leyti lokið rannsókn á því hvort kaupendurnir hafi beitt blekkingum við kaupin, eins og Vilhjálmur Bjarnason, aðjúnkt við Háskóla Islands, hefur haldið fram. Þetta kemur fram í samantekt Rík- isendurskoðunar til formanns fjár- laganefndar Alþingis, sem gerð var opinber í gær. Árið 2003 seldi íslenska ríkið 45,8% hlut sinn í Búnaðarbankanum og var eftir nokkra athugun gengið til samninga við S-hópinn svokallaða, en hann hefur nokkur söguleg tengsl við Framsóknarflokkinn. S-hópur- inn samanstóð af fjórum félögum: Vátryggingarfélagi Islands, Sam- vinnulífeyrissjóðnum, Eignarhalds- félaginu Samvinnutryggingum og Eglu hf., sem þýski bankinn Hauck & Aufháuser átti helming i, en nær- vera hans þótti skipta sköpum um að S-hópurinn varð fyrir valinu. Vilhjálmur hefur hins vegar haldið því fram að engin merki virðist vera um að þýskur banki hafi í raun átt eignarhlut í Eglu sem tók þátt í að kaupa Búnaðarbankann á sínum tíma og lagði fram gögn máli sinu til stuðnings. Ríkisendurskoðun fór yfir þau gögn og fékk m.a. álit Stefáns Svav- arssonar, löggilts endurskoðanda og dósents við Háskólann í Reykjavík, á því hvort hægt væri að fullyrða að þýski bankinn hafi í raun ekki fjárfest í Eglu hf„ heldur aðeins ljáð nafn sitt um hríð. Stefán álítur að ekki sé hægt að fullyrða það út frá gögnum málsins, en að þess sjáist þó ekki heldur merki með beinum hætti í reikningsskilum bankans að fjárfest hafi verið í Eglu, enda sé það ekki skylt. Þá kom fram í skýrslu Ríkisendurskoðunar að þýski bank- inn sjálfur og KPMG í Þýskalandi, endurskoðandi hans, hafi staðfest að hluturinn í Eglu hafi verið færður í bókhaldi bankans í samræmi við þýsk lög og reglur. I skýrslu Ríkisendurskoðunar segir að gögnin sem aflað hefur verið tali sínu máli og óþarfi sé að skýra þau nánar. Telur stofnunin því að ekkert nýtt hafi verið lagt fram í málinu, sem stutt geti víð- tækar ályktanir Vilhjálms, þvert á móti er álit hennar að óyggjandi upplýsingar og gögn liggi fyrir um hið gagnstæða. Börn og sorg Fræðslufundur í Bústaðakirkju (neðri hæð) í kvöld 30. mars kl. 20-22. Fyrirlesari Páil Eiríksson, geðlæknir. Munið „Opið hús“ 6. apríl. Allir velkomnir! NÝDÖGUN Samtök um sorg og sorgarviðbrögð Er ferming, afmæli, brúðkeitip eða veisla framundan... iiiiiiiiin Mikift úrval af ómótstæðilegum eftirréttum. Kíktu á okkur á sýningunni MATUR 2006 í Fffunni, Kópavogi um helgina, 1. og 2. apríl. DANCÖ HEILDVEMSLUN Sfmi: 575 0200 - Melabraut 19 - Hafnarfirði - www.danco.is Mikið gengur á við undirbúning sýninganna Matur 2006 og Ferðatorg 2006 sem standa munu yfir um helgina í Fífunni í Kópavogi. Á meðal viðburða er æsispenn- andi keppni í uppvaski þar sem 14 keppendur hafa skráð sig til leiks. Keppnin mun fara fram á föstudag og má búast við miklum atgangi við uppvaskið. Fleiri koma í Kvennaathvarfið Aldrei hafa fleiri konur leitað til Kvennaathvarfsins en á síðasta ári. I ársskýrslu athvarfsins, sem birt var í gær, kemur fram að skráðar komur hafi verið 557 talsins. Þar sem margar konur koma hins vegar oft f viðtöl eða dvalir standa 283 konur að baki þessum heimsóknum. Bakvið þessa tölu standa 465 stuðn- ingsviðtöl og 92 dvalir. Þeim konum sem komu í dvöl fylgdu síðan til við- bótar 76 börn. Þetta er nokkuð meira en árið áður þegar 531 koma var skráð til Kvennaathvarfsins en árið 2003 voru þær 388. Þörf á rannsóknum „Sláandi aukning er í öllum þáttum ofbeldis, hvort sem litið er til of- sókna, andlegs-, líkamlegs- eða kynferðislegs ofbeldis. Erfitt er að greina ástæður þessa, hugsanlega er að heimilisofbeldi sé alvarlegra vandamál nú en áður þó vissulega geti verið að umræðan hafi skilað aukinni þekkingu á ofbeldi og birt- ingamyndum þess meðal kvenna sem sækja athvarfið. Enn og aftur kemur í ljós þörfin á rannsóknum hér á landi um kynbundið ofbeldi," segir meðal annars í ársskýrslu Kvennaathvarfsins. Pylsubarínn LaugardaT'

x

blaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.