blaðið - 30.03.2006, Blaðsíða 8

blaðið - 30.03.2006, Blaðsíða 8
8 I ERLENDAR FRÉTTIR FIMMTUDAGUR 30. MARS 2006 blaöið Geimskot undirbúið Rússneskur hermaður fylgist með er Soyuz-eldflaug af gerðinni TMA-8 er flutt í átt að skotpallinum í Baikonur-geimferðamiðstöðinni í Mið-Asíuríkinu Kazakhstan. Aformað er að geimflauginni verði skotið á loft í dag, fimmtudag. Um borð verða þrír geimfarar, Bandaríkjamaðurinn Geoffrey Williams, Rússinn Pavel Vínogradov og Brasilíumaðurinn Marcos Pontes. Verður hann fyrsti geimfari Brasilíumanna. Pontes hefur boðað að hann taki með sér treyju knattspyrnulandsliðsins til að tryggja gott gengi þess á HM. Ferðinni er heitið til Alþjóðlegu geimstöðvarinnar. Piparsésa... ... jpecjár virdmr (nvítn! Tilv sjav |//n köld út á kjötiö, í fiskrétti, með reyktum silungi og fangi. Góð með köldum, steiktum lunda og sem ídýfa. ■■■ # VOGABÆR Frábær köld úr dósinni eða hituö upp, með lambakjöti, nautakjöti, fiski eða kjúklingaréttum i ofni. Blóði drifnum ferli lokið Stríðsglœpamaðurinn Charles Taylor loksins handsamaður. Charles Taylor, fyrrum forseti Lí- beríu, var handsamaður af níger- ískum yfirvöldum í gær er hann reyndi að flýja land í kjölfar þess að stjórnvöld í Lagos lýstu því yfir að þau myndu heimila framsal hans. Taylor, sem hafði verið leitað síðan á mánudag, var handtekinn rétt áður en forseti landsins, Olesegun Obasanjo, flaug til Bandaríkjanna til fundar við George Bush, forseta. Taylor hefur verið í útlegð í Nígeríu frá árinu 2003 en hann er eftir- lýstur í heimalandi sínu, nágranna- ríkinu Sierra Leone og af Samein- uðu þjóðunum fyrir stríðsglæpi og glæpi gegn mannkyni. Nígerísk yfirvöld sendu Taylor með flugi til Líberíu umsvifalaust en lítill áhugi virðist hjá stjórn- völdum á því að réttað verði yfir honum í landinu. Óttast þau að vera hans gæti ógnað stöðugleik- anum í Líberíu. Líklegt þykir að friðargæsluliðar á vegum Samein- uðu þjóðanna taki við Taylor á flug- vellinum í Monróvíu, höfuðborg landsins, og flytji hann þaðan til Sierra Leone. Þar bíða hans réttar- höld á vegum stríðsglæpadómstóls Sameinuðu þjóðanna. Ævintýralegur ferill Taylor fæddist í Líberíu árið 1948. Hann sótti framhaldsnám til Bandaríkjanna en snéri aftur til heimalandsins eftir valdarán Samúels Doe árið 1980. Taylor fékk vinnu hjá hinum nýja valdhafa og sá um að veita fé til almannaþjón- ustu. Hann féll síðar í ónáð hjá vald- höfum eftir að Doe sakaði hann um Reuters Charles Tayior fær nægan tíma til aö láta hugan reika á næstunni að hafa dregið að sér eina milljón dollara úr ríkissjóði. Taylor flúði til Bandaríkjanna þar sem hann var handtekinn að kröfu líberískra stjórnvalda. Hann var settur í varð- hald í Plymouth í Massacussetts- rílci. Árið 1985 náði Taylor ásamt þremur föngum að flýja með því að saga í sundur rimla í fangaklef- anum. Það að hinir fangarnir náð- ust strax en Taylor komst úr landi þykir benda til þess að bandarísk stjórnvöld hafi gert hann út til þess að hefja uppreisn gegn herstjórn Samúel Doe, en þegar líða tók á ní- unda áratuginn voru stjórnvöld í Washington tekin að hafa áhyggjur af ógnarstjórn hans. Taylor hóf uppreisn gegn Doe árið 1989 ásamt bandamanni sínum, Prins Johnson. Talið er að hann hafi fengið þjálfun og stuðn- ing frá Mouhammed Gaddafi, forseta Líbýu. Ári síðar var Doe flæmdur af valdastóli og pyntaður til dauða af mönnun Johnsons. Uppreisnarmenn Taylors náðu völdum í flestum héruðum Líberíu í kjölfarið en liðsmenn Johnsons náðu höfuðborginni á sitt vald. I kjölfarið snérust þeir Taylor og Johnson gegn hvor öðrum. Næstu árin börðust liðsmenn þeirra um yfirráð í landinu, sem er auðugt af ýmsum hráefnum og eðalmálum eins og gúmmí, járni og demöntum. Borgarastríðið, sem snérist fyrst og fremst um að auðsöfnun stríðsherra, breiddist út til nágrannaríkisins Sierra Le- one. Taylor vopnaði byltingamenn í Sierra Leone, sem báru ábyrgð á hroðalegum grimmdarverkum og notuðu börn til hernaðar, með því að nota hagnað af demantasölu til vopnakaupa. Óeirðirnar á svæð- inu sem má rekja til valdabaráttu Taylor og Johnsons kostaði tugþús- undir manna lífið. Eftir að Taylor hafði tryggt völd sín í Líberíu var hann kosinn for- seti landsins með 75% atkvæða. Al- þjóðastofnanir staðfestu lögmæti kosninganna en stuðningurinn við Taylor kann að hafa skýrst af því að hann hótaði nýju borgara- stríði næði hann ekki kjöri. Árið 1999 hófst bylting gegn forsetanum í Líberíu og loks var hann hrakinn frá völdum árið 2003. Charles Taylor er þrígiftur og á fjöldann allan af börnum. Helsta áhugamál hans er borðtennis. Við eigum afmæli! Við blásum á kerti fyrir hvert ár sem við höfum verið hér í Kópa- vogi. Þessi tími hefur einkennst af Ijúfri sambúð og ánægju- legum samskiptum við viðskiptavini okkar og Kópavogsbúa alla. Við hlökkum til næstu 50 ára! Starfsfólk SPK aspk X 50 ár i Kópavogl

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.